Morgunblaðið - 07.02.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
STYÐUR NÝJA ÁLYKTUN
George W. Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gærkvöldi að Banda-
ríkjastjórn myndi styðja að örygg-
isráð SÞ afgreiddi nýja ályktun um
Íraksmál, en aðeins að því tilskildu
að Írakar afvopnuðust sannanlega í
kjölfarið. Þykja þessi orð Bush sæta
tíðindum.
Fær tveggja ára dóm
Árni Johnsen, fyrrverandi alþing-
ismaður, var í Hæstarétti í gær
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir
fjárdrátt, rangar skýrslur til yf-
irvalda, mútuþægni og umboðssvik í
opinberu starfi. Refsingin er níu
mánuðum þyngri en Árni hlaut í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Styrkja skjálftarannsóknir
Alþjóðlegu verkefni um Suður-
landsskjálftana sem riðu yfir sum-
arið 2000 verður hleypt af stokk-
unum í Reykjavík síðar í þessum
mánuði. Þá er von á 25–30 innlend-
um og erlendum vísindamönnum á
upphafsfund verkefnisins. Verkefn-
inu verður stýrt af Íslendingum og
hefur ESB ákveðið að styrkja verk-
efnið um 90 milljónir króna.
Kvoðubútur ekki orsökin
Bandaríska geimvísindastofnunin
(NASA) telur ekki að kvoðubútur,
sem lenti á vinstri væng geimferj-
unnar Kólumbíu stuttu eftir flugtak,
hafi valdið því að ferjan fórst með
sjö manna áhöfn á laugardag. Rann-
sókn á slysinu beinist nú að öðrum
hugsanlegum skýringum, svo sem
árekstri við geimrusl, hlut frá öðru
geimfari, sprengingu í lending-
arbúnaði eða einhvers konar galla á
vinstri væng ferjunnar.
Vill kaupa jarðir í Mýrdal
Svissneskur fiskræktandi vill
kaupa jarðir í Heiðardal í Mýrdal og
taka Heiðarvatn og Vatnsá á leigu.
Samningarnir munu vera langt
komnir, en verði af kaupunum mun
Svisslendingurinn eignast 25% rétt-
inda í Vatnsá og Kerlingadalsá og
eignast helming í Heiðarvatni.
MR taki á sig tap
Búnaðarbanki Íslands hefur gert
kröfu um að Mjólkurfélag Reykja-
víkur (MR) taki á sig kostnað sem
féll á bankann vegna sölu á Fóð-
urblöndunni hf. Mun vera um veru-
legar fjárhæðir að ræða.
F Ö S T U D A G U R 7 . F E B R Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B
LITLI NEYTANDINN/2 SJÖ HÖNNUNARVERÐLAUN FÍT/4
SANNLEIKURINN SAGNA BESTUR? – AÐ SEGJA EÐA EKKI SEGJA/6
LÍKAMSRÆKT OG MANNGERÐIRNAR/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
ÞRÓUNIN í fjarskiptum tekur á sigmargvíslegar myndir. Eitt nýjasta af-brigðið, a.m.k. hérlendis, er bók-
staflegt spjall á PoppTíví, sem líður áfram á
um fjórðungi skjásins frá klukkan ellefu á
kvöldin til sjö á morgnana. Á sama tíma og
með sama hætti er líka lagakosning í beinni,
en þannig geta áhorfendur haft áhrif á hvaða
tónlist er leikin á sjónvarpsrásinni.
Þátttakendur verða að eiga eða hafa að-
gang að gsm-síma. Í fyrsta skipti senda þeir
inn sms-forskeytið POPP NAFN í þjónustu-
númer 1848 hjá Símanum eða í 1415 hjá Tali.
Síðan nafnið, sem þeir kjósa að
nota í spjallinu, þá sms-
forskeytið POPP SPJALL og
loks skilaboðin, sem birtast eiga
á skjánum. Ef þeir ætla að kjósa
lag, senda þeir inn forskeytið
POPP LAG og síðan númer lags-
ins, sem þeir finna á sjónvarpsskjánum. Sé
síminn frá Íslandssíma þarf að fara inn í
gluggann NÝTT og viðhafa að öðru leyti
sams konar aðferðir.
Að sögn Steins Kára Ragnarssonar, dag-
skrárstjóra PoppTíví, er svona útfærsla vel
þekkt erlendis og allmargar sjónvarps-
stöðvar reknar eingöngu með þessu sniði, en
líka margar sem, eins og PoppTíví, bjóða upp
á sms á skjánum utan hefðbundinnar dag-
skrár. Hann segir hugmyndina runna undan
rifjum forvera síns í starfi, Björns Þóris Sig-
urðssonar, sem nú er dagskrárstjóri á Stöð 2.
„Upphaflega snerist hugmyndin um að
gefa fólki kost á að spjalla á skjánum í gegn-
um irkið, en síðan duttum við niður á þessa
lausn, sem er í margan stað mun betri vegna
þess að miklu fleiri af okkar markhópi hafa
beinan aðgang/afnot af gsm-síma en irkinu,“
segir Steinn Kári og upplýsir jafnframt að
hvert skeyti kosti 59 krónur. Ennfremur að
yfir tíu þúsund manns hafi náð sér í notanda-
nafn frá því útsendingar skilaboðanna hófust
í desember síðastliðnum, en flestir þeirra,
eða um 85%, taki þátt í lagavalinu.
„Mismunandi er hversu margir virkir þátt-
takendur eru hverju sinni, en flestir eru um
helgar. Oft má ráða í aldur notenda af orða-
lagi og inntaki skilaboðanna. Framan af
nóttu eru unglingar, en þegar á líður kemur
oft inn eldra fólk í stefnumótahugleiðingum.
Þar sem ekki er hægt að senda
lengra skeyti, en sem nemur 160
slögum, samanstendur málfar
unglinganna af skammstöfunum
og er mörgum með öllu óskilj-
anlegt. Geðveikt verður gegt,
maður verður mar, gerðu það
(please) verður plz, þetta verður teta og þar
fram eftir götunum,“ nefnir Steinn Kári sem
dæmi.
Hann viðurkennir að brögð séu að því að
fólk reyni að læða inn alls konar dónaskap.
Verði menn uppvísir að slíku eða að birta
símanúmer á skjánum, séu þeir umsvifalaust
settir í bann og eigi ekki kost á að gerast
þátttakendur á nýjan leik.
„Við viljum losna við allt svona rugl. Til
þess að sporna við ljótu orðbragði, birtingu
símanúmera og þvíumlíku hefur verið sett
upp orðsía, sem nú inniheldur 300 orð og
verður æ umfangsmeiri,“ segir Steinn Kári.
Hann neitar því ekki að að nokkur alvarleg
tilvik hafi komið upp. Til dæmis hafi eitt sinn
verið skilaboð um sölu á „grasi“ og komið
hafi fyrir að annað hafi verið boðið falt, sem
hvorki má selja né kaupa með lög-
legum hætti. Í slíkum tilfellum segir
hann að brugðist sé hart við og ekki
hikað við að tilkynna lögreglunni
símanúmer viðkomandi.
„Við leggjum áherslu á að byggja
upp öflugt varnarkerfi gegn ósæmi-
legum skilaboðum og förum á
hverjum morgni yfir skilaboð næturinnar til að
fyrirbyggja að viss orð og orðtök nái aftur í
gegn,“ segir Steinn Kári og heldur áfram: „Vand-
inn er sá að unga fólkið er snjallt að finna leiðir til
að sneiða hjá orðsíunni. Þegar hún stoppaði síma-
númerin af, brugðu sumir á það ráð að setja
punkt á milli tölustafanna. Ég get tekið sem dæmi
að ef orðið rass færi í orðsíuna er allt eins líklegt
að fólk færi að skrifa rasss, þ.e. með þremur ess-
um, ef því fyndist alveg bráðnauðsynlegt að nota
þetta orð. Við verðum því stöðugt að vera á varð-
bergi og bregðast við lymskubrögðum af þessu
tagi,“ segir Steinn Kári.
Yfir tíu þúsund
manns hafa náð
sér í notendanafn
til þess að geta
„essemmessast“
eða tekið þátt í
lagakosningu á
PoppTíví.
Bókstaflegtspjall
Essemmessast
„gegt“
á skjánum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
í sjónvarpi
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 13/14 Minningar 47/51
Erlent 15/17 Bréf 40
Höfuðborgin 18 Kirkjustarf 41
Akureyri 19 Staksteinar 42
Suðurnes 20 Dagbók 42
Landið 20/21 Sport 44/46
Listir 22/23 Leikhús 48
Umræðan 24/26 Fólk 48/53
Skák 27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Þjónustaf 31 Veður 55
* * *
á sunnudaginn
Morgunblaðið/Kristinn
V-dagurinn er haldinn hátíðlegur hér á landi öðru
sinni næsta föstudag. Ragnhildur Sverrisdóttir
fjallar um baráttuna gegn kynferðisbrotum.
Virðulegar frúr á síðkjólum, kjólfataklæddir karlar,
allur salurinn ætlaði bókstaflega af göflunum að
ganga eftir frumsýningu á Macbeth liðna helgi.
Anna G. Ólafsdóttir ræddi við Elínu Ósk Ósk-
arsdóttur um æskuna, sönginn og lafði Macbeth.
V-dagurinn
Lafði Macbeth
Miklar sviptingar hafa verið í kringum Bún-
aðarbankann að undanförnu sem m.a. leiddu til
þess að Kauphöllin beitti bankann févíti fyrir að
flagga ekki samningi sem gerður var. Haraldur
Johannessen ræðir við bankastjórana Árna Tóm-
asson og Sólon Sigurðsson.
Tvíeykið í Búnaðarbankanum
HARALDUR Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að ákvörðun um að
leggja niður Almannavarnir ríkisins
og færa verkefni stofnunarinnar til
ríkislögreglustjóra hafi verið kynnt
honum í júní í fyrra. Upplýsingar um
það hafi hann fengið frá dómsmála-
ráðuneytinu. Hann hafi fengið frum-
varp ráðherra til skoðunar og gert
athugasemdir við það áður en það
var kynnt Alþingi. Málið kom til um-
ræðu á Alþingi í gær.
Hann segir að eðli málsins sam-
kvæmt kom ríkislögreglustjóri ekk-
ert að þessari ákvörðun. Þetta sé
ákvörðun sem tekin sé af dómsmála-
ráðherra og ríkisstjórn. Eftir að
ákvörðunin hafi verið kynnt honum
hafi hann og starfsmenn embættis-
ins unnið að undirbúningi þeirra
breytinga sem lagafrumvarpið geri
ráð fyrir, í samráði við dómsmála-
ráðuneytið og dómsmálaráðherra.
„Ég gerði allsherjarnefnd grein
fyrir þessu að því gefna tilefni að það
hafði verið umræða í þinginu, þá af
stjórnarandstöðunni ef ég man rétt, í
þá veru að hér væri á ferðinni enn
eitt verkefnið sem ætti að færa undir
embætti ríkislögreglustjóra sem
þegar hefði „blásið“ nógu mikið út að
þeirra mati. Þess vegna þótti mér
ástæða til að benda á það í þessari
umsögn, að þessi skipulagsbreyting
á almannavörnum í landinu væri
ekki að undirlagi ríkislögreglustjóra,
ég væri ekki að ásælast þetta verk-
efni.“
Haraldur segist hafa gert allsherj-
arnefnd grein fyrir þessu, bæði í um-
sögninni en aðallega á fundi nefnd-
arinnar fyrir nokkrum dögum. Hann
segir að bent hafi verið á, bæði í um-
sögninni og í viðræðum við nefndina,
að það væru ýmis skipulagsatriði
sem þyrfti að huga að. Að öðru leyti
hefði umsögn ríkislögreglustjóra
verið jákvæð.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri
Ráðuneytið kynnti skipu-
lagsbreytingar í júní
verðið 4.600 kr. og þar af er hluti
sjúklings 3.940 kr. en hluti sjúkra-
tryggingar 660 kr.
Samkvæmt lögum hafa augn-
læknar einir réttindi til að gera
sjónlagsmælingar vegna gleraugna
en síðan á mánudag hafa sjóntækja-
fræðingar boðið upp á þessa þjón-
ustu og taka þeir frá 1.500 til 3.000
GJALD fyrir sjónlagsmælingu
vegna gleraugna, þar með talið við-
tal og skoðun, er 3.800 krónur hjá
augnlækni, samkvæmt verðskrá
Tryggingastofnunar ríkisins frá 15.
janúar sl., og þar af greiðir sjúkling-
ur 3.620 kr. en hlutur sjúkratrygg-
ingar er 180 kr. Fari jafnframt fram
augnþrýstingsmæling er heildar-
krónur fyrir hana, eins og haft var
eftir Kristni Kristinssyni sjóntækja-
fræðingi í Morgunblaðinu á mið-
vikudag.
Í vinnureglum augnlækna vegna
sjónlagsmælinga frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu árið 1996
kemur fram að skrifi augnlæknir til-
vísun á gleraugu greiði sjúklingur á
aldrinum 16 til 70 ára fullt gjald fyr-
ir sjónlagsmælingu en hafa beri í
huga frávik vegna fólks á aldrinum
67 til 70 ára, sem framvísi korti sem
veiti því rétt til lægri greiðslna.
Einnig segir að leiti sjúklingur til
augnlæknis vegna gleraugna, en
rannsókn leiði í ljós að ekki sé þörf á
að breyta þeim, greiði sjúklingur að
fullu fyrir sjónlagsmælinguna.
Í þriðja lagi er tekið fram að í öll-
um öðrum tilvikum þegar þessi
rannsókn sé gerð vegna greiningar
og/eða eftirlits á sjúkdómum taki
Tryggingastofnun þátt í greiðslu
samkvæmt hlutfallsreglum.
Ennfremur er þess getið að þegar
sjúklingur á ofangreindum aldri
framvísi afsláttarkorti skuli honum í
öllum tilvikum veittur afsláttur í
samræmi við reglugerð og Trygg-
ingastofnun sendur reikningur fyrir
mismuninum. „Allur útlagður kostn-
aður sjúklings (einnig vegna gler-
augnarecepts) vegna ofangreindra
atriða er jafngildur til að uppfylla
skilyrði til að ná þaki skv. reglugerð
og fá afhent afsláttarkort frá sjúkra-
tryggingadeild Tryggingastofnun-
ar,“ segir að lokum í vinnureglun-
um.
Gjald lækna fyrir sjónlags-
mælingu 3.800 krónur
ÍSLENSKA barnamyndin Didda
og dauði kötturinn var frumsýnd
í Keflavík í gær, en hún er gerð
eftir handriti Kristlaugar Maríu
Sigurðardóttur sem jafnframt er
aðalframleiðandi myndarinnar.
Þetta er fyrsta keflvíska bíó-
myndin og jafnframt gerist hún í
Keflavík, er framleidd þar og tek-
in, hljóðunnin á staðnum og graf-
íska hönnunin er í höndum fyr-
irtækis í Keflavík. Einar Orri
Einarsson og Davíð Már Gunn-
arsson eru prakkarar í myndinni
sem lenda í vanda, en hér eru
þeir með bæjarstjóranum, Árna
Sigfússyni, sem leikur hlutverk
lögregluvarðstjóra í myndinni, og
Kristínu Ósk Gísladóttur, sem fer
með aðalhlutverkið.
Didda og dauði kötturinn
VERÐBREYTINGAR á bensíni
héldu áfram hjá sjálfsafgreiðslu-
stöðvunum í gær, en þjónustustöðv-
arnar héldu að sér höndum.
Eftir að ÓB – Ódýrt bensín hafði
lækkað verðið í 89,20 krónur fyrir
lítrann af 95 oktana bensíni fór Ork-
an niður í 89,10 kr., en fullt þjón-
ustuverð er 98,20 kr. Verð á ESSO
Express stöðvunum er 89,20 kr. fyrir
lítrann, en á sjálfsafgreiðslustöðvum
ESSO er það 91,20 kr. auk þess sem
við bætist 1 kr. Safnkortsafsláttur til
Safnkortshafa af hverjum lítra í
formi punkta. Á bensínstöðvum
Shell og OLÍS er sjálfsafgreiðslu-
verðið 93,20 kr. fyrir 95 oktana bens-
ín.
Þessar lækkanir sjálfsafgreiðslu-
stöðvanna hófust í fyrradag þegar
ÓB tilkynnti um 7 krónu afslátt af
eldsneyti frá fullu verði á þjónustu-
stöðvum og fór lítrinn hjá ÓB af 95
oktana bensíni þá niður í í 91,20 kr.
en kostaði þar áður 93 kr.
Ódýrast hjá
Orkunni
Verðstríð olíufélaganna