Morgunblaðið - 07.02.2003, Page 39

Morgunblaðið - 07.02.2003, Page 39
vekjandi maður, hlédrægur og hafði góða nærveru. Við viljum með þessum fátæklegu orðum þakka honum trausta og góða vináttu sem aldrei bar skugga á. Seinustu mánuðina dvaldi Sigfús á heimili bróður síns og mágkonu, Jóns og Ingu Svövu, og dóttur þeirra Hildar. Þau sýndu honum einstaka umhyggju og gott atlæti, sem hann var mjög þakklátur fyrir. Frá áramótum var Sigfús á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi. Þar naut hann einstakrar hjúkr- unar þar til yfir lauk, og ber að þakka því frábæra starfsfólki, sem þar vinnur. Við sendum systkinum Sigfúsar og öðrum nánustu aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar og Kristín. Látinn er kær frændi minn, Sig- fús Arnar Ólafsson frá Gröf á Höfðaströnd, rétt rúmlega sextug- ur að aldri. Sigfús átti jörðina Gröf og hafði byggt þar nýtt íbúðarhús. Hann ákvað að lagfæra gamla húsið sem byggt var árið 1938 af Ólafi föður hans og Bjarna móðurbróður hans sem bjó í Gröf til 1947, að Ólafur kaupir hlut Bjarna í jörðinni. Við Agnar vorum í sveitinni hjá afa og ömmu og síðar Bjarna og Gunn- laugu til 1945, að fjölskylda okkar flutti til Sauðárkróks. Á þessum ár- um var tvíbýli í Gröf og mikill krakkaskari á báðum heimilunum og mikið um gestagang. Sigfús ólst upp við algeng sveitastörf, sem höfðuðu þó ekki til hans þannig að hann legði búskap fyrir sig. Sigfús var frekar dulur og flíkaði ekki til- finningum sínum, hann var fámáll en traustur og mikill vinur vina sinna. Þegar hann ákvað að lagfæra gamla húsið komu mest að því með honum bræður mínir Gunnar og Agnar, Björn mágur minn, Jón bróðir hans o.fl. Ákveðið var að finna út hverjir í frændgarðinum hefðu áhuga á að dvelja í Gröf að sumarlagi. Kom strax í ljós að fengu færri en vildu. Undanfarin ár hafa frændsystkini hans notið þess að dvelja þar með börnum sínum og barnabörnum við leik og aðstæður sem einstakar eru. Þetta var Sig- fúsi mikils virði og hafði hann mik- inn áhuga á að fylgjast með öllu okkar fólki. Börnin mín undrast fórnfýsi Sigfúsar við uppbyggingu í Gröf, það fáum við sem nutum verka hans seint eða aldrei full- þakkað. Fráfall Sigfúsar kom ekki á óvart. Hann var mikið veikur í sum- ar en var samt í Gröf þegar við vor- um þar og áttum við þá kærar sam- verustundir sem við nú þökkum. Hann var lagður inn á líknar- deild Landspítala milli jóla og nýj- árs. Naut hann þar frábærrar umönnunar. Átti ég þess kost að heimsækja hann nokkrum sinnum og sá þá hve vel er staðið að þjón- ustu á þessari deild. Viðmót starfs- fólks einstaklega ljúft og þægilegt. Oddfellowreglan á Íslandi á sér- stakar þakkir skyldar fyrir að hafa beitt sér fyrir opnun líknardeild- arinnar. Við kveðjum Sigfús með söknuði og eftirsjá. Hann var alltaf í húsinu sínu þann tíma sem við vorum í Gröf, eitthvað að lagfæra og bæta. Við Auður og fjölskylda sendum systkinum Sigfúsar, mökum þeirra og börnum hugheilar samúðar- kveðjur. Sverrir Sveinsson. Þegar ég sest niður til að skrifa kveðjuorð um móðurbróður minn Sigfús Arnar veit ég ekki hvar byrja skal. Hann kom mér fyrir sjónir sem óvenjulegur og mjög fjölhæfur maður og áhugamál hans voru mörg. Líklegt er að ætlast hafi verið til að hann yrði bóndi og tæki við búi föður síns sem hugur hans hefur sjálfsagt staðið til. En eftir að hafa menntað sig í búvís- indum bæði heima og erlendis og starfað við þau í nokkur ár skipti hann um starfsvettvang og nam læknisfræði og lauk því námi hér- lendis og síðan framhaldsnámi er- lendis. Sigfús Arnar var mikill fram- kvæmdamaður en þar að baki voru hugsjónir. Hann starfaði í anda ungmennafélaga og samvinnu- stefnu til ræktunar landi og lýð. En hann var ekki síður aldamótamaður 21. aldar. Hann fylgdist vel með framþróun til dæmis í tölvutækni og skynjaði ný sóknarfæri sem sú tækni bauð upp á. Mér er í fersku minni þegar hann leiddi mig inn í undraheim golf- íþróttarinnar. Það var þegar hann var starfandi á Hólmavík. Þar er góður golfvöllur og grunur minn er að hann hafi átt talsverðan þátt í því að koma honum í það horf. Golf- íþróttin styrkir bæði líkama og sál og eru þeir ófáir sem geta staðfest það. Ég hefði kosið að eiga fleiri sam- verustundir með honum en örlögin hafa nú gripið inn í öllum að óvör- um. Ég og foreldrar mínir þökkum Sigfúsi Arnari fyrir áralanga tryggð og vináttu og biðjum honum blessunar Guðs. Ólafur Þórisson.  Fleiri minningargreinar um Sig- fús Arnar Ólafsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 39 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGVARS JÓNSSONAR, Sæborg, Skagaströnd. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar Blönduósi fyrir góða umönnun. Jón Ingi Ingvarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Árni Björn Ingvarsson, Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, Elínborg Ása Ingvarsdóttir, Guðjón Einarsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Geir Sæmunds-son fæddist á Hjalteyri hinn 23. október 1910. Hann lést á Landspítalan- um 30. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sæmundur Kristjánsson frá Brattavöllum, f. 6.7. 1879, d. 6.3. 1969, og Þorgerður Magnea Konráðsdóttir frá Bragholti, f. 24.11. 1881, d. 25.4. 1974. Bræður Geirs eru Tryggvi, bygginga- meistari á Akureyri, f. 12.5. 1923, d. 17.3. 1991; Ægir, sjómaður á Akureyri, f. 27.8. 1919, d. 14.12. 1985; og Konráð, verslunarmaður, f. 6.3. 1916. Geir giftist Elínu Sveinsdóttur, f. 11.11. 1915, frá Steindyrum á Látraströnd. Börn þeirra eru: 1) Gréta, húsmóðir, f. 19.12. 1939, búsett í Garðabæ. Maður hennar er Þórir H. Jóhannsson prent- myndasmiður. 2) Gylfi, húsgagna- smiður, f. 2.7. 1938, d. 4.1. 1966. Hans kona var Erla Hrönn Ás- mundsdóttir, nú búsett á Akur- eyri. Barnabörn Elínar og Geirs eru sjö og barnabarnabörnin eru orðin 12. Geir stundaði sjómennsku með bræðrum sínum og föður frá ungaaldri. Var hann á síldar- skipum, bátum og trillum og starfaði hann einnig við verk- smiðjuna á Hjalteyri. Eftir að hafa búið um nokkurra ára skeið í Hrísey flytja Elín og Geir til Akureyrar og byggja sér hús við Helgamagrastræti 27 þar sem þau búa til ársins 1998. Geir lærði tré- smíði hjá Adam Magnússyni og starfaði lengstum hjá honum en síðustu starfsár sín vann hann við bátasmíði hjá syni hans, Trausta. Geir var hagleiks- maður á tré og eftir starfslok kom hann sér upp vinnuaðstöðu heima og smíðaði þar marga góða gripi sem ýmist voru seldir eða gefnir. Árið 1998 flytja Elín og Geir til Kópavogs og búa sér nýtt heimili í Gullsmára 7. Þau bjuggu yfirleitt við góða heilsu en sl. tvö ár mörk- uðust af veikindum og erfiðleikum þeim samfara. Elín dvelst nú á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Útför Geirs verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Þetta eru fáar línur á móti 92 ár- um Geirs Sæmundssonar en mér veittust þau forréttindi í lífinu að vera afastrákurinn hans í heil 36 ár. Á fyrstu árum ævi minnar var hann afi sem hélt að mér snjóskófl- unni hvernig sem viðraði, kenndi mér samviskusemi til vinnu og eld- húsið hjá afa og ömmu var rétt eins og í ævintýrasögu strákpollans, heit- ar lummur, rjúkandi kakó og heitur ofn til að þurrka vettlingana eftir snjómokstur sem gamli maðurinn launaði með aurum, rétt til að sýna þeim unga nógu snemma að verð- ugur er verkamaður launanna. Svona man ég hann afa fyrstu árin en tíminn virtist oft standa í stað í eldhúsinu við Helgamagrastræti eða allt uns afi og amma á níræðisaldri, rífa sig upp með rótum, kveðja eina lífið sem þau þekktu og fluttu í Kópavoginn. Ég minnist tilhlökkun- ar þeirra, hár aldur aftraði þeim ekki frá að eignast nýjan eldhús- glugga, nýtt útsýni og nýtt líf. Afi og amma áttu saman heil 65 ár og heimili þeirra einkenndist af gestrisni. Ekki þótti góður siður að koma í heimsókn nema eiga fréttir af mönnum og málefnum á taktein- um, fréttir sem alla tíð voru laun- aðar með veitingum góðum. Heimur afa var kannski ekki stór en þetta var heimurinn hans og hann var heill. Afi var duglegur maður og eftir starfslok átti hann margar stundir við smíðavélina í bílskúrnum við Helgamagrastrætið. Hann var alla tíð hrifinn af tækni og nýjungum, fylgdist vel með fréttum og aðeins viku fyrir andlátið reifaði hann þá hugmynd að það gæti verið sniðugt að fá sér GSM síma og fékk síðan að prófa minn. Hann fagnaði virkjun á Austurlandi og gaf andstæðingum slíkra framkvæmda ekki háa ein- kunn. Já, svona vil ég minnast afa, hann var síungur í anda, hafði skoðanir á öllu mögulegu og það var stutt í húmorinn og glettnina. Hann var kostulegur ferðafélagi, sem kynnti sér skyndibitamenninguna mjög vel sem nauðsynlegan hluta af góðum bíltúr og mikið ofboðslega var gam- an að sjá svipinn á sumu afgreiðslu- fólki þegar sá níræði pantaði ham- borgara, kjúkling eða bara eitthvað „vel djúpsteikt“. Já, hann afi var svo sannarlega þakklátur ferðafélagi og það var notalegt að fá að aka honum síðasta útsýnistúrinn um Hafnar- fjarðarhöfn, rétt eins og hann ók mér minn fyrsta spöl um dokkina á Akureyri. Eftir veikindi fyrir tveimur árum varð óafturkræf breyting á högum þeirra hjóna þegar lífsklukka afa gefur breytingar til kynna. Amma þarf í kjölfarið á mikilli hjúkrun að halda og flytur að lokum á hjúkr- unarheimilið Sunnuhlíð, enn kemur í ljós hvers gamli maðurinn var megnugur. Á þrjóskunni og vilja- styrknum keyrði hann til hennar á hverjum degi og kveðjufundir eftir slíkar heimsóknir voru honum sárir. Kveðjan endurspeglaði öll árin þeirra saman, tryggð afa og ást. Ég dáist að afa fyrir tryggðina sem hann sýndi en engum duldist harm- ur hans og stöðugt barðist hann á móti ellinni. Elsku afi minn. Þakka þér fyrir félagsskap þinn og vináttu. Dags- verk þitt endurspeglar góðan mann sem nú hefur fengið frelsi frá líkama sem var miklu eldri en hugurinn. Þakklátur er ég fyrir að hafa átt með þér síðustu stundina og í minning- unni geymi ég góðan afa sem skildi gott eitt eftir í lífi mínu, alla tíð. Blessuð sé minnig Geirs Sæ- mundssonar. Gylfi Gylfason. GEIR SÆMUNDSSON Þökkum þeim öllum sem auðsýndu samúð og virðingu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, ÞORGERÐAR EINARSDÓTTUR frá Þórisholti. Sérstakar þakkir færum við starfsliði dvalar- heimilisins Hjallatúns og deilda A-4 og A-5 Landspítala Fossvogi. Fyrir hönd annarra vandamanna, Borghildur Kjartansdóttir, Einar Kjartansson, Sigurgeir Kjartansson, Kristinn Kjartansson, Kjartan Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.