Morgunblaðið - 07.02.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2003 51
www.regnboginn.is
Nýr og betri
Sýnd kl. 6.10, 8.30 og 10.40. B.i 12 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 14 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 12.
kvikmyndir.com
Á bakvið rómantíkina,
glæsileikann og ástríðurnar var
átakanleg og ögrandi saga
einstakrar konu. Ein allra besta
myndin sem þú sérð í ár! Salma
Hayek er stórkostleg sem
listakonan Frida.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
GRÚPPÍURNAR
Njósnarinn Alex Scott er að fara í sitt hættulegasta
verkefni til þessa...með ennþá hættulegri félaga!
Geggjuð gamanmynd með léttgeggjuðum félögum!
Frumsýning
laugardaginn 8. febrúar.
Hljómsveit Vilhelms
Guðmundssonar
og Þorvaldar Björnssonar
spilar gömlu og nýju dansana
Dansleikur
í Ásgarði, Glæsibæ
Húsið opnað kl. 22 • Miðaverð kr. 1.200.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 5.30 og 9. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14.
YFIR 87.000 GESTIR
Magnað meistaraverk í anda Moulin Rouge.
Hlaut þrenn Golden Globe verðlaun á dögunum
sem besta myndin ásamt bestu aðalleikurum.
Missið ekki af þessari.
i í li .
l l l l
RENÉE ZELLWEGER CATHERINE ZETA - JONES RICHARD GERE
Kvikmyndir.com
Frumsýning
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Kvikmyndir.is
TVEIR af vinsælustu
gamanleikurum kvik-
myndanna, Eddie
Murphy og Owen Wilson,
sameina krafta sína í Á
gægjum (I Spy), fyndinni
spennumynd, sem byggð
er á samnefndum þáttum
sem nutu vinsælda meðal
sjónvarpsáhorfenda á ár-
unum 1965–1968. Þættir
þessir reyndust stökk-
pallur leikaranna Bills
Cosby og Roberts Culp
til frekari frægðar og
frama. Þegar Switch-
blade, nýjasta tækniund-
rinu og byltingarkenndri
nýjung á sviði orr-
ustuþotna, er rænt frá
bandarísku ríkisstjórn-
inni, ákveður hún að
senda sinn færasta njósn-
ara, Alex Scott, sem leik-
inn er af Wilson, til að
leysa málið. Hann á hins
vegar ekki von á því að
fá til liðs við sig í leyni-
lega njósnaferð og mikið
hættuspil, sem bíður
handan hornsins, kjaft-
forann og borubrattan
samborgara. Sá náungi
er Kelly Robinson, sem
leikinn er af Murphy, og
er hann í ofanálag víð-
frægur heimsmeistari í
hnefaleikum. Tvímenn-
ingarnir verða að beita
öllum sínum hæfileikum,
skopskyni, bardagatækni
og vopnabúnaði til að
komast á slóð ræningj-
ans, Arnolds Gundar,
eins hættulegasta vopna-
sala veraldar. Markmiðið
er auðvitað að gera alvar-
lega tilraun til þess að
stöðva þær áætlanir, sem
óþokkinn hefur á prjón-
unum með hið nýja
tækniundur.
Handritshöfundar eru
Marianne og Cormac
Wibberley, en leikstjórn
var í höndum Betty
Thomas, sem hefur í
gegnum tíðina bæði leik-
ið, framleitt og leikstýrt
fjölda sjónvarpsþátta auk
þess sem hún hefur leik-
stýrt nokkrum bíómynd-
um, m.a. 28 dögum (28
Days), Dagfinni dýra-
lækni (Doctor Dolittle)
og Ærsl í útvarpi
(Private Parts).
Glæpir borga
sig alls ekki
Smárabíó, Regnboginn og
Borgarbíó Akureyri frum-
sýna Á gægjum (I Spy).
_______
Leikarar: Eddie Murphy,
Owen Wilson, Famke Jans-
sen, Malcolm McDowell og
Gary Cole.
Eddie Murphy og Owen Wilson fara með hlutverk
ofurnjósnaranna í Á gægjum.
KVIKMYNDIN Chicago, sem
byggist á samnefndum
söngleik og Stundirnar
(The Hours), fékk flest
verðlaun á Golden
Globe-verðlaunahátíð-
inni, sem fram fór í
Englaborginni í liðnum
mánuði, en jafnan er litið
á verðlaunin sem vís-
bendingu um hvaða kvik-
myndir eru líklegastar til
að hljóta náð fyrir aug-
um þeirra sem veita Ósk-
arsverðlaunin. Chicago fékk átta til-
nefningar og fékk þrenn verðlaun.
Auk þess að vera valin besta söng-
eða gamanmyndin var Renée
Zellweger valin besta leikkonan í að-
alhlutverki og Richard Gere valinn
besti karlleikarinn í aðalhlutverki.
Chicago er söngleikur í anda
Rauðu myllunnar (Moulin Rouge)
sem gerist í Chicago-borg árið 1920
þar sem allt er nánast leyfilegt.
Myndin segir frá söngdísinni Velmu
Kelly, sem leikin er af hinni fríðu
þokkadís Catherine Zeta-Jones, og
draumórastúlkunni Roxanne
„Roxie“ Hart, sem leikin er af hinni
hæfileikaríku Renée Zellweger, sem
báðar sitja í fangelsi fyrir morð.
Velma mun hafa drepið eiginmann
sinn í bræðiskasti fyrir að hafa hald-
ið framhjá sér og Roxie mun
hafa skotið kærastann sinn í
æðiskasti þó hún hafi sjálf
verið gift. Nú eru góð ráð
dýr, sem þó leynast í lög-
fræðingnum Billy Flynn,
sem leikinn er af Richard
Gere, og setur hann upp
5.000 dollara gjald fyrir að
vinna mál þeirra. En Flynn
er ekki allur þar sem hann
er séður og örlög þeirra
Velmu og Roxie eru í mikilli
óvissu á bak við rimlana. Leikstjóri
er Rob Marshall, en myndin er
byggð á söngleik þeirra John Kand-
er, Fred Ebb og Bob Fosse frá árinu
1994 og inniheldur flest það sem góð
saga þarf að hafa, það er ást, svik,
meting, vináttu og síðast en ekki síst
góð tónlistar- og dansatriði, sem lip-
urlega færast á milli draumsýnar og
veruleika þegar veröld Roxie fer að
taka stakkaskiptum.
Bak við lás og slá fyrir morð
Regnboginn og Laugarásbíó frumsýna
Chicago.
______
Leikarar: Renée Zellweger, Catherine
Zeta-Jones, Richard Gere, Queen Latif-
ah, John C. Reilly, Lucy Liu, Taye Diggs,
Colm Feore og Christine Baranski.
Catherine Zeta-
Jones þykir fara á
kostum í Chicago.
GEIMSTÖÐIN: Makleg
málagjöld (Star Trek:
Nemesis) er tíunda
myndin í einum langlíf-
asta vísindaskáld-
sögubálki kvikmyndanna
og segir sem fyrr af
Jean-Luc Picard skip-
stjóra og vel mannaðri
áhöfn hans á geimskipinu
Enterprise. Að venju eru
óvinir þeirra og jarðarbúa
allra ekki langt undan.
Skipshöfnin á Enterprise
er að samfagna giftingu
Rikers, fyrsta stýri-
manns, og ráðgjafans
Deönnu Troi, er boð ber-
ast um að stefna skuli
skipinu í skyndi í kurteis-
isheimsókn til plán-
etunnar Romulus á eins
konar friðarráðstefnu.
Íbúum hennar hefur
löngum verið í nöp við
Ríkjasambandið og sýnt
samningsvilja til að sam-
eina sólkerfið gegn óvin-
unum. Þegar Enterprise
er lent á plánetunni
Romulus fara skuggalegir
atburðir að gerast og
þveröfug afstaða íbúanna
kemur óvænt í ljós. Þeir
vilja stríð og gjöreyðingu
Jarðarinnar. Picard skip-
stjóri stendur því skyndi-
lega andspænis sínum
hættulegasta óvini og eru
nú góð ráð dýr.
Framleiðendur mynd-
arinnar leggja í myndum
þessum mikið upp úr
spennu og í fyrsta skipti í
sögu Geimstöðvarinnar er
nú að finna nokkuð djarf-
ar senur. Leikstjórinn
Stuart Baird hóf sinn fer-
il sem leikstjóri árið 1996
með spennumyndinni
Ógnvænleg ákvörðun
(Executive Decision) með
Kurt Russell og Steven
Seagal í aðalhlutverkum
og síðar fylgdi myndin
Marskálkarnir (US
Marshals) með Tommy
Lee Jones og Wesley
Snipes. Áður hafði hann
getið sér gott orð sem
klippari og m.a. hlotið
Óskarsverðlaunatilnefn-
ingar sem slíkur fyrir
myndirnar Ofurmennið
(Superman) og Górillur í
þokunni (Gorillas in the
Mist).
Lagt upp
í lokaferð
Sambíóin í Kringlunni
frumsýna Geimstöðin:
Makleg málagjöld
(Star Trek: Nemesis)
_______
Leikarar: Patrick Stewart,
Jonathan Frakes, Brent Spin-
er, LeVar Burton, Michael
Dorn, Gates McFadden, Mar-
ina Sirtis, Tom Hardy, Ron
Perlman, Steven Culp, Dina
Meyer, Kate Mulgrew,
Whoopi Goldberg, Bryan
Singer og Nicholas Lanier.
Geimstöðin: Makleg mála-
gjöld er tíunda myndin í
þessari langlífu vís-
indaskáldsögu.