Morgunblaðið - 14.02.2003, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 17
innan eða utan Englands. Þá skyldi
hún hafa yfirumsjón með daglegum/
vikulegum þrifum í húsinu og annast
minni háttar heimilisverk, auk þess
að aðstoða í boðum á heimilinu, væri
þess óskað.“
Auk þess annaðist Barbel Gamsu
innkaup heimilisins. Hún fékk þetta
tímabil tæplega 1,9 milljónir króna í
laun, sem skattrannsóknarstjóri seg-
ir ótvírætt að telja beri Jóni til tekna.
Áttundi kafli skýrslu skattrann-
sóknarstjóra ríkisins fjallar um
rannsókn á viðskiptum Jóns Ólafs-
sonar með hlutabréf.
Söluhagnaður af Skífunni
Í upphafi kaflans segir: „Á því
tímabili sem rannsókn skattrann-
sóknarstjóra ríkisins nær til, hefur
Jón átt allnokkur viðskipti með
hlutabréf. Við meginþorra þeirra
viðskipta og tilgreiningu þeirra í
skattframtölum Jóns gerir skatt-
rannsóknarstjóri ríkisins engar at-
hugasemdir. Tiltekin viðskipti Jóns
af þeim toga gefa þó tilefni til frekari
umfjöllunar.
Rannsókn skattrannsóknarstjóra
ríkisins bendir til að söluverð á eign-
arhlutum Jóns í tveimur tilteknum
félögum hafi verið vantalið svo nemi
verulegum fjárhæðum í samningum
sem gengið var frá af því tilefni og
voru síðar lagðir til grundvallar við
gerð skattframtala Jóns. Nánar til-
tekið virðast eignarhlutir þeir sem
um ræðir fyrst hafa verið seldir til
málamynda til félags í eigu Jóns
sjálfs, Inuit Enterprises Ltd., sbr.
umfjöllun í kafla nr. 6 í skýrslunni,
en síðan frá því félagi aftur, samtímis
eða skömmu síðar, gegn margfalt
hærra verði.
Annars vegar er um að ræða sölu á
eignarhlut Jóns og fjölskyldu hans í
Skífunni ehf. fyrir kr. 100.000.000, en
sú sala er talin fram á skattframtali
Jóns gjaldárið 1998, vegna tekjuárs-
ins 1997. Hins vegar sölu á 50% eign-
arhlut í Spori ehf. á árinu 1998 fyrir
kr. 2.800.000, sem talin er fram á
skattframtali Jóns gjaldárið 1999,
vegna tekjuársins 1998.
Óljóst er hvenær Jón og fjölskylda
seldu Inuit Enterprises Ltd. eignar-
hluta sína í Skífunni fyrir kr.
100.000.000: skattrannsóknarstjóri
telur að samningurinn hafi verið
gerður um mitt ár 1998, en kaup-
samningurinn er dagsettur hinn 30.
nóvember 1997.
Í þeim kafla skýrslunnar þar sem
fjallað er um verðmæti eignarhluta í
Skífunni ehf. segir m.a.:
„Fyrir liggja tvö formleg verðmöt
á Skífunni ehf., gerð á árinu 1998, í
tengslum við áðurnefndar samein-
ingarviðræður. Annað er unnið af
BG Bank í Danmörku miðað við 1.
janúar 1998, dagsett 10. júlí 1998, en
hitt er unnið af Kaupþingi hf., dag-
sett 21. desember 1998. Verðmat BG
Bank á Skífunni ehf. er USD
14.500.000–19.500.000, þar sem
hærri talan miðast við samlegðar-
áhrif af sameiningu Skífunnar ehf.
við Norðurljós samskiptafélag hf.
Verðmæti miðað við miðgengi Seðla-
banka Íslands 5. janúar 1998 er kr.
1.055.165.000. Verðmat Kaupþings
hf. á Skífunni ehf. er kr.
1.400.000.000–2.021.000.000. Þá ligg-
ur fyrir framburður Ragnars Birg-
issonar framkvæmdastjóra Skífunn-
ar ehf., þess efnis að Jón hafi metið
Skífuna ehf. kr. 2.000.000.000 virði í
upphafi árs 1998.“
Jafnframt er vísað í tvö bréf frá
Chase Manhattan Bank frá því 1998
og 2002, þar sem verðmæti Skífunn-
ar ehf. er talið vera um 1,5 milljarðar
króna. Þá segir: „Síðast en ekki síst,
er ljóst að við kaup Norðurljósa sam-
skiptafélags hf. á Skífunni ehf. af
Inuit Enterprises Ltd. í júlí 1999,
nam kaupverðir USD 28.000.000 eða
kr. 2.044.000.000.
Í skýrslutöku af Jóni hjá skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins 5. mars
2002 var hann spurður hvernig verð-
mat að fjárhæð kr. 100.000.000 væri
til komið. Sagði Jón að það hefði ver-
ið mat manna á þessum tíma að fé-
lagið væri jafnvirði eigin fjár þess.
Nánar aðspurður í skýrslutöku 11.
apríl 2002 sagðist Jón ekki geta svar-
að því á þeirri stundu hverjir þeir að-
ilar væru sem metið hefðu verðmæti
félagsins með þessum hætti.“
Fram kemur í skýrslunni að skatt-
rannsóknarstjóri telur rétt að miða
við verðmat BG Bank á Skífunni,
sem nam rúmum 1,4 milljörðum
króna, í tölulegri framsetningu um
niðurstöður skýrslunnar, þ.e. að
söluverðmæti félagsins hafi að lág-
marki verið 1,419 milljarðar króna.
„Er við þetta verðmat miðað, þótt í
einhverjum tilvikum hafi verðmæti
Skífunnar ehf. verið metið hærra,
eða allt að kr. 2.021.000.000,“ segir í
skýrslunni.
Síðan segir: „Þá verður ekki
framhjá þeirri staðreynd litið, að
kaupverð Norðurljósa samskipta-
félags hf. á Skífunni ehf. af Inuit Ent-
erprises Ltd. í júlí 1999, nam USD
28.000.000, eða kr. 2.044.000.000. Þá
hafði Spor reyndar verið sameinað
Skífunni ehf., en verðmat á Spori á
árinu 1998 nam kr. 200.000.000.“
Niðurstaða skattrannsóknar-
stjóra hvað varðar Skífuna er svo-
hljóðandi: „Það er niðurstaða skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins, að fram
hafi komið gögn og upplýsingar við
rannsóknina sem benda eindregið til
þess að framangreindur kaupsamn-
ingur um sölu Jóns á hlutabréfum í
Skífunni ehf. til Inuit Enterprises
Ltd. hafi verið til málamynda gerður
allnokkru síðar en dagsetning hans
ber með sér. Þar sé tilgreint sölu-
verð margfalt lægra en raunveru-
legt verðmæti og söluandvirði á
þeim tíma. Verður að telja fullvíst að
Jóni hafi mátt vera ljóst að að sölu-
verð það sem hann tilgreindi á skatt-
framtali sínu gjaldárið 1998, vegna
tekjuársins 1997, sem söluverð Skíf-
unnar ehf., væri hvort tveggja ekki í
samræmi við tímasetningu eignasöl-
unnar sem slíkrar og fjarri raun-
verulegu verðmæti félagsins og hafi
hann því af ásetningi rangfært
skattframtal sitt með þeim hætti.
Telur skattrannsóknarstjóri ríkisins
söluverðið hafa verið ranglega til-
greint á skattframtali gjaldársins
1998, vegna tekjuársins 1997 og til-
greint í það minnsta kr.
1.319.000.000 of lágt.“
Verðmæti Spors ehf.
Í beinu framhaldi af umfjöllun
skattrannsóknarstjóra ríkisins um
málefni Skífunnar er umfjöllun um
sölu á hlutabréfum í Spori ehf. Þar
kemur fram að á skattframtali gjald-
ársins 1999, vegna tekjuársins 1998,
geri Jón grein fyrir sölu á eignarhlut
sínum í Spori ehf. Um sé að ræða
50% eignarhluta, að nafnvirði kr.
2.500.000. Þennan eignarhluta hafi
Jón selt Inuit Enterprises Ltd. á kr.
2.800.000. Fram er tekið í skattfram-
talinu að tap hafi orðið á þessum við-
skiptum, að fjárhæð kr. 79.750. Við-
skiptin voru sögð hafa átt sér stað
23. júlí 1998.
„Fyrir liggur óundirritaður samn-
ingur milli Jóns og Inuit Enter-
prises Ltd. þar sem þessi sala er til-
greind og er hann dagsettur 6. júlí
1998. Hinn 23. júlí 1998 kaupir Skíf-
an ehf. hins vegar allt hlutafé í Spori
ehf. samkvæmt samningum þar um
á kr. 200.000.000. Seljendur eru ann-
ars vegar Inuit Enterprises Ltd. og
hins vegar Ingibjörg Pálsdóttir, eig-
inkona Steinars Bergs Ísleifssonar,
sem var framkvæmdastjóri Spors
ehf. á þessum tíma. Fær hvor aðili
um sig, Inuit Enterprises Ltd. og
Ingibjörg Pálsdóttir kr. 100.000.000
í sinn hlut. Verðmæti Spors ehf. var
metið af Kaupþingi hf. Liggur fyrir
skýrsla frá Kaupþingi hf. um það
mat og var kaupverð Skífunnar ehf.
á Spori ehf. ákveðið með hliðsjón af
því verðmati.“
Skattrannsóknarstjóri ríkisins
kemst að þeirri niðurstöðu í skýrslu
sinni að þótt Inuit Enterprises Ltd.
hafi verið tilgreindur seljandi þess
eignarhlutar í Spori ehf. sem um
ræðir til Skífunnar ehf., þá hafi
greiðsla ekki verið innt af hendi til
Inuit Enterprises Ltd., sem sam-
kvæmt kaupsamningi er seljandi,
heldur til Jóns. Jón hafi því fengið
greiddar kr. 100.000.000 fyrir sölu á
eignarhlut sínum í Spori ehf., en
ekki 2.800.000 eins og hann hafi til-
greint í skattframfali sínu.
„Er það niðurstaða rannsóknar
skattrannsóknarstjóra ríkisins að
sala Jóns á hlutabréfum sínum í
Spori ehf. til Inuit Enterprises Ltd.
hafi verið tilbúningur einn, til þess
eins gerður að komast hjá skattlagn-
ingu á söluhagnaði eignarhlutans.
Það gerir Jón með því að flytja þann
söluhagnað til aflandsfélagsins Inuit
Enterprises Ltd., sem Jón ræður al-
farið yfir, svo sem rannsókn skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins hefur leitt
í ljós og margsinnis hefur komið
fram í skýrslunni. Verður að telja
fullvíst að Jóni hafi mátt vera ljóst að
söluverð það sem hann tilgreindi á
skattframtali sínu gjaldárið 1999,
vegna tekjuársins 1998, sem sölu-
verð eignarhlutans í Spori ehf., væri
fjarri raunverulegu söluverðmæti
eignarhlutans í félaginu og hafi hann
því af ásetningi rangfært skattfram-
tal sitt með þeim hætti. Er það nið-
urstaða skattrannsóknarstjóra rík-
isins að söluverð á hlutabréfum Jóns
í Spori ehf. hafi verið vantalið um
sem nemur kr. 97.200.000 í skatt-
framtali hans gjaldárið 1999, vegna
tekjuársins 1998.
Skortir upplýsingar
9. kafli skýrslu skattrannsóknar-
stjóra ríkisins fjallar um kaup og
sölu Jóns Ólafssonar á fasteignum.
Fram kemur í upphafi kaflans að
Jón hafi ekki greint rétt frá kaupum,
sölu og eignarhaldi fasteigna á
skattframtali sínu fyrir gjaldárið
2001, vegna tekjuársins 2000. Hús-
eignarinnar að 14 Aberdare Gard-
ens, í London, Englandi, sem talin er
fram til eignar á skattframtölum
Jóns vegna tekjuáranna 1998 og
1999, sé ekki getið á skattframtali
Jóns vegna tekjuársins 2000. Kvað
Jón við skýrslutöku hinn 11. apríl í
fyrra að fasteigna hans erlendis,
ofangreindrar fasteignar og íbúðar í
Suður-Frakklandi, hefði ekki verið
getið á skattframtalinu, vegna mis-
taka við framtalsgerð. Eignirnar
yrðu taldar fram í Bretlandi. Báðar
eignirnar hefðu verið fjármagnaðar
með lánum, íbúðin í London með láni
frá Inuit Enterprises Ltd. og íbúðin
í Frakklandi með láni frá frönskum
íbúðalánasjóði, en Inuit Enterprises
Ltd. hefði veitt lán fyrir afborgunum
af franska láninu. Aðspurður sagði
Jón að fasteign hans í London hefði
sennilega verið keypt á 1,7 milljónir
punda og að kaupverð íbúðarinnar í
Frakklandi gæti hafa verið um 3,2
milljónir franskra franka.
„Samkvæmt fyrirliggjandi gögn-
um og upplýsingum, keyptu Jón og
eiginkona hans fasteignina 66 Can-
field Gardens, London NW6, að því
er virðist samkvæmt söluyfirliti 5.
júlí 2000 á £ 1.750.000, eða kr.
203.035.000, miðað við miðgengi
þann 5. júlí …“ segir í skýrslunni og
þar kemur jafnframt fram að Jón
hafi borið við skýrslugjöf að kaup-
verðið hafi verið £ 1,7 milljónir, sem
nemi um 197 milljónum króna miðað
við sama gengi og verði við þá fjár-
hæð miðað í skýrslunni.
Í 10. kafla skýrlunnar er lagt mat
á ákvörðun söluhagnaðar vegna sölu
á eignarhlutum skattaðila í Skífunni
ehf. og Spori ehf. Þar segir m.a.:
„Við mat á því á hvern hátt Jóni
hafi borið að gera grein fyrir sölu á
hlutabréfum þessum, kann þrennt
að koma til álita:
1. Að Jóni hafi borið að tilgreina
söluverðmæti eignarhlutarins í Skíf-
unni ehf. á skattframtali sínu fyrir
gjaldárið 1998, vegna tekjuársins
1997 og miða heildar söluverðið við
að lágmarki kr. 1.419.000.000. 90% af
því söluverðmæti nemur kr.
1.277.100.000, sem að frádregnum
þeim kr. 90.000.000 sem Jón gerði
grein fyrir, nemur kr. 1.187.100.000,
sem telja verður vanframtalinn sölu-
hagnað á skattframtali Jóns fyrir
gjaldárið 1998 vegna sölu á eignar-
hluta í Skífunni ehf. Þá hafi Jóni bor-
ið að gera grein fyrir söluverði á 50%
eignarhluta sínum í Spori ehf. að
fjárhæð kr. 100.000.000 á skattfram-
tali sínu fyrir gjaldárið 1999, vegna
tekjuársins 1998 og vanframtalinn
söluhagnaður sé því kr. 97.120.250.
2. Að tilgreining á sölu á eignar-
hlutum í Skífunni ehf. inni á skatt-
framtali Jóns gjaldárið 1998, vegna
tekjuársins 1997, að fjárhæð kr.
90.000.000, vegna hans eignarhlutar,
hafi verið röng, þar sem salan hafi í
reynd ekki átt sér stað á árinu 1997,
heldur á árinu 1998. Þar með hafi
Jóni borið að tilgreina sölu þessa á
skattframtali sínu fyrir gjaldárið
1999, vegna tekjuársins 1998 og
miða heildarsöluverðið við að lág-
marki kr. 1.419.000.000. 90% af því
söluverðmæti nemur kr.
1.277.100.000, sem þá yrði að telja
vanframtalið á skattframtali Jóns
fyrir gjaldárið 1999 vegna sölu á
eignarhluta í Skífunni ehf., en kr.
90.000.000 að sama skapi oftaldar á
skattframtali Jóns fyrir gjaldárið
1998. Þá hafi Jóni borið að gera
grein fyrir söluverði á 50% eignar-
hluta sínum í Spori ehf. að fjárhæð
kr. 100.000.000 á skattframtali sínu
fyrir gjaldárið 1999, vegna tekjuárs-
ins 1998 og vanframtalinn söluhagn-
aður sé því kr. 97.120.250.
3. Að tilgreining á sölu á eignar-
hlutum í Skífunni ehf. inni á skatt-
framtali Jóns gjaldárið 1998, vegna
tekjuársins 1997, að fjárhæð kr.
90.000.000, vegna hans eignarhlutar,
og sölu á 50% eignarhluta hans í
Spori ehf. inni á skattframtali Jóns
gjaldárið 1999, vegna tekjuársins
1998, hafi verið röng, þar sem sölur
þessar hafi í reynd ekki átt sér stað á
árinu 1997 og/eða 1998, heldur á
árinu 1999, enda verði að líta á söl-
una til Inuit Enterprises Ltd. sem
markleysu, í þeim tilgangi að koma
sér hjá skattlagningu raunverulegs
söluhagnaðar af hlutabréfunum.
Sala hafi í reynd ekki átt sér stað
fyrr en við stofnun Norðurljósa sam-
skiptafélags hf. á árinu 1999, þegar
fjármunir koma frá utankomandi að-
ila til greiðslu á eignarhlutunum, á
markaðsverði. Þar með hafi Jóni
borið að tilgreina sölu þessa á skatt-
framtali sínu fyrir gjaldárið 2000,
vegna tekjuársins 1999 og miða
heildarsöluverð eignarhlutanna við
kr. 2.044.000.000. Kr. 90.000.000
myndu þá að sama skapi teljast of-
taldar á skattframtali Jóns fyrir
gjaldárið 1998 og kr. 2.800.000 of-
taldar á skattframtali Jóns fyrir
gjaldárið 1999, vegna sölu á 50%
eignarhluta í Spori ehf.
Af hálfu skattrannsóknarstjóra
ríkisins þykir rétt að miða við lið 1. í
framsetningu á niðurstöðum í
skýrslunni. Helgast það öðru fremur
af þeirri staðreynd, að Jón hefur
sjálfur kosið að líta svo á við skatt-
framtalsgerð sína, að sala á eignar-
hlutum þeim sem um ræðir hafi farið
fram með gildum hætti á þeim tíma-
punktum sem þar er miðað við.“
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður úr rannsókn
skattrannsóknarstjóra ríkisins eru
dregnar saman í fyrrihluta 11. og
síðasta kafla skýrslunnar og verða
þær birtar hér orðréttar:
„Jón hefur við rannsóknina ekki
orðið við ítrekuðum beiðnum skatt-
rannsóknarstjóra ríkisins um af-
hendingu gagna vegna viðskipta
hans þau tekjuár sem til rannsóknar
eru. Þá sinnti Jón ekki boðunum til
skýrslugjafar undir lok rannsóknar-
innar og hafði fyrr tafið framgang
hennar með margendurteknum
frestbeiðnum vegna mætingar. Þá
hefur Jón ekki svarað tilteknum
spurningum sem beint var til hans
við rannsókn málsins og hann óskaði
eftir að fá að svara síðar, eða lagt
fram gögn í samræmi við yfirlýsing-
ar þar um.
Jón hefur vanrækt að gera grein
fyrir tekjum vegna starfa sinna í
þágu Spors ehf. (fram til sameining-
ar þess við Skífuna ehf.), Skífunnar
ehf. og Íslenska útvarpsfélagsins hf.
til miðs árs 1999, og eftir það einnig
Norðurljósa samskiptafélags hf., áð-
ur Fjölmiðlunar hf., í skattframtöl-
um sínum fyrir gjaldárin 1999, 2000
og 2001, vegna tekjuáranna 1998,
1999 og 2000. Þá hefur Jón vanrækt
að standa skil á skattframtali fyrir
gjaldárið 2002, vegna tekjuársins
2001 og með þeim hætti sömuleiðis
alfarið vanrækt að gera grein fyrir
tekjum vegna starfa sinna í þágu
nefndra félaga á því ári. Nema
tekjur þær sem um ræðir kr.
31.705.788 vegna tekjuársins 1998,
kr. 52.309.854 vegna tekjuársins
1999, kr. 49.594.623 vegna tekjuárs-
ins 2000 og kr. 70.480.700 vegna
tekjuársins 2001, eða samtals
204.090.965 vegna allra áranna.
Jón hefur vanrækt að gera grein
fyrir tekjum vegna starfa sinna á
árinu 2001 í þágu Kundkraft Sverige
AB, á skattframtali fyrir gjaldári
2002, vegna tekjuársins 2001. Námu
þær kr. 2.899.799.
Jón hefur vanrækt að gera grein
fyrir tekjum vegna starfa sinna á
árinu 2001 í þágu Íslandsbanka hf., á
skattframtali fyrir gjaldárið 2002,
vegna tekjuársins 2001. Námu þær
kr. 912.500. Þá hefur Jón jafnframt
vanrækt að gera grein fyrir dagpen-
ingum frá sama aðila að fjárhæð kr.
64.003 og arðgreiðslum af hlutafé kr.
115.357.
Jón hefur vanrækt að gera grein
fyrir bifreiðahlunnindum í skatt-
framtölum sínum fyrir gjaldárin
1999, 2000 og 2001, vegna tekjuár-
anna 1998, 1999 og 2000, auk þess að
vanrækja, svo sem áður segir, að
standa skil á skattframtali fyrir árið
2002, vegna tekjuársins 2001 og með
þeim hætti sömuleiðis að láta hjá líða
að gera grein fyrir bifreiðahlunnind-
um það ár. Vanframtalin bifreiða-
hlunnindi Jóns eru vegna tekjuárs-
ins 1998 kr. 426.667, vegna
tekjuársins 1999 kr. 1.749.164, vegna
tekjuársins 2000 kr. 2.712.210 og
vegna tekjuársins 2001 kr. 2.512.791.
Samtals eru því bifreiðahlunnindi
vanframtalin vegna áranna 1998–
2001 um kr. 7.400.832.
Jón hefur vanrækt að telja sér til
tekna í skattframtölum sínum fyrir
gjaldárin 1999, 2000 og 2001, vegna
tekjuáranna 1998, 1999 og 2000,
greiðslu Norðurljósa samskipta-
félags hf. og tengdra félaga á per-
sónulegum kostnaði hans sem með
því var skattskyldur í hendi Jóns.
Auk þess vanrækti hann að skila
skattframtali fyrir gjaldárið 2002,
vegna tekjuársins 2001 og með þeim
hætti sömuleiðis að gera grein fyrir
greiðslunum það ár. Um er að ræða
líftryggingariðgjöld að fjárhæð kr.
140.734 tekjuárið 1998, kr. 88.900
tekjuárið 1999, kr. 100.015 tekjuárið
2000 og kr. 116.968 tekjuárið 2001,
eða samtals kr. 446.617; verðmæti
starfa Ingunnar Halldórsdóttur í
þágu Jóns og fjölskyldu persónu-
lega, að fjárhæð kr. 1.164.466 tekju-
árið 1998, kr. 1.125.960 tekjuárið
1999, kr. 1.256.157 tekjuárið 2000 og
kr. 1.402.109 tekjuárið 2001, eða
samtals kr. 4.948.692; og launa-
greiðslur til aðstoðarmanneskju
Jóns, Barbel Gamsu, tekjuárið 2001,
kr. 1.889.941.
Það er niðurstaða rannsóknar
skattrannsóknarstjóra ríkisins, að
fram hafi komið gögn og upplýsing-
ar við rannsóknina sem bendi ein-
dregið til þess að kaupsamningur
um sölu Jóns á hlutabréfum í Skíf-
unni ehf. til Inuit Enterprises Ltd.
hafi verið til málamynda gerður all-
nokkru síðar en dagsetning hans ber
með sér. Þar sé tilgreint söluverð
margfalt lægra en raunverulegt
verðmæti og söluandvirði á þeim
tíma. Verður að telja fullvíst að Jóni
hafi mátt vera ljóst að söluverð það
sem hann tilgreindi á skattframtali
sínu gjaldárið 1998, vegna tekjuárs-
ins 1997, sem söluverð Skífunnar
ehf., væri hvort tveggja ekki í sam-
ræmi við tímasetningu eignasölunn-
ar sem slíkrar og fjarri raunveru-
legu verðmæti félagsins og hafi hann
því af ásetningi rangfært skattfram-
tal sitt með þeim hætti. Telur skatt-
rannsóknarstjóri ríkisins söluverðið
hafa verið ranglega tilgreint á skatt-
framtali gjaldársins 1998, vegna
tekjuársins 1999 og tilgreint í það
minnsta kr. 1.319.000.000 of lágt.
Það er niðurstaða rannsóknar
skattrannsóknarstjóra ríkisins að
sala Jóns á hlutabréfum sínum í
Spori ehf. til Inuit Enterprises Ltd.
á árinu 1998 hafi verið tilbúningur
einn, til þess eins gerður, að komast
hjá skattlagningu á söluhagnaði
eignarhlutarins. Verður að telja full-
víst að Jóni hafi mátt vera ljóst að
söluverð það sem hann tilgreindi á
skattframtali sínu gjaldárið 1999,
vegna tekjuársins 1998, sem sölu-
verð eignarhlutans í Spori ehf., væri
fjarri raunverulegu söluverðmæti
eignarhlutans í félaginu og hafi hann
því af ásetningi rangfært skattfram-
tal sitt með þeim hætti. Er það nið-
urstaða skattrannsóknarstjóra rík-
isins að söluverð á hlutabréfum Jóns
í Spori ehf. hafi verið vantalið sem
nemur kr. 97.200.000 í skattframtali
hans gjaldárið 1999, vegna tekjuárs-
ins 1998.
Jón hefur ekki gert grein fyrir
sölu á íbúðarhúsnæði að 14
Aberdare Gardens, London; ekki
gert grein fyrir kaupum á íbúðar-
húsnæði, „Villa Laurana“, sem stað-
sett er í 9 Chemin Araucarias, 06400,
Cannes, Frakklandi, að fjárhæð kr.
36.260.800; ekki gert grein fyrir
kaupum á fasteigninni 66 Canfield
Gardens, London NW6, á kr.
197.234.000; og ekki gert grein fyrir
eignarhaldi á umræddum fasteign-
um á skattframtali sínu fyrir gjald-
árið 2001, vegna tekjuársins 2000.
Þá hefur Jón ekki skilað skattfram-
tali fyrir gjaldárið 2002, vegna tekju-
ársins 2001 og því ekki gert grein
fyrir stöðu eða breytingum á eign-
arhaldi sínu á fasteignum á árinu
2001.“
agnes@mbl.is