Morgunblaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 51
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 51 KNATTSPYRNUSAMBAND Evr- ópu, UEFA, hefur samþykkt reglu- breytingar sem taka munu gildi á næsta keppnistímabili og er breyt- ingin á þann veg að „gullmarkið“ svokallaða verður lagt til hliðar en þess í stað geta úrslit í framlengdum leikjum ráðist á „silfurmarki“. Á undanförnum misserum hefur UEFA notast við „gullmarksregluna“ þar sem úrslit leiksins ráðast þegar mark er skorað í framlengingu, og þar með er leikurinn flautaður af. Nýja reglan er í stuttu máli á þann veg að ef mark er t.d. skorað í fyrri hálfleik framlengingingar mun leik- urinn standa yfir þar til fyrri hálfleik er lokið. Hafi aðeins eitt mark verið skorað á þeim tíma sigrar liðið sem það skoraði. Það sama gildir um síð- ari hálfleikinn, þar er liðinu sem fær á sig mark gefið tækifæri til þess að jafna metin áður en leikurinn er flautaður af. UEFA vonast til þess að sóknarknattspyrna verði allsráðandi hjá þeim liðum sem lenda undir í framlengingu en tveir síðustu úrslita- leikir í Evrópukeppni landsliða hafa ráðist á gullmarki. Nýja reglan verð- ur notuð í úrslitakeppni EM sem fram fer í Portúgal á næsta ári en Alþjóða- knattspyrnusambandið, FIFA, á enn eftir að ákveða hvort breytingin verði tekin upp í keppni á þeirra vegum. „Silfurmark“ leysir gullið af hólmi FÓLK  FYRSTU fjórir leikmennirnir voru valdir í Ólympíulið Banda- ríkjanna í körfuknattleik, sem þarf að taka þátt í forkeppni fyrir leik- ana á Púertó Ríkó í ágúst, vegna slaks árangurs í síðustu heims- meistarakeppni. Það eru þeir Ray Allen, Tim Duncan, Jason Kidd og Tracy McGrady, allt NBA-leik- menn.  KOBE Bryant á væntanlega eft- ir að bætast í hópinn áður en langt um líður en landsliðsnefndin er í viðræðum við hann þessa dagana. Í vor verður 4–5 leikmönnum úr NBA bætt í hópinn og loks 2–3 leikmönnum sem leika með há- skólaliðum eða erlendis.  LARRY Brown, þjálfari Phila- delphia 76ers, mun stjórna banda- ríska liðinu og hann lýsti í gær- kvöld yfir mikilli ánægju með að hafa tryggt sér þessa fjóra öflugu leikmenn.  BJARNI Þorsteinsson og Ólafur Stígsson léku allan leikinn með norska liðinu Molde þegar það lagði spænska félagið Málaga að velli, 1:0, í æfingaleik á Spáni í fyrradag.  JON Holmes, nýr stjórnarfor- maður enska knattspyrnufélagsins Leicester City, vill breyta nafni fé- lagsins og taka upp eldra nafn þess sem lagt var niður fyrir 84 árum. Félagið var stofnað árið 1884 undir nafninu Leicester Fosse og bar það nafn til ársins 1919 og Holmes segir að það myndi gefa félaginu meiri sérstöðu en að heita áfram City eins og 15 önnur lið í ensku deildakeppninni.  EIRIK Bakke, norski knatt- spyrnumaðurinn hjá Leeds, verður frá keppni í tvo mánuði. Hann meiddist illa á ökkla í deildaleik gegn West Ham á dögunum. ANNIKA Sörenstam mun í maí nk. verða fyrsta konan eftir 58 ára hlé sem tekur þátt í atvinnumannamóti karla en Sörenstam hefur þegið boð forráðamann PGA-mótaraðarinnar um að taka þátt í móti sem fram fer á The Colonial-vellinum. Babe Zah- arias lék á opna Los Angeles-mótinu 1945 þar sem hún komst í gegnum niðurskurðinn að loknum 36 holum. „Ég hef fengið margar fyrir- spurnir að undanförnu en að mínu mati hentar völlurinn og tímasetn- ingin vel að mínum áætlunum,“ seg- ir hin 32 ára gamla sænska atvinnu- kona sem hefur haft mikla yfirburði á mótaröð atvinnukvenna undan- farin ár. „Fyrir þá sem hafa spurt mig hvers vegna ég hafi þegið þetta boð er svarið einfalt: Ég er forvitin og vil vita hvar ég stend miðað við karlana á PGA-mótaröðinni,“ sagði Sörenstam. Hún „önglaði“ saman um 230 millj. ísl. kr. í verðlaunafé í fyrra og er efst á styrkleikalista at- vinnukvenna, sigraði á 13 mótum í fyrra. „Að mínu mati eru þetta góð tíð- indi og þá sérstaklega ef hún stend- ur sig vel. Það gæti orðið henni erf- itt ef henni gengur illa en ég er forvitinn að sjá hvernig henni reiðir af og býð hana velkomna,“ segir Tiger Woods, besti kylfingur heims, en hann mun einnig leika á mótinu sem fram fer 22.–25. maí nk. Sörenstam gegn Tiger Woods Það er nú ekkert öruggt að égmyndi bæta mig mikið þó svo ég næði mér góðum í bakinu. Ég gæti alveg eins hjakkað í sama farinu, en það væri fínt að bæta við tíu skotum í leik,“ sagði Hreiðar glettnislega í samtali við Morgunblaðið. Hreiðar er 22 ára KR-ingur. „Ég er alinn upp í KR og æfði þar um tíma samhliða handbolta, fótbolta og körfubolta. Það var fyrir algjöra slysni að ég fór í handboltann í fyrsta sinn. Vinur minn þorði ekki að fara einn á æfingu og dró mig með. Hann fór ekki á fleiri æfingar en ég er enn að. Ég fór strax í markið og hef verið þar síðan. Ástæðan er sjálfsagt að við félagarnir vorum stundum að leika okkur inni í herbergi að skjóta og þá þótti ég sýna góða takta í markinu og því fór ég þangað þegar ég fór að æfa,“ segir markvörðurinn ungi. Hann hefur ekki getað æft í vetur eins og hann langar til vegna brjósk- lossins í bakinu. „Þetta kom í ljós fyr- ir keppnistímabilið. Ég var búinn að vera slæmur frá því í fyrra, en maður fór bara í nudd og þá lagaðist þetta en í haust fór verkurinn að leiða nið- ur í lærið og um tíma gat ég ekki rétt úr fætinum þegar ég sat. Ég fór í sneiðmyndatöku og þá kom í ljós hvers kyns var. Ég er stanslaust í sjúkraþjálfun og annarri meðferð vegna þessa og síðasta hálmstráið er að fara til hnykkjara, ef ég lagast ekki við það er ekkert annað að gera en láta skera sig eftir tímabilið. Mað- ur vonast auðvitað til að sleppa við það. Í byrjun keppnistímabilsins var ég með mjög slæman verk með þessu en er mun skárri núna og mun minni verkur niður í lærið. Þetta háir mér að einhverju leyti, er nokkuð hreyfi- hamlandi og ég get ekki verið með í öllum æfingunum hjá ÍR. Ég má til dæmis aldrei vera með þegar strák- arnir hita upp í fótbolta og það er fer- lega pirrandi,“ sagði Hreiðar mark- vörður sem er utanskóla í Fjöl- brautaskólanum í Ármúla þar sem hann á erfitt með að sitja lengi. Hreiðar Guðmundsson ver og ver þrátt fyrir brjósklos í baki „Vonandi slepp ég við uppskurð“ HREIÐAR Guðmundsson, markvörður ÍR í handknattleik, hefur vakið athygli í vetur fyrir góða frammistöðu, ekki síst fyrir þær sakir að hann er með brjósklos í baki sem hamlar honum nokkuð í markinu. Engu að síður hefur hann var- ið um átján skot að meðaltali í leikjum ÍR-liðsins í vetur, sem er mjög gott, og menn velta því fyrir sér hvað hann myndi gera heill heilsu. Morgunblaðið/Sverrir Hreiðar Guðmundsson, markvörður ÍR-liðsins í handknattleik. ARNAR Grétarsson knattspyrnumað- ur skrifaði í gær undir nýjan samning við belgíska 1. deildar félagið Lokeren og gildir hann til loka tímabilsins 2006. Arnar, sem verður 31 árs í næstu viku, gekk til liðs við Lokeren sumarið 2000 og er því á sínu þriðja tímabili með félaginu. Hann hefur verið með bestu leikmönnum liðsins í vetur og skilað stöðu varnartengiliðs virkilega vel, ásamt því að skora 8 mörk fyrir liðið í 1. deildinni. Roger Lambrecht, forseti Lokeren, er staðráðinn í að halda í alla íslensku leikmennina hjá félaginu en þeir Rún- ar Kristinsson og Arnar Þór Viðarsson fyrirliði eru með lausa samninga í vor. Markmið hans er að félagið verði í hópi þriggja efstu liða í Belgíu næstu árin en Lokeren er nú í fjórða sætinu. „Ég er mjög ánægður með þetta samkomulag og vona að allir aðrir leikmenn sem eru með lausa samninga skrifi líka undir því þá verðum við með sterkara lið á næsta tímabili. Að vísu missum við sóknarmanninn Bangoura að líkindum til Standard en mér fannst tilboð sem ég fékk þaðan ekki spenn- andi. Lokeren er með sterkara lið en Standard og spilar betri knattspyrnu. Það var líka stuðningur að heyra orð þjálfarans, Pauls Puts, sem var að framlengja sinn samning og setti sem skilyrði við forseta Lokeren að Íslend- ingarnir yrðu áfram hjá félaginu,“ sagði Arnar við Morgunblaðið í gær. Arnar Grétarsson samdi við Lokeren til 2006 Morgunblaðið/Golli Arnar Grétarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.