Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 21

Morgunblaðið - 14.02.2003, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 21 Í UPPHAFI skýrslunnar segir: „Skattaðilinn í rannsóknarmáli þessu er sameignarfélagið Jón Ólafsson & Co. kt. 530789-2099, Laugavegi 26, Reykjavík. Firmað rita sameiginlega Jón Ólafsson Friðgeirsson, kt. 060854-5219, og Helga Hilmarsdóttir, kt. 250458-3209. (Helga er eiginkona Jóns Ólafssonar – innskot blm.) Samkvæmt félagssamningi er til- gangur félagsins sagður rekstur fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur.“ Þessu næst er gerð grein fyrir til- efni rannsóknar skattrannsóknar- stjóra ríkisins, sem er hið sama og gerð var grein fyrir í upphafi fyrstu greinar hér að framan. „Formlega hófst rannsókn skatt- rannsóknarstjóra ríkisins 21. febr- úar 2002 með því að starfsmenn skattrannsóknarstjóra ríkisins, þau Erla Skúladóttir, Kristján Ólafur Jó- hannesson og Hlynur Leifsson, fóru á starfsstöð skattaðilans og afhentu Hilmari Sigurðssyni, framkvæmda- stjóra skattaðilans, tilkynningu þess efnis að rannsókn væri hafin á bók- haldi og skattskilum Jóns Ólafssonar & Co. sf. rekstrartímabilið janúar 1996 til og með desember 2001. Var í tilkynningunni ennfremur óskað eft- ir að afhent yrði fært bókhald og fylgiskjöl þess, svo og öll önnur gögn er vörðuðu starfsemi skattaðilans. Var Hilmar Sigurðsson viðstaddur gagnaleit og -töku,“ segir í skýrsl- unni. Síðar var ákveðið að afmarka rannsóknina við sölu á eignarhluta skattaðilans í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises Ltd. Framkvæmd rannsóknarinnar Þau sem unnu að framkvæmd rannsóknarinnar voru eftirtaldir starfsmenn skattrannsóknarstjóra ríkisins: Erla Skúladóttir, lögfræðingur, Garðar G. Gíslason, forstöðumaður, Gunnar Th. Kristjánsson, verkefnastjóri, Hlynur Leifsson, rannsóknarmaður, Jens Þór Svansson, forstöðumaður, Kristján Jóhannsson, verkefnastjóri, Sigurður Jensson, verkefnastjóri, Vigdís Guðmundsdóttir, rannsóknarmaður. Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins byggðist á eftirfarandi: Upplýsingum sem Hermann Her- mannsson veitti í skýrslutöku 3. apr- íl sl. Upplýsingum sem Jón Ólafsson veitti í skýrslutökum 5. mars, 12. og 30. apríl 2002. Upplýsingum sem Símon Ásgeir Gunnarsson veitti í skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra 4. október sl. Upplýsingum sem Gunnar Jóns- son hrl. veitti í skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra 25. mars sl. Upplýsingum sem Sigurður G. Guðjónsson hrl. og forstjóri Norður- ljósa veitti í skýrslutöku 22. ágúst sl. Upplýsingum sem Hannes Ágúst Jóhannesson veitti í skýrslutöku 13. desember sl. Upplýsingum um skattaðilann úr Firmaskrá. Skattframtölum gjaldáranna 1999 og 2000, vegna rekstraráranna 1998 og 1999, ásamt fylgigögnum. Gögnum sem varða sölu á hluta- bréfum skattaðilans í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises Ltd. Gögnum varðandi tengsl Jóns Ólafssonar og Inuit Enterprises Ltd. Vinnugögnum endurskoðanda skattaðilans vegna framtalsgerðar fyrir rekstrarárið 1998. Gögnum er varða sölu á hlutabréf- um í Fjölmiðlun hf. og sölugengi þeirra á árunum 1998 og 1999. Áritun án fyrirvara Í 4. kafla skýrslunnar er fjallað um skattskilagögn skattaðilans. Þar segir m.a.: „Í skýrslutöku af Símoni Ásgeiri Gunnarssyni 4. október 2002 var lagt fyrir hann skattframtal skattaðilans fyrir gjaldárið 1999, vegna rekstrarársins 1998. Árs- reikningur með skattframtalinu ber áritun Símonar Ásgeirs um endur- skoðun og er hún án fyrirvara. Símon Ásgeir var spurður hvort hann hefði séð um gerð skattfram- talsins og fylgigagna þess, þ.m.t. ársreikningsins. Í svari hans kom fram að hann hefði séð um gerð skattframtalsins og fylgigagna þess, svo sem ársreikningurinn bæri með sér …" Þá segir orðrétt: „Samkvæmt 19. gr. laga nr. 144/1994, um ársreikn- inga, skal sýna tekjur, sem ekki tengjast reglulegri starfsemi, sér- staklega í rekstrarreikningi og greina frá eðli þeirra í skýringum, nema um óverulegar fjárhæðir sé að ræða. Verður ekki talið að sala á eignarhluta skattaðilans í Fjölmiðl- un hf., að fjárhæð kr. 280.000.000, teljist hafa varðað óverulega fjár- hæð í ljósi umfangs reglulegrar starfsemi skattaðilans…“ Ekki getið um söluhagnað Fimmti kafli skýrslu skattrann- sóknarstjóra ríkisins fjallar um bók- hald Jóns Ólafssonar & Co. sf. Þar segir m.a.: „Skattrannsóknarstjóri ríkisins gerir ekki athugasemdir við færslu bókhalds eða vörslu bók- haldsgagna skattaðilans, að öðru leyti en því sem varðar meðhöndlun á viðskiptum vegna sölu á eignar- hluta skattaðilans í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises Ltd. … Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins hefur leitt í ljós, að frá við- skiptum þessum er gengið í ágúst 1999. Viðskiptin eru hins vegar færð í bókhald og ársreikning skattaðil- ans vegna rekstrarársins 1998. Ger- ist það á síðari hluta ársins, 1999, við uppgjör og samningu ársreikn- ings vegna rekstrarársins 1998… Fyrir liggja tvö skjöl úr vinnu- möppum endurskoðanda skattaðil- ans, Símonar Ásgeirs Gunnarsson- ar, sem afhentar voru vegna rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins. Skjölin sýna útreikning á tekjuskattstofni skattaðilans fyrir rekstrarárið 1998. Annað skjalið, sem var í vinnumöppu vegna rekstr- arársins 1998, er handskrifað og er unnið af Hannesi Ágústi Jóhannes- syni …, starfsmanni Ernst og Young ehf. sýnir hagnað af reglu- legri starfsemi skattaðilans sam- kvæmt skattalögum, fyrir skatta, kr. 5.013.594. Þar er ekki getið um neinn söluhagnað.“ Fram kemur að á hinu skjalinu sem um ræðir, sem hafi verið prent- að úr tölvukerfi Ernst og Young efh. og hafi verið að finna í vinnumöppu vegna rekstrarársins 1999, sé sölu- hagnaður samkvæmt ársreikningi rekstrarársins 1998 kr. 141.877.909. Stærstur hluti þess hagnaðar hafi orðið til við sölu á eignarhluta skatt- aðilans í Fjölmiðlun hf. Skjalið sé dagsett 20. ágúst 1999. Í skýrslu skattrannsóknarstjóra segir að síð- arnefnda skjalið sé í samræmi við niðurstöður endanlegs ársreiknings skattaðilans fyrir rekstrarárið 1998. Þá segir orðrétt í skýrslunni: „Við samanburð á þessum tveimur skjöl- um (sem ljósrit eru birt af í skýrsl- unni – innskot blm.) kemur í ljós, að á fyrrnefnda skjalinu er byrjað með tap samkvæmt ársreikningi af reglulegri starfsemi fyrir skatta, en á því síðara er byrjað með lokanið- urstöðu ársreikningsins eins og hún er eftir skatta. Það sem ber á milli, er að færður er inn söluhagnaður, þeim söluhagnaði er eytt út, inn eru færð opinber gjöld, verðbreytingar- færsla er hækkuð um kr. 4.943, inn er færð fyrning vegna 40% verð- breytingarfærslu kr. 2.012.536 og al- mennar fyrningar hækkaðar um kr. 400.000. Fyrningarskýrsla fylgir ekki skattframtalinu, en af fyrning- arskýrslu næsta árs verður ráðið að um geti hafa verið að ræða fyrningu innréttinga á Laugavegi 26, en þær hafa verið eignfærðar með kr. 2.000.000 og fyrndar um 20%, eða kr. 400.000 á árinu 1998. Af framansögðu verður ráðið, að þær færslur sem virðist hafa átt eft- ir að gera í bókhaldi þegar skjalið frá 19. júlí 1999 var gert, eru sem hér segir: Leiðrétting verðbreyting- arfærslu úr kr. 5.026.393 í kr. 5.031.339. Færsla á sölu hlutabréfa með söluhagnaði sem nam samkvæmt bókhaldi kr. 99.363.222, en skatta- lega kr. 173.495.886. Færsla á sölu annarra eigna með kr. 42.514.687 söluhagnaði samkvæmt bókhaldi en kr. 44.273.032 skattalega. Færsla opinberra gjalda, kr. 4.060.786. Af þessu má ráða að í júlí 1999 hafi sala í eignarhluta skattaðilans í Fjölmiðlun hf. ekki enn verið tekin inn í vinnslu við framtalsgerð skatt- aðilans, en við síðara uppgjörið mán- uði síðar er salan tekin með.“ Við skýrslutöku hjá skattrann- sóknarstjóra 13. des. sl. staðfesti Hannes Ágúst Jóhannsson að hann hefði gert þá útreikninga sem fram koma á handskrifaða minnisblaðinu sem fyrst er nefnt hér að framan. Hannes Ágúst tók fram þegar hann skoðaði handskrifaða blaðið og bar saman við ársreikning að hann átt- aði sig ekki á því hvað hefði breyst frá vinnu hans, þar til endanlegur ársreikningur var gerður. Sá mismunur væri þó ekki verulegur. Hannes Ágúst var spurður hvort hann hefði komið að endurskoðun ársreiknings skattaðilans vegna rekstrarársins 1998 og ef svo hefði verið, hvernig endurskoðunin hefði farið fram. Sagði hann að öll fylgiskjöl hefðu verið skoðuð. Að- spurður kvaðst Hannes Ágúst ekki muna eftir samningi um sölu á hlutabréfum skattaðilans í Fjölmiðl- un hf., þegar samningurinn var lagð- ur fyrir hann. Hann kvaðst ekki vita hvort byggt hefði verið á þessum samningi við ársreikningsgerð fyrir skattaðilann. Þá segir orðrétt í skýrslunni: „Hannesi Ágústi var í skýrslutök- unni gerð grein fyrir því að ekki yrði séð við skoðun á endurskoðunar- möppum vegna skattaðilans fyrir rekstrarárin 1998 og 1999, sem KPMG Endurskoðun hf. afhenti skattrannsóknarstjóra ríkisins, að þar á meðal væru nein skjöl sem staðfest gætu að umrædd viðskipti með hlutabréf skattaðilans í Fjöl- miðlun hf. hefðu átt sér stað.“ Orð eiganda ekki rengd Kvaðst Hannes Ágúst telja að þeir sem unnu að þessu uppgjöri hefðu verið upplýstir um viðskiptin eftir að vinnu hans var lokið. Aðspurður hvort þessi viðskipti hefðu verið færð út frá munnlegum upplýsingum sagði Hannes Ágúst að það gæti vel verið. Um einn eiganda væri að ræða og í tilviki Jóns Ólafs- sonar hefðu munnlegar upplýsingar frá honum oft á tíðum verið teknar jafngildar og skrifleg gögn. „Að- spurður um skýringu á því að samn- ingurinn, sem virtist gerður í ágúst 1999, væri færður í ársreikning vegna rekstrarársins 1998, sagði Hannes Ágúst að í þessum samningi kæmi fram að „effective date“ væri 15. júní 1998.“ Sagði hann að ef eig- andi félagsins, þ.e. Jón Ólafsson, „fullyrti að ákveðin eign hefði verið seld á ákveðnum tíma þá væru þau orð hans ekki rengd.“ Síðan segir í skýrslu skattrann- sóknarstjóra: „Telja verður framan- greinda meðferð á viðskiptunum í bókhaldi brjóta gegn ákvæðum laga nr. 145/1994, um bókhald. Sam- kvæmt 22. gr. þeirra laga er gert ráð fyrir að reikningsárið sé tólf mán- uðir og semja skuli ársreikning fyrir hvert reikningsár. Skal ársreikning- ur fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs.“ Rannsókn skattrannsóknarstjóra á bókhaldi og skattskilum Jóns Ólafssonar & Co. sf. Telur söluhagnað vanfram- talinn um 1,2 milljarða króna Samhliða rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum Jóns Ólafssonar framkvæmdi embættið sjálfstæða rannsókn á bókhaldi og skattskilum Jóns Ólafssonar & Co. sf. fyrir rekstrarárin 1998 og 1999. AGNES BRAGADÓTTIR kynnti sér efni þeirrar skýrslu skattrannsókn- arstjóra ríkisins, en þar kemur m.a. fram að embættið telur að sölu- verðmæti eignarhlutar skattaðilans í Fjölmiðlun hf. til Inuit Enterprises Ltd. hafi numið að lágmarki rúmum 1,3 milljörðum króna og að van- framtalinn söluhagnaður hafi því numið rúmum 1,2 milljörðum króna. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.