Morgunblaðið - 14.02.2003, Síða 26

Morgunblaðið - 14.02.2003, Síða 26
ERLENT 26 FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.islandia.is/~heilsuhorn Garlic Fyrir hjartað og æðakerfið PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. SAMTÖK VERSLUNARINNAR AÐALFUNDUR á Grand Hóteli, í dag, föstudag, kl. 12:00 12:00 Hádegisverður í Setrinu, Grand Hótel Ávarp: Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra SKRÁNING 13:15 Skráning við Hvamm, Grand Hóteli. FUNDARSETNING 13:30 Ræða formanns Samtaka verslunarinnar Hauks Þórs Haukssonar. „Viðskiptatækifæri í kjölfar einkavæðingar“ RÆÐUMENN 14:00 Jafet S. Ólafsson framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar hf.: Breytingar í kjölfar einkavæðingar ríkisfyrirtækja. 14:20 Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands: Nýjar hugmyndir fyrir nýja öld. Umræður og fyrirspurnir. Kaffihlé 15:15 Almenn aðalfundarstörf skv. lögum samtakanna. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 588 8910 eða á netfang: lindabara@fis.is Nissan Patrol Elegance, 35“, skráður 05/2000, sjálfsk., ný dekk, ekinn 39 þús. Nissan Patrol Elegance, 38“, skr. 02/2002, sjálfsk., ek. 20 þús. Ingvar Helgason, notaðir bílar, s. 525 8020. Ekki 1 heldur 2 gullmolar BÚIST er við að Hans Blix, yfirmað- ur vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna í Írak, skýri öryggisráði samtakanna frá því í dag að Írakar hafi ekki hlítt afvopnunarskilmálum ráðsins að öllu leyti. Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta vonar að niðurstaða Blix auðveldi henni að fá önnur aðildarríki ráðsins á sitt band og auki líkurnar á því að ráðið sam- þykki nýja ályktun sem heimili að hervaldi verði beitt í Írak. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hyggst sitja fund ör- yggisráðsins ásamt utanríkisráð- herrum Rússlands, Frakklands, Kína og Þýskalands, sem hafa beitt sér fyrir því að vopnaeftirlitinu verði haldið áfram í von um að hægt verði að afstýra stríði. Hópur eldflaugasérfræðinga frá sex löndum hefur komist að þeirri niðurstöðu að eldflaugar Íraka af gerðinni Al-Samoud 2 dragi lengra en heimilt er samkvæmt afvopnun- arskilmálum sem öryggisráðið setti Írökum eftir Persaflóastríðið árið 1991. Eldflaugar Íraka mega ekki draga lengra en 150 km en að sögn sérfræðinganna draga Al-Samoud 2- flaugarnar allt að 190 km. Sérfræð- ingarnir staðfestu einnig að Írakar kynnu að geta framleitt eldflauga- hreyfla sem gerðu þeim kleift að skjóta flaugunum miklu lengra en 150 km. Bandarískir embættismenn sögðu að eldflaugamálið væri alvarlegt brot á afvopnunarskilmálunum og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði það geta verið „þýðing- armikið brot“ á síðustu ályktun ör- yggisráðsins í Íraksmálinu. „Ekki hættulegar“ Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra Íraks, sagði að eldflaugarnar væru í samræmi við reglur SÞ og „ekki hættulegar“. Þær væru mjög ónákvæmar, lentu stundum allt að 10 km frá skotmarkinu. Júrí Federov, aðstoðarutanríkis- ráðherra Rússlands, neitaði því einn- ig að eldflaugarnar væru brot á ályktunum Sameinuðu þjóðanna og sagði að drægni þeirra væri „aðeins 10–12 km yfir 150 km mörkunum“. Írakar hefðu greint frá þessu í vopnaskýrslu sinni til öryggisráðsins 7. desember og málið sannaði að Írakar veittu eftirlitsmönnunum gagnlegar upplýsingar. Bandaríkjamenn hafa beitt sér fyrir því á bak við tjöldin að Blix staðfesti ásakanir þeirra um að Írak- ar hafi brotið afvopnunarskilmálana. Condoleezza Rice, þjóðaröryggis- ráðgjafi Bush, fór til að mynda á fund Blix í New York á þriðjudag og hvatti hann til að leggja áherslu á að Írakar hefðu ekki hlítt nokkrum skil- málum í ályktunum öryggisráðsins. Búist er við að Blix skýri einnig frá því að Írakar hafi aukið samstarf- ið við eftirlitsmennina undanfarna viku með því að heimila flug njósna- véla yfir Írak, leyfa eftirlitsmönnun- um að bora eftir jarðvegssýnum á stöðum þar sem talið er að efna- og sýklavopn hafi verið eyðilögð og heimila þeim að ræða við íraska vopnasérfræðinga án þess að fulltrú- ar Íraksstjórnar væru viðstaddir. „Óviðunandi“ skilyrði Þessar tilslakanir eru sagðar renna stoðum undir röksemdir Frakka, Þjóðverja, Rússa og Kín- verja um að halda eigi eftirlitinu áfram og efla það fremur en að heim- ila hernað. Bandaríkjamenn og Bretar segja hins vegar að Írakar hafi sett óvið- unandi skilyrði fyrir flugi njósnavél- anna. Írakar krefjist meðal annars upplýsinga um hvenær og hvar vél- arnar fljúgi inn í lofthelgi Íraks og um hraða þeirra. Bandarískir emb- ættismenn segja að þetta sé brot á síðustu ályktun öryggisráðsins sem krafðist þess að Írakar féllust á eft- irlit án skilyrða. Eldflaugar Íraka öflugri en leyft var Búist við að Blix lýsi því yfir í dag að Írak- ar hafi ekki hlítt skilmálum SÞ að fullu Sameinuðu þjóðunum. Los Angeles Times, Washington Post, AP, AFP. -.-/0$/1 !1/2/ 1U;% 72 !";27'   2 ( O; # J2,;-' 3## ! 1 /2 1 V ';7  %W.4,1  CBB( & ( 6  '(  (6 )( &  G# 26    C<     4*   4* 5  " *  67 4"  *  48 " 7 * 4* * * + ! 4 + 9  "# "* * #  "    4"*" 67  9  * UM 23 manns hafa fallið í Bólivíu síð- ustu tvo daga í miklum mótmælum gegn fyrirhuguðum skattahækkun- um stjórnarinnar. Hafa þær að vísu verið dregnar til baka en mótmælin héldu áfram í gær. Í fyrradag var borinn eldur að ýmsum opinberum byggingum í höfuðborginni, La Paz, og mikið var um gripdeildir. Helsta verkalýðssambandið í Ból- ivíu boðaði til allsherjarverkfalls á miðvikudag til að mótmæla 12,5% al- mennri skattahækkun og brutust þá út mikil átök milli verkfallsmanna og hermanna. Þegar þau fjöruðu út lágu 14 manns í valnum og að minnsta 100 manns slösuðust. Í gær féll síðan einn maður í átökum um mikilvægan þjóð- veg milli hermanna og bænda, sem leggja stund á ræktun kókaplöntunn- ar. Óeirðirnar í gær urðu þrátt fyrir að tekist hefðu samningar um að koma í veg fyrir uppþot. Í því skyni féllst Gonzalo Sanchez, forseti Bólivíu, á að afturkalla skattahækkanirnar en stjórnarandstaðan hafði krafist þess, að hann segði af sér vegna þeirra. Það, sem kynti undir og auðveldaði uppþotin, er, að um 7.000 lögreglu- menn eru í verkfalli vegna þess, að þeir fengu ekki umsamda kauphækk- un, og tóku margir þeirra þátt í mót- mælunum. Lögðu þeir meðal annars undir sig utanríkisráðuneytið og nokkuð var um, að þeir skiptust á skotum við hermenn. Eldur var kveiktur í sjö opinberum byggingum í fyrradag og fangar í stærsta fangelsi borgarinnar kveiktu í því um leið og þeir gerðu árangurs- lausa tilraun til að brjótast út. Einnig voru margar verslanir í miðborginni rændar. Bólivía er fátækasta landið í Suður- Ameríku og ástandið þar hefur hríð- versnað á síðustu árum. Eru laun mjög lág, óbreyttur lögreglumaður hefur innan við 8.000 ísl. kr. á mánuði, og hefði 12,5% skattahækkun orðið til að rýra þau enn. Búist er við, að ólgan í landinu haldi áfram enda ætla stéttarfélögin að halda verkfallsaðgerðum áfram. AP Mótmælendur létu greipar sópa um forsetabústaðinn í La Paz í fyrradag og kveiktu í húsmununum. Gonzalo Sanchez forseti var þegar flúinn. Gífurleg ólga og uppþot í Bólivíu La Paz. AP, AFP. DÓMARI á Ítalíu hefur úrskurðað að leysa beri úr haldi 28 Pakistana, sem voru handteknir í síðasta mán- uði og sakaðir um að hafa ráðgert hryðjuverk. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að láta ætti þá alla lausa vegna skorts á sönnunum. Lögreglan sagðist hafa fundið sprengiefni í íbúð í Napólí þar sem mennirnir voru handteknir 30. jan- úar. Stjórnvöld í Pakistan mótmæltu handtökunni harðlega og sögðu að mennirnir tengdust á engan hátt hryðjuverkastarfsemi. Búist er við að ellefu af 16 mönn- um, sem voru handteknir á Spáni vegna meintra tengsla við hryðju- verkasamtökin al-Qaeda, verði einn- ig látnir lausir á næstunni vegna skorts á sönnunum. Gert er ráð fyrir að fimm þeirra verði dæmdir í gæsluvarðhald fyrir skjalafals. Meintum hryðju- verkamönnum sleppt Róm, Madríd. AFP. BÖRN hrópa slagorð gegn stríði í Írak á mótmælagöngu að byggingu spænska utanríkisráðuneytisins í Madríd í gær. Um það bil 200 frið- arhreyfingar hafa skipulagt mót- mæli gegn stríði í Írak í um 350 borgum víða um heim á morgun, m.a. í New York, London, Tókýó, Ósló og Reykjavík. Hreyfingarnar vonast til þess að milljónir manna taki þátt í mótmælagöngunum. AP Búist við geysifjölmenn- um mótmælum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.