Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 22
AKUREYRI 22 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ TVÆR sýningar verða á Gestinum eftir Eric-Emmanuel Schmitt í Sam- komuhúsinu á Akureyri um kom- andi helgi, 22. og 23. febrúar, í upp- setningu Þíbilju og Leikfélags Reykjavíkur. Gesturinn er franskt verðlauna- leikrit og fjallar um dularfulla nótt á skrifstou Sigmund Fraud í Vín- arborg árið 1938. Hann er ofsóttur af nasistum og þegar angist hans nær hámarki birtist skyndilega ókunnur gestur sem segist vera Guð. Gesturinn hefur verið sýndur frá því í byrjun febrúar 2002 til ársloka við góða aðsókn. Gunnar Eyjólfsson leikur Fraud, Ingvar Sigurðsson gestinn, Kristján Franklín Magnús er nasistinn og Jóna Guðrún Jónsdóttir fer með hlutverk Önnu Fraud, dótturinnar sem tekin er til yfirheyrslu hjá Gest- apó. Leikstjóri er Þór Tulinius. Leik- mynd og búninga gerði Stígur Stein- þórsson. Fyrri sýningin verður á laug- ardag og hefst kl. 19 en sú síðari á sunnudagskvöld kl. 20. Gunnar Eyjólfsson og Ingvar E. Sigurðsson í hlutverkum sínum. Gesturinn í Samkomuhúsinu STEFNT er að því að auglýsa um helgina nýtt útboð í byggingu rann- sókna- og nýsköpunarhúss við Há- skólann á Akureyri. Um er að ræða opið útboð en hér er um svonefnda einkaframkvæmd að ræða. Eins og fram hefur komið hafnaði Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra ný- lega báðum tilboðunum sem bárust í framkvæmdina á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að skuldbindingar þeirra ráðuneyta og stofnana sem komu að verkinu verði með sama hætti og í fyrra útboði. Tvö tilboð bárust í byggingu húss- ins að undangengnu lokuðu forvali, annars vegar frá Íslenskum aðal- verktökum, ISS á Íslandi og Lands- afli og hins vegar frá Ístaki og Nýsi. Tilboð beggja fóru fyrir kærunefnd útboðsmála, sem úrskurðaði tilboð ÍAV og samstarfsaðila ógilt en tilboð Ístaks og Nýsi gilt en allt tók þetta ferli marga mánuði. Menntamála- ráðherra hafnaði báðum tilboðunum sem fyrr sagði. Hann boðaði að þótt verkið yrði í meginatriðum boðið út óbreytt, yrðu gerðar breytingar á út- boðsskilmálum. Þeir aðilar sem buðu í verkið síð- ast hyggjast bjóða í það aftur. Gunn- laugur Kristjánsson framkvæmda- stjóri þróunarsviðs ÍAV sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í þess- um mánuði: „Við tökum þátt í öllum útboðum sem okkur er boðið að vera með í og við eigum mjög gott hús sem við getum boðið.“ Sigfús Jónsson framvæmdastjóri Nýsis sagði að Ístak og Nýsir myndu taka þátt að nýju. „Þetta er orðið langdregið og mjög sérstakt mál. En það er enginn bilbugur á okkur og við ætlum að ná þessu verkefni.“ Páll Grétarsson hjá Ríkiskaupum sagði að þótt útboðið hefði verði lok- að síðast, hafi farið fram opið forval og að þá hefðu þessir tveir aðilar lýst yfir áhuga á verkinu en aðrir ekki. „Það er hins vegar ekki verra fyrir verkefnið ef fleiri bætast við.“ Bygging rannsókna- og nýsköpunarhúss við HA Nýtt útboð verður auglýst um helgina TÖLUVERT snjóaði á Akureyri í fyrrinótt og í gærmorgun var víða þungfært fyrir minni bíla á götum bæjarins, enda snjórinn mjög blautur. Þótt einhverjir ökumenn hafi bölvað í hljóði og jafnvel upphátt yfir færðinni, var yngsta fólkið nokkuð ánægt með aðstæður, ekki síst þar sem blautur snjór er sérlega góður til að búa til snjókarla og -kerlingar. Það var mikið líf á lóð leikskólans Flúða upp úr hádeginu í gær. Börnin léku sér í snjónum og þessar ungu stúlkur voru að leggja lokahönd á myndarlega snjókerlingu, sem einhverjir aðrir höfðu byrjað á fyrr um daginn. Morgunblaðið/Kristján Lokahönd lögð á snjókerlinguna Evrópusambandið og íslenskursjávarútvegur er yfirskrift fund- ar sem Samfylkingin gengst fyrir á Akureyri á morgun, laugardag- inn 22. febrúar, kl. 12.15 á Hótel KEA. Á fundinum verður fjallað um hvaða ógnanir og/eða ávinningur geti falist fyrir íslenskan sjávar- útveg í því að eiga nánari sam- skipti við eða aðild að Evrópusam- bandinu. Frummælendur eru Þorsteinn Már Baldvinsson for- stjóri Samherja, Pétur Bjarnason sjávarútvegsfræðingur og Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og munu þeir fjalla um ýmsar hliðar Evrópusamvinnunnar og sjáv- arútvegsins. Samfylkingin í Norðaust- urkjördæmi efnir til spjallfundar fyrir konur á Akureyri og ná- grenni á morgun, laugardag kl. 10.30 á kosningaskrifstofunni, Brekkugötu 1. Sérstakir gestir fundarins verða Rannveig Guðmundsdóttir alþing- ismaður og Lára Stefánsdóttir sem skipar þriðja sætið á fram- boðslista Samfylkingar í kjördæm- inu. Á MORGUN Handverk í Ketilhúsinu SÝNINGIN Handverk og hönnun verður opnuð í Ketilhúsinu á morgun, laugardaginn 22. febrúar, kl. 15. Sýningin hefur áður verið í Reykja- vík, á Ísafirði, Ólafsvík, í Reykja- nesbæ, á Skriðuklaustri og í Skaga- firði og að lokinni sýningu á Akureyri, 9. mars, verður hún sett upp á Höfn í Hornafirði. Á sýningunni er fjöl- breytt handverk og listiðnaður eftir 25 listamenn. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 17.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.