Morgunblaðið - 21.02.2003, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 53
VIKTOR B. Arnarsson lék sinn
fyrsta heila leik í hollensku deilda-
keppninni í knattspyrnu á þriðju-
dagskvöldið. Viktor, sem er í láni hjá
1. deildarliði TOP Oss frá Utrecht út
tímabilið, spilaði allan tímann þegar
liðið gerði jafntefli, 2:2, við Go Ahead
á útivelli og fékk góða dóma fyrir
frammistöðu sína.
JÓHANNES Harðarson lék allan
leikinn með Veendam sem tapaði
heima fyrir Cambuur, 1:4, í hollensku
1. deildinni. Veendam er í 11. sæti en
TOP Oss í 9. sæti af 18 liðum í deild-
inni.
HAFSTEINN Ægir Geirsson úr
Þyt í Hafnarfirði er í 63. sæti af 78
keppendum eftir fimm umferðir á
siglingamóti í Grikklandi. Hann var í
28. sæti í fyrstu umferð, síðan í 66.,
57., 57. og 68. sæti, og er með 210 stig.
Lakasta umferðin er ekki talin með.
Hafsteinn Ægir keppir á eins manns
Laser-seglskútu.
KAISERSLAUTERN, þýska 1.
deildarfélagið í knattspyrnu, hefur
verið úrskurðað til að greiða fyrrum
þjálfara sínum, Andreas Brehme,
rúmlega 100 millj. ísl. kr. í bætur þar
sem ólöglega var staðið að uppsögn
Brehme þegar honum var sagt upp
störfum í ágúst á sl. ári. Brehme
hafði samið við Kaiserslautern fram
til ársins 2004 og sótti rétt sinn í
gegnum dómskerfið og vann málið.
Kaiserslautern riðar á barmi gjald-
þrots en skuldir félagsins eru rétt
rúmlega 2,5 milljarðar ísl. kr.
JOE Royle, knattspyrnustjóri Ips-
wich, kveðst ekki með nokkru móti
skilja hvernig lið sitt hafi getað tapað
2:4 fyrir Wolves í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu í fyrrakvöld. Vörn Ips-
wich, án Hermanns Hreiðarssonar,
var sem gatasigti í leiknum. „Mark-
vörðurinn okkar hafði ekkert að gera,
nema hvað hann sótti boltann fjórum
sinnum í netið. Það var eins og það
hefði slokknað á perunni hjá flestum
varnarmönnum okkar,“ sagði Royle.
SÆNSKI landsliðsmaðurinn hjá
Arsenal, Fredrik Ljungberg, óttast
að hann muni ekki leika meira með
Arsenal á keppnistímabilinu vegna
meiðsla. Hann vonaði að hann myndi
geta leikið með liðinu á ný þegar það
mætti Ajax, en á mánudaginn var
ljóst að hann ætti þó nokkuð í land til
að verða góður. Ljungberg, sem átti
stóran þátt í að Arsenal vann tvöfalt
sl. keppnistímabil – bæði deild og bik-
ar, hefur tvisvar á síðustu dögum
leikið með varaliði Arsenal, en í bæði
skiptin farið af leikvelli, þar sem hann
fann til. „Útlitið er ekki bjart,“ sagði
Ljungberg í viðtali við enska fjöl-
miðla í gær.
FÓLK
ÁTJÁN íslenskir júdómenn taka
þátt í alþjóðlegu móti í Dan-
mörku um helgina og etja þar
kappi við evrópska og japanska
júdómenn.
Sævar Sigursteinsson, lands-
liðsþjálfari karla, og Bjarni
Ágúst Friðriksson, landsliðsþjálf-
ari kvenna, hafa valið þrettán
keppendur til fararinnar en auk
þess fara fimm júdómenn á eigin
vegum á mótið.
Þeir sem halda til Danmerkur
eru; Höskuldur Einarsson -60 kg
flokki, Ólafur Baldursson -66 kg
flokki, Snævar Jónsson -73 kg
flokki, Axel Jónsson -81 kg
flokki, Baldur Pálsson, -81 kg
flokki Bjarni Skúlason, -90 kg
flokki, Vernharð Þorleifsson -100
kg flokki, Heimir Haraldsson
+100 kg flokki, Hjördís Ólafs-
dóttir -57 kg flokki, Margrét
Bjarnadóttir - 63 kg flokki, Gígja
Guðbrandsdóttir -70 kg flokki,
Anna Soffía Víkingsdóttir -70 kg
flokki.
Auk þessara keppenda fara
Örn Arnarson -73 kg, Máni And-
ersen -90 kg, Guðmundur Sæv-
arsson -100 kg, Gísli Jón Magn-
ússon +100 kg, Gunnar B.
Sigurðsson -100 kg á eigin veg-
um.
Eftir mótið verður hópurinn
við æfingar í Danmörku í nokkra
daga.
Júdómenn
keppa í
Danmörku
Morgunblaðið/Kristinn
Damon Johnson hefur leikið ákaflega vel með Keflvíkingum þau ár sem hann
hefur verið í þeirra herbúðum. Nú gæti hann verið á förum frá Suðurnesjaliðinu.
Damon
Johnson
til Grikk-
lands?
SVO kann að fara að úrvalsdeildarlið Keflvíkinga í
körfuknattleik missi sinn besta leikmann innan
tíðar. Gríska liðið Panionios hefur ítrekað borið
víurnar í Damon Johnson og nú er svo komið að
Keflvíkingar eru komnir með í hendurnar tilboð frá
Grikkjunum sem þeir eru að skoða.
HEIÐAR Helguson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, skrifaði í gær undir nýjan samning
við enska 1. deildarliðið Watford en Heiðar
var í hópi 14 leikmanna liðsins sem var með
lausan samninga í vor.
„Ég er geysilega ánægður með þessa nið-
urstöðu. Heiðar hefur leikið sérlega vel fyr-
ir okkur á leiktíðinni og af miklum eldmóð.
Heiðar er hughrakkur, ákaflega sterkur
skallamaður og er góður félagi í alla staði.
Það er því gott til þess að vita að hann verð-
ur áfram hjá okkur,“ sagði Ray Lewington,
knattspyrnustjóri Watford, eftir að Heiðar
hafði skrifað undir samninginn.
Heiðar gekk í raðir Watford frá norska
liðinu Lilleström fyrir þremur árum. Hann
hefur á þessum árum leikið 119 leiki fyrir
félagið og er markahæsti leikmaður liðsins
á tímabilinu með10 mörk.
Heiðar verður í eldlínunni með Watford
á morgun þegar liðið sækir Walsall heim en
stuðningsmenn Watford bíða spenntir eftir
bikarkeppninni þar sem Watford er komið í
átta liða úrslitin og fær þar heimaleik gegn
Burnley eða Fulham.
Heiðar samdi
við Watford
Við erum að fara yfirþessi mál og ég útiloka
ekkert að Damon fari frá
okkur. Grikkirnir eru búnir
að eltast við hann nokkuð
lengi en hingað til höfum
við vísað áhuga þeirra frá
okkur. Þeir hafa hins vegar
ekki gefist upp og nú hafa
þeir sent okkur drög af til-
boði sem við erum að fara
yfir. Þeir segjast tilbúnir
að greiða fyrir það ef við
losum hann undan samn-
ingi,“ sagði Hrannar Hólm,
formaður körfuknattleiks-
deildar Keflavíkur, við
Morgunblaðið í gær.
Hrannar segir að Damon
Johnson sé samningsbund-
inn Keflavík út þetta tíma-
bil og hann geti því farið
frjáls ferða sinna frá félag-
inu eftir 6–8 vikur.
„Auðvitað viljum við ekki
missa okkar besta leik-
mann en þetta er snúið mál.
Það eru hagsmunir í húfi og
við vitum að við þurfum
peninga til að reka deild-
ina, ekki bara núna heldur
á næstu árum og í því um-
hverfi sem er í dag þá er
reksturinn langt frá því að
vera auðveldur. Tekjuöflun
er erfið og því er eðlilegt að
við skoðum þetta tilboð frá
Grikkjunum. Þegar við er-
um farnir að tala um ein-
hverjar upphæðir sem okk-
ur líkar þá erum við farnir
að velta þessu alvarlega
fyrir okkur. Góðir evrópsk-
ir leikmenn eru takmörkuð
auðlind í körfuboltaheimin-
um í dag og af því Damon
er íslenskur ríkisborgari er
hann kominn í þennan hóp.
Eins og með alla góða
íþróttamenn þá vill hann
auðvitað spreyta sig meðal
þeirra bestu og þegar til-
boð kemur upp á borðið er
eðlilegt að hann skoði það.
Hann hefur hins vegar ver-
ið afar rólegur yfir þessu
öllu saman,“ sagði Hrann-
ar.
Rasmussen leikur nú með Ajax/Farum sama liði og Elvar Guð-
mundsson, fyrrverandi markvörður
FH og Breiðabliks. Hann er marka-
hæstur leikmaður dönsku úrvals-
deildarinnar og þykir afar öflugur
hornamaður þótt hann hafi ekki kom-
ist í danska landsliðið sem keppti á
HM í Portúgal á dögunum. Því sóttist
FC Kaupmannahöfn eftir honum í
sínar raðir fyrir næstu leiktíð, enda
rennur samningur hans við Ajax út í
vor. Rasmussen undirritaði samning-
inn en síðan leið og beið og frammi-
staða hans vakti athygli Minden í
Þýskalandi sem leitaði að arftaka
Gústafs. Einhverra hluta vegna gerði
Rasmussen samning við Minden þótt
hann hefði áður samþykkt áður að
ganga til liðs við FC Köbenhavn.
Þegar hann vildi losna undan samn-
ingi við danska liðið sagði það þvert
nei, en samninginn telja Rasmussen
og lögfræðingur hans ekki vera í gildi
þar sem danska handknattleikssam-
bandið hafi ekki verið búið að stað-
festa hann þegar samningurinn við
þýska liðið kom upp á borðið.
Rasmussen er þar með á milli
steins og sleggju og ekkert bendir til
þess að forráðamenn FC Köbenhavn
ætli að gefa eftir. Hafa þeir nú vísað
málinu til Evrópska handknattleiks-
sambandsins (EHF) og beðið það að
hlutast til um málið og sjá til þess að
Rasmussen standi við sinn samning
og að samningur hans við Minden
verði ógiltur. Hunsi EHF beiðni FC
Köbenhavn segist félagið ætla að fara
með málið fyrir danska dómstóla.
Rasmussen er með böggum hildar
um þessar mundir og segist sjá eftir
að hafa gert samning við FC Köben-
havn og vill fara til Þýskalands.
„Samningurinn við Minden skiptir
mig öllu máli. Með honum treysti ég
framtíð mína bæði í handknattleikn-
um og fjárhagslega. Því vil ég fara til
Þýskalands hvað sem tautar og raul-
ar,“ segir Rasmussen.
Eftirmaður Gúst-
afs hjá Minden í
slæmum málum
DANSKI handknattleiksmaðurinn Lars Rasmussen á ekki sjö dag-
ana sæla um þessar mundir og í viðtali við Ekstra Bladet segir hann
að sér hafi vart komið dúr á auga dögunum saman. Ástæðan er sú
að hann hefur skrifað undir samninga við tvö félög um að leika með
þeim á næsta vetri, annarsvegar er um að ræða FC Köbenhavn og
hins vegar GWD Minden og taka við stöðu Gústafs Bjarnasonar í
vinstra horninu.
Þulur Arsenal fór yfir strikið
VALLARÞULURINN hjá Arsenal, Paul Burrell, er í slæmum mál-
um eftir leik liðsins gegn Ajax í meistaradeild Evrópu á þriðjudag-
inn. Fyrir leik gat hann ekki fengið Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóra, í viðtal eins og oftast áður. „Arsene Wenger missti
röddina en það var hinsvegar Alex Ferguson sem missti stjórn á
sér,“ sagði Burrell þá í hátalarakerfið. Stuðningsmönnum Arsenal
var skemmt, en ekki stjórnarmönnum félagsins. Þeir telja að Burr-
ell hafi farið yfir strikið, hyggjast taka hann á teppið og íhuga að
biðja Manchester United afsökunar á þessum ummælum.