Morgunblaðið - 21.02.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 21.02.2003, Síða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 25 27. flokksþing framsóknarmanna er haldið á Hótel Loftleiðum dagana 21.-23. febrúar. Þingið verður sett í dag við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu kl. 13:00. Setningarræðu Halldórs Ásgrímssonar formanns Framsóknarflokksins verður sjónvarpað í beinni, opinni útsendingu á Stöð 2 kl. 13:45 í dag. FRAMSÓKNARFLOKKURINN Vinna vöxtur velferð XXVII FLOKKSÞING FRAMSÓKNARMANNA - Hótel Loftleiðum 21.-23. febrúar 2003 AFTANSKIN, félag eldri borgara í Stykkishólmi, hélt nýlega upp á 20 ára afmælið sitt með veglegri veislu á hótelinu. Félagið var stofnað 30. janúar fyrir 20 árum. Í afmælishóf- inu var margt sér til gamans gert. Farið var yfir sögu félagsins og m.a. flutti Árni Helgason gaman- vísur bæði gamlar og nýjar. Það voru hjónin Pálmi Frí- mannsson læknir og kona hans, Heiðrún Rútsdóttir, sem mest og best unnu að stofnun félagsins. Pálmi var formaður Rauðakross- deildarinnar og lét sér annt um eldri Hólmara. Stofnfélagar voru 71 og í dag eru starfandi um 100 félagsmenn. Starfsemi félagins er góð um þessar mundir. Á veturna stendur það fyrir skemmtunum með aðstoð félagasamtaka og einnig fyrir kór- starfi. Þá efnir félagið til ferðalaga á sumrin. Félagið er opið öllum sem vilja eiga samleið með íbúum Stykkishólms sem komnir eru yfir miðjan aldur. Fyrsta stjórn félagsins var skip- uð þeim Jakobi Péturssyni, Krist- ínu Níelsdóttur og Lárusi Kr. Jóns- syni. Oftast sitja félagar aðeins eitt ár í stjórn. Stjórnina skipa nú María Guðmundsdóttir, Helga Að- alsteinsdóttir og Guðni Friðriksson. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Stjórn Aftanskins sem stóð fyrir 20 ára afmælisveislunni. María Guð- mundsdóttir (til vinstri), Guðni Friðriksson og Helga Aðalsteinsdóttir. Aftanskin heldur upp á 20 ára afmælið Stykkishólmur ÞAÐ eru ekki bara fullorðnir sem halda sín árlegu þorrablót, leik- skólabörn gera það líka. Leikskólakrakkar á Sólvöllum í Grundarfirði héldu sín þorrablót á dögunum. Sú hefð er fyrir því að bjóða 1. bekk í grunnskólanum til þessarar hátíðar. Einnig var for- eldrum boðið á blótið. Eins og á stórum þorrablótum var boðið upp á fjölbreytt skemmti- atriði sem bæði börnin og gestirnir höfðu gaman af. Að loknum skemmtiatriðunum var boðið upp á hefðbundinn þorra- mat, t.d. hákarl, hangikjöt, sviða- sultu og hrútspunga. Morgunblaðið/Guðlaugur Alberts Álfheiður I. Ólafsdóttir fær sér há- karlsbita, henni finnst hann góður. Þorrablót á leik- skólanum Grundarfjörður MIKIÐ líf hefur verið í tónlistar- kennslunni í Hafralækjarskóla þessa vikuna, en þar hefur Marimba-tón- list frá Zimbabwe í Afríku verið sungin og leikin af nemendum. 22 krakkar á aldrinum 10–15 ára taka þátt í ævintýrinu. Forsaga málsins er sú að á sl. ári kom Tanhuta Marimba-hópurinn í heimsókn í skólann en það eru nem- endur frá „Kulturskolan“ í Fredriks- tad í Noregi. Vakti tónlist þessi gríð- arlega athygli og var áhugi margra á því að nemendur fengju að kynnast þessari tegund tónlistar betur. Að frumkvæði Hafralækjarskóla er Tanhuta Marimba-hópurinn nú kominn aftur, en í hópnum eru fimm stúlkur á aldrinum 15–17 ára. Þær kenna nemendum á hljóðfærin frá Zimbabwe sem skólinn er nýlega bú- inn að eignast og eru það athyglis- verð tréspil, þumalpíanó (mbira) og trommur. Allt þetta var keypt með styrk nokkurra aðila. Meðal annars styrkti Menningarsjóður KEA og Kvenfélag Aðaldæla verkefnið. Tónlistarþema þetta gengur ekki bara út á að spila á hljóðfærin heldur líka út á það að dansa „námadans- inn“ sem er útfærsla á dansi frá Zimbabwe. Þá skal þess getið að tón- list þessari fylgja engar nótur og er spilað alfarið eftir eyranu. Ekki hefur verið annað að sjá en að nemendur séu mjög áhugasamir og allir eru mjög ánægðir. Margir hafa eftir fjögurra daga námskeið náð miklum árangri í því að spila og dansa. Að sögn Roberts Faulkners hefur vikan verið skemmtileg og er með þessu verið að skyggnast inn í annan menningarheim og í því felst veruleg tilbeyting frá allri þeirri tónlist frá Evrópu og Ameríku sem er alls stað- ar í kringum okkur. Til stendur að halda góugleði í skólanum og þá verður Marimba- tónlistin flutt. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Það hefur verið mikið um að vera á æfingum í Hafralækjarskóla þar sem marimba-tónlistin er í hávegum höfð. Tónlistin er ættuð frá Zimbabwe. Marimba- tónlist í Hafralækj- arskóla Laxamýri www.nowfoods.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.