Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 28
MENNTUN
28 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMENNINGARVEFUR
Breiðholtsskóla var meðal nýbreytni
í skólastarfi sem fékk Hvatning-
arverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur
sem Anna Sigríður Pétursdóttir
skólastjóri og Anna Guðrún Júl-
íusdóttir kennari og höfundur vefsins
tóku við ásamt nokkrum nemendum.
Vefurinn kynnir menningarsvæði og
upprunalönd nemenda af erlendum
uppruna. Saga hvers lands er sögð í
hnotskurn ásamt upplýsingum um
landið í dag. Sérstök síða er um
menningaráfall. Á vefnum er einnig
aragrúi tengla og ýtir hann undir
notkun upplýsingatækni í námi. Hon-
um er ætlað að byggja brú á milli
menningarheima, auka á þekkingu á
fjarlægum þjóðum og slá á fordóma.
Blaðamaður hitti Önnu Guðrúnu í
Breiðholtsskóla sem jafnframt er
deildarstjóri fyrir móttökudeildina.
U.þ.b. 40 nemendur af erlendum
uppruna eru í skólanum og eiga at-
hvarf í deildinni. Þar af eru 18 sem
eru að staðaldri í stofunni hennar.
Börnin eru síðan hvert í sínum
heimabekk í skólanum.
Þau eru frá 11 löndum; Kína, Víet
Nam, Lettlandi, Pakistan, Póllandi,
Mexíkó, Bandaríkjunum, Nepal, Alb-
aníu, Tælandi og Noregi. „Þetta er
mjög skemmtilegt starf,“ segir Anna
Guðrún, „þessi börn hafa mikið að
gefa og er fjölmenningarvefurinn lið-
ur í því að virkja þau, m.a. með því að
búa til heimasíður um það svæði sem
þau koma frá. Nemendur geta líka
notað spjallrásir og talað við unglinga
á sínu tungumáli.“
Það eru krakkar út um allan heim í
sömu sporum og þau og flest verða
þau fyrir menningaráfalli. Það er því
mikilvægt að byggja þessa brú á milli
þeirra menningar og okkar.
Anna Guðrún vann við góð skilyrði
við að koma vefnum á laggirnar,
stjórnendur skólans og Friðbjörg
Ingimarsdóttir ráðgjafi hjá Fræðslu-
miðstöð studdu hana með ráðum og
dáð. Hún notaði styrki sem hún fékk
síðasta sumar, og hún ætlar að nota
næsta sumar ef styrkir fást til að
halda áfram með hann, en það liggur
mikil vinna á bak við hann. „Ég fór
fyrst á Front Page-námskeið og fékk
styrki frá Hagþenki og Verkefna- og
námsstyrkjasjóði Kennarasambands
Íslands,“ segir hún og að hún hafi
gert vefi yfir átta lönd, en viðamiklar
upplýsingar fylgja hverju þeirra. Það
var afar mikið verk að móta vefinn;
útlit og efni. Eftir að vefurinn er full-
mótaður er það um 40 tíma vinna að
bæta landi við; http://breidholts-
skoli.ismennt.is/fjolmenning/
index.htm.
„Hingað koma börn frá mörgum
löndum og við höfum oft ekki hug-
mynd um menningu þeirra og siði,“
segir Anna, „Netið getur hins vegar
hjálpað okkur mikið til að afla þess-
arar vitneskju, það vantaði því svona
vef fyrir kennara og samfélagið til að
kynna sér löndin.“
Anna Guðrún lítur á þessi börn
sem fjársjóð og þau eru daglega að
kenna henni eitthvað nýtt og hún
þeim. „Það er mikilvægt að kynnast
þeim á þeirra eigin forsendum,“ segir
hún. „Sum koma frá löndum þar sem
það tíðkast ekki að nemendur segi
skoðun sína, tali að fyrra bragði eða
biðji um eitthvað. Hjá sumum er mik-
ilvægt að kveðja iðulega og það er
dónalegt að svara ekki kveðjunni.
Hjá öðrum merkir það að nikka höfð-
inu til hliðanna játun en hjá okkur er
það neitun.“
Áður en blaðamaður heimsótti þau
í skólann hafði Anna verið að ræða
við þau um rasisma eða kynþátta-
fordóma, og það kom henni mjög á
óvart að þau þekktu ekki þetta hug-
tak og höfðu ekki fengið fræðslu um
það. Anna hefur nýlega rekist á vand-
aða vefsíðu sem m.a. kemur inná þá
fræðslu, sem heitir að kenna umburð-
arlyndi (http://www.tolerance.org/
teach/index.jsp). Þar kemur m.a.
fram að þau sem verða fyrir kyn-
þáttafordómum mega ekki láta aðra
brjóta sig niður. Þau verða að segja
frá, verða að passa sig og mega ekki
samþykkja fordómana með þögninni.
Nemendur hafa mikinn áhuga á
vefnum og Anna er sannfærð um að
hann kemur þeim til góða. Hún veit
að hann er ennfremur notaður í
mörgum skólum í samfélagsfræði, og
einnig í Kennaraháskólanum.
Einn liðurinn á fjölmenning-
arvefnum heitir Fróðleikur og þar er
m.a. sagt frá verkefnum sem þau
hafa gert, t.d. var ákveðið að gera til-
raunir með útsaum til tilbreytingar.
Niðurstaðan varð fjölþjóða útsaums-
teppi. „Þegar „fjölþjóða útsaums-
teppið“ var komið saman mátti ým-
islegt lesa úr því. Stúlkurnar frá
Víetnam völdu fíngerð munstur og
„viðkvæma“ liti (pastelliti). Nemandi
frá Kenýa valdi áberandi sterka og
bjarta liti og stór munstur. Stúlkan
frá Kína valdi að sauma blómamunst-
ur með tvöföldu perlugarni og bland-
aði þannig saman litum. Strákarnir
völdu flestir upphafsstafinn sinn,“
stendur um það.
Rökstuðningur dómnefndar fyrir
viðurkenningu fjölmenningarvefsins
var eftirfarandi: „Hér er um að ræða
nýbreytni í nýbúakennslu en einnig
samþættingu við kennslu í sam-
félagsgreinum og upplýsingatækni.
Hér er um að ræða metnaðarfullt
verkefni og frumkvöðulsstarf sem
nýtist bæði í viðkomandi skóla og
öðrum.“
Hvatningarverðlaunin/Breiðholtsskóli: Fjölmenningarvefurinn er brú á milli heima
Ljósmynd/Kolbrún Hjaltadóttir
Martha frá Kenýa sýnir blóma-
myndina sem hún saumaði í teppið.
MEGINMARKMIÐ þess verkefnis,
sem Ölduselsskói fékk hvatning-
arverðlaun fræðsluráðs Reykjavík-
ur fyrir, er að bæta námsárangur og
laga kennslu að námi í skóla sem
vinnur samkvæmt kenningum um
skóla án aðgreiningar. Meginmark-
mið nemandans er að verða eins
góður og hann getur orðið, og því
mikilvægt að hver nemandi fái
verkefni við hæfi; ráði við þau verk-
efni sem hann er að vinna hverju
sinni og að þau geri kröfur til hans.
Verkefnið í Ölduselsskóla tekur til
útfærslu á allri bóklegri kennslu
nema náttúrufræði í 6. og 7. bekk.
Þrír bekkir eru í hvorum árgangi.
Blaðamaður hitti Auði Ögmunds-
dóttur, Kristínu Ingu Guðmunds-
dóttur og Petru Eiríksdóttur kenn-
ara í Ölduselsskóla og innti þær
eftir upplýsingum um þetta verk-
efni. Auður sagði einnig frá verk-
efninu á ráðstefnu um Skóla á nýrri
öld sem haldin var 14. febrúar, und-
ir heitinu: Breyttir kennsluhættir í
átt að einstaklingsmiðuðu námi.
Kennarar hafa einnig kallað verk-
efnið Regnbogann. „Allir litir regn-
bogans eru jafn mikilvægir,“ segir
Auður. „Við völdum því að flokka
nemendur niður eftir litum regn-
bogans.“
Nemendum í hverjum bekk er
raðað í hópana gulan, rauðan,
grænan og bláan, svo að sérhver fái
verkefni við hæfi, og sem gerir kröf-
ur til hans. Í regnbogakerfinu er því
hver hópur og þar af leiðandi hver
nemandi með námsbækur, vinnu-
bækur og ítarefni tilgreint af kenn-
urum.
Nemendur geta svo flust á milli
hópa eftir því hvernig náminu mið-
ar, og þeir geta einnig óskað þess að
skipta um hóp. Markmiðið er að all-
ir hafi nóg að gera.
Auður, Petra og Kristín segja að
þetta kerfi hafi gefist mjög vel, og
þær vonist til að hægt verði að taka
það upp í fleiri árgöngum í skól-
anum. „Þetta fyrirkomulag virðist
létta spennu af nemendum, og
minnka líkurnar á agavanda-
málum,“ segir Petra. Orsök aga-
vandamála er m.a. eirðarleysi sem
sprettur fram ef verkefni eru ekki
við hæfi. Ef námsefni reynist of erf-
itt eða of létt fer nemendum að leið-
ast. Þær fullyrða að þetta vinnufyr-
irkomulag auki vinnugleði
nemenda, ánægju foreldra og
starfsgleði kennara.
Vinnuhestar heitir svo aukahópur
fyrir þá nemendur sem vinna eins
og hestar eða eru dugnaðarforkar.
„Þeir sem tilheyra vinnuhestum eru
ekki endilega þeir nemendur sem
eru með hæstu einkunnir á prófum,
þó það fylgist oft að,“ segir Auður.
Nemendur í þessum hóp vinna sam-
kvæmt áætlun síns regnbogahóps,
en fara stundum út úr stofunni að
nema á bókasafninu samkvæmt fyr-
irmælum kennara.
Vinnuhestarnir virðast mjög
ánægðir með þetta fyrirkomulag og
hafa látið setningar falla eins og:
„Nú nenni ég að fara á fætur á
morgnana og mæta í skólann, þetta
er svo miklu skemmtilegra.“ „Þetta
hefur alveg bjargað lífi mínu.“
Á sýningunni Skóli á nýrri öld í
Ráðhúsinu sýndi Ölduselsskóli tvö
verkefni. Annað sem verk- og list-
greinakennarar stóðu fyrir í 1.–10.
bekk, og hitt sem var þemaverkefni
á vísindalegum grunni í 6. og 7.
bekk þar sem regnbogakerfið er
starfrækt. „Við skiptum skólaárinu
í nokkur þemu,“ segir Kristín Inga,
„en hvert þema reynir mjög á skipu-
lagningu, sjálfstæði, vinnusemi og
ögun nemenda.“
Þemaverkefnið Lifandi vísindi
var m.ö.o. sýnt í Ráðhúsinu. Nem-
endur hönnuðu t.d. og bjuggu til
eggjakarl sem fellur niður af vegg
með því að nota loftþrýsting. Þeir
hönnuðu pappabrú sem getur hald-
ið uppi 3000 grömmum og einnig
módel sem lýsir og hægt er að
kveikja á og slökkva með rofa. „Þau
unnu eins og vísindamenn,“ segir
Petra, „þau bjuggu sig undir verk-
efnin í hópum en skrifuðu svo grein-
ar um þau sem einstaklingar og
birtu í blaði sem gefið var út af
þessu tilefni og allir geta lesið.“
S
KÓLI á nýrri öld er átak
að tilstuðlan fræðsluráðs
Reykjavíkur til kynning-
ar á nýbreytni í grunn-
skólastarfi í borginni.
Átakið er samstarfsverkefni
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur,
Skólastjórafélags Reykjavíkur og
Kennarafélags Reykjavíkur. Efnt
var til ráðstefnu fimmtudaginn 14.
febrúar og sýningar í Ráðhúsinu 15.
og 16. febrúar en þá voru hvatning-
arverðlaun fræðsluráðsins veitt í
fyrsta skipti.
Sex grunnskólar í borginni fengu
viðurkenningu fyrir nýbreytni- og
þróunarstarf . Stefán Jón Hafstein
formaður fræðsluráðs afhenti hvatn-
ingarverðlaunin ásamt Birnu Sigur-
jónsdóttur, deildarstjóra kennslu-
deildar Fræðslumiðstöðvar, sem var
einnig formaður sérstakrar dóm-
nefndar, sem fjallaði um allar tillög-
urnar sem bárust.
Stefán Jón sagði að öll tilnefnd
verkefnin 53 til hvatningarverðlauna
hafi þótt athygliverð og merkileg
þróunarverkefni eða fela í sér ný-
breytni eða vera einfaldlega til fyr-
irmyndar og merki um framúrskar-
andi skólastarf. „Það eitt að fá
tilnefningu er viðurkenning í sjálfu
sér,“ sagði hann. „Það þýðir að verk-
efnið nýtur virðingar í skólanum og í
foreldrahópnum.“
Sennilega voru yfir 40 þessara
verkefna sýnd á fjölsóttri sýningunni
í Ráðhúsinu; sem dæmi má nefna
verkefni um fjarkennslu, listkennslu,
fjölmenningu, vildarvog, vísindi.
Sex skólar fengu hvatningarverð-
laun: Laugarnesskóli fyrir verkefnið
Smíðavöllur. Vogaskóli fyrir verk-
efnið Ábyrgð nemenda. Öldusels-
skóli fyrir verkefnið Breyttir
kennsluhættir – í átt að einstaklings-
miðuðu námi. Breiðholtsskóli fyrir
verkefnið Fjölmenningarvefur
Breiðholtsskóla. Fellaskóli fyrir
verkefnið Kynslóðir saman í Breið-
holti. Laugalækjarskóli fyrir verk-
efnið Framfaramöppur í tungumála-
námi á unglingastigi.
Þróunarstarf eins og sýnt var í
Ráðhúsinu er ekki hrist fram úr
erminni. „Öflugt þróunarstarf krefst
ákveðinna aðstæðna,“ benti Ingvar
Sigurgeirsson prófessor í Kenn-
araháskólanum á á ráðstefnunni á
fimmtudeginum. Hann sagði: „Þró-
unarstarf krefst t.d. verulegs tíma til
undirbúnings, ígrundunar og sam-
ráðs. Og það krefst auðvitað ákveð-
innar afstöðu, m.a. áhuga á skólaþró-
un og samstöðu um mikilvægi
hennar. Og það þarf fjármagn,
stuðning, ráðgjöf, leiðsögn og for-
ystu.“
Hvatningarverðlaun/ Þrátt fyrir að grunnskólakennarar hafi meira en nóg að gera tekst þeim að vinna að
þróunarstarfi í skólunum sínum. Það krefst verulegs tíma til undirbúnings, ígrundunar og samráðs. Gunnar
Hersveinn sótti áhrifamikla sýningu í Ráðhúsinu um nýbreytni í skólastarfi í grunnskólum Reykjavíkur.
Björtu hliðarnar
Morgunblaðið/Kristinn
Grunnskólar í Reykjavík sýndu dæmi úr starfinu á sýningunni. Hér eru fulltrúar skólanna sex sem tóku við hvatn-
ingarverðlaunum fræðsluráðs Reykjavíkur sem afhent voru í fyrsta sinn í Ráðhúsinu sunnudaginn 16. febrúar.
Fyrirkomulag Regnbogans kemur
í veg fyrir agavanda.
Vefurinn er frumkvöðulsstarf sem
nýtist skóla og samfélagi.
TENGLAR
.....................................................
www.grunnskolar.is
http://breidholtsskoli.ismennt.is/
http://oldusel.ismennt.is/
guhe@mbl.is
Sérhver einstaklingur fái verkefni við hæfi
Morgunblaðið/Kristinn
Ölduselsskóli sýndi m.a. verkefnið
Lifandi vísindi á sýningunni.