Morgunblaðið - 21.02.2003, Side 38

Morgunblaðið - 21.02.2003, Side 38
MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Rögnvaldur Lár-usson fæddist í Stykkishólmi 8. mars 1938. Hann lést á Landspítalanum 7. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lárus Rögnvaldsson rafvirki, f. á Straumi á Skógarströnd 27. júní 1904, d. 13. apríl 1956, og Ásta Hall- dóra Gestsdóttir hús- freyja, f. í Hvammi í Dýrafirði 23. des. 1910, d. 9. júlí 1991. Eldri bróðir Rögn- valdar var Grétar, f. 31. ágúst 1934, d. 12. nóv. 2001, en yngri bræður hans eru Haraldur og Gylfi, f. 23. okt. 1946. Rögnvaldur kvæntist 21. okt. 1961 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sveinlaugu Salóme Valtýsdóttur, f. 27. ágúst 1942. Foreldrar henn- ar eru Valtýr Guðmundsson tré- smíðameistari, f. á Gröf í Laxár- dal 12. okt. 1914, og Ingunn Sveinsdóttir húsfreyja, f. í Köldu- kinn á Fellsströnd 10. maí 1918. Börn Rögnvaldar og Sveinlaugar eru: 1) Ingunn Halldóra, f. 21. apr- íl 1961, eiginmaður Brynjólfur Nikulásson múrari, f. 3. mars 1961. Dætur þeirra eru Rakel, f. 15. okt 1982, Bryn- dís, f. 14 ágúst 1986, og Þórarna Salóme, f. 8. jan. 1993. 2) Gréta, f. 3. apríl 1964, eiginmaður Ingi Borgþór Rúts- son rafvirki, f. 3. maí 1964. Börn þeirra eru Telma, f. 24. mars 1986, Rögn- valdur, f. 30. apríl 1993, og Ingi Grétar, f. 29. jan. 2001. 3) Valdís íþróttakenn- ari, f. 23 júní 1972. Rögnvaldur lærði vélvirkjun í Iðnskólanum í Stykk- ishólmi og hjá föðurbróður sínum, Kristjáni Rögnvaldssyni, en hjá honum starfaði hann við ýmsar smíðar og viðhald skipa og báta, þar til hann ásamt frændum sín- um, þeim Sigurði, Guðmundi og Ólafi Kristjánssonum, tók við rekstri smiðjunnar 1965. Árið 1975 sameinaðist fyrirtæki þeirra skipasmíðastöðinni Skipavík í Stykkishólmi og tóku þeir frænd- ur þá við rekstri hennar. Rögn- valdur starfaði sem verkstjóri hjá Skipavík allt til dánardags. Útför Rögnvaldar verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Þín dóttir, Ingunn Halldóra. Elsku pabbi minn Það er sárt til þess að hugsa að þú sért farinn frá okkur. það eru svo margar minningar sem koma upp í huga minn þegar ég hugsa um þig. Allar veiðiferðirnar sem farnar voru á sumrin í Miðá í Dölum. Við dvöldum þar viku í senn og þar átt- um við fjölskyldan góðar stundir. Að fara til Reykjavíkur í vályndum veðrum var líka spennandi en í einni slíkri ferð festum við bílinn á Hey- dalnum og við stelpurnar og mamma vorum sendar út til að ýta og skórinn minn varð eftir í forinni. Já þú ert horfinn á braut elsku pabbi minn en minningarnar lifa um ókomna tíð. Ó pabbi minn, nú sól til viðar sígur og söngvar hljóðna, fölva slær á jörð. Þeir fljúga burt er húmið yfir hnígur er himinhvolfið fylltu þakkargjörð. Það dimmir nú og dökknar hér í heimi, ó pabbi minn, þú horfinn ert mér frá. Í mínu hjarta minning þína geymi, ég man þig æ; og tárin stöðugt væta brá. Ó pabbi minn, ég heyri klukkur hljóma, því hér og nú er þungbær ögurstund í mínum huga minningarnar óma, þú mér ert horfinn Drottins þíns á fund. Ó pabbi minn, minn hugur harmi sleginn nú horfir fram á dægrin tóm og löng. Mín von er sú, við hittumst hinumegin og helgum Guði færum okkar dýrðarsöng. (Ingibjörg Guðnadóttir.) Þín dóttir Gréta. Elsku pabbi minn. Nú ertu farinn frá okkur svo skyndilega. Það er svo sárt að þurfa að kveðja svona snemma. Stórt skarð er höggvið í fjölskylduna sem aldrei verður fyllt, en minningu þína geymi ég alltaf í mínu hjarta. Þú varst alltaf svo traustur og alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á. Minningarnar eru margar, allar skemmtilegu veiðiferðirnar sem við fórum í á hverju sumri þegar ég var lítil og allar ferðirnar okkar til út- landa. Ég man að ég fór ófáar ferð- irnar með þér í vinnuna þína í Skipavíkina þegar þú varst að at- huga hvort allt væri í lagi þar og þú varst duglegur að bjóða mér með. Alltaf varstu boðinn og búinn að gera við bílana mina og dytta að þeim eða láta gera við þá ef eitthvað var að þeim, þegar ég kom heim í Hólminn hin síðari ár eftir að ég fluttist til Reykjavíkur. Þannig varst þú, vildir hafa allt öruggt og í lagi. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (121. Davíðssálmur.) Vertu sæll pabbi minn. Hvíl í friði. Þín Valdís. Það var fyrir 20 árum síðan að ég renndi fyrst í hlað að Höfðagötu 9a í Stykkishólmi. Ástæða þeirrar heim- sóknar var sú að ég hafði kynnst þessari indælu stúlku úr Hólminum og nú var komið að því að hitta tengdaforeldrana tilvonandi. Ég var ungur að árum og óreyndur, feim- inn og vissi ekki við hverju væri að búast. Ég komst þó fljótt að því að engu þurfti að kvíða, móttökurnar voru hlýjar og indælar og borðið hlaðið nægtum eins og Sveinu einni er lagið. Oft hef ég síðan í Hólminn komið og minningar um margar góðar stundir koma upp í hugann þegar litið er til baka. Það var svo gott að komast í frið- inn og róna sem ávallt ríkir á Höfðagötunni. Tengdafaðir minn var um margt sérstakur maður. Allt sem honum við kom, var snyrtilegt, hreint og vel um gengið. Hann var ekki alltaf margmáll en orðum hans var óhætt að treysta og aldrei skorti nokkurn hlut á heimili hans. Börnunum mín- um þótti innilega vænt um afa sinn og er þeirra söknuður og sorg ekki minni en okkar hinna sem eldri er- um. Það er svo undarlegt með þetta líf, við gerum okkar áætlanir og skipuleggjum framtíðina alla, en eftir á að hyggja, þá ráðum við þó aðeins þeirri einu stundu sem við lifum á, hverju sinni. Skyndilega er allt breytt og endanleiki atburðanna gagntekur hugann. Ekkert verður aftur tekið og engu við bætt, aðeins minningin lifir. Kæri tengdapabbi, ég kveð þig nú en ætíð mun ég minnast þín og þíns hógværa og yfirvegaða per- sónuleika. Með virðingu og söknuði. Þinn tengdasonur Borgþór. Elsku afi minn. Það er svo sárt að hugsa um það að þú sért ekki lengur hér hjá okk- ur. Allar minningarnar sem ég á um þig rifjast upp fyrir mér og það er ekki hægt að hemja tárin. Ég get ekki hugsað um það að næst þegar ég kem í Stykkishólm verðu enginn afi Röggi þar til að fara með okkur afabörnin á „Stykk- ishólmsrúntinn“ sem var einskonar ómissandi hefð þegar við komum í heimsókn til afa og ömmu. Sá rúnt- ur lá iðulega niður á bryggju og stundum niður í Skipavík og oft var líka farið í nammistopp niður á Bensó. Eitt sinn þegar við fjölskyldan vorum í heimsókn hjá ömmu og afa í Stykkishólmi ákvað afi að við ætt- um kannski að leigja okkur vélsleða og fara upp á Snæfellsjökul, okkur öllum til mikillar ánægju. Amma og mamma voru eftir heima en ég, afi, pabbi, Valdís og Röggi fórum. Ég sat aftan á sleðanum hjá afa sem brunaði svo hratt því við vildum vera fyrst, sú ferð endaði með því að ég skaust af og afi fattaði það ekki fyrr en ég var næstum kominn upp á sleðann hjá leiðsögumann- inum. Þetta var frábær ferð sem ég mun aldrei gleyma ásamt fullt af öðru sem við gerðum saman. Ég er þakklát guði fyrir að hafa átt svona góðan og yndislegan afa. Ég hugsa um þig hjá mér sem farinn ert frá mér, og faðminn út breiði, en auðninni kaldri ég atlotin greiði. En sorgbitinn huga má harmur ei buga, sú huggun er stærri, að herrann þig geymir og hann er mér nærri. (Ingibjörg Sumarliðadóttir.) Afi minn, mér þykir svo vænt um þig og ég mun aldrei gleyma hversu yndislegur þú varst. Takk fyrir allt, afi minn. Ég vona að ég eigi eftir að hitta þig seinna á betri stað. Ég elska þig að eilífu, þín afa- stelpa Telma. Elsku afi minn, ég man eftir svo mörgu sem við gerðum saman og hvað það var alltaf gaman að heim- sækja þig í Stykkishólm. Þá skruppum við oft á rúntinn á jepp- anum þínum og oft tókst mér að plata þig til að koma við í sjoppunni eða í Sjávarborg og kaupa eitthvert dót. Þú sagðir oft að herbergið mitt væri eins og leikfangabúð og þegar ég bað þig að kaupa eitthvert dót þá sagðir þú alltaf. Vantar þig bara þetta í leikfangasafnið. Oft varst þú að grínast við mig og sagðir að þú ætlaðir að kaupa vélsleða strax á morgun, svo kom skrítinn svipur á þig sem merkti að þetta væri bara grín. Elsku afi minn ég sakna þín svo mikið. Mér finnst svo skrítið að hugsa um það að næst þegar ég kem til Stykkishólms verður þú ekki þar. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn afastrákur Rögnvaldur. Það er erfitt að byrja minninga- grein, það er svo margt sem maður vill segja og finna réttu orðin fyrir hrærðar tilfinningar. Hvernig getur maður sagt í svo stuttu máli hvað og hver Rögnvaldur var. Við settumst niður og skoðuðum gamlar myndir og yfir okkur helltust yndislegar æskuminningar. Fyrir okkur var hann alltaf Röggi frændi. Bróðir feðra okkar, tvíburanna Halla og Gylfa. Við eigum margar minningar með Rögga, Sveinu og fjölskyldu þeirra. Hvort sem var í Stykkis- hólmi, Reykjavík eða Miðá í Dölum, allar eru þær einstakar. Okkur eru sérstaklega minnistæðar ferðir okk- ar í Stykkishólm, æskustöðvar feðra okkar. Þar gistum við ýmist hjá Rögga og Sveinu, eða Grétari, elsta bróðurnum, og konu hans Önnu Birnu. Það var alltaf mikið fjör á bæ þegar allur herskarinn var saman kominn fyrir vestan, og leið okkur alltaf vel þar. Var það ekki síst vegna þess hve heimili þeirra bar alltaf merki rósemdar og hlýleika. Einnig bjuggu þau nálægt Ástu ömmu meðan hún enn lifði og varð maður aldrei þreyttur á að hlaupa til hennar í spil og sælgæti. Vegna tíðra ferða í Hólminn enduðu feður okkar á að kaupa og gera upp hús þar að Höfðagötu 2, skammt frá Rögga og Sveinu. Við höfum elst og erum sjálf farin að ferðast með okkar fjölskyldur og vini í hús foreldra okkar að Höfða- götunni. Alltaf hafa Röggi og Sveina tekið vel á móti okkur og hjálpað með hvað sem aðstoð þurfti við. Hvort sem eru bilaðir kranar, týnd- ir eða rangir lyklar, rúmfataleysi eða kaffisopi. Alltaf gestrisin og tilbúin að hjálpa. En það er einungis rétt rúmt ár síðan bróðir þeirra Grétar varð bráðkvaddur. Það var stórt skarð sem var hoggið í litla fjölskyldu. Grétar stóð Rögga mjög nærri enda stóru bræður tvíburanna sem þeir hugsuðu um af ást og alúð alla sína ævi. Þetta tók mikið á Rögga og feður okkar. En núna er Röggi tek- inn svo snögglega frá okkur líka. Elsku Halli og Gylfi, þið berið þunga byrði sem sorgin er, og mun- um við börnin ykkar bera hana með ykkur. Eins og við treystum að þið hjálpið hvor öðrum að bera hana líka. Elsku Sveina, Inga Dóra, Gréta, Valdís og fjölskyldur, það er fátt sem við getum sagt til að sefa sorg ykkar í dag, en við viljum að þið vit- ið að hugur okkar og hjörtu eru með ykkur. Inga Lára, Ásta Sóley, Helena, Aldís Jóna, Eiður og Lárus Rögnvaldur. Í dag kveðjum við frænda og samstarfsfélaga okkar, Rögnvald Lárusson langt um aldur fram. Rögnvaldur var sonur Ástu Gests- dóttur og föðurbróður okkar, Lár- usar Rögnvaldssonar. Mikill samgangur var milli fjöl- skyldna okkar og var ætíð gott að koma á æskuheimili Rögga eins og hann var ævinlega nefndur. Hjá Ástu og Lalla var oft margt um manninn, mikið hlegið og skrafað og var snyrtimennska þar í hávegum höfð. Leiksvæði okkar strákanna var Rögnvaldarfjaran við hús afa okkar Rögnvaldar Lárussonar báta- smiðs og smiðju föður okkar Krist- jáns Rögnvaldssonar. Svo var það gamli slippurinn að ógleymdri Raf- stöðinni þar sem Lárus faðir Rögga var við stjórn , en hann var mikill hagleiksmaður. Röggi hóf nám í vélsmiðjunni hjá föður okkar og útskrifaðist þar sem vélvirki, ásamt mörgum öðrum sem síðan hafa sett svip sinn á Hólminn. Eftir andlát föður okkar 1965 tók- um við bræðurnir ásamt Rögga upp samstarf um rekstur Vélsmiðju Kristjáns Rögnvaldssonar sem við rákum saman í 10 ár eða þar til við yfirtókum rekstur Skipasmíðastöðv- arinnar Skipavíkur árið 1975. Það samstarf hélst þar til að við seldum okkar hlut í fyrirtækinu árið 1998. Alls störfuðum við saman að rekstri í 33 ár og á uppgangstímum skipa- smíðinnar varð oft að leysa hin margvíslegustu verkefni sem að höndum bar. Má þar til nefna smíði á 23 bátum af ýmsum stærðum, allt frá 5 tonnum upp í 170 tonn. Þetta tókst með samvinnu og góðu sam- starfi allra þeirra er störfuðu að smíðinni. Röggi hélt áfram að vinna sem verkstjóri hjá Skipavík allt til dánardags. Það er sárt að sjá á eftir frænda okkar, svona snögglega og langt um aldur fram. Biðjum við þann sem öllu ræður að vaka yfir honum í nýj- um heimkynnum. Við bræðurnir og fjölskyldur okk- ar sendum fjölskyldu Rögnvaldar Lárussonar okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorginni. Ólafur, Guðmundur og Sigurður A. Kristjánssynir. Rögnvaldur var búinn að vera starfsmaður Skipavíkur hf. í 28 ár, fréttin af andláti hans kom sem reiðarslag. Með honum er genginn góður verkmaður og verður erfitt að fylla skarð hans. Hann hafði unn- ið í nær hálfa öld við vélsmíði. Við fráfall Rögga hvarf mikil tækni- þekking og verkkunnátta sem hann hafði öðlast í sínu starfi. Margir hafa lært og starfað undir hans stjórn á liðnum árum og ber öllum saman um að þar hafi farið góður fagmaður. Röggi tók öllum með jafnaðargeði enda blíður á manninn og alltaf tilbúinn að leið- beina. Það er ljóst að hans verður sárt saknað úr röðum starfsmanna Skipavíkur. Þeir eru ófáir sjómenn- irnir sem leitað hafa ráða um tækni- legar útfærslur á vélbúnaði báta hjá honum, enda byggst upp mikið traust milli hans og þeirra í gegnum árin. Rögnvaldur var starfsmaður Skipavíkur, þar af yfirverkstjóri síð- ustu 12 árin, og þakkar fyrirtækið honum vel unnin störf. Þó missir fyrirtækisins sé mikill er missir fjöl- skyldunnar enn meiri. RÖGNVALDUR LÁRUSSON Olle Ekberg var íþróttaþjálfari að mennt og var ráðinn landsliðsþjálf- ari íslenska landsliðsins í frjálsum íþróttum 1947 til undirbúnings Ól- OLLE EKBERG ✝ Olle Ekbergfæddist í Nyköp- ing í Svíþjóð 26. jan- úar 1914. Hann lést á Sollentunaelliheimili 31. janúar síðastlið- inn. Eftirlifandi eigin- kona Olle er Alice Ekberg og eru dætur þeirra Marianne og Kerstin. Útför Olle Ekberg verður gerð í Soll- entuna í dag. ympíuleikanna í Lond- on 1948. Aðleikunum loknum gerðist hann vallarstjóri í Stokk- hólmi, fyrst tíu ár á Hjörthagens Idrott- splats og síðan rúm- lega 20 ár á Stockholm Stadion Ólympíuleik- vanginum frá 1912. Olle og Alice komu í eldriborgaraferð til Ís- lands fyrir átta árum og hittu þá marga vini sem þau höfðu eignast hér. Voru þau mjög ánægð með þær mót- tökur sem þau fengu. Hér með votta ég Alice og dætr- unum innilega samúð mína. Rúnar Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.