Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 21.02.2003, Qupperneq 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Arnór AðalsteinnGuðlaugsson fæddist á Bakka í Geiradal í Reykhóla- hreppi hinn 5. ágúst 1912. Hann andaðist á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut hinn 15. febrúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sigurlínu Guðmundsdóttur sem ættuð var frá Drangsnesi, f. 10. apríl 1867, d. 30. nóv- ember 1912, og Guð- laugs Bjarna Guðmundssonar, frá Borgum í Hrútafirði, f. 31. ágúst 1865, d. 23. júlí 1919, en þau bjuggu sín síðustu búskaparár á Bakka. Þeim Sigurlínu og Guðlaugi varð sjö barna auðið, en þau eru auk Arnórs Aðalsteins; Pétur, f. 10. jan- úar 1899, d. 11. júlí 1928, Guðmund- ur, f. 24. október 1900, d. 23. apríl 1989, Magdalena, f. 6. september 1902, d. 22. ágúst 1994, Guðrún, f. 23. mars 1904, d. 17. febrúar 1971, Benedikt, f. 1. desember 1905, d. 24. júní 1997, og Leó, f. 27. mars 1909. Hinn 17. apríl 1954 kvæntist Arn- ór Aðalsteinn Svanfríði Ingunni Arnkelsdóttur, f. á Sviðningi í Skagahreppi í Húnavatnssýslu 10. október 1927. Börn þeirra eru: a) Arnór Heiðar rekstrarhagfræðing- ur, f. 28. júlí 1954, maki Margrét Jónsdóttir snyrtifræðingur, f. 5. apríl 1960. Börn þeirra eru; Anna Monika, f. 9. desember 1989, og Arnór Már, f. 10. nóvember 1993. Eldri börn Arnórs Heiðars eru; Kristín, f. 30. september 1923, og Bjargey, f. 16. maí 1930. Arnór Að- alsteinn Guðlaugsson dvaldist að Tindum allt til ársins 1943, að und- anskildum árunum 1929–1931 er hann var við nám í Núpsskóla. Hann vann við öll hefðbundin sveitastörf og urðu þau honum mjög hugleikin. Hann var talinn ágætur fjármaður og hafi einnig mjög gott lag á hest- um. Eftir að hann fluttist til Reykja- víkur 1943, vann hann við ýmsa verkamannavinnu. Hann starfaði um 20 ára skeið sem sútunarmeist- ari hjá Sláturfélagi Suðurlands, en neyddist til að láta af störfum þar eftir að hann brenndist lífshættu- lega við starf si árið 1972. Eftir það hóf hann störf hjá innflutningsdeild Sambandsins og starfaði þar þang- að til hætti störfum vegna aldurs 1983. Arnór hafði góða tenórrödd og þótti efnilegur einsöngvari. Hann söng einsöng við ýmis tæki- færi í Reykjavik eftir að hann flutti suður. Hann sótti söngtíma hjá Sig- urði Skagfield, Guðmundu Elías- dóttur og Pétri Jónssyni óperu- söngvara um árabil. Árið 1949 gekk Arnór í Karlakórinn Fóstbræður. Hann söng 1. tenór í kórnum í fjölda ára og þegar aldurinn færðist yfir gekk hann til liðs við Gamla Fóst- bræður og hélt áfram að sækja söngfundi með félögum sínum þar. Söngurinn var hans aðal áhugamál, en hitt áhugamálið var búskapur. Hann eignast nokkrar kindur og gerðist tómstundabóndi í Kópavogi, sér til gamans. Um tíma átti hann nokkra hesta líka. Arnór var bóka- safnari og eftir hann liggur gott bókasafn þar sem finna má ýmsar fágætar bækur. Hann átti fágætt safn markaskráa sem hann færði Bændasamtökunum að gjöf fyrir nokkrum árum. Arnór var félagi í Barðstrendingafélaginu frá 1943 til dauðadags. Útför Arnórs Aðalsteins verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Brynhildur, f. 8. mars 1984, og Hlynur Andri, f. 9. nóvember 1984. b) Þuríður Sveinbjörg matráðskona, f. 19. júlí 1957, maki Gunnlaug- ur Gunnlaugsson kjötiðnaðarmaður, f. 28. nóvember 1949. Börn Þuríðar Svein- bjargar og Jóhann Ólafssonar, f. 24. jan- úar 1950, eru; Svan- fríður Arna, f. 18. des- ember 1981, dóttir hennar er Harpa Dag- björt, f. 16. desember 2002, Guðsteinn Fannar, f. 3. júlí 1987, og Guðmundur Birkir, f. 29. september 1988. Sonur Gunnlaugs frá fyrra hjónabandi er Atli Heiðar, 14. janúar 1974. d) Guðbjörn, f. 31. ágúst 1958. Foreldrar Arnórs Aðalsteins hættu búskap á Bakka árið 1912, vegna veikinda móður hans, en hún dó 30. nóvember 1912. Segja má að örlög Arnórs Aðalsteins hafi verið ráðin áður en móðir hans dó, því hann var látinn heita í höfuð vinar foreldra sinna, Arnórs Aðalsteins Einarssonar, sem bjó þá ógiftur ásamt móður sinni, Kristínu Þórar- insdóttur, að Tindum í Geiradal. Arnór Aðalsteinn Einarsson, f. 9. október 1880 d. 27. mars 1969, kvæntist Ragnheiði Grímsdóttur, f. 2. desember 1893, d. 3. janúar 1971. Börn þeirra og uppeldissystkini Arnórs Aðalsteins Guðlaugssonar eru: Grímur, bóndi að Tindum, f. 26. apríl 1919, d. 23. janúar 2001, Einar verkfræðingur, f. 27. maí 1921, Pabbi var yngstur 7 systkina. Fyrstu minningar pabba voru þær að hann segist muna eftir sér sitj- andi í hlaðvarpanum heima á Tind- um, ásamt gamli konu sem hann kallaði mömmu. Þetta hefur líklega verið 1917 og pabbi því 5 ára gamall. Gamla konan var Kristín, móðir fóstra hans, en móðir pabba hafði látist frá 7 börnum sínum í nóvem- ber 1912, aðeins nokkrum mánuðum eftir fæðingu hans. Eftir lát hennar varð Guðlaugur afi okkar að bregða búi og koma öllum börnum sínum í fóstur hjá vinum og vandamönnum. Faðir okkar fór í fóstur hjá vini foreldra sinna og alnafna sínum, Arnóri Aðalsteini Einarssyni, sem þá var ókvæntur maður og bjó á Tindum í Geiradal, ásamt Kristínu móður sinni. Pabbi sagðist hafa kall- að Kristínu mömmu sína, meðan hún lifði. Mjög kært var með þeim fóst- urfeðgunum og kölluðu þeir hvorn annan ávallt nafna. Samband þeirra var líkt og þeir væru feðgar í raun og veru. Gömul kona sem hét Guðbjörg Þórarinsdóttir var til heimilis á Tindum um þetta leyti og var hún pabba mjög góð og reyndist honum stoð og stytta eftir að Kristín lést. Guðbjörg lést árið 1930. Arnór Einarsson giftist Ragnheiði Grímsdóttur árið 1918 og eignuðust þau hjón fjögur börn: Grím, Einar, Kristínu og Bjargeyju sem eru upp- eldissystkini pabba. Ragnheiður fóstra hans var honum mjög góð og vináttu þeirra mikil. Á uppvaxtarár- um sínum var pabbi í góðu sambandi við alsystkini sín, sem ólust upp á bæjum bæði í Dalasýslu og Stranda- sýslu. Pabbi sagði oft: „Við systkinin vorum öll svo heppin að lenda hjá góðu fólki“ og það voru orð að sönnu. Skólaganga pabba var stutt, en hann var tvo vetur á Núpsskóla, árin 1929 til 1931. Hefðbundin sveitastörf urðu honum hugleikin og líklega hef- ur hefur alla tíð blundað í honum draumur um að verða bóndi, en svo varð þó ekki. Hann átti lögheimili að Tindum þar til í árslok 1943, að hann fluttist suður til Reykjavíkur, þá 31 árs gamall. Eftir að hann kom til Reykjavíkur vann hann við ýmis störf, meðal ann- ars við byggingavinnu í Þjóðleikhús- inu og víðar. Síðar réðst hann til Sláturfélags Suðurlands og vann þar við skinnasútun í fjölda ára. Honum stóð til boða að fá fullréttindi sem sútunarmeistari vegna mikillar reynslu sinnar á því sviði. Eftir tutt- ugu ára starf í sútunarverksmiðj- unni varð hann fyrir mjög alvarlegu vinnuslysi og brenndist það illa að hann gat ekki hafið þar störf á nýjan leik. Var hann óvinnufær um hríð vegna þessa. Síðustu starfsár sín vann hann hjá innflutningsdeild Sambandsins, fyrst við Geirsgötu og síðar í Holtagörðum. Þar eignaðist hann fjölmarga góða félaga, sem reyndust honum tryggir og góðir vinir á lífsleiðinni. Árið 1954 kvæntist hann móður okkar Svanfríði Ingunni Arnkels- dóttur, ættaðri frá Sviðningi í Skagahreppi. Þau höfu kynnst á árinu 1952 og hafið sambúð skömmu síðar. Pabbi var einn af frumbyggj- unum í Kópavogi og alltaf stoltur af því að vera Kópavogsbúi. Árið 1953 fengu mamma og pabbi úthlutað lóð fyrir einbýlishús við Digranesveg í Kópavogi. Hófust þau handa við að reisa sér þar hús og bjuggu á meðan hjá föðurbróður okkar Leó sem hafði þá reist sér hús á næstu lóð, við Víg- hólastíg, en lóðirnar liggja saman, þó þær séu sín við hvora götuna. Leó, sem var næstyngstur systkina sinna, er nú einn eftirlifandi af systkinunum tæplega 94 ára gamall og ótrúlega ern. Í brekkunni við Digranesveginn, sem nú heitir reyndar Digranesheiði, hafa foreldrar okkar búið fram að þessu. Móðir okkar, sem er 15 árum yngri en pabbi, sýndi þá miklu fórn- fýsi að annast hann háaldraðan heima, þrátt fyrir að vera ekki heil heilsu. Þetta gerði hún allt þar til í byrjun desember síðastliðinn að pabbi veiktist alvarlega og var lagður inn á sjúkrahús, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Við systkinin vilj- um þakka móður okkar fyrir þá um- hyggjusemi sem hún sýndi pabba með því að sinna honum heima svo lengi sem raunin var. Pabbi var ágætur söngmaður. Hann sótti söngtíma hjá Sigurði Skagfield, Guðmundu Elíasdóttur og Pétri Jónssyni óperusöngvara á ár- unum 1947 til 1949. Hann gekk í karlakórinn Fóstbræður árið 1949, og söng í kórnum um árabil og síðar í Gömlum Fóstbræðrum. Hann var vel ern og mjög minnugur og kunni fjölda skemmtilegra sagna frá gam- alli tíð vestan frá Breiðafirði og víðar. Hann var ljóðelskur og sjálfur ágæt- lega hagmæltur og kunni fjölda kvæða og vísna eftir aðra. Um alllangt skeið safnaði hann gömlum bókum og átti t.d. orðið allar markaskrár sem gefnar höfðu verið út á landinu. Það safn færði hann bændasamtökunum að gjöf fyrir nokkrum árum. Eftir pabba liggur gott bókasafn með fjölda fágætra bóka, sem hann hafði af smekkvísi safnað á liðnum áratugum. Pabbi var mikið náttúrubarn og þótti afar mjög vænt sveitina sína. Draumurinn um að verða bóndi hefur vafalítið blundað í honum eins og mörgum sveitamanninum. Sá draum- ur hans rættist þó ekki og leiðin varð önnur. Hann reyndi að bæta sér þetta upp að einhverju leyti með því að fara í sumarleyfum sínum vestur að Tindum til að hitta sveitungana og rétta fram hjálparhönd við slátt og heyskap. Við systkinin eigum margar ánægjulegar minningar frá þeim ár- um sem við fórum með foreldrum okkar vestur. Það var alltaf tekið vel á móti okkur heima á Tindum og pabbi þekkti þarna nánast hverja einustu þúfu og var hafsjór fróðleiks um allt sem vék að gömlum búskap- arháttum í sveitinni. Hann þekkti nöfnin á hverjum einasta sveitabæ nánast alla leiðina úr Reykjavík og vestur í Reykhólasveit og vissi hverj- ir buggu þar. Hann var virkur félagi í Barðstrendingafélaginu frá árinu 1943, og fór ófáar vinnuferðirnar í Bjarkalund meðan honum entist heilsa til. Á árunum 1967 og 1968 eignuðust pabbi og mamma hesta og byggðu sér hesthús í landi Hestamanna- félagsins Gusts í Kópavogi. Um svip- að leyti fékk hann sér nokkrar kindur og gerðist það sem kallað er í dag tómstundabóndi. Hann kom sér upp aðstöðu í gömlum sumarbústað hand- an við götuna við heimili sitt á Digra- nesveginum. Síðar byggði hann sér myndarlegt fjárhús í landi Fífu- hvamms, þar sem tómstundabændur í Kópavogi höfðu aðsetur og var þar með milli 60 og 70 fjár á gjöf þegar flest var. Pabbi var ágætur fjármað- ur og ófáir lögðu leið sína í fjárhúsin hjá honum um sauðburðinn á vorin og á haustin þegar fé var komið á hús. Hann hætti þessum búskap árið 1996 þá 84 ára gamall. Ævin varð löng og viðburðarík. Uppvaxtarárin í sveitinni urðu hon- um hugfólgnust. Hann mat ávallt mikils þá alúð og hlýju sem fósturfor- eldrar hans veittu honum á erfiðum tímum og honum þótti afar vænt um uppeldissystkini sín á Tindum. Sam- band hans við alsystkini sín var mjög náið og vinátta þeirra mikil þrátt fyr- ir að þau ælust ekki upp saman. Hann hafi oft orð á þvi við okkur börnin sín, hversu þakklátur hann var fyrir að hafa getað eytt síðustu árunum heima hjá fjölskyldunni. Það átti hann móður okkar fyrst og fremst að þakka, en hún stóð alltaf sem klettur við hlið hans sama á hverju dundi. Nú er komið að kveðjustundinni. Elsku pabbi, við þökkum þér fyrir samfylgdina. Guð geymi þig. Þín börn Arnór Heiðar , Þuríður Sveinbjörg og Guðbjörn. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Guð blessi minningu þína. Þín tengdadóttir og afabörn Margrét Jónsdóttir, Anna Monika Arnórsdóttir og Arnór Már Arnórsson. Elsku afi minn. Þegar ég lít til baka rifjast upp margar góðar minn- ingar. Það sem er mér minnisstæðast er þegar ég var krakki fannst mér alltaf svo gaman að fara í heimsókn til ykkar ömmu og fá að gista hjá ykkur og fara í fjárhúsin með ykkur. Þótt svo þú værir orðinn þetta gamall þá fylgdist þú alltaf svo vel með öllu og þegar ég gekk með barn- ið mitt sagðir þú svo oft að þú vissir það ekki hvort þú mundir lifa það að verða langafi, en þú náðir því. Hinn 16. des. sl. fæddist langafa stelpan þín hún Harpa Dagbjört og þú varst svo ánægður með það að ná því að verða langafi. Ég fór með hana til þín á spítalann áður en þú varðst svona veikur og þú gast séð hana sem gladdi þig svo mikið því sjónin þín var orðin svo léleg. Þú spurðir svo mikið og fylgdist svo vel með henni og átt örugglega eftir að gera áfram. Elsku afi, þakka þér fyrir það hvað þú varst mér alltaf góður. Minning- arnar um þig munu lifa í hjarta mínu. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pétursson.) Guð geymi þig. Svanfríður Arna. Elsku afi minn. Þá eru allar þján- ingarnar búnar og þú ert kominn þangað sem þér líður sem allra best. Ég ætla hér að skrifa nokkrar línur til þín. Það sem ég man mjög vel eftir er fjárhúsin þín og ömmu, það var skemmtilegasta sem ég gerði var að fá að koma með í fjárhúsin og sér- staklega um sauðburðinn og sjá öll fallegu lömbin, og fá að klappa þeim. En síðan rann sá dagur upp að það þurfti að rífa fjárhúsin. Ég gerði mitt besta í því að hjálpa þér og ömmu með garðinn, slá hann og snyrta. Alltaf þakkaðir þú og amma mér svo vel fyrir með kleinum og mjólk og stundum með smá pening eins og þú sagðir alltaf. Ég held að þú hafir ver- ið stoltur af því að ég hafi verið í sveit í þrjú sumur, allavega spurðir þú mikið um sveitina þar sem þú ert svo mikill sveitamaður í þér. Þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar afi minn og guð geymi þig. Þinn afastrákur Guðmundur Birkir. Elsku afi minn. Þér sem þótti svo vænt um okkur. En nú ertu farinn á betri stað, stað þar sem friður og ARNÓR AÐALSTEINN GUÐLAUGSSON Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, GÍSLA JÓHANNS KRISTJÁNSSONAR, Skólastíg 14, Stykkishólmi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimili aldraða og St. Franciskusspítalanum í Stykkis- hólmi. Anna Kristjánsdóttir, Bjarni Sveinbjörnsson, Gunnlaugur Kristjánsson, María Guðmundsdóttir, Hörður Kristjánsson, Birna Lárusdóttir og fjölskyldur. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.