Morgunblaðið - 21.02.2003, Side 47

Morgunblaðið - 21.02.2003, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 47 Boðað er til aðalfundar Félags íslenskra náttúrufræðinga! Aðalfundur FÍN verður haldinn þann 26. febrú- ar 2003 kl. 16:00 í Háteigi (efstu hæð) á Grand Hóteli, Sigtúni 38. Heilsugæslan Lágmúla 4 tilkynnir breytt símanúmer. Frá og með 21. febrúar 2003 verður símanúmer Heilsugæslunnar Lágmúla 595 1300. Símanúmer lækna á símatíma verða: Árni Skúli Gunnarsson 595 1321 Björn Gunnlaugsson 595 1322 Halldór Jónsson 595 1323 Haraldur Dungal 595 1324 Jón Bjarnason 595 1325 Ólafur Mixa 595 1326 Salóme Ásta Arnardóttir 595 1327 Bókaveisla föstud., laugard. og sunnud. Bókaunnendur og fagurkerar Konfekt fyrir andann og augað 25% afsláttur af öllum bókum Opið 11—18 Gvendur dúllari, alltaf góður Klapparstíg 35, s. 511 1925 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Reitur 1.182.0. Tillagan tekur til svæðis sem afmarkast af Skólavörðustíg, Vegamótastíg, Grettisgötu og Klapparstíg. Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 11. febrúar 2003. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt sé að gera minniháttar breytingar á reitnum, s.s. gera skyggni, svalir, minni kvisti og lagfæringar án þess að breyta þurfi deiliskipulaginu. Þær skulu vera í samræmi við ákvæði Þróunaráætlunar Reykjavíkur varðandi hönnun breytinga og viðbyggingar svo og ákvæði þess um um hverfisvernd og byggingarreglugerð. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að fjarlægja megi skúrbyggingu á lóðinni Klapparstígur 40. Þess í stað er gert ráð fyrir byggingarreit vestan núverandi húss fyrir tveggja hæða hús með háreistu þaki og kjallara. Að öðru leyti gerir deiliskipulagið ekki ráð fyrir uppbyggingu á reitnum. Smiðshöfði 19. Tillagan tekur til reits sem afmarkast af Stórhöfða, Smiðshöfða og Höfðabakka. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 11. febrúar 2003. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir þriggja hæða verslunar- þjónustu- og skrifstofuhúsnæði á lóðinni. Tillagan felur í sér breytingu á byggingarreit auk þess sem nýtingarhlutfall er aukið. Nýr byggingarreitur liggur meðfram útmörkum lóðar til suðurs og vesturs. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir verslunar- og þjónstu- rými með aðkomu frá Stórhöfða. Á annarri og þriðju hæð er hins vegar gert ráð fyrir skrifstofurýmum með aðkomu frá Smiðshöfða. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að bílastæði á landi norðan við byggingu (við Stórhöfða) þjóni fyrstu hæð en bílastæði annarar og þriðju hæðar verði á annari hæð í útirými með aðgengi frá Smiðshöfða. Norðlingaholt, tillaga að deiliskipulagi, breytt tillaga. Tillagan tekur til svokallaðs Norðlingaholts og afmarkast í grófum dráttum af Breiðholtsbraut til vesturs, Suðurlandsvegi til norðurs, ánni Bugðu til austurs og Elliðavatni og gamla farvegi Bugðu til suðurs. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið sem gerir ráð fyrir að þar byggist nýtt hverfi fyrir um 870 - 935 íbúðir, ásamt grunnskóla, 2-3 leikskólum og sambýli, auk húsnæðis fyrir atvinnu- starfsemi, verslun og þjónustu u.þ.b. 49.800 m2 að stærð. Tillagan gerir ráð fyrir að meginhluti atvinnuhúsnæðisins verði staðsettur í jaðri hverfisins, út við stofnbrautirnar sem liggja vestan og norðanvert við hverfið þ.e. við Breiðholtsbraut og Suðurlandsveg. Íbúðarhúsnæði er hins vegar staðsett sunnan og austan við atvinnuhúsnæðið í skjóli við það. Tillagan gerir ráð fyrir að flest þau mannvirki og hús sem nú eru á svæðinu verði fjarlægð. Aðkoma að hverfinu verður frá Breiðholtsbraut og Suðurlandsvegi. Tekið skal fram að skipulagi er frestað á hluta svæðisins næst Elliðavatni. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tekið skal fram að deiliskipulagstillagan er auglýst til kynningar að nýju eftir breytingar sem gerðar hafa verið á henni til þess að koma á móts við athugasemdir sem bárust á fyrri kynningu á tillögu að deiliskipulagi svæðisins, sem fram fór frá 3. júlí 2002 - til 14. ágúst 2002. Þeim sem gerðu athuga- semdir við tillöguna hafa verið send svör við þeim þar sem jafnframt er gerð grein fyrir helstu breytingum sem orðið hafa á tillögunni. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 21.02.2003 - til 04.04. 2003. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulags- fulltrúa eigi síðar en 4. apríl 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 21.febrúar 2003. Skipulagsfulltrúi SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Mosfellsbær Tillaga að breytingu á deiliskipulagi athafnalóða Háholts 11-15 í Mosfellsbæ Á fundi bæjarstjórnar þann 12. febrúar 2003 var samþykkt kynning á tillögu að breytingu á deiliskipulagi athafnalóða Háholts 11-15 í Mosfellsbæ í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breytingin felst í því að stærð lóða og bygg- ingareita er breytt. Auk þess sem aðkomu að lóð Háholts 11 er breytt. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2 í afgreiðslunni á fyrstu hæð, frá 21. febrúar til 24. mars nk. Jafnframt má kynna sér hana á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is . Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa borist skipulagsnefnd Mosfells- bæjar fyrir 7. apríl nk. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkir tilögunni. Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Málþing um fátækt Harpa Njáls kynnir niðurstöður rannsóknar um eðli og orsök fátæktar á Íslandi á málþingi um fátækt í dag, föstudag, kl. 16:00—17:30 í Ráðhúsi Reykjavíkur. KK verður með tónlistar- atriði í hléum. Hjálparstarf kirkjunnar, Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, Samhjálp, Samtök gegn fátækt, Prófastsdæmi borgarinnar. Þormóður rammi- Sæberg hf. Aðalfundur Aðalfundur Þormóðs ramma-Sæbergs hf. verður haldinn í Bíósalnum á Siglufirði föstudaginn 28. febrúar og hefst hann kl. 16:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin bréf skv. 55. gr. Hlutafjárlaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðenda munu liggja frammi á skrifstofum félagsins viku fyrir aðalfund. HÚSNÆÐI ERLENDIS Húsaskipti við Kyrrahaf Óskum eftir húsa- og bílaskiptum 2 síðustu vikurnar í júlí í Reykjavík. Einbýlishús við Mont- ereyflóann í Kaliforníu og 7 sæta bíll. Stórkost- leg náttúrufegurð, golfvellir og stutt til San Fransisco. Skrifið til: laramag@earthlink.net . TILKYNNINGAR R A Ð A U G L Ý S I N G A R Í tilefni af degi tónlistarskólanna laugardaginn 22 febrúar, býður skólinn al- menningi að koma í heimsókn frá kl. 12 til 15. Gestum verður boðið að skoða húsakynnin, fylgjast með kennslu og reyna fyrir sér í söng og hljóðfæraleik. Yngri deild skólans mun síðan halda tónleika kl. 14 og eldri deild kl. 15. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.