Morgunblaðið - 21.02.2003, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
JACQUES Rogge forseti Al-
þjóðaólympíunefndarinnar, IOC,
hefur látið í ljós skoðanir sínar
þess efnis að fækka beri keppn-
isgreinum að loknum sumarleik-
unum sem fram fara í Peking ár-
ið 2008.
Rogge rökstyður skoðun sína á
þann veg að engin íþrótt eigi
„fast sæti“ á keppnisdagskrá leik-
anna. Miklar breytingar hafi átt
sér stað í íþróttahreyfingunni og
þeir sem sitji fyrir framan sjón-
varpið og fylgist með ÓL geri
aðrar kröfur í dag en áður.
Rogge hefur enn ekki fengið
meðbyr í stjórn IOC en mun
reyna á ný á næsta aðalfundi IOC
í Lausanne í Sviss. Hann hefur
ekki sagt hvaða íþróttagreinar
séu líklegar til þess að hverfa af
keppnisdagskrá ÓL í framtíðinni
en hann hefur nefnt til sögunnar
grísk-rómverska glímu, nútíma-
fimleika, badminton, skotfimi,
róður og siglingar. IOC mun taka
endanlega afstöðu til málsins í
sumar.
Rogge vill fækka
greinum á ÓL SEX íslensk úrvalsdeildarlið taka
þátt í átta liða knattspyrnumóti á
Spáni, Canela-bikarnum, dagana 5.–
12. apríl. Það eru Fylkir, ÍBV, ÍA,
KR, FH og Grindavík. Þá er 1. deild-
arlið Aftureldingar með í mótinu en
ekki liggur endanlega fyrir hvert
áttunda liðið verður.
Að sögn Þóris Jónssonar hjá Úr-
vali-Útsýn, sem skipuleggur mótið
ásamt þeim Óskari Ingimundarsyni
og Eyjólfi Ólafssyni, eru líkur á að
eitt norskt lið verði með.
Hvert lið spilar þrjá leiki í mótinu.
Þau leika í tveimur riðlum, með því
fyrirkomulagi að liðin sem vinna í
fyrstu umferð leika um efsta sæti
riðilsins og tapliðin leika um þriðja
sætið. Síðan er leikið um öll átta sæt-
in á milli riðla.
Í fyrstu umferð mætast í A-riðli
Fylkir-ÍBV og ÍA-Afturelding og í
B-riðli KR-FH og Grindavík gegn
áttunda liðinu.
Grindavík vann mótið í fyrra,
Fylkir varð í öðru sæti, FH í þriðja
og KR í fjórða sæti.
Íslenskir dómarar, valdir af KSÍ,
munu sjá um dómgæslu á mótinu og
kvaðst Þórir reikna með að 12-15
dómarar og aðstoðardómarar færu
til Spánar.
Sex lið taka þátt
í móti á Spáni
FÓLK
GRANT Hill, leikmaður NBA-
liðsins Orlando Magic, mun gang-
ast undir aðgerð á ökkla á næst-
unni og verður frá keppni í a.m.k.
þrjár vikur. Hill hefur misst af 172
leikjum með Orlando frá því að
hann samdi við liðið fyrir þremur
árum en á þeim tíma hefur hann
gengist undir þrjár aðgerðir á
sama ökkla. Hill gerði þá samning
við liðið til sjö ára og fær hann
rúmlega 7,4 milljarða ísl. kr. í laun
frá félaginu á þeim tíma.
MIKE Miller, sem aðallega hefur
leyst Grant Hill af hólmi hjá Or-
lando, fór í gær til Memphis
Grizzlies í skiptum fyrir nýliðann
Drew Gooden. Félögin höfðu frek-
ari leikmannaskipti því Króatinn
Gordan Giricek fór einnig til Or-
lando og Memphis fékk Ryan
Humphrey í staðinn.
KOBE Bryant hélt sínu striki í
fyrrinótt og skoraði 40 stig fyrir
LA Lakers sem vann Utah á úti-
velli, 93:87. Bryant hefur nú skor-
að 40 stig eða meira í sjö leikjum í
röð í NBA-deildinni og 35 eða
meira í 11 leikjum í röð og þótt
áhorfendur í Utah bauluðu á hann
allan tímann klöppuðu þeir honum
lof í lófa fyrir afrek hans í leikslok.
Shaquille O’Neal lék ekki með
Lakers vegna meiðsla.
MICHAEL Jordan lék sinn
fyrsta leik með Washington eftir
að hann komst á fimmtugsaldur-
inn. Hann skoraði 20 stig en hitti
illa og lið hans tapaði fyrir New
Orleans, 87:75.
DANIEL Stephan leikstjórnandi
þýska handknattleiksliðsins
Lemgo sleit hásin í leik á móti
Kiel í fyrrakvöld og verður frá æf-
ingum og keppni næsta hálfa árið.
ÞJÓÐVERJAR vonast eftir því
að þeir leiki fyrir fullu húsi
áhorfenda þegar þeir mæta Ís-
lendingum í vináttulandsleik í
handknattleik í Max-Schmelling-
íþróttahöllinni í Berlín 22. mars
nk.
Höllin tekur tæplega 11.000
áhorfendur.
Viðureignin, sem er sú fyrsta
sem Þjóðverjar leika á heimavelli
eftir að þeir hlutu silfurverðlaun
á HM í Portúgal, er í tilefni þess
að 25 ár eru liðin síðan Vestur-
Þjóðverjar unnu gull á HM í Dan-
mörku 1978. Leikmenn gull-
liðs Vestur-Þjóðverja verða heið-
ursgestir á leiknum ásamt sig-
urliði Austur-Þjóðverja í
handknattleikskeppni Ólympíu-
leikanna í Moskvu 1980.
Þess má geta að Heiner Brand,
núverandi landsliðsþjálfari Þjóð-
verja, var á meðal leikmanna liðs-
ins sem vann gullið í Danmörku.
Mikil hátíðarhöld verða í Berl-
ín í tilefni leiksins þar sem þess-
ara tveggja áfanga í þýskri hand-
knattleikssögu verður minnst.
„Ég vonast bara eftir að áhorf-
endur láti sig ekki vanta, ég vil
sjá fulla höll,“ segir Horst Brede-
meier, varaforseti þýska hand-
knattleikssambandsins.
Vonast eftir fullu húsi
gegn Íslendingum
DEILDABIKARKEPPNI karla í
knattspyrnu hefst í kvöld með
þremur leikjum. Hún er með sama
sniði og tvö undanfarin ár, leikin í
tveimur deildum þar sem 16 efstu
lið Íslandsmótsins 2002 spila í
tveimur riðlum í efri deild.
Tvö undanfarin ár hefur stór
hluti leikjanna farið fram í Reykja-
neshöll, en frá því síðustu keppni
lauk hafa þrjár nýjar knattspyrnu-
hallir verið teknar í notkun. Fífan í
Kópavogi, Egilshöllin í Grafarvogi
og Boginn á Akureyri, og nú verður
leikið í þeim öllum. Til þessa hafa
allir leikir farið fram á suðvest-
urhorni landsins, nema nágrannalið
af landsbyggðinni hafi mæst, en
með tilkomu Bogans fá Akureyr-
arliðin í efri deild nú heimaleiki til
sín. Í neðri deildinni, sem hefst í
mars, er nú sérstakur riðill fyrir
liðin að norðan og austan sem er
leikinn að mestu í Boganum.
Allir leikir í efri deild, nema
tveir, fara fram í höllunum fjórum.
Þeir verða á gervigrasvöllum undir
lok riðlakeppninnar, seinnipartinn í
apríl. Samtals fara 19 leikir í riðla-
keppni efri deildar fram í Egilshöll,
16 í Fífunni, 12 í Reykjaneshöll og
7 í Boganum.
Þrír leikir fara fram í kvöld og
átta alls um helgina. Þar af eru
tveir á Akureyri en Skagamenn
sækja norðanmenn heim og leika
gegn KA í kvöld og gegn Þór á
morgun.
Í A-riðli efri deildar leika Fram,
Keflavík, KA, ÍA, Þór, Afturelding,
KR og Stjarnan. Þau verða öll á
ferðinni um helgina, nema Stjarnan.
Í B-riðli efri deildar leika Fylkir,
Haukar, FH, Þróttur R., ÍBV,
Grindavík, Valur og Víkingur og
spila þau öll um helgina.
Fjögur efstu liðin í hvorum riðli
komast í átta liða úrslit þar sem
leikin er útsláttarkeppni um sigur í
mótinu.
Keppni í neðri deild, þar sem 24
lið leika í fjórum riðlum, fer af stað
eftir næstu mánaðamót en deilda-
bikarkeppni kvenna hefst 22. mars.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Aðstæður eru nú allt aðrar en áður til að leika knattspyrnu á veturna. Þessi mynd er úr úrslitaleik Fram og Fylkis um Reykjavík-
urmeistaratitilinn í Egilshöll. Það er Jón Björgvin Hermannsson sem spyrnir í knöttinn og skorar mark Fylkis í leiknum.
Bikarleikir í
fjórum höllum
EHF, handknattleikssamband Evrópu, vill feta
sama stíg og knattspyrnusamband Evrópu, UEFA,
hvað varðar Meistaradeildina en fyrir liggur til-
laga þess efnis að fjölga handknattleiksliðum í
Meistaradeildinni um helming, úr 16 í 32 lið.
Lars-Erik Klem formaður danska handknatt-
leikssambandsins segir að á formannafundi EHF
um sl. helgi hafi þessi tillaga verið rædd og yrðu
þá liðin fjögur í hverjum riðli. Klem segir að lið frá
Austur-Evrópu þrýsti á að komast í þessa keppni
og hafi lið frá Slóveníu, Króatíu og Slóvakíu íhug-
að að stofna aðra „Meistaradeild“ fyrir lið frá
„austurblokkinni“. „Slíkt viljum við forðast og það
er mín skoðun að allir myndu hagnast á því að
stækka Meistaradeildina,“ segir Klem við vef-
útgáfu danska ríkisútvarpsins en leggur áherslu á
að hugmyndin sé enn á frumstigi.
EHF íhugar að
fjölga í Meist-
aradeildinni
SKÓR á flugi í búningsklefa
er ekkert nýtt þegar Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, á í hlut.
Svo segir einn af fyrrum læri-
sveinum hans hjá Aberdeen,
Doug Rougvie, fyrrum leik-
maður með skoska landsliðinu
og síðan hjá Chelsea, sem
sjálfur kveðst hafa átt fótum
fjör að launa undan skóm og
ýmsu öðru þegar Ferguson
var í vondu skapi eftir leik.
„Hann kastaði ýmsu í áttina
að mér og félögum mínum hjá
Aberdeen, hverju sem var til-
tækt þá stundina, og þá skipti
ekki máli hvort það var skór
eða samloka. Maður vonaðist
bara eftir því að það væri
eitthvað mjúkt. Ef einhver
annar varð fyrir slíku, hló
maður bara, og vonaði að röð-
in kæmi ekki að sjálfum mér
næst. Svona var þetta bara í
búningsklefanum hjá okkur,“
sagði Rougvie við Evening
Standard. Hann er nú 46 ára
og starfar í olíuiðnaðinum.
„Þannig er Ferguson og
hann breytist aldrei. Hann er
gífurlegur keppnismaður og
þolir ekki að tapa. Það er
hinsvegar ljóst að hann ætlaði
ekki að hitta David Beckham.
Líklega átti Ryan Giggs að fá
þessa sendingu fyrir dauða-
færið sem hann nýtti ekki, því
skotin hjá Ferguson geiguðu
alltaf. Hann var ekki góður
leikmaður sjálfur,“ sagði
Rougvie.
Félagi hans, Neale Cooper,
rifjaði upp atvik í Evrópuleik
í Rúmeníu: „Hann kom inn í
klefann og sparkaði af öllu
afli í stóran dunk, sem var
þungur og haggaðist ekki.
Ferguson var greinilega sár-
þjáður í fætinum en reyndi að
leyna því.“Ryan Giggs
Ætlaði Ferguson
að hitta Ryan Giggs?
ÍÞRÓTTIR