Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 7
DAGLEGT flug Iceland Express til
London og Kaupmannahafnar hefst á
morgun, fimmtudag. Í tilefni af því
koma hingað til lands 33 breskir
blaðamenn.
Ólafur Hauksson, talsmaður Ice-
land Express, segir að samið hafi ver-
ið við fjölda breskra fjölmiðla um að
kynna Ísland og Iceland Express
gegn því að lesendur, áhorfendur eða
hlustendur fái ferðir til Íslands í vinn-
ing. Ennfremur sé verið að skipu-
leggja viðamikla auglýsingaherferð
til að fjölga ferðamönnum utan fjöl-
mennasta ferðamannatímans.
Ólafur segir að fyrirtækið hafi ráð-
ið almannatengslafyrirtæki í London
til að sjá um öll kynningarmál. Það
hafi gert samninga við alls konar fjöl-
miðla um að gefa farmiða og í fram-
haldinu koma sjónvarpsmenn frá
BBC hingað til lands í mars. Hann
segir þetta hagstæðustu leiðina til að
koma Íslandi á framfæri enda sé
óskaplega dýrt að auglýsa í dagblöð-
um.
15 íslenskir flugliðar hafa verið
ráðnir til að þjónusta farþega sem
fljúga undir merkjum Iceland
Express. Til að byrja með munu
breskir flugmenn á vegum flugfélags-
ins Astraeus fljúga vélinni, en yfir-
flugstjóri félagsins hefur átt viðræður
við íslenska flugmenn um að koma til
starfa hjá félaginu.
Iceland Express
33 breskir
blaðamenn
fylgjast með
fluginu
VEGAGERÐIN hefur óskað eftir til-
boðum í lagningu vegar og smíði
brúar yfir Kolgrafarfjörð á norð-
anverðu Snæfellsnesi en verkið er
boðið út á Evrópska efnahagssvæð-
inu. Vegurinn verður 7,3 kílómetra
langur og á að vera með 6,3 metra
breiðu slitlagi.
Reist verður 230 metra brú og 530
metra fylling með grjótvörn yfir
Kolgrafarfjörð. Brúin verður eft-
irspennt bitabrú með fjórum milli-
stöplum þannig að haf á milli stöpla
verður nálægt 45 metrum en dýpi í
hafmiðju er um átta metrar.
Að sögn Eymundar Runólfssonar
hjá Vegagerðinni á að skila tilboðum
fyrir 10. mars og á verkinu að vera
að fullu lokið í október árið 2005.
Hann segir nýja veginn munu stytta
leiðina um norðanvert Snæfellsnes
umtalsvert eða um 6,2 kílómetra auk
þess sem öryggi vegfarenda aukist
verulega.
Skv. upplýsingum Vegagerð-
arinnar má líta svo á að þegar fram-
kvæmdum við Kolgrafarfjörð verði
lokið verði norðanvert Snæfellsnes
eitt samgöngusvæði, sem muni
styrkja byggðina þar verulega.
Landfylling
og brú
yfir Kol-
grafarfjörð
♦ ♦ ♦
ÁRLEGUR samráðsfundur nor-
rænna þingforseta verður haldinn í
Reykjavík dagana 26.–28. febrúar.
Halldór Blöndal,
forseti Alþingis,
mun taka á móti
starfssystkinum
sínum frá Norður-
löndunum, Ivari
Hansen, forseta
danska þingsins,
Riittu Uosukai-
nen, forseta
finnska þingsins,
Jørgen Kosmo,
forseta norska þingsins, og Birni von
Sydow, forseta sænska þingsins.
Á meðal umræðuefna á fundi þing-
forsetanna er alþjóðlegt samstarf
þjóðþinga, norræn sýn á stækkun
Evrópusambandsins, samstarf þing-
nefnda norrænu þinganna og örygg-
ismál í þingunum.
Á meðan norrænu þingforsetarnir
dvelja hér á landi munu þeir meðal
annars skoða handritasýningu í Þjóð-
menningarhúsinu, heimsækja Ís-
lenska erfðagreiningu og sækja tón-
leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
segir í fréttatilkynningu.
Fundur nor-
rænna þing-
forseta í
Reykjavík
Halldór Blöndal