Morgunblaðið - 11.03.2003, Síða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2003 21
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Glæsileg helgarferð til
Prag
20. mars
frá kr. 39.950
Verð kr. 19.550
Flugsæti til Prag, út 17. mars, heim 20.
mars. Almennt verð með sköttum. Flug
og skattar á mann miðað við að 2 ferðist
saman, 2 fyrir 1.
Verð kr. 39.950
Helgarferð til Prag, 20. mars, 4 nætur.
Flug, hótel og skattar. Verð á mann í
tveggja manna herbergi m. morgunmat.
Hótel Expo, 4 stjörnur. Ferðir til og frá
flugvelli, kr. 1.800.
4 stjörnu hótel. Tryggðu þér síðustu sætin þann 20. mars til Prag, en
við höfum fengið nokkur viðbótarherbergi á hinu vinsæla Expo hóteli,
fallegu 4 stjörnu hóteli í hjarta Prag. Upplifðu eina fegurstu borg
heimsins sem geymir mörg hundruð ára sögu á hverju horni og mannlíf
og andrúmsloft sem á ekki sinn líka. Í boði
eru spennandi kynnisferðir um kastalahverfið
og gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra
heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum
fararstjórum Heimsferða.
Hvenær er laust ?
13. mars - uppselt
17. mars - 29 sæti
20. mars - 31 sæti
24. mars - laust
27. mars - uppselt
31. mars - laust
3. apríl - 29 sæti
7. apríl - laust
10. apríl - 23 sæti
13. apríl - 19 sæti
17. apríl - uppselt
Munið
Mastercard
ferðaávísunina
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélaga
á Fljótsdalshéraði hefur sent frá sér
ályktun, þar sem skorað er á sam-
gönguráðherra, þingmenn Sjálf-
stæðisflokks og samgöngunefnd Al-
þingis að beita sér nú þegar fyrir
uppbyggingu hringvegarins í Skrið-
dal, frá Litla-Sandfelli að Öxi og síð-
ar í beinu framhaldi heilsársvegi um
Öxi.
Yfir sumarmánuðina fara allt að
fimm hundruð bílar daglega um Öxi,
skv. talningu sumarið 2002.
Í ályktuninni kemur fram að
hringvegurinn í Skriðdal, frá Litla-
Sandfelli (endi bundins slitlags) að
Axarvegi sé 22 km, að stórum hluta
lélegur malarvegur sem þarfnist
verulegrar uppbyggingar miðað við
umferð. Á þessum kafla séu 5 ein-
breiðar brýr með hættulegum að-
komum.
„Með gerð á góðum vegi um Skrið-
dal og Öxi væru byggðarlögin á Mið-
Austurlandi og Suðausturlandi færð
saman og atvinnusvæðið gert stærra
og öflugra. Auðvelt er t.d. að stunda
vinnu tímabundið frá Egilsstöðum á
Djúpavogi og fara til síns heima á
kvöldin, sama á auðvitað við um að
sækja vinnu frá Djúpavogi og jafnvel
lengra sunnan að upp á Fljótsdals-
hérað. Það er mikilsvert, nú þegar
virkjanaframkvæmdir eru að hefj-
ast, að auðvelda fólki eðlilega mögu-
leika á umferð milli svæða,“ segir í
ályktun fulltrúaráðsins.
Stytting um 61 km
Bent er á að vegalengd milli Mið-
Austurlands og Reykjavíkur styttist
um 61 km við að komast Öxi í stað
Breiðdalsheiðar og tekið dæmi af
flutningabíl með vagni, sem flytur
vörur 50 vikur á ári, 5 sinnum í viku,
á milli Egilsstaða og Reykjavíkur,
fram og til baka, um Öxi. 30.500 km
vegalengd sparast á ári og miðað við
að bílstjóri skili að jafnaði 50 km á
klst. myndi akstursklukkustundum
ársins fækka um 610. Þá er, miðað
við sömu forsendur, reiknað saman
þungaskattur, laun með tengdum
gjöldum, olíu- og dekkjaeyðsla og
reiknast þá sparnaður af því að aka
Öxi ríflega þrjár milljónir króna yfir
árið. Eru líkur leiddar að því að slíkt
myndi koma fram í lækkuðu vöru-
verði eystra. Um tíu þúsund km
myndu sparast í sumarumferðinni í
heild, miðað við talninguna árið 2002,
sem áður var um getið.
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Héraði segir að með bundnu slitlagi á
Öxi myndu sparast stórar fjárhæðir í flutningum milli Reykjavíkur og Mið-
Austurlands og það koma fram í lægra verði til neytenda á Austurlandi.
Vilja bundið
slitlag á Öxi
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Ísar
ehf. úr Hafnarfirði er nú að vinna
við miklar framkvæmdir fyrir hafn-
arsjóð Snæfellsbæjar í Rifshöfn.
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri
Snæfellsbæjar, segir að nýju hafn-
armannvirkin muni kosta, þegar
þeim verður að fullu lokið, um 50
milljónir króna og af þeirri upphæð
muni um 18 til 20 milljónir greiðast
af Hafnarsjóði Snæfellsbæjar.
Þau verkefni sem Ísarn ehf. hefur
tekið að sér er að fjarlægja gömlu
staurakistuna sem var farin að láta
á sjá og dýpka svæðið undan henni.
Einnig að gera nýja bryggju með
stálþilsviðlegukanti 76 m löngum
en við hann verður 4 m dýpi. Þetta
mannvirki kemur nokkru utar í
höfnina en staurakistan var áður og
stækkar smábátahöfnin við það sem
mikil þörf var á. Stálþilshlið bryggj-
unar veit að smábátahöfninni en út-
hlið bryggjunnar verður grjótvarin.
Nú er langt komið með þann verk-
hluta sem vinna á í ár. Staurakistan
er horfin, búið að reka niður stálþil-
ið, kanturinn í vinnslu og verið að
keyra fyllingarefni í bryggjuna.
Þar verður komið fyrir lögnum og
síðan steypt þekja á bryggjuna. Það
eru verkefni sem bíða næsta árs. Í
ár verða einnig sett fríholt og stigar
á þilkantinn.
Með tilkomu þessa nýja hafn-
armannvirkis í Rifshöfn mun að-
staða minni báta í höfninni batna
mjög.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Hellissandur
Smábátahöfnin
verður stækkuð
Frá Rifshöfn. Nýja stálþilshliðin á bryggjunni blasir við.
ÞEGAR fréttist að Marianne B.
Nielsen, yfirlæknir Heilsugæslu-
stöðvar Hveragerðis, hefði ákveðið
að láta af störfum fékk Sigurbjörg
Sara Sveinsdóttir hugmynd. Hún
ákvað að fá Hvergerðinga til að
skrifa nöfn sína á lista þar sem Mari-
anne var beðin að hugsa sig vandlega
um áður en hún færi.
„Maður heyrir óænægju hjá fólki
og ég vildi gera eitthvað til að fá
hana til að endurskoða afstöðu sína,“
segir Sigurbjörg Sara sem ásamt
þeim Ólöfu Ingibergsdóttur og
Eygló Valgeirsdóttur kom listum
fyrir í búðum og bensínstöðvum þar
sem þeir voru í eina viku. Alls skrif-
uðu 615 Hvergerðingar á listana,
sem lýsir best hversu Hvergerðing-
ar eru ánægðir með Marianne og
hennar störf hér. Marianne hefur
verið læknir í bænum síðan í október
1999 og mun láta af störfum hinn 1.
apríl nk. Að sögn Herdísar Þórðar-
dóttur, framkvæmdastjóra Heilsu-
gæslunnar, er búið að auglýsa stöð-
una, nokkrir hafa hringt en engin
formleg umsókn er komin. Aðspurð
hvort hún sé bjartsýn á að fá lækni
fyrir 1. apríl segir Herdís: „Maður
getur ekki verið bjartsýnn fyrr en
maður hefur eitthvað í hendi.“
ÞEIR sitja hér þétt Fjallabændur,
Bragi Benediktsson á Gríms-
stöðum, Ragnar Guðmundsson á
Nýhóli og Vernharð Vilhjálmsson í
Möðrudal, enda er góð samvinna á
milli þeirra. Hér fagna þeir í 80 ára
afmæli Ragnars á dögunum. Í vor
verða þeir í sama kjördæmi í fyrsta
sinn, þó ekki í sömu kjördeild. Þeir
verða áfram í tveim kirkjusóknum.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Fjallabændur í 80 ára afmæli Ragnars Guðmundssonar.
Fjallabændur
Mývatnssveit
Skora á yfirlækninn að vera áfram
Hveragerði
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Ólöf Ingibergsdóttir, Eygló Valgeirsdóttir og Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir
afhentu Marianne listana með nöfnum 615 Hvergerðinga.