Morgunblaðið - 11.03.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2003 51
Eingöngu sýnd um helgar
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Frábær svört
kómedía með
stór leikurunum
Jack Nicholson
og Kathy Bates
sem bæði fengu
tilnefningar til
Óskarsverðlaun-
anna í ár fyrir
leik sinn í mynd-
inni.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.
: .
: .2
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. B.i.16.
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna,
þ.á.m. besta
mynd og besti
leikstjóri
10
Frábær mynd frá
leikstjóranum
Martin Scorsese
HJ MBL
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk kvenna
Nicole Kidman9
Margverðlaunuð stórmynd frá leikstjóra
Billy Elliot.
Missið ekki af þessu einstæða
meistaraverki.
Ein rómaðasta mynd seinni ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12.
HJ MBL
HLJÓMSVEITIN Bang Gang hefur
gert samning við Eddu útgáfu hf.
um útgáfu næstu plötu sveitarinnar,
sem væntanleg er á markað næsta
haust. Bang Gang hefur náð miklum
árangri að undanförnu við að koma
tónlist sinni á framfæri erlendis. Á
síðustu tveimur mánuðum hefur ver-
ið gengið frá tveimur mikilvægum
samningum við erlenda aðila.
Áður hefur verið greint frá út-
gáfusamningi Barða Jóhannssonar,
forsprakka Bang Gang, við EMI í
Frakklandi. Nú í janúar var svo und-
irritaður leyfissamningur við fyr-
irtækið Recall/Discograph um út-
gáfu á næstu plötu Bang Gang í
Evrópu fyrir utan Skandinavíu og
Bretland.
Samkvæmt upplýsingum frá Eddu
var samning-
urinn undirrit-
aður á stærstu
kaupstefnu tón-
listariðnaðarins í
Evrópu, MIDEM í
Cannes, en stefn-
una í ár sótti
stærsta sendi-
nefnd sem farið
hefur frá Íslandi
um árabil. Þar á meðal voru fulltrú-
ar frá Útflutningsráði sem hugleiða
að beita sér fyrir sérstöku kynning-
arátaki á íslenskri tónlist á MIDEM-
kaupstefnunni á næsta ári.
Þess má geta að á meðal þeirra
sem leggja Barða lið á plötunni eru
Daníel Ágúst, Ester Talía og Nicol-
ette.
Tveir samningar við erlenda aðila að baki
Barði Jóhannsson
Bang Gang semur við Eddu
HVAÐ er 252 blaðsíður, í bókarformi,
ofan í kassa með meðfylgjandi grænni
vínylplötu? Svarið er nýjasta Verzl-
unarskólablaðið V69. Blaðið, sem
dregur nafn sitt af því að þetta er 69.
árgangur blaðsins, kom út sl. föstu-
dag. Með því fylgir græn tíu tommu
plata að megninu með tónlist eftir
Stefán Má Kjartansson, nemanda í 6.
bekk, en einnig Tomma White. „Þetta
er danstónlist sem er gaman að hlusta
á meðan maður er að lesa blaðið,“ seg-
ir Jóhannes Kjartansson ritstjóri.
Blaðið (eða bókin) hefur í raun tvær
forsíður. Stelpur fá að líta strák á
fyrstu blaðsíðunni á meðan strákarnir
sjá snotra snót. Mattur pappír og
grófari skreytir strákahlutann en
stelpurnar fá meiri glans og glamúr,
útskýrir Jóhannes. Þegar í miðju
blaðsins er komið fá lesendur merki
um að snúa blaðinu við og byrja upp á
nýtt hinum megin. Auglýsingar sem
höfða meira til stelpna enduðu frekar
stelpumegin og öfugt. Sama reglan
gilti að einhverju leyti hvað varðar
efni, segir Jóhannes.
Hvorki vantar kvenhetjur né karl-
hetjur í blaðið því Lilja Pálmadóttir
og Björgólfur Thor Björgólfsson
ræddu við greinahöfunda V69. Þau
eiga það sameiginlegt að hafa stundað
nám við Verzlunarskólann á þeim
tíma, sem skólinn flutti af Grundar-
stígnum og upp í Ofanleiti.
Jóhannes, sem er nemandi í 6.
bekk, ræddi sjálfur við nýskipaðan
borgarstjóra Reykjavíkur, Þórólf
Árnason. Honum tókst að grafa upp
gamla mynd af borgarstjóranum og
því prýðir ein mynd af Þórólfi frá
miðjum áttunda áratugnum blaðið.
Ennfremur má finna greinar um
átraskanir og sjálfsálit, viðtöl við fyr-
irsætu og tískuþætti svo eitthvað sé
nefnt.
Blað fyrir nemendur
Þrátt fyrir margar greinar sem
höfða til fjöldans er blaðið fyrst og
fremst ætlað nemendum skólans.
„Þetta er blað eftir nemendur og fyrir
nemendur. Við auglýsum eftir grein-
um og svo vorum við með smásagna-
og ljóðakeppni líka. Verðlaunin voru
utanlandsferð,“ segir Jóhannes.
Umfangið er mikið, ritnefndin velti
átta milljónum króna, og náðist inn
fyrir kostnaði með auglýsingum. Vín-
yllinn var prentaður í 1.500 eintökum
og er því fyrst og fremst hugsaður
fyrir nemendur og velunnara, en upp-
lag blaðsins í heild er 2.600 eintök.
Heilsíðuauglýsingarnar í blaðinu
eru 75 og í mörgum þeirra eru nem-
endur eða starfsmenn skólans í aðal-
hlutverki. Þrátt fyrir það er útlit aug-
lýsinganna fagmannlegt og fyrir
ókunnugan erfitt að geta sér til að
þetta sé fyrirkomulagið.
„Svo erum við með 800 áskrifend-
ur. Þeir voru 300 þegar við byrjuð-
um,“ segir Jóhannes en áskrifend-
urnir eru aðallega fyrrverandi
nemendur. „Blaðið er svo stórt og
dýrt að senda það út þannig að við
þurfum að keyra það í hús,“ segir Jó-
hannes en sjö manna ritnefndin lætur
greinilega ekki mikið stöðva sig enda
fær hún mikla hjálp frá nemendum
skólans.
Hann segir að skólinn kaupi jafn-
framt 150 eintök til að senda á grunn-
skóla, framhaldsskóla og bókasöfn.
„Þetta á að vera andlit skólans útávið
og auglýsing fyrir hann. Blaðið á að
endurspegla stemninguna hverju
sinni,“ segir Jóhannes.
Mikið er lagt uppúr útliti blaðsins.
Hönnuðurinn Ólafur Breiðfjörð setti
upp blaðið en ljósmyndir tóku að
stærstum hluta Silja Magnúsdóttir,
Ari Magg (bróðir Silju), Baldur Krist-
jánsson og Árni Torfason.
„Margar tilraunir hafa verið gerðar
til þess að gefa út sambærileg tímarit
fyrir ungt fólk og gefin eru út erlendis
en markaðurinn virðist ekki hafa ver-
ið tilbúinn. Nokkur mánaðarrit sem
sérhæfa sig í tónlist eða stelpuefni
standa þó fyrir sínu en gaman væri að
sjá sterkara blað á markaðnum sem
tæki meira á hönnun, tísku og ljós-
myndun,“ segir Jóhannes í ritstjóra-
pistli blaðsins. Hvetur hann áhuga-
fólk um þessi efni að kynna sér blaðið
en því verður dreift á kaffihús, tann-
læknastofur og ámóta staði.
Jóhannes hefur hug á því að sækja
um nám í grafískri hönnun við LHÍ
eftir stúdentspróf. Fyrst á dagskrá er
þó að einbeita sér að náminu nú þegar
þessari miklu vinnu við blaðið er lokið.
„Ég ætla að taka þetta með trompi.
Nú fer ég að læra.“
Verzlunarskólablaðið komið út
Morgunblaðið/Golli
Jóhannes Kjartansson, ritstjóri Verzlóblaðsins V69, með frumburðinn.
Veglegra en
nokkru sinni fyrr
ingarun@mbl.is