Morgunblaðið - 21.03.2003, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 31
Kaupauki 7 hlutir!
Ef þú kaupir 2 hluti eða fleiri frá Clinique er þessi gjöf til þín*
Augnfarðahreinsir 30 ml *
Rakakrem 15 ml *
Advanced Stop Signs Serum 15 ml *
Augnskugga duo *
Varalitur *
Kornakrem 40 ml *
Aromaticx Elixir ilmur 4 ml * Meðan birgðir endast.
Draumaliðið sem aldrei sefur
Repair Dream Team
Hér koma nýju Repairwear næturvörurnar, sem við höfum sótt um einkaleyfi á. Alla nóttina,
þegar húðin er móttækilegust, hjálpar hið öfluga, rakagæfa Intensive Night Cream við að sporna
gegn hrukkum og línum, deyfa þær og draga úr þeim. Það virkjar eðlilegt viðhaldsferli húðarinnar
og endurnýjar birgðir hennar af styrkjandi náttúrulegu kollageni. Sólarhringsvirk andoxunarefni bæta
áunninn skaða og fá húðinni vopn til að takast á við nýjan dag að morgni. RepairWear hjálpar þér
að vakna úthvíld, hlaðin orku og eldhress.
Láttu Draumateymið um þetta - dreymi þig vel!
Í LISTASAFNI Reykjavíkur –
Hafnarhúsi verður í kvöld, kl. 20,
opnuð sýning á sovéskum vegg-
spjöldum úr eigu safnsins, en þau
hafa ekki komið áður fyrir al-
menningssjónir. Veggspjöldin
vísa í senn til sterkrar hefðar í
grafískri hönnun sem var að
finna í Sovétríkjunum og ýmissa
umræðuefna sem bar hæst þar í
landi á tímum kalda stríðsins. Um
leið eru þessar myndir áminning
um hversu lítið hefur varðveist af
samsvarandi list hér á landi frá
þessum tíma.
Forsaga þessarar eignar Lista-
safns Reykjavíkur er sú að sum-
arið 2000 vildi franski rithöfund-
urinn Thierry Salvador gefa Erró
nokkurn fjölda sovéskra vegg-
spjalda frá sjötta og sjöunda ára-
tugnum, með þeim orðum að
listamaðurinn gæti líklega unnið
eitthvað úr þeim. Eftir að hafa
séð þessi tæplega fimmtíu vegg-
spjöld lagði Erró að vini sínum
að gefa þau Listasafni Reykjavík-
ur; þarna væru dýrgripir sem
vert væri að yrði haldið saman og
fengju að njóta sín. Salvador varð
við þessari bón vinar síns.
Sýningarstjórar eru þeir Guð-
mundur Oddur Magnússon, pró-
fessor í grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands, og Jón
Ólafsson heimspekingur.
Sýningarstjórarnir halda fyr-
irlestra í tengslum við sýninguna
9. apríl kl. 20.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 10–17 og lýkur 27. apríl.
Eitt sovéskra veggspjalda í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Sovésk veggspjöld
í Hafnarhúsinu
ÞAÐ er undarlegt til þess að hugsa að fræg-
asta verk leikbókmenntanna sem fjallar um
mannlíf í þúsund vatna landinu skuli skrifað af
útlendingi – og meira að segja tveimur. Í leik-
skrá eru slitur úr vinnudagbók Bertolts
Brechts frá sumrinu 1940 þar sem lýst er sam-
vinnu hans og Hellu Wuolijoki við samningu
verksins, en hún var borin og barnfædd í Eist-
landi, þó að mest hafi hún skrifað á finnsku.
Hér sannast að glöggt er gests augað því það
tekst að bregða upp mynd af Finnlandi milli-
stríðsáranna í hnotskurn: togstreitu milli stétt-
anna sem m.a. voru afleiðingar grimmilegs
borgarastríðs. Fátækt var mikil og landsmenn
þurftu á sterkri sjálfsmynd sinni að halda í
skugga ógnar þeirrar sem landinu stóð af ná-
grönnum sínum í Ráðstjórnarríkjunum.
Það er einkum þrennt sem einkennir þessa
sýningu. Hið fyrsta er að óvenjumörg tilsvör
hafa verið felld niður í því augnamiði að halda
henni innan tímamarka sem talið er að íslenskir
áhorfendur þoli, m.a. forleikur, sjöunda atriðið
allt og söngtextar Brechts. Allt á þetta sam-
merkt að koma beinni framvindu leiksins lítið
við. Annað er að Guðmundur Ólafsson, leikari
og rithöfundur, hefur samið snjalla söngtexta
sem Matti Kallio hefur samið lögin við. Ljúfsár-
ir tangótónar setja sterkan svip á sýninguna og
stytta áhorfendum stundir milli stórkarlalegra
leikatriðanna. Hið þriðja er leikmynd Vytautas
Narbutas. Eitt af séreinkennum Brechts sem
leikhúsmanns var hvílíka áherslu hann lagði á
firringaráhrif, þ.e. að áhorfendur misstu aldrei
sjónar á þeirri staðreynd að þeir voru viðstadd-
ir leiksýningu. Atriði þau sem felld hafa verið úr
sýningunni eru gott dæmi um þennan þanka-
gang. Það er greinilegt að Guðjón Pedersen
leikstjóri leitast við að finna sýningunni nýjan
farveg þó að hann vilji ekki ganga beint á svig
við ætlun höfundar. Sviðið sem reist er að miðju
sviðinu – eitthvað miðja vegu á milli lítils leik-
sviðs og finnsks tangódanspalls – á þó stærstan
þátt í því að halda þessari hugsun höfundar á
lofti.
Þessi leikmynd er einföld og sterk og leik-
urinn hverfist umhverfis hana, ofan á og undir
henni þannig að engin tvö atriði hafa sömu af-
stöðu. Á þessum palli er leikið það sjónarspil
sem persónurnar setja á svið fyrir sjónum ann-
arra í verkinu svo fyrirætlanir höfundar eru hér
umskapaðar sjónrænt og sem hluti af heild
frekar en sem uppbrot á leikrænni framvindu.
Aftur á móti er leikmyndin ljósahönnuðinum,
Kára Gíslasyni, þung í skauti. Þó að ýmis atriði
séu vel unnin er erfitt að koma í veg fyrir að
sperrurnar skyggi á leikendurna. Skilin milli
skjannabirtu og hálfrökkurs voru á stundum of
skörp þó að margt væri vel gert.
Búningar Helgu I. Stefánsdóttur voru fram-
úrskarandi, margar hugmyndir bráðsnjallar
eins og þegar Púntila stígur úr baðinu ábyrgðin
og ráðríkið uppmálað íklæddur rómverskri
tógu. Litríki þeirra í samspili við hina léttu og
leikandi tónlist Matta Kallio blekkti áhorfendur
á stundum til að halda að þeir væru að horfa á
gamansaman sveitaróman ef ekki hefði verið
fyrir þátt Theodórs Júlíussonar sem fór ham-
förum á sviðinu og sýndi svo stórkostlegan leik
að helst væri hægt að kalla slíkt leiftursókn til
leiksigurs. Það var kominn tími til að fá Theo-
dóri hlutverk sem er verðugt hans hæfileikum
og hann sannar hér að hann er traustsins verð-
ur.
Aðrir leikarar stóðu sig einnig firnavel. Það
er langt síðan undirritaður hefur verið jafn-
ánægður með þennan þátt í heild í sýningu hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Nýliðunin sem hefur
orðið undanfarin ár er farin að skila árangri um
leið og mjög sterkir nýgræðingar taka út
þroska og eldri leikarar endurfæðast í listinni.
Sýningin er sérstaklega vel unnin, heildarsýn
leikstjóra skýr og nostrað við hvert smáatriði
sem skilar sér í miklu öryggi í leiknum. Bergur
Þór Ingólfsson er svolítið sérstakur Matti;
gervið eins og eitthvað í ætt við teiknaðar per-
sónur Tove Jansons. Bergur sýnir mikla breidd
og styrk í leik sínum, munur á líkamlegu atgervi
aðalleikaranna undirstrikar að Matti þarf á allri
slægð sinni að halda.
Nína Dögg Filippusdóttir fer á kostum sem
dóttir Púntila. Eins og við margar aðrar per-
sónur er aðaláherslan lögð á hinn gamansama
þátt verksins. Gott dæmi er dómarinn í höndum
Gísla Arnar Garðarssonar sem er leikinn sem
hálfgerður trúður. En Gísli fær líka að sýna á
sér gerólíka hlið sem hinn þögli og þungbúni
leiguliði, Súrkala. Aðrir sem gera sér mikinn
mat úr skoplegum möguleikum persónanna eru
Valur Freyr Einarsson, Marta Nordal, Guð-
mundur Ólafsson, Guðrún Ásmundsdóttir og
Margrét Helga Jóhannsdóttir. Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir
sýna fjölbreyttari leik og gera fyllri persónur úr
hvorutveggja sínu hlutverki, enda úr meira að
moða. Björn Hlynur Haraldsson er þvílíkt kam-
eljón að hann hefur ennþá aldrei leikið tvö hlut-
verk á líka vísu. Hér bætir hann bráðsnjöllum
og glænýjum karakter í safnið. Nokkrum leik-
endum úr Stúdentaleikhúsinu bregður einnig
fyrir sem statistum.
Brecht er allt annað en auðveldur viðfangs.
Leikstjórnarstíll hans gegnsýrir textann. Guð-
jóni Pedersen tekst að brjóta upp verkið og
móta það eftir eigin höfði án þess að draga úr
því broddinn. Hann hefur blásið lífi í textann og
komið auga á fjölmarga nýja möguleika sem fel-
ast í honum. Sýningin er heilsteypt, bráðfyndin,
litrík og lifandi. Theódór Júlíusson sýnir undir
stjórn Guðjóns Pedersens stórkostlegan leik
sem Púntila en leikstjóra hefur jafnframt tekist
að ná fram jafnbesta hópleik sem sést hefur á
fjölum Borgarleikhússins í svo stórri sýningu.
Leiftursókn
til leiksigurs
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur
Höfundur: Bertolt Brecht. Þýðandi: Þorsteinn Þor-
steinsson. Höfundur söngtexta: Guðmundur Ólafs-
son. Höfundur tónlistar: Matti Kallio. Leikstjóri: Guð-
jón Pedersen. Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen. Lýsing:
Kári Gíslason. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Leik-
mynd: Vytautas Narbutas. Leikarar: Arnbjörg Hlíf
Valsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Björn Hlynur Har-
aldsson, Gísli Örn Garðarsson, Guðmundur Ólafsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Marta Nordal,
Nína Dögg Filippusdóttir, Theodór Júlíusson og Valur
Freyr Einarsson. Fimmtudagur 20. mars.
PÚNTILA BÓNDI OG MATTI VINNUMAÐUR
Morgunblaðið/Jim Smart
„Theodór Júlíusson fór hamförum á sviðinu
og sýndi svo stórkostlegan leik að helst væri
hægt að kalla slíkt leiftursókn til leiksigurs.“
Sveinn Haraldsson
Keppt í ljóða-
flutningi
ÁRLEG samkeppni í flutningi ljóða
fyrir framhaldsskólanemendur fer
fram á nýja sviði Borgarleikhússins
á morgun kl. 15. Félag frönskukenn-
ara og sendiráð Frakklands standa
að keppninni í samvinnu við Borg-
arleikhúsið. Sautján nemendur frá
ellefu skólum flytja utanbókar mörg
af þekktustu ljóðum franskra bók-
mennta. Tónlist verður einnig flutt
af nemendum úr nokkrum skólum.
Fyrstu verðlaun eru ferð á tónlist-
arhátíðina Francocolies í La Roch-
elle en einnig verða veitt bókaverð-
laun.
Dómnefndina skipa Sigurður
Pálsson skáld, Hildur Loftsdóttir
blaðamaður, Ragna Sveinsdóttir
frönskukennari, Olivier Dintinger,
formaður Alliance Francaise, og Þór
Túliníus, leikari og leikstjóri.