Morgunblaðið - 20.04.2003, Side 12
12 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐ munum berjast fyrir því að náað minnsta kosti einum manni áþing,“ segir Kristján Pálsson, efstimaður á T-lista óháðs framboðs íSuðurkjördæmi, þegar hann er
spurður um markmiðin með framboðinu. Krist-
ján var sem kunnugt er þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjaneskjördæmi en fékk ekki
sæti á framboðslista flokksins í nýju Suður-
kjördæmi. „Framboðið varð til við frekar
óvenjulegar aðstæður, vegna uppstillingar á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Vinnubrögð uppstillingarnefndar voru með
þeim eindæmum að mér og ekki síst stuðnings-
mönnum mínum fannst að undir því væri ekki
hægt að sitja. Við ákváðum að bjóða fram í
þessu eina kjördæmi og hefur það gengið hratt
og vel fyrir sig. Ég get ekki annað en verið
ánægður með framboðslistann og stefnuskrána.
Þetta sýnir að í þessu kjördæmi er hópur fólks
sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er og rís upp
gegn yfirgangi og virðingarleysi.“
Jákvæðar undirtektir
– Hversu raunhæft telur þú það markmið að
fá mann kosinn á þing?
„Ég tel það raunhæft. T-listinn hefur mælst
með 6–7% fylgi í skoðanakönnunum sem ég hef
haft aðgang að. Við þurfum að vísu meira, eða 8
til 10%, til þess að þetta gangi upp.
Það skiptir miklu máli hvernig framboðið er
kynnt og þau málefni sem barist er fyrir. Þegar
litið er til þeirra góðu undirtekta sem framboðið
fær verður maður enn bjartsýnni. Auðvitað
verður að viðurkenna að alltaf er torveldara
fyrir ný framboð að koma sér á framfæri og
vinna jafn harðan slag og pólitískar kosningar
eru, við gamalgróin framboð og flokka sem allir
þekkja og hafa ótakmarkað fjármagn. Ég tel þó
að okkar framboð njóti þess að ég hef setið á
þingi í átta ár og starfað sem bæjarstjóri í mörg
ár þar á undan. Mín störf eru því nokkuð þekkt,
ekki síst á Suðurnesjum. Fólk veit að hverju
það gengur hvað mig varðar.
Þetta á einnig við um þá sem skipa listann
með mér, frambjóðendurnir eru allir þekktir að
góðu einu í sínu nánasta umhverfi. Þannig er
annar maður á listanum, Snæbjörn Sigurðsson,
varaoddviti Bláskógarbyggðar. Þriðji maðurinn
er Valþór S. Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi
í Njarðvík, og fjórði maðurinn á listanum er
Garðar Garðarsson, farsæll skipstjóri. Þannig
gæti ég haldið áfram.“
– Framboðið tengdist mjög Suðurnesjum, í
upphafi a.m.k. Hvaða möguleika hafið þið til að
höfða til fólks annars staðar í kjördæminu?
„Með því að berjast fyrir málefnum sem fólk
er tilbúið til að fylkja sér um. Dæmi um það er
gagnrýni okkar á framgöngu ríkisvaldsins í
þjóðlendumálum. Mikil óánægja er með það
sem fólk telur yfirgang ríkisins í því máli, ekki
síst meðal bænda, með ósanngjarnri kröfugerð
á hendur bændum og jafnvel ætlað brot á
stjórnarskrá. Við höfnum þessum vinnubrögð-
um og segjum einfaldlega að þinglýst eign-
arlönd bænda eigi að virða.“
– Hver er sérstaða T-listans, hvaða mál hafið
þið fram að færa sem aðrir hafa ekki?
„Við skerum okkur frá öðrum framboðum á
ýmsan hátt, það er eðli framboðs sem bundið er
við eitt kjördæmi. Það er kostur að geta einbeitt
sér að málefnum eins kjördæmis þótt sú vinna
hafi auðvitað áhrif um allt land. Við bjóðum íbú-
um Suðurkjördæmis þeirra eigin lista. Vandinn
er að slagkraftur okkar verður minni þar sem
við erum ekki með í umræðunni annars staðar.
Þá erum við útilokuð frá umræðum með leið-
togum framboðanna í útvarpi og sjónvarpi.
Við höfum sérstöðu í sjávarútvegsmálum,
mér virðist að við séum þar á milli stefnu stjórn-
arflokkanna sem fylgja óbreyttri stefnu og
stjórnarandstöðuflokkanna sem vilja kollvarpa
sjávarútvegskerfinu.
Við leggum höfuðáherslu á að samþjöppun
aflaheimilda verði stöðvuð. Aflaheimildirnar
færast á sífellt færri hendur og mér virðist að
stjórnarflokkarnir ætli að láta undan þrýstingi
stórútgerða um að hækka kvótaþak einstakra
útgerða úr 12 og upp í 20%. Kom það berlega
fram í orðum sem Árni Ragnar Árnason, for-
maður sjávarútvegsnefndar Alþingis, lét falla í
sjónvarpsviðtali. Það sýnir mér að stjórn-
arflokkarnir muni standa að enn frekari sam-
þjöppun aflaheimilda. Ég lít á þessa þróun sem
meiriháttar aðför að byggðum landsins og að
innan fárra ára verði fimm fyrirtæki komin með
meginhluta kvótans á sína könnu.
Við höfum séð afleiðingarnar á Suðurnesjum,
þegar Miðnes í Sandgerði var sameinað Haraldi
Böðvarssyni og allur kvótinn fluttur upp á
Akranes. Nýlega kom fram að rætt væri um
sameiningu Þorbjarnar Fiskaness í Grindavík
við Granda í Reykjavík. Hvað gerist þá í
Grindavík? Og Vestmannaeyjar gætu fljótt
komið inn í þá mynd því ef ég veit rétt á Grandi
einnig stóran hlut í Ísfélagi Vestmannaeyja.
Við berjumst fyrir því að kvótaþakið verði
fært aftur niður í 8%. Ég viðurkenni að erfitt er
að snúa til baka þegar svona langt hefur verið
gengið. En skilaboðin eru skýr, frekari sam-
þjöppun verður ekki samþykkt. Sjálfur hef ég
alltaf verið hlynntur kvótakerfinu og mælt með
því sem stjórntæki. Með því er gott að skipu-
leggja veiðar og vinnslu. Kvótakerfið á mikinn
þátt í stöðugleikanum í efnahagslífinu sem við
höfum búið við síðasta áratuginn.
Hins vegar hefur samþjöppun aflaheimilda
og ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á
kerfinu dregið kraft úr sjávarbyggðunum. Við
sjáum að allt líf er að fara af bryggjunum og
glampinn að hverfa úr augum sjómanna. Þetta
vinnst ekki til baka nema með því að breyta
vissum þáttum kvótakerfisins.
Í þeim tilgangi leggur T-listinn til að veiðar á
aukategundum sem voru kvótasettar fyrir
tveimur árum með einhliða ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra, án nokkurra skynsamlegra
raka, verði gefnar frjálsar á ný. Þar er um að
ræða keilu, löngu og skötusel og einnig kemur
til greina að taka ufsa út úr kvótanum. Ég var
ósammála þessari breytingu á Alþingi en hún
var samþykkt eigi að síður. Kvótasetning auka-
tegundanna kippti grundvellinum undan fjölda
lítilla útgerða sem lögðu sig eftir því að veiða
þennan fisk. Nú er fiskinum hent vegna þess að
hann er og verður fyrst og fremst meðafli.
Til að koma lífi í sjávarþorpin þarf einnig að
taka upp línutvöföldun á ný og viðurkenna að
það voru mistök að afnema þessa uppbót. Það
mun auka atvinnu í landi og opna fyrir nýliðun í
útgerð. Við viljum gera þetta á næsta fisk-
veiðiári og að hluti þeirrar 30 þúsund tonna
aukningar í þorskveiði sem nú er talað um verði
sett í línutvöföldunarpott. Ef stjórnvöld ætla að
úthluta þessu öllu til núverandi kvótaeigenda
meina þeir ekkert með tali um línuuppbót.
T-listinn hefur einn flokka lagt fram raunhæfa
stefnu í þeim efnum.“
Atvinnumál og samgöngur
Í stefnuskrá T-listans er fjallað um atvinnu-
mál og samgöngur, ekki síst málefni sem snerta
Suðurkjördæmi sérstaklega. Kristján segir að
mikið atvinnuleysi sé á Suðurnesjum og víðar í
kjördæminu. Það hafi afar slæm áhrif á mann-
lífið. „Okkur finnst að það hafi gleymst að skapa
hér möguleika til atvinnuuppbyggingar, frekar
að þeir hafi verið minnkaðir með því að dregið
hefur verið úr mætti eignarhaldsfélaga á lands-
byggðinni til að takast á við sín verkefni en pen-
ingarnir þess í stað notaðir til að byggja upp
þróunarstofu á Akureyri. Við viljum styrkja
stöðu eignarhaldsfélaga að nýju til að skapa
betri skilyrði fyrir nýsköpun í atvinnulífinu.
Okkur finnst athyglisvert það frumkvæði
sem Hornfirðingar hafa sýnt við að efla frum-
kvöðlastarf og að koma upp menntun fyrir
frumkvöðla. Það starf þarf að útfæra víðar um
landið. Samfara því þarf að koma upp sjóði þar
sem frumkvöðlar fá hugmyndir sínar metnar og
aðstoð við að koma þeim í framkvæmd.“
Kristján segir að ferðaþjónusta sé afar mik-
ilvæg atvinnugrein í öllu kjördæminu. Í stefnu-
skrá framboðsins kemur fram að það vill efla
ferðaþjónustuna með því að lækka flugvallar-
skatta og hafnar sértækum álögum á ferðaþjón-
ustuna, eins og gistináttagjaldi. Kristján bendir
á að Flugstöð Leifs Eiríkssonar sé langstærsti
vinnustaðurinn á Suðurnesjum og mikilvægt að
auka umferð flugfarþega þar í gegn. „Það eru
innheimt 76% hærri gjöld hér en á Kastrup-
flugvelli í Kaupmannahöfn. Það tel ég að sé
óviðunandi.“ Hann bætir því við að vel komi til
greina að lækka álögur á léttvíni og bjór til veit-
inga- og gististaða til að efla ferðaþjónustuna.
Málefni heilsugæslunnar á Suðurnesjum
hafa verið mjög til umræðu vegna þess að ekki
hefur tekist að fá heimilislækna til starfa und-
anfarna mánuði. „Ég tel að það hafi komið í ljós
að núverandi fyrirkomulag á stjórnun heil-
brigðisstofnana virkar ekki ef eitthvað bjátar á.
Það er í raun hneyksli hvað lausn þessarar deilu
milli ráðuneytisins og lækna hefur dregist lengi
og algjört virðingarleysi við íbúa Suðurnesja.
Boðleiðir eru greinilega of langar. Heilbrigð-
isráðherra ætti að segja sig frá þessu máli.
T-listinn vill efla heilbrigðisstofnanir á lands-
byggðinni og að stjórn þeirra verði færð heim í
hérað. Þetta er nærþjónusta við íbúana og hún
á að vera í höndum heimamanna, rétt eins og
rekstur grunnskólans. Sveitarfélögin þurfa
auðvitað að fá tekjustofna á móti.“
T-listann vill að tvöföldun Reykjanesbrautar
ljúki þegar á næsta ári. Hann setur breikkun og
lýsingu Hellisheiðar á stefnuskrá sína og vill að
framkvæmdum við fækkun einbreiðra brúa
verði flýtt. Þá er því lofað að ferðum Herjólfs
milli lands og Vestmannaeyja verði fjölgað og
gjaldskrá lækkuð. Auk þess nefnir Kristján að
staðið verði við áform um uppbyggingu Gjá-
bakkavegar og Suðurstrandarvegar.
„Miðað við núverandi áform lýkur tvöföldun
Reykjanesbrautar ekki fyrr en eftir tíu ár. Það
er allt of langur tími. Það er tæknilega vel fram-
kvæmanlegt að ljúka verkinu á næsta ári en það
þarf að veita fjármagn í það.
Það hafa verið miklar umræður um það
hvernig best er að standa að samgöngum við
Vestmannaeyjar í framtíðinni. Við teljum að
umræðan hafi dregið athygli manna frá því sem
öllu máli skiptir, hvernig best er og ódýrast að
gera almenningi í Eyjum kleift að komast milli
lands og Eyja í dag. Það kostar nú fimm manna
fjölskyldu 12–15 þúsund krónur að fara upp á
land með bíl og til baka aftur. Það er allt of mik-
ið, fólki finnst það innilokað og kostnaðurinn
sligar fyrirtæki í samkeppnisiðnaði sem starfa í
Vestmanneyjum. Við viljum að ferðum verði
fjölgað og gjaldskrá lækkuð.“
Hafið þið reiknað út hvað það kostar að fram-
kvæma stefnumál ykkar – og hvernig á að fjár-
magna þau?
„Það er ljóst að þetta kostar nokkra milljarða
og að það verður að forgangsraða í fram-
kvæmdum ríkisins öðruvísi en nú er gert ráð
fyrir. Einnig teljum við að nota eigi þá fjármuni
sem fást við sölu ríkisfyrirtækja, eins og til
dæmis Landssímans, til að byggja upp vega-
kerfið í landinu þannig að það verði með því
besta í heiminum.“
Kristján segist ekki fylgjandi því að hækka
skatta til að standa undir þeim framkvæmdum
sem eru á stefnuskrá T-listans. Framboðið hef-
ur á hinn bóginn á stefnuskrá sinni að hækka
skattleysismörk í 90 þúsund krónur og hefur
Kristján sagt að við það verði ríkissjóður af
fjögurra milljarða króna tekjum á ári.
„Þau loforð sem sett hafa verið fram í kosn-
ingabaráttunni um allt að 30 milljarða kr. al-
mennar skattalækkanir eru um margt gáleysis-
leg. Benda má á að í ár er til dæmis aðeins 1,2
milljarða króna afgangur af fjárlögum og að við
afgreiðslu ríkisreiknings kemur venjulega í ljós
að útgjöld hafa verið vanáætluð og tekjur hafi í
besta falli skilað sér nokkurn veginn eins og
áætlað var. Gáleysislegar skattalækkanir hafa
einfaldlega í för með sér minni framkvæmdir og
minni velferðarþjónustu við þegnana.
Það svigrúm sem við vonum að skapist á
næstu árum fyrir skattalækkanir viljum við
nýta fyrst og fremst í þágu þeirra sem eru með
lág laun. Það er best gert með því að hækka
skattleysismörk tekjuskattsins. Það mun
gagnast 80% skattgreiðenda og þá ekki síst
öldruðum og öryrkjum. Huga þarf að lækkun
skatta sem gagnast barnafólki, eins og til dæm-
is matarskattsins. Margir þeir sem eru með
millitekjur hafa einnig orðið illa úti vegna áhrifa
jaðarskatta og þarf að athuga það sérstaklega.“
Getum unnið með öllum
– Hvernig ríkisstjórn vilt þú styðja, ef þú
kemst í þá aðstöðu að hafa áhrif á stjórn-
armyndun eftir kosningar?
„Af okkur hálfu er allt opið. Við getum unnið
með hverjum sem er ef við náum fram okkar
stefnu í þeim málum sem við leggjum mesta
áherslu á. Í okkar huga er skilyrði að viðhalda
stöðugleikanum í efnahagslífinu og auka at-
vinnu. Kollsteypur í sjávarútvegi sem orsaka
óðaverðbólgu og upplausn eru ekki á dagskrá.
Við teljum brýnt að horfið verði frá þeirri
stefnu að hirða þinglýst eignarlönd af bændum.
Stöðvun frekari samþjöppunar aflaheimilda er
algjört skilyrði. T-listinn er traustur kostur í
þessum kosningum. Fólk tekur ekki áhættu
með því að kjósa okkur. Með því geta kjósendur
hins vegar sýnt að þeir vilja breytingar.“
Kristján þekkir það vel að vera í framboði
fyrir gamalgróinn stjórnmálaflokk og segir að
vinnan við framboðið nú sé mjög ólík því.
„Okkur hefur tekist að fá duglegt fólk til liðs
við okkur, fólk sem leggur nótt við dag í vinnu
fyrir framboðið. Það á jafnt við um fólk sem
tekið hefur sæti á framboðslistanum og stendur
utan hans. Svo höfum við harðduglegan kosn-
ingastjóra, Jón Einarsson, sem er vanastur því
að sigra í kosningum. Þá erum við í fjölskyld-
unni ekki óvön kosningavinnu og hefur alltaf
þótt hún skemmtileg. Á því hefur ekki orðið
nein breyting,“ segir Kristján Pálsson.
Stöðvum samþjöppun kvótans
Kristján Pálsson, efsti maður á
T-lista óháðs framboðs í Suður-
kjördæmi, segir að það sé kostur við
framboð af þessu tagi að geta ein-
beitt sér að málefnum eins kjör-
dæmis. Kristján segir Helga Bjarna-
syni að fólk taki ekki áhættu með
því að kjósa T-listann en geti með
því sýnt að það vilji breytingar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
helgi@mbl.is
Alþingiskosningar 10. maí 2003