Morgunblaðið - 20.04.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.04.2003, Qupperneq 20
ERLENT 20 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ TARJA Halonen, Finnlandsforseti, skipaði formlega nýja ríkisstjórn á fimmtudag. Jafnmargir karlar og konur skipa stjórnina en ráðherrarn- ir eru alls 18. Anneli Jäättenmäki er nýr for- sætisráðherra landsins og er Finn- land því eitt ríkja Evrópu þar sem bæði forsetinn og forsætisráð- herrann eru konur. Halonen tók við völdum í mars 2000. Þing Finnlands staðfesti Jäätt- enmäki sem nýjan forsætisráðherra með 111 atkvæðum gegn 72 á þriðju- dag. Hún er 48 ára og lögfræði- menntuð. Hlutverk forsætisráð- herra í stjórn landsins er mun veigameira en hlutverk forseta. „Þetta er í fyrsta skipti í sögu Finnlands sem kynjajafnrétti í rík- isstjórninni hefur orðið að veru- leika,“ sagði Halonen í ræðu. „Ég vona að þetta verði öðrum hvatning.“ Miðflokkurinn vann nauman sigur í þingkosningunum 16. mars eftir að hafa setið í átta ár í stjórnarand- stöðu. Jäättenmäki lýsti því yfir að hún vildi að jafnmargir karlar og konur skipuðu nýja stjórn. Meðal ráðherranna er fyrrverandi ungfrú Finnland, Tanja Karpela, og fer hún með stjórn menntamála. Jafnræði í Finnlandi EINN þekktasti þingmaður frjáls- lyndra í Rússlandi, Sergej Júshenk- ov, var skotinn til bana í Moskvu á fimmtudag. Þingmaðurinn var skotinn nokkr- um sinnum í brjóstið við heimili sitt í einu af úthverfum Moskvu. Júshenkov var um nokkurt skeið bandamaður milljarðamæringsins og kaupsýslumannsins Boris Berez- ovskíjs, sem flýði land og mun nú einkum halda til í Lundúnum. Hins vegar slettist síðar upp á vinskapinn. Júshenkov var talinn óháður hug- sjónamaður, einn fárra rússneskra stjórnmálamanna. Hann var andvíg- ur stríði Rússa í Tétsníu og baráttu- maður gegn spillingunni sem þykir einkenna svo mjög stjórnmálalífið í Rússlandi. Pólitískt morð í Moskvu KÚRDAR í Írak hafa fundið fjölda- gröf nærri borginni Kirkuk í norður- hluta landsins. Frumrannsóknir á gröfinni gefa til kynna að þar sé að finna jarðnesk- ar leifar óbreyttra borgara. Talið er að í gröfinni sé að finna 2.000 til 2.500 lík. Telja Kúrdar að þarna sé að finna fórnarlömb her- ferðar Saddams Husseins, þáver- andi Íraksforseta, gegn Kúrdum ár- ið 1988. Kúrdar nefna þá aðgerð „Anfal“ en í henni var m.a. framið fjöldamorð á óbreyttum borgurum í bænum Halabja og efnavopnum beitt. Talið er að um 100.000 manns hafi fallið fyrir hendi morðsveita Saddams í Kúrdahéruðum Íraks. Fjöldagröf fundin í Írak SUMIR þeirra sem fóru ráns- hendi um fornminjasafn í Bagdad, höfuðborg Íraks, virðast hafa skipulagt sig vel og höfðu í sumum tilvikum lykla að peningaskápum safnsins og gátu því tekið verð- mæta gripi þaðan. Þetta kom fram á fundi sér- fræðinga um málið á vegum Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Um 30 sér- fræðinga á sviði lista og menninga sóttu fundinn sem haldinn var í París en tilgangurinn með honum var að meta þann skaða sem írösk söfn hafa orðið fyrir af völdum rána og skemmdarverka í kjölfar stríðsins þar. Voru með lykla að peningaskápum Þó svo að mikið af ránunum og gripdeildunum hafi verið handa- hófskenndar segja sérfræðingar að sumir þjófanna hafi greinilega vitað að hverju þeir voru að leita og hvar þeir myndu finna það. „Það lítur út fyrir að hluti rán- anna hafi verið skipulagður,“ sagði McGuire Gibson, prófessor við Háskólann í Chicago og forseti bandarískra samtaka um rann- sóknir í Bagdad. „Þeir voru með lykla að pen- ingaskápum og gátu tekið þaðan mikilvæg gögn frá tíma Mesó- pótamíu,“ sagði Gibson. Sérfræðingar FBI sendir til Bagdad Fram kom á fundinum að ein- hverjir gripanna sem hurfu í Bagdad væru komnir á svartan markað. Miðstöð svarta markað- arins á sviði ólöglegrar verslunar með stolna listmuni og forngripi er í París. Bandaríkjastjórn hefur sent sérfræðinga Alríkislögreglunnar, FBI, til Bagdad til að reyna að afla upplýsinga um hvar fornmun- irnir kunna að vera niður komnir. Ráðgjafarnefnd George W. Bush Bandaríkjaforseta á sviði menn- ingarmála sagði af sér fyrr í vik- unni til að mótmæla því að ránin í Bagdad skyldu ekki hafa verið stöðvuð. Ránin voru skipulögð Washington, París. AFP. BRESKAR sérsveitir og lögregla voru í nánu sambandi við útlæg sam- tök mótmælenda á Norður-Írlandi sem m.a. eru ábyrg fyrir morði á kaþólskum lögmanni, Patrick Finuc- ane, árið 1989. Þetta kemur m.a. fram í skýrslu sem birt var á fimmtudag þar sem greint er frá niðurstöðu fjögurra ára rannsóknar á samskiptum breska hersins við útlægar morðsveitir á Norður-Írlandi. „Ólögmæt aðild aðila að morði gef- ur í skyn að öryggissveitir hafi heim- ilað manndráp,“ segir sir John Stev- ens, yfirmaður Lundúnalögregl- unnar, í skýrslu sinni. Niðurstöður skýrslu Stevens urðu til þess að kaþólikkar kröfðust þess að bresk yfirvöld gæfu leyfi fyrir al- þjóðlegri rannsókn á morðinu á Finucane. Þá komst Stevens einnig að því að samsæri hefði verið um morðið á háskólanemanum Adam Lambert árið 1987. „Mín niðurstaða er sú að samsæri hafi verið um bæði morðin,“ segir í skýrslu Stevens. „Samsærið birtist í ýmsum atrið- um. Allt frá því að skýrslur voru ekki gerðar, upplýsingum var haldið leyndum og að þátttöku liðsmanna hers og lögreglu,“ segir í skýrslunni. Finucane varði háttsetta liðsmenn Írska lýðveldishersins fyrir rétti. Hann var 38 ára gamall þegar hann var skotinn til bana er hann settist að kvöldverðarborðinu á heimili sínu í Belfast ásamt konu sinni og börn- um. Þó svo að liðsmaður Ulster De- fense Association (UDA) hafi framið morðið hafa kaþólikkar löngum sak- að yfirmenn bresku leyniþjónust- unnar um að hafa hvatt til þess. Skýrsla Stevens er 6.000 blaðsíður og hefur ekki verið gerð opinber í heild en útdráttur hefur verið birtur. Störfuðu með morðsveitum SJÓNVARPIÐ í Abu Dhabi sýndi á föstudag myndbandsupptöku sem sögð var tekin af Saddam Hussein, fyrrum Íraksforseta, 9. þessa mán- aðar, daginn sem Bagdad féll. Myndirnar voru sagðar teknar í Bagdad tveimur dögum eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárás á byggingu eina í borginni þar sem tal- ið var að Saddam kynni að vera á fundi með ráðgjöfum sínum. Telja margir að forsetinn hafi týnt lífi í þeirri árás. Á myndunum ræðir Saddam Hussein við almenning í miðborg Bagdad sem tekur leiðtoga sínum fagnandi. Talsmenn Bandaríkja- stjórnar sögðu að myndirnar yrðu skoðaðar en kváðust ekki geta skorið úr um hvort Saddam Hussein væri lífs eða liðinn. Sýndi myndir af Saddam TALIÐ er að um það bil 10.000 manns hafi tekið þátt í mótmælum í Bagdad, höfuðborg Íraks, á föstu- dag. Fólkið mótmælti hernámi Bandaríkjamanna og krafðist þess að liðsaflinn í landinu yrði kallaður á brott. Athygli vakti að bæði shía- múslimar og súnnítar tóku þátt í mótmælunum en þeir fyrrnefndu hafa verið kúgaður meirihluti í Írak áratugum saman. Bænaleið- togar í Bagdad höfðu áður hvatt shíta og súnníta til að snúa bökum saman gegn innrásarliðinu. Reuters Mótmæli í Bagdad YFIRVÖLD í Hong Kong skýrðu frá því í gær að tólf til viðbótar hefðu dá- ið af völdum lungnabólgufaraldurs- ins HABL og fórnarlömbum sjúk- dómsins hefði aldrei fjölgað þar eins mikið á einum degi frá því að farald- urinn braust út fyrir sex vikum. Alls hefur 81 dáið úr sjúkdómnum í Hong Kong. Síðustu fórnarlömbin voru á aldrinum 37–87 ára og þeirra á meðal voru sjö aldraðir Hong Kong-búar sem höfðu átt við lang- varandi veikindi að stríða. Skýrt var frá 30 nýjum sjúkdóms- tilfellum í Hong Kong í gær. Alls eru 110 í gjörgæslu vegna sjúkdómsins og um 40 hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum. Hundruð þúsunda Hong Kong- búa tóku í gær upp þvottakústa og afþurrkunarklúta til að hreinsa göt- ur og byggingar borgarinnar í von um að það dragi úr útbreiðslu sjúk- dómsins. Heimildarmaður í Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni og stjórnar- erindrekar í Peking sögðu í gær að kínversk yfirvöld væru að búa sig undir að birta nýjar upplýsingar um útbreiðslu sjúkdómsins og þar kæmi fram að fjöldi látinna og sýktra væri miklu meiri en talið hefur verið. Til að mynda hefðu nokkur hundruð manna sýkst í kínversku höfuðborg- inni einni en ekki 44 eins og gefið hefur verið upp. Kínversk yfirvöld hafa verið sökuð um að hafa sagt ósatt um úbreiðslu sjúkdómsins. Reuters Fjármálaráðherra Hong Kong, Antony Leung, tók í gær þátt í því að hreinsa götur borgarinnar til að draga úr útbreiðslu bráðrar lungnabólgu. HABL-faraldurinn í Hong Kong Hæsta dánartala á einum degi Hong Kong. AFP. FORSETAKOSNINGAR fóru fram í Nígeríu í gær, hinar fyrstu sem tal- ist geta frjálsar í landinu í 20 ár. Margir óttast að brögð verði í tafli í kosningunum og að ofbeldisverk setji mark sitt á þær. Kosningarnar eru taldar sérlega mikilvægur liður í viðleitni stjórn- valda að skapa stöðugleika í landinu. Alls eru 20 menn í framboði en fréttamenn í Nígeríu segja að Olus- egun Obasanjo, núverandi forseti, muni að líkindum sigra. Hann er kristinn maður úr suðurhluta lands- ins en helsti keppinautur hans er Muhammadu Buhari, múslimi úr norðurhlutanum. Þingkosningar fóru fram í Nígeríu um liðna helgi og náði flokkur Obas- ajo hreinum meirihluta á þingi. Stjórnarandstaðan segir að sú nið- urstaða hafi verið fengin fram með svikum. Forseta- kosningar í Nígeríu ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.