Morgunblaðið - 20.04.2003, Síða 38
SKOÐUN
38 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 27.
mars sl. sýndi sjónvarpið áhrifa-
mikla stuttmynd um einelti í skólum.
Vel var fjallað um efnið innan þeirra
marka þó, að aðeins var lýst hvernig
fórnarlömb eineltis upplifa það og
hvaða afleiðingar það hefur alltaf
fyrir fórnarlömbin. Ekki var gerð
tilraun til að skýra þetta fyrirbæri
eða leita leiða til að uppræta það.
Þetta er einnig mest einkennandi
fyrir alla umræðu um einelti. Lík-
lega vegna þess að skýringanna og
upprætingarinnar er að leita hjá
þeim sem valdið hafa. Það eru í raun
þeir og aðeins þeir, sem geta upp-
rætt það. En það kostar mikla
stjórnunarlega þekkingu. Þekkingu,
sem stjórnendur eru yfirleitt ekki
tilbúnir að fallast á að þeir hafi ekki.
Kennarar eru, hvort sem þeim líkar
það betur eða verr, stjórnendur
bekkjarins. Þeir eru ekki bara kenn-
arar. Það eru þeir, sem skapa and-
rúmsloftið í bekknum, menninguna
eða þær hópbundnu hegðunarreglur
(norm), sem innan bekkjarins ríkja.
Þeir gera það annaðhvort viljandi, af
þekkingu eða þekkingarleysi, eða
þeir gera það óviljandi af hugsunar-
leysi. Það að gera það ekki viljandi
er líka aðgerð. Þeir eru nefnilega,
enn og aftur, stjórnendur hópsins.
Hvað er einelti?
Einelti er það, þegar hópur ein-
staklinga reynir að útiloka einn eða
hugsanlega fleiri út úr hópnum með
öllum mögulegum hætti. Þetta getur
verið með stöðugri stríðni, gera
fórnarlambið að aðhlátursefni, sýna
því vanþóknun, hæðast að því, bera
út slúður um fórnarlambið, einangra
það og útskúfa og/eða með líkam-
legri valdbeitingu. Einelti þarf ekki
að vera mjög sýnilegt og getur falist
í stöðugu áreiti gagnvart fórnar-
lambinu eins og að stugga stöðugt
við viðkomandi þegar gengið er
framhjá. Áhrifin eru þau sömu, ef
áhersla þess/þeirra, sem stunda ein-
eltið, er á ógnun eða útskúfun úr
hópnum á einhvern hátt.
Einelti felur það í sér að fórnar-
lambið upplifir sig óvelkomið í og
útilokað af hópi, sem það getur ekki
annað en tilheyrt, t.d. skólabekk,
verkefnishópi, íþróttahópi, skáta-
hópi, vinnuhópi, fjölskyldu o.s.frv.
Til er að einstaklingar leggist þann-
ig á aðra einstaklinga, án stuðnings
annarra í hópnum, en þá er ekki tal-
að um einelti í sama skilningi, þar
sem fórnarlambið upplifir sig ekki
einangrað og útilokað úr hópnum á
sama hátt og getur varið sig með því
að líta á ofsækjandann sem veikan
eða illa innrættan. Einelti felur allt-
af í sér að fórnarlambið upplifir alla
eða flestalla í viðkomandi hópi á
móti sér, þó svo að í langflestum til-
vikum sé meirihlutinn óvirkur í
stuðningi sínum við eineltið. Aðeins
lítill hluti hópsins er yfirleitt virkur,
en nýtur stuðnings hins hlutans í
gegnum aðgerðarleysi hans, en
flestir þeirra líta svo á að hættulegt
sé að taka upp hanskann fyrir fórn-
arlambið. Það gæti leitt til þess að
þeir sjálfir yrðu lagðir í einelti.
Ástæðan fyrir þeim ótta er að and-
rúmsloft eineltis er ríkjandi í hópn-
um. Menning hópsins gengur út á
valdabaráttu – hver ráði í hópnum. Í
hópnum ríkir ekki jafnrétti, sam-
staða eða umburðarlyndi. Í slíkum
hópi gæti ekki myndast einelti.
Einelti er félagslegt fyrirbæri
Einelti er þannig félagslegt fyr-
irbæri. Það tengist alltaf hópi barna
(fólks) og valdabaráttu einstaklinga
innan hópsins og óöryggi þeirra um
stöðu sína innan hans. Það er grund-
vallaratriði fyrir þá, sem stjórna ein-
eltinu, að viðhalda óörygginu. Ef það
viðhelst ekki og innan hópsins fer að
ríkja jöfnuður, samkennd og um-
burðarlyndi missa stjórnendurnir
völd sín. Þess vegna „verða“ þeir að
viðhalda eineltinu og þar með óör-
ygginu. Einelti er því alls ekki ein-
angrað samspil á milli tveggja ein-
staklinga. Slík samskipti eru ekki
kölluð einelti heldur stríðni. Það er
því nauðsynlegt að stjórnendur
hópa, hvort sem það eru kennarar,
skátaforingjar, stjórnendur á vinnu-
stað eða aðrir leiðtogar hópa, geri
sér grein fyrir því hvort um er að
ræða einelti, sem er félagslegt fyr-
irbæri innan hóps, eða deilur og
ágreining milli tveggja einstaklinga.
Viðbrögð þeirra sem stjórnenda
eiga að stjórnast af því.
Einelti myndast sem sagt aðeins í
hópi, þar sem einhvers konar vanlíð-
an er fyrir hendi. Líði öllum ein-
staklingum vel í hópnum, finnist
sem allir séu meira eða minna jafnir,
finni að allir njóti þokkalega jafnrar
virðingar, finni að allir hafi eitthvað
að segja og að hlustað sé jafnt á alla
verður til umburðarlyndi í hópnum
og því myndast ekki einelti þar. Sé
hins vegar ríkjandi ójöfnuður í
hópnum, hlustað á suma en aðra
ekki og mikill munur er á virðingu
milli einstaklinga, myndast vanlíðan
í hópnum. Fyrri hópurinn hefur flat-
an valdapíramída eða goggunarröð,
þar sem jöfnuður og vellíðan ríkir og
sátt er um forystuna. Síðari hópur-
inn hefur brattan valdapíramída eða
goggunarröð, þar sem ríkir ójöfn-
uður, vanlíðan og valdabarátta. Það
er einungis í síðari hópnum sem ein-
elti getur myndast og alltaf sem
hluti af valdabaráttunni, sem á sér
stað í hópnum. Sú valdabarátta er
ekki einungis á efstu þrepunum,
vegna þess að í slíkum hópi ríkir
mikið óöryggi um stöðu sína hvar
sem er í goggunarröðinni og því
myndast þörf hjá öllum fyrir að
klifra ofar og þá gjarnan á kostnað
þeirra, sem neðar eru.
Öryggi í stað vellíðunar
Sé ríkjandi vanlíðan og óöryggi í
hópi og valdapíramídi hans er bratt-
ur leita allir einstaklingar hópsins
eftir einhvers konar stöðugleika og
öryggi. Það er hins vegar ekki endi-
lega leitað eftir vellíðan, því vellíðan
er aftar í þarfaforgangsröð einstak-
linga en öryggi. Í slíkum hópi lítur
alltaf út fyrir að mesta öryggið um
stöðu sína sé á efstu þrepum hans,
sérstaklega vegna þess að svo virð-
ist sem þar sé mesta virðingin, áhrif-
in og völdin. Þess vegna leita ein-
staklingarnir upp goggunarröðina
með því að koma öðrum í henni nið-
ur fyrir sig. Það er hægt að gera
með því að smjaðra fyrir forystunni,
leggja henni lið eða sýna henni fram
á hollustu á ýmsan hátt, t.d. með því
að andmæla henni ekki, hlæja að
uppátækjum hennar eða örva hana
til dáða á annan óbeinan hátt. Eftir
því sem ofar dregur í goggunarröð-
inni kemur þó fram nýtt óöryggi hjá
HVER BER ÁBYRGÐ
Á EINELTI Í SKÓLUM?
„… einelti
er félagslegt
fyrirbæri,
sem stjórn-
ast af því að
um vanlíðan er að ræða
í hópnum. Það orsakast
ekki af því að ein-
staklingarnir séu vond-
ir, illa innrættir, illa upp-
aldir eða veikir.“
Eftir Sigtrygg
Jónsson
I
Stjórnmálaumræðan undanfarn-
ar vikur hefur nokkuð einkennst af
yfirlýsingum um að íslenska vald-
kerfið sé þreytt, lokað og spillt.
Það þurfi að stokka upp, opna um-
ræðuna, auka gegnsæi þess, auka
lýðræði og bæta réttaröryggi
þegnanna í samskiptum við rík-
isvaldið.
Þetta eru almennar yfirlýsingar
sem ekki er studdar skýrum dæm-
um. Á hinn bóginn má auðveldlega
rökstyðja þá skoðun, bæði lög-
fræðilega og sögulega, að þrjú síð-
ustu kjörtímabil, hið fyrsta með
Sjálfstæðiflokk og Alþýðuflokk við
stjórnvölinn, en tvö hin síðari með
Sjálfstæðisflokk og Framsóknar-
flokk við stjórnvölinn, séu eitt
mesta framfaraskeið Íslandssög-
unnar að því er varðar bætta rétt-
arstöðu þegnanna og gegnsæi
ákvarðanatöku í opinberu lífi.
II
Til stuðnings þessari skoðun má
nefna:
1. Gildistöku nýrrar réttar-
farslöggjafar á árinu 1992. Á því
ári var réttarfari í landinu umbylt
og kastað fyrir róða fyrirkomulagi,
sem að hluta til hafði verið við lýði
á Íslandi í aldir. Mikilvægasta
breytingin fólst í aðskilnaði dóms-
valds og framkvæmdarvalds í um-
dæmum utan Reykjavíkur. Ýmsar
breytingar sem gerðar voru sam-
fara þessu á skipan dómstóla og
starfsemi þeirra hafa stórbætt
réttarfar í landinu, aukið skilvirkni
dómstóla og eflt réttaröryggi borg-
aranna. Dómstólar eru borgurun-
um öruggara skjól en áður.
2. Breytingar á mannréttinda-
kafla stjórnarskrárinnar með
stjórnskipunarlögum nr. 97/1995.
Mannréttindakafli stjórnarskrár-
innar hafði staðið óbreyttur frá
1944 og raunar lengur, þegar haft
er í huga að þágildandi ákvæði
stjórnarskrárinnar byggðust á enn
eldri reglum. Þetta hefur, ásamt
þróun í dómaframkvæmd, bætt
mannréttindavernd á Íslandi og
aukið á réttaröryggi borgaranna.
3. Lögfesting mannréttindasátt-
mála Evrópu með lögum nr. 62/
1994. Með sáttmálanum, fullgild-
ingu hans og síðar lögfestingu, var
vernd mannréttinda á Íslandi færð
til samræmis við alþjóðlegar, eink-
um evrópskar, viðmiðanir í þeim
efnum. Dómstólar beita reglum
sáttmálans endurtekið í málum
sem varð réttarstöðu þegnanna og
samskipti þeirra við hið opinbera.
Vissulega hefur þetta átt þátt í að
efla vernd mannréttinda á Íslandi
og aukið réttindi borgaranna.
4. Stjórnsýslulögin nr. 37/1993,
sem tóku gildi 1. janúar 1994, hafa
stórbætt starfshætti stjórnsýsl-
unnar og mælt fyrir um skýrari
réttarstöðu þegnanna í samskipt-
um við hið opinbera en áður. Hafa
lögin að geyma mikilvæg ákvæði
um hæfi opinberra aðila til að taka
þátt í ákvörðun, andmælarétt,
rannsókn máls, málshraða, leið-
beiningarskyldu stjórnvalda, rann-
sókn máls, jafnræði og meðalhóf.
Var mál þetta undirbúið í forsæt-
isráðuneytinu og gildistaka lag-
anna m.a. undirbúin með útgáfu
sérstaks bæklings fyrir almenning
sem dreift var til allra lands-
manna. Lögin hafa valdið straum-
hvörfum í opinberri stjórnsýslu á
Íslandi.
5. Upplýsingalög 24/1996 mæla
fyrir um rétt almennings til að-
gangs að upplýsingum um tiltekin
mál. Lögin hafa aukið til muna
gegnsæi í opinberri stjórnsýslu og
um leið aukið réttaröryggi þegn-
anna í samskiptum við hið opin-
bera.
6. Samkeppnislög nr. 8/1993.
Lögin hafa það markmið að efla
virka samkeppni í viðskiptum og
vinna að hagkvæmri nýtingu fram-
leiðsluþátta þjóðfélagsins. Lögun-
um er ætlað vinna gegn óhæfileg-
um hindrunum og takmörkunum á
frelsi í atvinnurekstri, vinna gegn
óréttmætum viðskiptaháttum,
skaðlegri fákeppni og samkeppn-
ishömlum og auðvelda aðgang
nýrra keppinauta að markaðnum.
Samkeppnisstofnun, samkeppnis-
ráð og áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála starfa á grundvelli laganna.
Lögin og starfsemi þessara stofn-
ana er gríðarlega mikilvæg fyrir
virka samkeppni í íslensku við-
skiptalífi. Með gildistöku laganna
varð grundvallarbreyting, m.a. til
hagsbóta fyrir íslenska neytendur.
7. Reglur um verðbréfaviðskipti.
Umbylting hefur orðið á þeim
lagagrundvelli sem gildir um verð-
bréfaviðskipti á Ísland. Sviðið er
umfangsmikið og eingöngu hægt
að nefna meginatriði. Meginatriði í
því sambandi eru lög um verð-
bréfaviðskipti nr. 13/1996, lög um
fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, lög
nr. 34/1998 um starfsemi kauphalla
og skipulegra tilboðsmarkaða og
lög nr. 87/1997 um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi. Öll þessi
löggjöf hefur stórum aukið
gegnsæi í viðskiptum með verðbréf
á Íslandi og í raun lagt grunninn
að íslenskum verðbréfamarkaði.
Hún leiðir til stórbættrar stöðu al-
mennings og greiðir fyrir þátttöku
hans í viðskiptum með verðbréf.
8. EES-samningurinn, sbr. lög
nr. 2/1993. Samningurinn er gríð-
arlega mikilvægur fyrir starfsum-
hverfi íslenskra fyrirækja og hags-
muni neytenda. Af mörgu er að
taka, en mest ástæða í þessu sam-
bandi til að vekja athygli á reglum
um ríkisstyrki og opinber innkaup.
Reglur þessar þrengja til mun
svigrúm stjórnvalda til að draga
taum einstakra fyrirtækja.
Margt fleira mætti nefna frá
fyrrgreindu tímabili sem horft hef-
ur til aukins réttaröryggis og
traustari stöðu einstaklinga, svo
sem nýskipan lögreglumála, ný lög
um persónuvernd og meðferð per-
sónuupplýsinga, ný lögræðislög og
ný barnaverndarlög, margvíslegar
breytingar á hegningarlögum
o.s.frv. Listinn er í raun mjög
langur og ekki unnt að gera honum
fullnægjandi skil í þessari stuttu
grein.
III
Vel má vera að betur megi gera
og auðvitað má deila um einstakar
ákvarðanir og aðgerðir sem reistar
eru á þeim lögum sem nefnd voru.
Það breytir þó ekki þeirri meg-
instaðreynd að í lagalegu tilliti hef-
ur í tíð Davíðs Oddssonar í stóli
forsætisráðherra orðið bylting á
þeim lagagrundvelli sem mótar
samskipti þegnanna og fyrirtækja
við ríkisvaldið.
Dómstólar eru þegnunum og að-
ilum í atvinnurekstri styrkara
skjól fyrir ágangi ríkisvaldsins en
áður í íslenskri sögu, stjórnsýslu-
lög og upplýsingalög binda hendur
stjórnvalda við ákvarðanatöku í
ríkara mæli en fyrr hefur þekkst í
opinberu lífi á Íslandi og EES-
samningurinn hefur styrkt stöðu
fyrirtækja og bindur hendur
stjórnvalda og þrengir mikið svig-
rúm þeirra til að taka tillit til sér-
tækra hagsmuna einstakra fyrir-
tækja í opinberum ákvörðunum.
Enginn vafi er á að þetta hefur
leitt til stórkostlegra réttarbóta til
handa öllum almenningi í landinu
og aukið gegnsæi í starfsumhverfi
fyrirtækja.
Þeir sem taka við stjórnartaum-
unum að loknum kosningum í vor,
hverjir sem það verða, taka við
mikilvægum lagagrundvelli til að
byggja á og það skapar þeim
ákjósanleg skilyrði til að bæta um
betur ef svo ber undir.
RÍKI OG ÞEGNAR
Eftir Davíð Þór
Björgvinsson
Höfundur er prófessor við
lagadeild HÍ.
„... í laga-
legu tilliti
hefur í tíð
Davíðs
Oddssonar í
stóli forsætisráðherra
orðið bylting á þeim
lagagrundvelli sem mót-
ar samskipti þegnanna
og fyrirtækja við rík-
isvaldið.“
Perlunni. Opið alla daga kl. 10 -18