Morgunblaðið - 20.04.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.04.2003, Qupperneq 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 45 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 30.663 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 20. maí – flugsæti til Bologna. Verð kr. 47.962 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 20. maí – Nautic, vikuferð. Verð kr. 57.950 M.v. 2 í stúdíóíbúð í viku, Nautic, 20. maí. Vinsælasti áfangastaður á Ítalíu. Heimsferðir bjóða vikulegt flug til Rimini alla þriðjudaga í sumar en Rimini er vinsælasti áfangastaðurinn á Ítalíu og hefur slegið í gegn í sumar enda flest flug orðin uppseld. Hér bjóða Heimsferðir vinsælustu gististaðina, frábærlega staðsetta og hér er auðvelt að njóta lífsins til hins ítrasta í fríinu. Héðan er stutt að fara til Feneyja eða Flórens og kynnast heillandi menningarheimi þessa ótrúlega lands eða einfaldlega njóta einnar fegustur sólarstrandar við Adríahafið. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Við þökkum ótrúlegar viðtökur Munið Master- card ferða- ávísunina Síðustu sætin til Rimini í maí og júní frá kr. 30.663 Vinsælustu gististaðirnir Allt að verða uppselt 20. maí – 19 sæti 27. maí – 11 sæti 3. júní – uppselt 10. júní – 23 sæti 17. júní – uppselt 24. júní – 17 sæti 1. júlí – uppselt 8. júlí – uppselt 15. júlí – laust 22. júlí – uppselt Flug alla þriðjudaga Astoria KANNSKI ætti hún að reyna að tala um eitthvað annað en andstæð- inga sína. Eða kannski að reyna að forðast Borgarnes. Að minnsta kosti ætti hún að forðast að tala um and- stæðinga sína þegar hún er stödd í Borgarnesi, því það fer illa. Fyrir tveimur mánuðum hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þar ræðu sem víðfræg varð og ekki endilega fyrir stórmennsku ræðumanns. Og nú í vikunni mætti hún að nýju í ræðu- stólinn í Borgarnesi og enn streymdu frá henni órökstudd stór- yrðin. Stærst var sennilega sú full- yrðing frambjóðandans, að aðili, sem hún nefndi „forystu Sjálfstæð- isflokksins“, stærsta flokks þjóðar- innar, hefði þann sið að „hamast á“ forseta Íslands, hvenær sem forset- inn talaði ekki eins og forystunni væri „þóknanlegt“. Kannski eru menn orðnir svo vanir stórum ásök- unum og lítt rökstuddum dylgjum þessa frambjóðanda, sem virðist flest vilja ræða frekar en málefnin, að enginn kippir sér lengur upp við neitt sem kemur úr þessari átt. En sennilega brygði flestum ef einhver annar maður færi að saka andstæð- inga sína um að „hamast á“ forseta Íslands. Flestir aðrir yrðu krafðir rökstuðnings fyrir slíkum fullyrð- ingum, en þessi frambjóðandi á ekki slíkum viðbrögðum að venjast. En kannski eru flestir farnir að átta sig á því að maður, sem krefur Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur um inni- stæðu þeirra stóryrða sem hún býð- ur nú upp á kvölds og morgna; þeim manni verður jafn ágengt og þeim sem fer í geitarhús að leita sér að ull. Gersamlega innistæðulaust Nú sjá eflaust flestir að ásakanir þessar eru gersamlega innistæðu- lausar, enda reyndi Ingibjörg Sól- rún ekki einu sinni að nefna nokk- urt einasta dæmi um það hvernig hamast hefði verið á forsetanum. Þeir sem fylgst hafa með málflutn- ingi Ingibjargar Sólrúnar að und- anförnu velkjast tæplega í vafa um að þegar hún talar um „forystu Sjálfstæðisflokksins“ þá á hún við Davíð Oddsson forsætisráðherra, sem virðist henni ákaflega hugstæð- ur. En sé fullyrðingin um hinar stórfelldu árásir „forystu Sjálfstæð- isflokksins“ á forseta Íslands ekki beysin þegar horft er á hana í því ljósi að hún er órökstudd með öllu, hvað á þá að segja um hana þegar það bætist við að það er sennilega enginn stjórnmálamaður sem hefur fengið meira hrós en Davíð Oddsson fyrir einmitt það að verja forseta Ís- lands? „Þeirra sanda og sæva“ Af og til hafa stjórnmálamenn gagnrýnt framgöngu núverandi for- seta Íslands, og má þar nefna Guð- mund Árna Stefánsson þingmann Samfylkingarinnar og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra. Þannig má nefna að sumarið 1997 hélt for- seti Íslands vestur um haf og fór mikinn. Ekki líkaði öllum hér heima framganga hans og Halldór Ás- grímsson boðaði það að hann myndi tala alvarlega við forsetann þegar hann næði til hans. Forsætisráð- herra stóð hins vegar með Ólafi. Um þessi mál öll var fjallað í leiðara Alþýðublaðsins, sem þá var vita- skuld blað í andstöðu við forsætis- ráðherra og ríkisstjórn hans. Í leið- aranum segir, og þó þessi orð sanni vitaskuld ekkert af eða á um þá kenningu að forysta Sjálfstæðis- flokksins hamist á forseta Íslands, þá eru þau fróðleg: „Þannig hafa persónulegir burðir forsetans, sam- bönd hans erlendis og starfsstíll þegar leitt til umfangsmikilla ávinn- inga fyrir þjóðina. Þetta skilur Dav- íð Oddsson mæta vel. Hann lætur gamla úlfúð úr persónulegum átök- um sínum og Ólafs Ragnars lönd og leið, og lýsti stuðningi við störf for- setans erlendis. Davíð Oddsson er líka þeirra sanda og sæva að hann verður ekki afbrýðissamur yfir vel- gengni forsetans á erlendri grund, heldur lítur á hana sem Íslendingur og skilur ávinninginn af henni fyrir þjóðina.“ Og hver ætli hafi nú kveð- ið upp þennan dóm yfir samskiptum Davíðs Oddssonar og forseta Ís- lands? Leiðarinn er reyndar ekki undirritaður en ef einhver þekkir ekki ritstílinn þá má geta þess að á Alþýðublaðinu var á þessum tíma aðeins einn ritstjóri og hét Össur Skarphéðinsson. Og það er ekki að- eins að Alþýðublaðið tali svona í leiðurum. Í fréttum og ritstjórnar- efni segir blaðið að Davíð hafi „varið Ólaf af hörku gegn gagnrýnisrödd- um“ og stutt forsetann „dyggi- lega“.“ Engin málefni Órökstuddar dylgjur Ingibjargar Sólrúnar sýna skýrar en nokkuð annað hve fátt Samfylkingin hefur fram að færa í þessum kosningum. Sú sem hefur frambærileg málefni þarf ekki að berjast með meðulum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Engin notar dylgjur og hálfkveðnar vísur ef hún hefur málefnalegri rök tiltæk. En Samfylkingin veit að það er erfitt að afsanna þær dylgjur sem ekki eru studdar við annað en tilfinningu sögumanns eða ætlaðar skoðanir ónafngreindra manna úti í bæ. En er ekki nær að fara fram á að sögumaður færi fram sínar sann- anir? Þangað til það er gert verða hinar „víðkunnu“ ræður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur einungis víð- kunnar fyrir þá furðulegu, en leið- inlegu staðreynd, að bæði trúverð- ugleiki hennar og hún sjálf hafa þann eiginleika að smækka í hvert sinn sem hún kemur í Borgarnes! Héðan í frá ætti hún sennilega að sneiða hjá þessu ágæta þorpi á ferð- um sínum, en ef því verður ekki við komið, að reyna þá að fara hratt yf- ir og segja sem fæst. Ingibjörg Sól- rún, ekki meir! Eftir Tinnu Traustadóttur „Órök- studdar dylgjur Ingi- bjargar Sól- rúnar sýna skýrar en nokkuð annað hve fátt Samfylkingin hefur fram að færa í þessum kosningum.“ Höfundur er lyfjafræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.