Morgunblaðið - 20.04.2003, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 53
Tónlistakennarar
Tónlistarskóli Árnesinga óskar eftir að
ráða til starfa kennara í eftirtaldar
greinar:
Tónfræðagreinar, píanó, forskóla, blokk-
flautu (afleysing), þverflautu, klarínettu
og slagverk.
Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf.
Uppl. fást í tónlistarskólanum, sími 482 1717.
Umsóknarfrestur er til 5. maí 2003.
Senda má fyrirspurnir og umsóknir í tölvupósti
til tonar@sudurland.is .
Tónlistarskóli Árnesinga var stofnaður 1955
og starfar á 12 kennslustöðum í sýslunni.
Fjöldi nemenda er 680 og starfa 30 kennarar
við skólann.
Skólastjóri.
Hrafnagilsskóli
Við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit eru lausar
stöður á næsta skólaári. Skólinn er heildstæður
grunnskóli með 200 nemendur í 11 bekkjar-
deildum. Um er að ræða eftirtalin störf:
Umsjónarkennari á unglingastigi.
Æskilegar kennslugreinar: Samfélagsfræði,
íslenska og danska.
Umsjónarkennari á miðstigi, staða í for-
föllum til eins árs.
Smíðakennsla, hlutastarf.
Sérkennsla.
Heimilisfræði, hlutastarf
Námsráðgjafi, 40% staða til eins árs.
Umsjón með félagsmiðstöð, 3 klst. á viku
yfir skólaárið.
Umsjón með skólavistun, 50% starf.
Áhersla er lögð á að starfsfólk sýni metnað
í starfi og samstarfsvilja auk þess að vera leið-
togar nemenda í samskiptum og námi.
Upplýsingar um störfin veita skólastjóri og að-
stoðarskólastjóri í símum 463 1137, 463 1230
og 463 1127, netföng karl@krummi.is og
annag@krummi.is .
Umsóknarfrestur er til 27. apríl. Upplýsingar
um stefnu og starf Hrafnagilsskóla má lesa á
heimasíðu skólans: http://www.krummi.is .
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og
kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið
af hagkvæmmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er
gott að búa og starfa í Hafnarfirði
Nýr og glæsilegur fjögurra deilda leikskóli verður opnaður í ágúst nk. við Hauka-
hraun 2 í Hafnarfirði þar sem áður var leikskólinn Hraunkot.
Óskað er eftir áhugasömum leikskólakennurum, sem vilja taka þátt í að byggja upp
skapandi starf með áherslu á hreyfingu og slökun.
Lausar stöður:
· Aðstoðarleikskólastjóra frá 15. júní.
· Leikskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir Oddfríður Jónsdóttir, leikskólastjóri, í símum 555 3493 og
664 5837. Ennfremur veita leikskólafulltrúi og leikskólaráðgjafi upplýsingar í síma
585 5800.
Umsóknarfrestur um stöðu aðstoðarleikskólastjóra er til 2. maí. Umsóknarfrestur
um stöður leikskólakennara eru til 22. maí en ráðning samkvæmt samkomulagi.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, en
einnig er hægt að sækja um rafrænt á hafnarfjordur.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og FÍL/STH.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að
sækja um störfin.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Nýr leikskóli - leikskólakennarar óskast