Morgunblaðið - 02.05.2003, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 2003 43
Kringlunni, sími 568 9033.
www.esteelauder.com
Ekki aðeins raki. Ekki aðeins vernd.
Nýtt. DayWear Plus
Multi Protection Anti-Oxidant Moisturizers SPF 15
Notaðu það til að færa húðinni raka og heilbrigt útlit.
Notaðu það til að vernda gegn sjáanlegum línum
síðar meir. Leyndardómurinn? Virk andoxunarefni
ásamt einstaklega mildri SPF 15 sólarvörn og
öflugum rakagjöfum.
Enn frekari nýjunar: 3 sérhannaðar blöndur fyrir
mismunandi húðgerðir og Sheer Tint Release með lit,
sem færir þér fallega geislandi húð á stundinni.
Notaðu DayWear Plus og sjáðu árangurinn.
Ráðgjafar frá Estée Lauder verða í
versluninni í dag, föstudag kl. 13-18
og laugardag kl. 12-16.
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
Kl. 13 – 16.
Málþing í félagsfræði í tilefni 60
ára afmælis Þorbjarnar Brodda-
sonar verður haldið í dag, föstudag-
inn 2. maí kl. 14–17.30, í stofu 101
Lögbergi. Fluttir verða sex fyrir-
lestar um félags- og fjölmiðlafræði
af fyrrverandi nemendum Þor-
bjarnar. Málþingið er öllum opið. Að
loknu málþingi verður móttaka í
boði Félagsfræðingafélags Íslands.
Þórólfur Þórlindsson, prófessor set-
ur málþingið og erindi halda: Helgi
Gunnlaugsson, prófessor, Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir, lektor, Jón Rún-
ar Sveinsson félagsfræðingur,
Kjartan Ólafsson félagsfræðingur,
Guðbjörg Hildur Kolbeins lektor,
Tómas Bjarnason og Elías Héðins-
son rannsóknarmenn við Gallup,
Þorbjörn Broddason prófessor og
Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor.
Fundarstjóri er Guðný Björk Eydal,
lektor og skorarformaður Félags-
fræðiskorar. Pallborðsumræður um
félagsfræði og fjölmiðla.
Landsþing ITC verður haldið á
Grand Hótel í dag, föstudaginn 2.
maí og á morgun, laugardaginn 3
maí. Gestur þingsins er frá alþjóða-
stjórn, Sacha Mulder varaforseti
III. svæðis en íslensku samtökin til-
heyra því svæði. Dagskráin hefst kl.
13.30 á föstudag. Erindi halda:
Sacha Mulder, Kristín Dagbjarts-
dóttir og Sigríður Jóhannsdóttir,
ITC Ísafold, Sigrún Stefánsdóttir,
deildarstjóri upplýsingadeildar Nor-
rænu ráðherranefndarinnar o.fl. Að
síðustu verður lokaræðukeppni ITC
en það eru 4 félagar sem hafa unnið
keppni í deildum og ráðum og keppa
til úrslita á Landsþingi. Allir vel-
komnir. Umsjónarmaður Lands-
þingsins er Ásgerður Gissurardóttir.
Í DAG
Félag hjartasjúklinga á Vestur-
landi og Landssamtök hjartasjúk-
linga bjóða öllum í mælingu á kól-
esteróli og blóðþrýstingi á morgun,
laugardaginn 3. maí, kl. 10–14, í
safnaðarheimilinu Ólafsvík. Að
mælingum loknum hefst aðalfundur
Félags hjartasjúklinga á Vest-
urlandi þar sem Þorkell Guðbrands-
son yfirlæknir á Akranesi flytur
fyrirlestur um áhættuþætti hjarta-
sjúkdóma.
Umræðufundur um atvinnu-
ástandið í Dalvíkurbyggð verður
á morgun, laugardaginn 3. maí, kl.
15, í Kaffihúsinu Sogni. Framfara-
félag Dalvíkurbyggðar stendur fyr-
ir opnu málþingi um atvinnumál og
fjallar um hvað hægt sé að gera til
að bæta strax atvinnuástandið og
auka atvinnuöryggi þegar til lengri
tíma er litið?
Frummælendur verða: Björn Snæ-
björnsson formaður verkalýðsfél-
agsins Einingar-Iðju, Pétur Bjarna-
son forstöðumaður frumkvöðla-
seturs Norðurlands og Svanhildur
Árnadóttir forseti bæjarstjórnar
Dalvíkurbyggðar.
Málstofa um meistaranám í forn-
leifafræði Fornleifafræðingafélag
Íslands í samvinnu við Reykjavík-
urAkademíuna stendur fyrir mál-
stofu um meistaranám í fornleifa-
fræði. Málstofna verður haldin á
morgun, laugardaginn 3. maí kl. 13,
í JL-húsinu við Hringbraut 121. Er-
indi halda: Kristín Huld Sigurðar-
dóttir forstöðumaður Fornleifa-
verndar ríkisins, Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður, Orri
Vésteinsson lektor í fornleifafræði.
Birna Lárusdóttir nemi í meistara-
námi í fornleifafræði og Steinunn
Kristjánsdóttir formaður FFÍ og
stjórnarformaður RA. Í lok málstof-
unnar fara fram umræður. Fundar-
stjóri: Kristján Mímisson, gjaldkeri
FFÍ. Allir velkomnir.
Næring og form – mikilvægustu
þættir uppeldis Jean Illsley
Clarke heldur uppeldisnámskeið
fyrir foreldra og fagstéttir á morg-
un, laugardaginn 3. maí kl. 13–17, á
Nordica Hotel. Yfirskrift nám-
skeiðsins er: Næring og Form –
Mikilvægustu þættir uppeldis.
Námskeiðið er fyrir alla sem láta
sig varða uppeldi barna, s.s. for-
eldra, uppalenda og fagaðila, en
einnig til fólks úr félagsþjónustu,
réttarkerfi, stjórnmálum og í fjöl-
miðlum. Kennt er á ensku. Nánari
upplýsingar hjá ÓB Ráðgjöf í síma
og á vefsetrinu www.obradgjof.is.
Á MORGUN