Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 24

Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 24 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FRÆÐSLURÁÐ Hafnarfjarðar samþykkti á aukafundi í gær að leggja það til við bæjarstjórn að segja upp samningnum við Íslensku menntasamtökin (ÍMS) um rekstur leikskólans Tjarnaráss vegna veru- legra vanefnda Íslensku mennta- samtakanna á samningnum sem varðar velferð barna í leikskólanum. Fræðsluráð leggur til við bæjar- stjórn að Skólaskrifstofa Hafnar- fjarðar taki þegar í stað við rekstri leikskólans Tjarnaráss og geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að breytingin á rekstrinum hafi sem minnstar raskanir í för með sér fyr- ir leikskólastarfið. Þá er lagt til að Skólaskrifstofu verði falið ásamt lögmanni Hafnarfjarðarbæjar að annast uppgjör við Íslensku menntasamtökin. Þrettán nýir starfsmenn frá ÍMS mættu til vinnu í leikskólanum í gær en 12 eldri starfsmenn höfðu sagt upp störfum frá og með 1. maí vegna ágreinings við ÍMS. Fjöldi foreldra afréð að senda börnin sín ekki í leikskólann í gær. Af þeim 112 börnum sem eru á leikskólanum mættu einungis 23. Leikskólastjór- inn sendi tvo eldri starfsmenn heim í gær. Það mættu tveir eldri starfs- menn en leikskólastjórinn sendi þá báða heim. „Hann sendi heim einu starfsmennina sem börnin þekktu,“ sagði Magnús Baldursson, fræðslu- stjóri Hafnarfjarðarbæjar, í gær. „Þetta er grafalvarlegt og ég veit að a.m.k. eitt barn var sótt vegna þessa.“ Magnús segist vonast til þess að eðlilegt starf geti orðið í leikskól- anum á mánudaginn. „Nú á eftir að fara yfir það um helgina hvaða starfsfólk heldur áfram, ef bærinn tekur við leikskólanum á mánudag- inn.“ Foreldrar ósáttir við að senda börn sín í leikskólann Foreldrar 91 barns hafa afhent Hafnarfjarðarbæ undirskriftalista, dagsettan 1. maí 2003, þar sem þeir lýsa yfir að þeir eru ósáttir við að senda börnin sín í leikskólann Tjarnarás fyrr en nýr rekstraraðili hafi tekið við rekstri skólans og það starfsfólk sem sagt hefur störfum sínum lausum snúi aftur til starfa. Þau skora á bæjaryfirvöld og stjórn Íslensku menntasamtakanna að leysa þessi mál án tafar. Í niðurlagi greinargerðarinnar frá foreldrum segir orðrétt: „Nú- verandi starfsfólk hefur að mati eft- irlitsaðila unnið gott starf við vinnu- aðstæður sem um langan tíma hafa verið erfiðar vegna ágreinings við ÍMS. Það er ljóst að þeir starfs- menn sem undanfarið hafa sagt upp við leikskólann eru óánægðir með samskipti sín við ÍMS og hafa hætt störfum vegna þess. Það er ekkert sem bendir til þess að á því verði breyting.“ Fulltrúar Samfylkingarinnar bók- uðu eftirfarandi á fundi fræðsluráðs í gær: „Öll efnisatriði í þessu máli liggja ljós fyrir og með tilvísun til grein- argerðarinnar, samningsins, undir- skrifta og yfirlýsinga foreldra, er ljóst að það er skylda og ábyrgð okkar ráðsmanna í fræðsluráði að leggja framlagða tillögu til við bæj- arstjórn.“ Tillagan var samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa Sam- fylkingarinnar. Fulltrúar Sjálfstæð- isflokks sátu hjá. Íslensku menntasamtökin mættu ekki á fund til viðræðna við fræðslu- yfirvöld Hafnarfjarðar um framtíð- arrekstur leikskólans Tjarnaráss. Ákveðið hafði verið í leikskólanefnd og síðar fræðsluráði að ræða við ÍMS um upptöku verksamnings um rekstur leikskólans sem hefði þýtt að 13 starfsmenn hefðu dregið upp- sagnir sínar til baka. Þar sem ÍMS mættu ekki til viðræðna mættu starfsmennirnir ekki til vinnu og foreldrar margra barna afréðu að koma ekki með börn sín í leikskól- ann í gær. Fræðsluráð Hafnarfjarðar vill rifta samningi við ÍMS um rekstur Tjarnaráss og fela Skólaskrifstofu reksturinn Ástandið grafalvarlegt að mati fræðslustjóra 23 af 112 börnum mættu í leikskólann í gær OPIÐ hús verður í fjórum leikskól- um í Grafarvogi í dag, laugardag milli kl. 10 og 12. Þá gefst gestum og gangandi tækifæri til að skoða leik- skólana og kynna sér starfsemi og menningu þeirra. Leikskólarnir starfa allir sam- kvæmt lögum um leikskóla en hver þeirra hefur mismunandi áherslur. Leikskólarnir sem verða með opin hús eru: Foldakot, Logafold 18, Hamrar v/Hamravík, Laufskálar, Laufrima 9 og Hulduheimar, Vætta- borgum 11. Leikskólar kynna starf- semi sína Grafarvogur GERT er ráð fyrir að stofnanir og fyrirtæki Seltjarnarnesbæjar ásamt vinnuskóla Seltjarnarness fjölgi ráðningum ungmenna í sumar. Að- gerðirnar eru liður í að koma til móts við horfur á verra atvinnuástandi hjá skólafólki á höfuðborgarsvæðinu. Síðastliðið vor var farið í sambæri- legar aðgerðir og gáfust þær vel. Nokkuð svipaður umsóknarfjöldi hefur borist bænum nú og í fyrra en þá tókst að finna öllum störf er þess þörfnuðust, segir í frétt frá bænum. Flest hinna nýju starfa snúa að umhverfismálum og fegrun bæjarins en meðal verkefna á því sviði má nefna hreinsun strandlengjunnar og hirðingu útivistarsvæða. Bærinn fjölgar sumar- störfum Seltjarnarnesbær NÝLEGA var lokið við að rífa úti- húsin við Nesstofu á Seltjarnarnesi en stefnt er að því að efla starf- semi í kringum læknaminjasafnið í Nesstofu á næstunni. Í sumar verð- ur gerð gangskör að fegrun svæð- isins í nágrenni Nesstofu og verð- ur þá meðal annars gengið frá því jarðraski sem varð við niðurrifið. Jónmundur Guðmarsson bæj- arstjóri segist ánægður með hversu fljótt verkið gekk og hve góð viðbrögð bæjarbúa hafa verið. „Þjóðminjavörður og húsafrið- unarnefnd voru á einu máli um að gildi húsanna fyrir menningarsögu Seltjarnarness væri óverulegt og ástand útihúsanna var orðið bág- borið. Nesstofa og saga hennar eru ein af menningarverðmætum þjóðarinnar sem Seltirningar eru stoltir af að varðveita. Efling svæðisins í kringum hana er þann- ig ekki einungis til hagsbóta fyrir Seltirninga heldur landsmenn alla,“ segir Jónmundur. Starfsemi lækna- minjasafnsins efld Morgunblaðið/Kristinn Seltjarnarnes ♦ ♦ ♦ FÖST fjárlög henta starfsemi Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri ekki vel að mati Halldórs Jónssonar for- stjóra, en hann lýsti þessari skoðun sinni á ársfundi FSA í vikunni. Hann sagði þjónustuhlutverk sjúkrahúss- ins aukast með hverju ári sem og fjölbreytileiki starfseminnar og sam- starf við aðrar heilbrigðisstofnanir. Menntun og fræðsla væri vaxandi þáttur og mikilvægur með auknu samstarfi við háskóla og mennta- stofnanir og þróun sjúkrahússins sem háskólasjúkrahúss gerði enn frekari ráð fyrir þeim þætti í starf- seminni og í fjárveitingum til þess. „Það er því nauðsynlegt að tekjurnar tengist að hluta föstum grunni og að hluta þeirri starfsemi og þeirri þjón- ustu sem innt er af hendi á hverjum tíma,“ sagði Halldór. Fram kom í máli hans að síðast- liðið ár var eitt af erfiðari rekstrar- árum sjúkrahússins í seinni tíð. Heildarútgjöld árið 2002 námu 2.828 milljónum króna en gjöld umfram fjáveitingar og sértekjur námu 44,4 milljónum króna. Ljóst hafi verið á haustdögum að í verulegan halla- rekstur stefndi, en engin vissa var fyrir viðbótarfjárveitingum þannig að gripið var til enn frekari aðhalds- aðgerða til að draga úr útgjöldum. Hagræðing hafi skilað árangri en að hluta til á kostnað starfseminnar. Halldór sagði ljóst að takmörk væru fyrir því hvað hægt væri að grípa til mikilla og endurtekinna aðhalds- og sparnaðaraðgerða án þess að tak- marka framþróun sjúkrahússins og uppbyggingu markvissrar þjónustu til lengri tíma. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra greindi frá því að svonefnd framtíðarnefnd FSA legði til í áfangaskýrslu að byggð yrði ný álma við sjúkrahúsið sem hýsti alla legu- deildarstarfsemi þess. Sagði ráð- herra að frá því svonefnd Suðurálma var reist fyrir nokkrum árum hafi orðið miklar breytingar á hugmynd- um manna um skipulag legudeilda. Sjúklingar sættu sig ekki lengur við að liggja á sex manna stofum og eins hefðu vinnuverndarsjónarmið breyst þannig að vinnuaðstaða starfsmanna væru í auknum mæli tekin með í reikninginn þegar sjúkrahús væru hönnuð og byggð. Loks nefndi Jón rekstrarlega þætti, en starfsemi stofnana af þessu tagi þyrfi að vera sveigjanleg, m.a. tíðk- aðist að fækka sjúkrarúmum á sumr- in og yfir jól þannig að húsnæðið þyrfti að styðja slíkar aðgerðir frem- ur en að hindra þær. Þá leggur nefndin til að hætt verði við að byggja stórnsýsluálmu svo sem fyrirhugað var, en þeim þætti í starfsemi sjúkrahússins komið fyrir á 1. og 2. hæð Suðurálmunnar. Þess verður minnst síðar á árinu að 130 ár eru liðin frá upphafi sjúkrahúsrekstrar á Akureyir, en það var í Gudmanns minde árið 1873 og eins eru 50 ár frá því flutt var í elstu byggingu núverandi bygginga sjúkrahússins. Halldór Jónsson, forstjóri FSA Föst fjárlög henta starfseminni ekki HÚNVETNSKT bros í augum er heiti á bók sem hefur að geyma vísur eftir Rögnvald Rögnvaldsson og er nýlega komin út. Rögnvaldur var fæddur að Litlu-Þverá í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu 21. október 1912, en hann lést á Akureyri í nóvember árið 1987. Ekkja Rögnvaldar, Hlín Stefánsdóttir gefur bókina út í tilefni af því að hann hefði orðið níræður á liðnu hausti. Rögnvaldur bjó lengst af á Akureyri eða frá árinu 1949. Hann fékkst mikið við verslunarstörf, rak m.a. ásamt konu sinni barnafataverslun- ina Hlín og Tóbaksbúðina, en jafn- framt starfaði hann sem eftirlits- maður með bæjarsalernunum sem voru til húsa undir kirkjutröppunum auk þess að selja þar sælgæti og tób- ak. „Þarna undir kirkjutröppunum skapaðist merkileg stemning. Þar var afar gestkvæmt. Rögnvaldur var skemmtilegur maður og margir litu við hjá honum reglulega til að eiga við hann orðaskipti og heyra nýjustu vísurnar. Þarna rakst maður á lands- þekkta hagyrðinga og skáld, þangað komu alþingismenn og forstjórar, blaðamenn og rithöfundar, sjómenn, verkamenn og bændur og var enginn greinarmunur gerður á stéttum Þar sem Rögnvaldur réð ríkjum ríkti fullkomin jafnaðar- mennska,“ segir í formála Ragnars Inga Aðalsteins- sonar frá Vaðbrekku. „Sjoppan undir kirkju- tröppunum var griðastaður sem margir litu á sem eins konar annað heimili.“ Rögn- valdur gerðist síðar hús- vörður við Ráðhúsið á Ak- ureyri og hélt því starfi uns hann fór á eftirlaun. Vísurnar í bókinni eru valdar úr mun stærra safni sem Rögnvaldur lét eftir sig, en mikið af hans kveð- skap voru tækifærisvísur sem aðeins áttu við í afmörkuðu tilviki eða tengdust atburðum sem fáir þekkja nú. Við val á vísum var því reynt að hafa efnið sem almennast til að sem flestir gætu notið þess en þannig að þær gæfu um leið nokkra heildar- mynd af hagyrðingnum Rögnvaldi, yrkisefnum hans og áhugamálum segir í formála. Bókin fæst í bókaverslun Máls og menningar í Reykjavík og í Bókabúð Jónasar á Akureyri. Húnvetnskt bros í augum Rögnvaldur Rögnvaldsson AÐSÓKN í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn í Laugardal í Reykjavík hef- ur aldrei verið meiri í apríl en í ár. Mest höfðu komið 17.075 gestir í apríl árið 2001, en í ár voru gestir garðsins 19.848 í apríl. Í mánuðinum fæddust bæði kið- lingar og kálfar í garðinum og vekja afkvæmi iðulega forvitni Reykvíkinga og annarra sem garðinn sækja. Þá er storkurinn Styrmir einnig vinsæll. Húsdýragarðurinn er opinn líkt og vant er á vetrartíma frá kl. 10:00 til 17:00 og Fjölskyldugarðurinn er op- inn sem útivistarsvæði. Fjölskyldu- garðurinn verður opnaður formlega með ýmsum tækjum 15. maí næst- komandi. Aðsóknarmet í Fjöl- skyldu- og húsdýragarð Laugardalur HIÐ árlega Hængsmót var sett í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Mótið er nú haldið í 21. sinn og líkt og í fyrra er það jafnframt Íslands- mót í sveitakeppni í boccia. Einnig verður keppt opnum flokki í boccia, bæði einstaklings- og sveitakeppni, bogfimi, borðtennis og lyftingum. Keppendur eru 322 frá 18 félögum af landinu öllu og hafa aldrei verið fleiri. Að lokinni setningu í gær hófst keppni í boccia en mótinu verður fram haldið í dag og þá m.a. keppt í boccia, borðtennis, bogfimi og lyft- ingum. Mótinu lýkur svo að venju með veglegu hófi í Íþróttahöllinni, þar sem boðið verður upp á marg- vísleg skemmtiatriði, ásamt verð- launaafhendingu og dansleik á eftir. Það er Lionsklúbburinn Hængur sem stendur að Hængsmótinu en Þröstur Guðjónsson er sem fyrr yf- irdómari mótsins. Metþátttaka á Hængsmóti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.