Morgunblaðið - 03.05.2003, Qupperneq 31
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 31
VIÐ lifum og hrærumst í miklu neyslusam-
félagi þar sem sorpið hleðst upp. Ein leið
til að minnka álagið á jörðina er að end-
urvinna og endurnota sem mest af því
sem við kaupum inn og fellur til. Dagblaða-
og auglýsingapappír ásamt fernum er hægt
að skila til endurvinnslu í grenndargáma í
hverfum höfuðborgarsvæðisins og í flestum
sveitarfélögum. Mörgum þykir erfitt að þurfa
að keyra annað flokkað sorp til móttökustöðva eða
hafa kannski ekki aðstöðu til þess. Þá er mikilvægt að huga að
enn betri leið til að takmarka sorpmagn, en það er að minnka kaup á
sorpi. Þessu markmiði er hægt að ná með ýmsum leiðum. Með því að til-
einka sér slíkan lífsstíl sparast náttúruauðlindir, mengun minnkar og
landflæmi undir sorp verður minna.
Sorp
Taktu tauinnkaupoka með þér út í búð, bakpoka eða endurnýttu
plastpoka.
Veldu vörur í einföldum umbúðum, ekki tví- og þrípakkaðar.
Fyrir þá sem vilja sýna viljann í verki er hægt að skilja óþarfa pakkn-
ingar eftir á búðarkassa og koma þannig skilaboðum áleiðis um að við
viljum ekki óþarfa rusl.
Spyrjið starfsfólk hvort ekki sé hægt að bjóða upp á vörur í minni um-
búðum, til dæmis sleppa því að pakka grænmetinu í frauðplastbakka og
plast.
Kaupið vörur í stórum pakkningum, slíkt er hægt að skipuleggja í
samvinnu við nágranna eða fjölskyldu.
Kauptu brúsa sem hægt er að fá áfyllingar á, fremur en einnota um-
búðir.
Kauptu fjölnota vörur í stað einnota.
Gefðu gjafir sem eru athöfn fremur en hlutur, dæmi: nuddtími, dans-
námskeið eða leikhúsferð.
Þegar þú ert á ferðalögum og í útréttingum, taktu þá vatn eða annan
drykk með þér í brúsa svo þú þurfir ekki að kaupa drykk í litlum pakkn-
ingum í ferðinni.
Hugleiðing vikunnar
Enginn gerði stærri mistök en sá sem gerði ekkert,
vegna þess að hann gat gert svo lítið.
EDMUND BURKE.
Vistvernd í verki – ráð vikunnar
LYFJASTOFNUN og landlæknisembættið mælast til þess
að AD-vítamíndropar, sem fjallað var um í Morgunblaðinu
síðastliðinn fimmtudag, verði ekki notaðir fyrir ungbörn þar
til nánari upplýsingar um innihaldsefni vörunnar liggja fyrir,
samkvæmt fréttatilkynningu sem send hefur verið frá land-
læknisembættinu.
Umræddir AD-dropar innihalda jarðhnetuolíu sem burð-
arefni, en það kemur ekki fram á umbúðum vörunnar. Þeir eru
markaðssettir af Heilsuverslun Íslands og flokkaðir sem al-
menn neysluvara. „Lyfjastofnun hefur farið fram á að AD-
droparnir verði innkallaðir og endurmerktir með innihaldslýsingu í samræmi
við ákvæði gildandi reglugerða,“ segir ennfremur. Tekið er fram að AD-
vítamíndropar sem skráðir voru sem lyf hér á landi árið 1986 og seldir fram til
ársins 2001 innihéldu einnig jarðhnetuolíu sem burðarefni.
AD-dropar ekki not-
aðir fyrir ungbörn í bili
MARKAÐSGÆSLUDEILD Löggildingarstofu hef-
ur bannað frekari sölu gúmmíbolta með gúmmí-
bandi, svokallaðra Yoyo-bolta, að því er segir í
fréttatilkynningu.
„Sölubannið er sett með hliðsjón af ábendingum
um vöruna og slysum sem orðið hafa á börnum,
bæði í Englandi og Frakklandi. Hætta leikfangsins
felst meðal annars í því að börn geta sveiflað
gúmmíbandinu sem boltinn er fastur við utan um
hálsinn á sér með tilheyrandi hengingarhættu.
Fleiri en ein útfærsla er til af leikfanginu, það er
boltar einvörðungu úr gúmmíi og boltar sem inni-
halda vökva eða blikkandi ljós. Þrátt fyrir að ekki
sé vitað um slys af völdum boltanna hér á landi telur
markaðsgæsludeild Löggildingarstofu áríðandi að
foreldrar og forráðamenn barna sem eiga leikfang
af þessu tagi séu sér meðvitandi um hættu sem get-
ur stafað af þessum leikföngum, útskýri hættuna
fyrir börnum sínum eða fjarlægi leikfangið,“ segir
ennfremur.
Markaðsgæsludeild Löggildingarstofu hefur eft-
irlit með öryggi leikfanga hér á landi og er sölu-
bannið tekið með hliðsjón af ákvæðum reglugerðar
um öryggi leikfanga og hættulegra eftirlíkinga nr.
408/1994, sem og laga um öryggi vöru og opinbera
markaðsgæslu nr. 134/1995 segir ennfremur.
Yoyo-gúmmí-
boltar bannaðir