Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 57
VERSLUNIN Parísartízkan er 40
ára í dag. Fyrri eigandi hennar,
Rúna Guðmundsdóttir, rak versl-
unina í aldarfjórðung og skapaði
þann létta og lúfa anda sem ríkir
þar enn. Árið 1987 flutti Parísar-
tízkan úr Hafnarstræti 8, þar sem
hún hafði verið frá upphafi, á
Laugaveg 71, 2. hæð. Rúna lést árið
1988 og ári síðar tók núverandi eig-
andi, Ragnhildur Ólafsdóttir, við
rekstrinum.
Hún rekur hana nú í samstarfi við
dóttur sína, Hjördísi Sif Bjarnadótt-
ur klæðskera. „Frá upphafi hefur
mikil áhersla verið lögð á góða og
persónulega þjónustu, ásamt því að
bjóða upp á vandaðan fatnað fyrir
konur,“ segir í fréttatilkynningu.
Í tilefni afmælisins bjóða Ragn-
hildur og Hjördís viðskiptavinum
sínum og öðrum velunnurum til af-
mælisveislu. Opið hús verður í
verslunni sjálfri frá kl. 13–17.
Parísartízkan
40 ára
HELGINA 3. og 4. maí verður
haldið í Laugardalshöllinni Ís-
landsmeistaramót í dansi.
Keppt verður í þremur grein-
um dansíþróttarinnar þ.e. sam-
kvæmisdönsum með grunnað-
ferð, línudönsum og gömlu
dönsunum. Íslandsmeistara-
mót í samkvæmisdönsum með
grunnaðferð fer fram báða dag-
ana. Þar verður keppt í öllum
aldurs- og styrkleikaflokkum.
Á laugardeginum fer fram
Íslandsmeistaramót í línudöns-
um. Á sunnudeginum fer fram
Íslandsmeistaramót í gömlu
dönsunum. Samhliða þessum
Íslandsmeistaramótum mun
fara fram Bikarmót DSÍ í sam-
kvæmisdönsum með frjálsri að-
ferð.
Fimm erlendir dómarar
munu dæma allar keppnirnar
nema Íslandsmeistaramótið í
gömlu dönsunum. Það mót
dæma íslenskir dómarar frá
Dansráði Íslands.
Boðið verður upp á sýning-
aratriði og má þar nefna Evr-
ópumeistarana í 10 dönsum,
Adam Reeve og Karen Björk
Björgvinsdóttur.
Húsið verður opnað kl. 10 og
hefjast keppnirnar kl. 11 báða
dagana. Setning mótsins verð-
ur á laugardeginum kl. 14 og
mun Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra setja mótið.
Aðgangseyrir er kr. 1.200 dag-
urinn en ef keyptur er aðgang-
ur fyrir báða dagana kr. 2.000.
Frítt er á keppnina fyrir eldri
borgara og börn undir skóla-
aldri.
Mótanefnd Dansíþróttasam-
bands Íslands er skipuleggj-
andi mótsins, segir í fréttatil-
kynningu.
Íslandsmeist-
aramót í dansi
NÝR bíll frá Daewoo verður frum-
sýndur hjá Bílabúð Benna nú um
helgina. Kalos er fyrsti bíllinn sem
kynntur er hjá Bílabúð Benna eftir
kaup GM (General Motors) á
Daewoo.
Daewoo Kalos er af nýrri kynslóð
fólksbíla þar sem innra rými er há-
markað og mikil áhersla lögð á að vel
fari um farþega. Bílarnir eru allir
búnir ABS-hemlum, fjórum loftpúð-
um og þriggja punkta beltum fyrir
alla farþega. Samlæsingar, raf-
magnsrúður og 14" felgur eru hluti
af staðalbúnaði. Daewoo Kalos kost-
ar 1.189.000 kr. (fimm dyra útgáfa).
Í tilefni frumsýningarinnar verður
boðið upp á kaffi og kökur og ís og
gos fyrir börnin á Vagnhöfða 23 um
helgina. Opið verður laugardag kl.
12–16 og sunnudag kl. 13–16.
Nýr bíll frá
Daewoo
áfram Ísland
Til fundar vi› flig Gar›abærSunnudagur 4. maí
Fjölbrautaskólinn í Gar›abæ kl. 17.00.
Su›vesturkjördæmi
Daví› Oddsson
og Geir H. Haarde
Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H. Haarde, fjármálará›herra og varaforma›ur
Sjálfstæ›isflokksins, halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum
Sjálfstæ›isflokksins.
Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi› Íslendingar
höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›.
xd.is