Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 60

Morgunblaðið - 03.05.2003, Side 60
DAGBÓK 60 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Eld- borg kemur í dag. Euro Trans fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Efimkrivoshev kom í gær. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Í dag morgungangan kl. 10. Félagsheimilið Hraun- sel er opið alla virka daga frá kl. 13– 17. Kaffi á könnuni kl 15– 16.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Eldri borg- arar munið að skrá ykkur í sumarferðirnar sjá Listin að lifa apr- ílblað. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur. Skrif- stofa félagsins er í Faxafeni 12, sími. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á mánudög- um og föstudögum og kl.9.30 sund og leik- fimiæfingar í Breið- holtslaug, á þriðjudög- um kl. 13 boccia, á fimmtudögum kl. 13 glermálun. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁA Síðu- múla 3–5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laug- ardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átröskun / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8 Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Félag breiðfirskra kvenna. Fundur verð- ur mánudaginn 5. maí kl.20. Skráð í vorferðina, far- ið verður í Þjórsárdal 29. maí uppstigning- ardag, kaffi og spjall. Kvenfélag Háteigs- sóknar, kaffisala verð- ur í safnaðarheimili Háteigskikirkju sunnu- daginn 4. maí kl. 14. Lífeyrisdeild Lands- sambands lögreglu- manna. Síðasti fundur vetrarins verður á morgun, sunnudaginn 4. maí. Fundurinn hefst kl. 10 í Félagsheimili LR í Brautarholti 30. Félagar fjölmennið. Seyðfirðingafélagið, í Reykjavík, aðalfundur kl. 15. sunnudaginn 4. maí í Gjábakka í Kópa- vogi. Breiðfirðingafélagið, dagur aldraðra í Breið- firðingabúð sunnudag- inn 4. maí kl. 14.30, leikþáttur, söngur og veitingar. Breiðfirð- ingar fjölmennið. Kvenfélagi Hallgríms- kirkju. Aðalfundur Kvenfélags Hallgríms- kirkju verður haldinn í safnaðarsal kirkj- unnar, fimmtudaginn 8. maí nk. kl. 20. Húnvetningafélagið í Reykjavík. Kaffiboð fyrir eldri félaga verð- ur í Húnabúð í Skeif- unni 11, sunnudaginn 4. maí kl. 13.30–16. Húnakórinn syngur nokkur lög. Allir vel- komnir. Aðalfundur Húnvetn- ingafélagsins verður þriðjudaginn 6. maí í Húnabúð kl. 20. Venju- leg aðalfundarstörf. Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með sitt árlega kaffiboð fyr- ir 60 ára og eldri sunnudaginn 4. maí á Suðurlandsbraut 30, 2. hæð, húsið opnað kl. 14.30. Gjábakki Fannborg 8. Miðvikudaginn 7. maí stendur ritlistarhóp- urinn skapandi skrif fyrir hagyrðingakvöldi, kl. 20. Kristján Hreins- son skáld stjórnar dag- skrá þar sem m.a. fulltrúar stjórn- málaflokkanna sem eiga fulltrúa á þingi koma fram. Allir vel- komnir. Minningarkort Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Í dag er laugardagur 3. maí, 123. dagur ársins 2003, Krossmessa að vori. Orð dagsins: En ég segi yð- ur: Elskið óvini yðar, og biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður. (Matt. 5, 44.)     Nokkrir stjórn-málamenn halda úti öflugum vefsíðum og nú fyrir kosningar hefur hinum pólitísku vefsíðum fjölgað verulega.     Björn Ingi Hrafnsson,frambjóðandi Fram- sóknarflokksins í Reykja- vík, gerir tillögur Frjáls- lynda flokksins í sjávarútvegsmálum að umræðuefni á heimasíðu sinni bjorningi.is: „Hvað hyggjast Frjálslyndir eiginlega fyrir? Hvernig á að halda utan um líf- ríkið, gæta þess að ekki verði ofveiði fiskistofna í sóknardagakerfi? Á að setja heildaraflaviðmið fyrir hvert ár? Ef farið er umfram heildarafla- viðmið, verður þá sókn- ardögum fækkað? Hvaða önnur úrræði ef farið verður umfram heildar- aflaviðmið? Hvernig er flokka- skipting flotans hugsuð hjá Frjálslynda flokkn- um? Verður takmark- aður fjöldi veiðidaga? Ef ekki, fara þá ekki allir út í þetta með mikilli heild- arveiði? Hvað á að miða við þegar kvóta verður breytt í sóknardaga? Hvernig stendur á því að aðeins stórútgerðin á að vera áfram í núgildandi kerfi?     Hvernig á að huga aðöryggi vinnslunnar og verkafólks með nýju kerfi Frjálslynda flokks- ins? Er ekki sóknarkerfi óöruggara til hráefnisöfl- unar? Verður ekki erf- iðara aðstanda við gerða sölusamninga við af- urðamarkaði þegar fram- tíðin er alls óviss? Getur það ekki orðið til þess að afurðaverð lækki? Þýðir það ekki minni tekjur fyrir þjóðarbúið? Sóknarkerfi F og allt raskið við breytingar mun stórskaða þjóð- arbúið og leiða til lakari lífskjara fyrir þjóðina. Niðurstaðan er auðvit- að sú að sóknarkerfi Frjálslynda flokksins gengur ekki upp. Það er illa ígrundað og til þess eins fallið að gera út á óánægju og höfða til þeirra sem vilja breyta, breytinganna vegna. Engu skiptir hvað her- legheitin þýða, það er annað mál. Alveg eins og í skattamálunum þar sem skekkja upp á tólf millj- arða skiptir engu máli.     Páll Magnússon, fram-bjóðandi Framsókn- arflokksins í Suðvest- urkjördæmi, gerir gæði skoðanakannana að um- talsefni á palli.is: „Mörg- um finnst mesta spennan farin á kjördag vegna þess að úrslitin liggi nán- ast fyrir í nákvæmum skoðanakönnunum. Þá eru margir þeirrar skoð- unar að skoðanakannanir séu mjög skoðanamynd- andi og eflaust er eitt- hvað til í því. Ég tel hins vegar að umræðan ætti fremur að snúast um gæði kannana og hvort ekki þyrfti að uppfylla einhver fagleg skilyrði við gerð og birtingu skoðanakannana.“ STAKSTEINAR Fiskveiðar og kannanir Víkverji skrifar... ÁMEÐAN ríkið keppist nú við aðkoma upp menningarhúsum í stærri bæjarfélögum á landinu hefur Víkverji á tilfinningunni að aldrei þessu vant sitji höfuðborgin á hak- anum í þeim efnum. Ef eitthvað er virðist það sameiginlegt markmið ríkis og borgar að fækka samkomu- húsum í borginni. Þá á Víkverji við þau samkomuhús þar sem einkum hafa verið sýndar kvikmyndir. En samkomuhús eru þessi kvikmynda- hús, og fyllilega brúkleg til annars konar menningarstarfsemi en kvik- myndasýninga. Gömlu bíóhúsin hafa þannig týnt tölunni hvert af öðru og sum hver verið rifin. Sorglegasta dæmið um það er Fjalakötturinn, sem í dag væri elsta kvikmyndahús í Evrópu hefði þetta sögufræga sam- komuhús ekki verið jafnað við jörðu. Nú síðast var það Stjörnubíó sem sömu örlög hlaut er samkomuhúsið það vék fyrir geymsluplássum fyrir bíla. Framtíð Austurbæjarbíós, eða Austurbæjar, eins og þetta skemmti- lega samkomuhús við Snorrabraut kallast nú, er óljós. Þegar kvik- myndasýningar lögðust þar af kom hinn stórhuga Óttar Felix Hauksson húsinu til bjargar, vann því gálga- frest með því að leigja reksturinn og fyrir það á hann heiður skilinn. Ekki síst fyrir að hafa sýnt fram á fjöl- breytt notagildi hússins því þar hafa mjög reglulega verið samkomur af öllum mögulegum toga; tónleikar, fundir og leiksýningar. Þangað voru líka úrslit í Músíktilraunum Tóna- bæjar færð og heppnuðust með mikl- um ágætum. Óttar Felix hefur sýnt fram á nauðsyn samkomuhúss – eða skulum við segja menningarhúss – eins og Austurbæjar. Best væri ef honum, eða einhverjum öðrum við- líka menningarsinnuðum einkaaðila, tækist að kaupa húsið og halda sams- konar blómlegri menningarstarfsemi þar áfram. Ef það er einkaaðilum of- viða á borgin hreinlega að sjá til þess að að framtíð Austurbæjar verði tryggð. Óttar Felix hefur rækilega sýnt fram á notagildi þess og borg- aryfirvöld gætu meira að segja nýtt það enn betur. Til dæmis með því að opna það fyrir skólunum, en jafnt grunnskóla- og menntaskólanem- endur efna orðið til fjölda vinsælla skemmtana á borð við hæfileika- og söngvakeppnir sem sannarlega eiga heima í samkomuhúsi á borð við Austurbæ. Með því að tryggja fram- tíð Austurbæjar sem fjölnota sam- komuhúss gæfist yfirvöldum þar að auki kjörið tækifæri til þess að styðja við tónlistarlíf í landinu. Húsið er nefnilega ágætlega fallið til tónleika- halds og yfirvöld ættu að sjá sóma sinn í að grípa tækifærið til að gera dægurtónlistarfólki auðveldara um vik að koma tónlist sinni á framfæri – svona til að bæta upp fyrir áhuga- leysið sem dægurtónlistarmönnum hefur verið sýnt í gegnum árin. Reykvíkingar eiga líka skilið að fá menningarhús, menningarhús sem er beint fyrir framan nefið á þeim – séu þeir á Snorrabraut. Morgunblaðið/Jim Smart Til er menningarhús í miðbænum, beint fyrir framan nefið á okkur. Þekkir einhver manninn á myndinni? MYNDIN er eftir Ríkharð Jónsson. Ef einhver veit hver maðurinn er, vinsam- legast hafið samband við Ara Gísla Bragason, Bóka- vörðunni, Vesturgötu 17, sími 552-9720 eða 867-9832. Ef ég er ekki mamm- an þá er ég ekki með í leiknum ÉG hef verið stuðnings- kona Ingibjargar Sólrúnar, en get ekki orða bundist yf- ir prímadonnuframkomu hennar undanfarið. Mér virðist sem að annað hvort spili hún fyrstu fiðlu eða hún er ekki með í hljóm- sveitinni. Á barnamáli „ef ég er ekki mamman þá er ég ekki með í leiknum“. Þetta ásamt sviknum lof- orðum við okkur kjósend- um í Reykjavík er kornið sem fyllti mælinn. Af hverju er Össur alltaf bak- sviðs? Jóna. Flóttamaðurinn ÉG skora á alla að lesa bók- ina Flóttamaðurinn eftir Stephen King. Hún er mjög áhugaverð miðað við stefnu Bandaríkjastjórnar að gera alla heimsbyggðina hrædda við sig og að eng- inn þori að rísa upp á móti henni. Vinstri maður. Tapað/fundið Karlmannsarmband í óskilum Karlmannsarmband fannst við Rauðavatn sunnudag- inn 27. apríl sl. Armbandið er merkt. Upplýsingar í síma 552-2936. Burberry-taska tapaðist BURBERRY-taska hvarf af kvennasalerninu á Broadway aðfaranótt sunnudagsins 27. apríl sl. Margir persónulegir munir voru í töskunni, m.a. tveir demantshringir. Fundar- laun. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 699- 8144 eða 691-1820. Frakki/kápa í óskilum SVARTUR einhnepptur herrafrakki var tekinn í misgripum. Frakkinn er ítalskur cashmire/ullar- frakki merktur Jupiter á rauðum fleti. Á sama stað hefur eigandi herrafrakk- ans ef til vill tekið svarta dömukápu í misgripum. Ekki er hægt að staðhæfa hvar þessi mistök hafa átt sér stað. Sá sem saknar sparifrakka, vinsamlega hafi samband í síma 847 9097 til þess mistökin megi leiðrétta. Barnagleraugu í óskilum BARNAGLERAUGU eru í óskilum í sundlauginni við Ölduselskóla í Reykjavík. Þau hafa verið þar síðan í mars. Upplýsingar í síma 557-7544. Drengjajakki í óskilum NÝLEGUR drengjajakki fannst í Hæðahverfi í Garðabæ. Jakkinn er í stærð 140 og er frá fyrir- tækinu Hennes & Maurits (DUBSTER). Upplýsingar í síma 899- 6799. Dýrahald Felix er týndur FELIX er stór gulbrönd- óttur högni með hvíta bringu. Hann hvarf af heimili sínu, Skólabraut 1, fyrir nokkrum dögum. Hann er mikil mannafæla og hans er sárt saknað. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband í síma 561-4647 eða 824- 6476. Fyrirfram þakkir. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 möguleikinn, 8 nagdýr- ið, 9 vondur, 10 fag, 11 fleinn, 13 miskunnin, 15 umstang, 18 henda, 21 traust, 22 gælunafns, 23 bugða, 24 kirkjuleiðtogi. LÓÐRÉTT : 2 ofsakæti, 3 iðjusemin, 4 allmikill, 5 fjand- skapur, 6 sýking, 7 Ís- land, 12 tangi, 14 svifdýr, 15 arga, 16 rotna, 17 að- stoðuð, 18 hnötturinn, 19 miða, 20 hina. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hatta, 4 hlífa, 7 áflog, 8 feiti, 9 ann, 11 part, 13 egni, 14 aular, 15 þorp, 17 rölt, 20 agn, 22 ráðin, 23 ang- an, 24 romsa, 25 gomma. Lóðrétt: 1 hjálp, 2 telur, 3 agga, 4 höfn, 5 ísing, 6 aðili, 12 náleg, 12 tap, 13 err, 15 þorir, 16 ræðum, 18 örgum, 19 tanna, 20 ansa, 21 nagg. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.