Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 61
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú er fljót(ur) að hugsa og
heillar aðra. Þú segir líka
sitthvað skynsamlegt um
manneskjuna. Komandi ár
verður gott á sviði fé-
lagslegra samskipta, hjóna-
bands og samvinnu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Óskhyggja gærdagsins er orð-
in að ringulreið. Reyndu að
komast hjá því að taka mik-
ilvægar ákvarðanir í dag og
lofa vinum þínum einhverju.
Þig skortir yfirsýn núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú kannt að búa yfir mun
minni orku í dag en venjulega.
Vertu góð(ur) við sjálfa(n) þig
og slakaðu á.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir að forðast óþægilegar
kringumstæður eða að mæta
einhverjum í dag. Þú ert ekki í
standi til þess. Þetta er allt í
lagi, þú mátt hafa tilfinningar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ágreiningur um lán á ein-
hverju kann að verða til þess
að þú vilt forðast ákveðinn vin
eða efast um fyrirætlanir við-
komandi. Hlutirnir virðast
flóknir fyrir alla aðila í dag.
Slakaðu á.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert líklega að reyna hið
ómögulega í dag. Bíddu í einn
dag eða svo og athugaðu hvort
þú sért reiðubúin(n) til að
breyta afstöðu þinni á ein-
hvern máta.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér kann að finnast að þú ráð-
ir vart við þær kröfur sem
gerðar eru til þín dags dag-
lega. Ef það er svo skaltu taka
því rólega. Margir finna til
þreytu í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ringulreið í samskiptum við
elskuna þína í dag veldur þér
áhyggjum. Ekki dæma strax.
Flestir eiga erfitt með að sjá
skýrt í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu að ræða mikilvæg
málefni við heimilisfólkið. Fólk
skortir raunsæi í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki eyða of miklum pen-
ingum í einhver kraftaverka-
meðul. Þú ert að vonast eftir
kraftaverki til að bæta heils-
una og kraftaverk eru afar
sjaldgæf og platkraftaverk
eru dýr.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki sólunda fé í börn eða ást-
vini í dag. Óánægja þín með
sjálfa(n) þig fær þig til að
langa til að bæta hana upp
með því að eyða peningum í
aðra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú veist ekki hvort þú átt að
grípa til aðgerða eður ei. Það
að þú skulir efast bendir til
þess að þú ætti að ígrunda
málið betur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki reyna að selja ein-
hverjum hugmyndir þínar í
dag. Þú ert ekki í skapi til að
rífast við fólk.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HEIMURINN OG ÉG
Þess minnist ég, að mér og þessum heimi
kom misjafnlega saman fyrr á dögum.
Og beggja mál var blandið seyrnum keimi,
því báðir vissu margt af annars högum.
Svo henti lítið atvik einu sinni,
sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti:
að ljóshært barn, sem lék í návist minni,
var leitt á brott með voveiflegum hætti.
Það hafði veikum veitt mér blessun sína
og von, sem gerði fátækt mína ríka.
Og þetta barn, sem átti ástúð mína,
var einnig heimsins barn – og von hans líka.
Og við, sem áður fyrr með grimmd í geði
gerðum hvor öðrum tjón og falli spáðum,
sáum það loks í ljósi þess, sem skeði,
að lífið var á móti okkur báðum.
– – –
Steinn Steinarr
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2
Be7 4. Rgf3 Rf6 5. e5
Rfd7 6. Bd3 c5 7. c3 Rc6
8. O-O a5 9. He1 cxd4 10.
cxd4 Db6 11. Rb1 Rxd4
12. Rxd4 Dxd4 13. Rc3
Db6 14. Dg4 Kf8 15. Rb5
Rc5 16. Be3 Bd7 17. Rd6
Bxd6 18. exd6
Dxd6 19. Dg3 Dc6
20. Hac1 b6 21.
Hc3 h5 22. h4 Hc8
23. Bd4 f6 24. Bg6
He8 25. Hf3 Ke7
Staðan kom upp
á fjórða Karpov
mótinu sem er ný-
lokið í Rússlandi.
Sergey Rublevsky
(2670) hafði hvítt
gegn Smbat Lputj-
an (2638). 26.
Hxf6! og svartur
gafst upp þar sem
hann verður mát
eftir 26...gxf6 27. Bxf6+
Kxf6 28. Dg5+ Kg7 29.
Bxh5+ Kf8 30. Df6+ Kg8
31. Df7#. Hið mán-
aðarlega stúlknaskákmót
Taflfélagsins Hellis hefst
kl. 11.00 í Austurbæj-
arskóla og stendur yfir til
13.00. Öllum stúlkum til 15
ára aldurs er velkomið að
taka þátt.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
70 ÁRA afmæli.Þriðjudaginn 6. maí
er sjötug Sigurbjörg Már-
usdóttir. Af því tilefni tek-
ur hún á móti gestum á
morgun, sunnudaginn 4.
maí, í Miðgarði, Innri-
Akraneshreppi, milli kl. 14
og 18.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3.
maí, er sjötug frú Guðrún
Gunnarsdóttir, Espigerði
4, Reykjavík.
Guðrún heldur upp á af-
mælið á Apartment Dunes
hótelinu Cala Millor, Mall-
orca sími 0034971585002.
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3.
maí, er sextugur Gísli
Viggósson verkfræðingur.
Eiginkona hans er Kristín
Guðmundsdóttir. Þau
dvelja í Hollandi á afmæl-
isdaginn.
SPIL dagsins er frá ein-
vígisleik Suðurnesjamanna
og landsliðs opna flokksins,
sem fram fór á Flughóteli í
Keflavík á laugardaginn.
Það er vörnin sem er í
sviðsljósinu og lesandanum
er boðið að setjast í austur:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 103
♥ Á4
♦ ÁKD10
♣G9852
Austur
♠ KD9742
♥ D108
♦ 93
♣Á3
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- Pass
Pass 1 tígull 1 spaði Dobl *
Pass 2 lauf 2 spaðar 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Dobl suðurs á einum
spaða er neikvætt og sýnir
a.m.k. fjórlit í hjarta. Aðrar
sagnir eru eins og þær
koma af skepnunni. Makk-
er spilar út spaðaáttu og
sagnhafi setur tíuna.
Hvernig sérðu fyrir þér
vörnina?
Makker er væntanlega
að spila út frá tvílit, sem
þýðir að suður á ÁGx og
hlýtur alltaf að fá tvo slagi
á spaða. Helsta von varn-
arinnar er sú að sagnhafi
þurfi að sækja laufið og að
vestur eigi þar innkomu
sem hann getur nýtt til að
hjálpa til við spaðasóknina.
En þá verður makker að
eiga spaða til:
Norður
♠ 103
♥ Á4
♦ ÁKD10
♣G9852
Vestur Austur
♠ 85 ♠ KD9742
♥ G976 ♥ D108
♦ G84 ♦ 93
♣K1076 ♣Á3
Suður
♠ ÁG6
♥ K532
♦ 7652
♣D4
Ef austur stingur upp
spaðadrottningu í fyrsta
slag mun suður dúkka og
taka næsta slag á spaða-
gosa. Nú getur hann sótt
níunda slaginn á lauf, því
laufkóngur vesturs nýtist
ekki til að fríspila spaðann.
Láti austur hins vegar smá-
an spaða í upphafi, getur
vestur spilað spaða þegar
hann kemst inn á laufkóng
og austur bíður síðan róleg-
ur með laufás og frían lit.
E.s. Þessi vörn fannst
ekki við borðið og Þröstur
Ingimarsson vann sitt spil.
Reyndar má hnekkja geim-
inu með því að fara upp
með spaðadrottningu í
fyrsta slag, en þá verður að
spila hjarta í öðrum slag og
sækja þar grimmt tvo slagi.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 3. maí
er Sigurður Sigursveins-
son skólameistari FS
fimmtugur. Af því tilefni
bjóða þau hjónin, Kristín
Sigurmarsdóttir og Sig-
urður, samferðafólki sínu
fyrr og síðar til eilítillar
garðveislu að Hlaðavöllum
10 á Selfossi í dag kl. 17-20.
80ÁRA afmæli. Hinn 5.maí nk. verður átt-
ræður Sigurður Guðjón
Gíslason á Hrauni í Grinda-
vík. Eiginkona hans er
Hrefna Ragnarsdóttir. Þau
taka á móti gestum í húsi
Slysavarnafélags Íslands í
Grindavík í dag laugardag-
inn 3. maí frá kl. 16:00–19:00.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það var fremur dræm þátttakan
föstudaginn 25. apríl eða 20 pör.
Lokastaðan í N/S:
Albert Þorsteinss. - Sæmundur
Björnss.282
Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars.253
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason227
Hæsta skor í A/V:
Vilhjálmur Sigurðss. -
Þórður Jörundss.268
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss.260
Magnús halldórss. - Ragnar Björnss.259
Þátttakan sl. föstudag var hins
vegar mjög góð eða 28 pör. Loka-
staðan í N/S:
Sigrún Pétursd. - Unnar A. Guðmss.393
Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal352
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafsson352
Hæsta skor í A/V:
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason379
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnss.341
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ás-
mundss.337
Meðalskor á föstudag var 216 en
312 á þriðjudag.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
www.solidea.com
CRANIO-NÁM
Kynningarnámskeið
laugardaginn 10. maí
Síðumúla 35, verð 9.000 kr. Kennslubók fylgir
Grunnstig 31. maí-5. júní
Kennsla og námsefni á íslensku.
Uppl./skrán. Gunnar s. 564 1803 - 699 8064
C.C.S.T: College of Cranio-Sacral Therapy - www.cranio.cc
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og
viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á
jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka
einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka
sjálfsmynd.
Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 54 94
Fjölskyldudagur
við Breiðholtslaugina í dag
laugardaginn 3. maí.
Frítt í sund á milli kl. 10.00 og 13.00.
Við grillum við laugina, hoppukastalar,
blöðrur og Lárusardætur skemmta.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti