Morgunblaðið - 03.05.2003, Page 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 63
sunnudaginn 4. apríl - Punktakeppni 7/8
Golfklúbbur Grindavíkur
1. verðlaun 25.000 kr.
gjafabréf í Golfbúðinni á Strandgötu í Hafnarfirði.
2. verðlaun 20.000 kr.
gjafabréf í Golfbúðinni á Strandgötu í Hafnarfirði.
3. verðlaun 15.000 kr.
gjafabréf í Golfbúðinni á Strandgötu í Hafnarfirði.
4. verðlaun 10.000 kr.
gjafabréf í Golfbúðinni á Strandgötu í Hafnarfirði.
Nándarverðlaun á 13. flöt 10.000 kr. gjafabréf
frá Golfbúðinni á Strandgötu í Hafnarfirði.
Ræst út frá kl. 8.00-11.00 og 13.00-16.00.
Hámarksforgjöf er 24. Þátttökugjald er 2.500 krónur!
Skráning er á www.golf.is
Einnig verður skráning í síma 426 8720 á mótsdegi
Upplýsingar og hjálp við skráningu
í síma 895 9997 Hávarður eða 863 7123 Kjartan.
Opna Landsbankamótið
LÁRUS Orri Sigurðsson kemur
inn í lið WBA á nýjan leik þegar liðið
sækir Blackburn heim í dag. Lárus
missti af leik sinna manna á móti
Liverpool um síðustu helgi þar sem
Liverpool vann 6:0-sigur en Lárus
var forfallaður þar sem hann var við
jarðarför ömmu sinnar.
STOKE þarf á stigi að halda á móti
Reading í dag til að halda sæti sínu í
ensku 1. deildinni takist Ívari Ingi-
marssyni og félögum hans í Bright-
on að leggja Grimsby að velli. Brynj-
ar Björn Gunnarsson verður eini
Íslendingurinn í byrjunarliði Stoke
en Bjarni Guðjónsson og Pétur Mar-
teinsson verða væntanlega á bekkn-
um.
STOKE hefur reiknað það út að
falli liðið í 2. deild tapi það um 60
milljónum króna.
GYLFI Einarsson, Indriði Sig-
urðsson og Davíð Viðarsson, leik-
menn Lilleström í Noregi, þurfa að
fara í 4.800 km ferðalag á næstunni
er liðið leikur gegn 3. deildarliðinu
Kirkenes í bikarkeppninni. Kirke-
nes er skammt frá landamærum
Noregs og Rússlands á nyrsta odda
landsins og tekur ferðalagið rúma
tvo tíma í farþegaþotu.
ZLATAN Ibrahimovic, framherji
Ajax, var í gær úrskurðaður í sex
leikja bann af aganefnd hollenska
knattspyrnusambandsins. Christian
Chivu, félagi Ibrahimovic, fékk
þriggja leikja bann og sömuleiðis
Pierre van Hoojdonk, framherji
Feyenoord. Allir leikmennirnir
misstu stjórn á skapi sínu þegar upp
úr sauð í bikarleik liðanna í síðasta
mánuði.
FÓLK
Danska liðið féll úr úrvalsdeild-inni í vor en John Mikkelsen
segir að menn hafi sannfærst um það
í vetur að liðið eigi
ekki heima annars
staðar en meðal
hinna bestu og því
hafi verið gripið til
þess ráðs að styrkja liðið með er-
lendum leikmönnum.
„Við þekkjum vel til íslenskra leik-
manna en Hrafnhildur Skúladóttir
lék með okkur á síðasta tímabili og
Kristín Guðmundsdóttir, sem einnig
mun ganga til liðs við okkur, lék með
Virum. Það er mikill áhugi á kvenna-
handknattleik í Holstebro og þess
vegna viljum við mikið til vinna til að
koma liðinu aftur í hóp hinna bestu,“
sagði John Mikkelsen við Morgun-
blaðið.
Hrafnhildur besti leikmaðurinn
„Hrafnhildur var besti leikmaður
liðsins á síðasta tímabili og var
fimmta markahæst í dönsku úrvals-
deildinni, þar sem hún skoraði 166
mörk í 22 leikjum. Hún hefur það
hugarfar sem við sækjumst eftir,
hugarfar sigurvegarans. Við viljum
gjarnan fá fleiri slíka leikmenn til
liðs við okkur og teljum að við getum
fundið þá hér á Íslandi. Okkar mark-
mið er að byggja upp framtíðarlið
sem nær festu og stöðugleika í úr-
valsdeildinni,“ sagði Mikkelsen og
lagði áherslu á að Team Tvis Holste-
bro væri ekki atvinnumannalið.
„Leikmenn okkar eru allir starfandi
úti á vinnumarkaðnum. Við æfum 5
sinnum í viku og leikmenn vinna um
30 stundir á viku. Það má kannski
segja að þetta sé hálfatvinnu-
mennska.“
Greinilegt er að mjög er vandað til
verka hjá félaginu. Heimasíða liðsins
www.teamtvisholstebro.dk er vel úr
garði gerð og félagið gefur út sér-
stakt dagblað a.m.k. tvisvar sinnum
á ári auk leikskrár og vandaðs árs-
rits þar sem helstu lykiltölur úr árs-
reikningi koma fram. Áætluð velta
félagsins á tímabilinu 2003/2004 er
um 8 milljónir danskra króna, eða
um 90 milljónir íslenskra króna, af
því fara um 56 milljónir króna í laun
leikmanna, þjálfara og stjórnenda
félagsins.
Bætist Hulda í hópinn?
Svo gæti farið að sjötti íslenski
leikmaðurinn léki með liðinu á tíma-
bilinu en Hulda Bjarnadóttir, fyrr-
um leikmaður Hauka, er á leið til
Vestur-Jótlands í fylgd með eigin-
manni sínum Aroni Kristjánssyni
sem mun leika með karlaliði Team
Tvis Holstebro.
Þekkjum vel
til íslenskra
leikmanna
JOHN Mikkelsen, framkvæmdastjóri Team Tvis Holstebro, var
staddur hér á landi fyrr í vikunni til að ganga frá samningum við
landsliðskonurnar Helgu Torfadóttur úr Víkingi, Ingu Fríðu Tryggva-
dóttur og Hönnu G. Stefánsdóttur úr Haukum, um að leika með
danska liðinu næsta tímabil. Mikkelsen sá m.a. annan leik Hauka
og ÍBV í úrslitakeppninni þar sem ÍBV sigraði með flautumarki á
lokasekúndu leiksins.
Eftir
Ingibjörgu
Hinriksdóttur
Gary Neville er frá í liði Man-chester United vegna meiðsla
en að öðru leyti getur Alex Ferguson
teflt fram sínu sterkasta liði gegn
Charlton sem hefur ekki unnið á Old
Trafford síðan 1986. Fróðlegt verður
að sjá hvort Fabien Barthez stendur
á milli stanganna hjá United en
Ferguson og Barthez lentu upp á
kant við hvor annan eftir að Fergu-
son gagnrýndi Frakkann fyrir slæ-
lega frammistöðu gegn Real Madrid.
Roy Carroll tók stöðu Barthez í
leiknum við Tottenham um síðustu
helgi og líklegt er að N-Írinn haldi
stöðu sinni.
„Það kemur ekkert nema sigur til
greina hjá okkur. Við erum með
þetta í okkar höndum og getum eng-
um nema sjálfum okkur um kennt ef
við vinnum ekki deildina. Síðustu
þrjá mánuði höfum við barist hart,
meðvitaðir um að við mættum helst
ekki tapa stigum svo það væri
skömm að henda frá sér mögu-
leikanum á síðustu stundu,“ segir
Juan Sebastian Veron.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á í
talsverðum vandræðum með að
púsla saman liði en meiðsli og leik-
bönn koma hart niður á meisturun-
um sem verða líklega að vinna alla
þrjá leikina sem þeir eiga eftir til að
eygja möguleika á titlinum. Fyrirlið-
inn Patrick Vieira er frá vegna
meiðsla og sömuleiðis Svíinn Fred-
rik Ljungberg og þá eru þeir Lauren
og Pascal Cygan tæpir. Varnartröll-
ið Sol Campbell er í leikbanni. „Við
ætlum að berjast til þrautar og við
höfum alls ekki afskrifað titilinn.
Auðvitað er þetta ekki lengur í okkar
höndum svo við verðum bara að
vinna þá leiki sem við eigum eftir og
stóla á að United tapi stigum. Það er
ekkert ómögulegt í knattspyrnunni,“
segir Wenger.
Leeds þarf líkt og Arsenal á stig-
unum að halda en Jórvíkurliðið er
ekki laust við falldrauginn.
Það er bara slagurinn um meist-
aratitilinn sem spennan ríkir heldur.
Newcastle, Liverpool og Chelsea
berjast um að ná tveimur sætum í
Meistaradeildinni og fallbaráttan er
í algleymingi en West Ham, Bolton,
Leeds, Aston Villa, og Fulham eiga
öll á hættu að fylgja Sunderland og
WBA niður í 1. deildina.
Newcastle er í þriðja sæti deild-
arinnar með 65 stig en Chelsa og
Liverpool fylgja fast á eftir með 64
stig.
Liverpool hefur verið á góðu skriði
og hefur unnið sjö af síðustu átta
leikjum sínum. Liverpool tekur á
móti Manchester City í dag og mætir
svo Chelsea á Stamford Bridge í
lokaumferðinni. Mesta spennan fyrir
leik Liverpool og City í dag er að
Robbie Fowler mætir í fyrsta sinn á
Anfield síðan hann var seldur til
Leeds og er reiknað með að hann fái
afar hlýjar viðtökur hjá stuðnings-
mönnum Liverpool enda var Fowler
í guða tölu hjá þeim þegar hann lék í
búningi Liverpool.
Chelsea á erfiðan útileik á móti
West Ham og á sama tíma leikur
Newcastle við Birmingham á
St.Andrews.
West Ham getur fallið í 1. deildina
í dag en tapi liðið fyrir Chelsea og
Guðni Bergsson og félagar hans í
Bolton leggja Southampton að velli í
leik sem hefst klukkan 16.30 verður
hlutskipti West Ham að falla.
Lokabaráttan á Englandi
Spenna á
þrennum
vígstöðvum
MANCHESTER United getur stigið skrefi nær enska meistaratitl-
inum í knattspyrnu um helgina takist liðinu að leggja Charlton á Old
Trafford í dag og Englandsmeistarar Arsenal ná ekki að sigra Leeds
á Highbury á morgun. Fyrir leikinn á Old Trafford í dag sem hefst
klukkan 11.30 hefur United fimm stiga forskot á Arsenal, sem á leik
til góða, en misstígi rauðu djöflarnir sig gegn Charlton á Arsenal
enn ágæta möguleika á að verja titilinn.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur framlengt samn-
ing sinn við þýska úrvalsdeildarliðið Essen. Guðjón var samningsbundinn þýska lið-
inu til ársins 2004 en í vikunni ritaði hann nafn sitt undir nýjan samning sem gildir
til ársins 2005.
„Mér stóð til boða lengri samningur en fannst gott að bæta einu ári við og sjá svo
til. Ég er virkilega ánægður með veruna hjá Essen og
það fer mjög vel um okkur fjölskylduna hérna í Þýskalandi. Það er verst að Pat-
rekur yfirgefur okkur í sumar en ég kannski held áfram að elta hann líkt og ég hef
gert,“ sagði Guðjón Valur í samtali við Morgunblaðið en Patrekur er sem kunnugt
er á förum til Bidasoa á Spáni og leikur þar með Heiðmari Felixsyni á næstu leiktíð.
Guðjón hefur leikið stórt hlutverk með liði Essen á leiktíðinni. Hann hefur skorað
106 mörk á tímabilinu og er þriðji markahæsti leikmaður liðsins.
„Ég er mjög sáttur við spilamennsku mína í vetur og hef þroskast mikið sem leik-
maður. Stefnan er að reyna að komast upp fyrir Magdeburg og ná þriðja sætinu sem
gefur sæti í Meistaradeildinni en til þess þarf allt að ganga upp hjá okkur og Magde-
burg að tapa stigum,“ sagði Guðjón ennfremur en hann verður í eldlínunni í dag á
móti Grosswallstadt á útivelli. Essen er í fjórða sætinu með 43 stig, Magdeburg hef-
ur 45, Flensburg er í öðru sæti með 50 stig en Lemgo er í toppsætinu með 54 stig.
Guðjón Valur áfram
í herbúðum Essen
Guðjón Valur
Sigurðsson