Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 64
KVIKMYNDIR 64 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í LEIKNU heimildarmyndinni Fyrsta ferðin, draga höfundarnir, Kári G. Schram og Magnús Magnús- son, upp yfirgripsmikla mynd af ein- hverjum mestu afreksverkum nor- rænna víkinga, landafundunum í vestri. Við viljum gjarnan eigna okk- ur þessa ágætu menn og sömuleiðis Norðmenn en sem betur fer gera Grænlendingar ekkert tilkall til land- könnuðanna, vilja sem minnst vita af þessum innrásarmönnum og friðar- spillum í þeirra sögu. Þau samskipti eru efni í stórvirki, en einn forvitnilegasti þátturinn í Fyrstu ferðinni er einmitt sýn kvik- myndargerðarmanna á heimilislíf í Bröttuhlíð og samskipti frumbyggja Norður-Ameríku og víkinga í grennd við Brooklyn nútímans. Sem voru mannfræðileg tímamót, samkvæmt bestu heimildum. Sem fyrr segir er farið fljótt yfir sögu enda aðeins hægt að tipla á aðalatriðum í klukkustund- ar langri mynd. Við fáum í sjónhend- ing svipmyndir af átökunum í Noregi á 9. öld, sem valda því að Ísland bygg- ist. Kynnt eru til sögunnar Eiríkur rauði, Leifur sonur hans heppni, og Þorfinnur Karlsefni og Guðríður Þor- bjarnardóttir (foreldrar drengsins Snorra, fyrsta hvíta barnsins sem fæddist í álfunni), helstu persónurnar og aðdragandi þess að víkingar láta ekki staðar numið á Íslandi heldur sækja fram til Grænlands, þaðan um Helluland (Baffins Land), Markland (Labrador), og síðan suður með ströndum Ameríku, allt til Vínlands – þar sem talið er að í dag standi stór- borgin New York. Þeir Kári og Magnús eiga heiður skilið fyrir þorið og útkoman er við- unandi sem lágmarksfræðsla um þrekvirki sem okkur ber skylda til að halda í heiðri. Fyrsta ferðin bætir úr brýnni þörf á kvikmynduðu efni, að- gengilegu fyrir allan almenning. Hún hentar einkar vel sem fróðleiksmoli fyrir ferðamenn og kynningarmynd til flutnings á erlendum sjónvarps- stöðvum. Magnús flytur þjálan text- ann af alkunnri snilld sem gerir yf- irbragðið metnaðarfullt og enn forvitnilegra. Það er ekki heiglum hent að hlaupa fjöll. Niðurstaðan verður því vissu- lega talsvert yfirborðskennd og við því lítið að segja. Um það má deila hvort Fyrsta ferðin hefði ekki mátt vera raunsærri útlitslega, en yfir henni er glansmyndarkenndur hátíð- arblær þar sem ekki hreyfir sjó, Grænland nánast ísalaust sem og sigl- ingaleiðin, víkingarnir frekar hrein- legir menn og snyrtilegir, utan þá þeir sem berja á skrælingjum. Slíkt er engu að síður altítt í myndum af þessum toga. Í heimildarmyndinni segja persón- urnar fátt en sögumaður fer með text- ann, auk þess sem vísindamenn og áhugamenn um þennan mikilvæga þátt þjóðararfsins leggja orð í belg. Leikararnir skera sig lítið úr hver frá öðrum, utan Guðríður Þorbjarnadótt- ir Breiðvíkingur, sem stendur dálítið upp úr þegar litið er til baka, sem er vel því hennar þáttur er mikilvægur og hún alltof lítt þekkt hetja úr okkar stórfenglegu sögu. Út í óvissuna KVIKMYNDIR Háskólabíó - Short & Docs FYRSTA FERÐIN – Saga landafundanna  Leikstjóri: Kári G. Schram. Handrit: Magnús Magnússon og Kári G. Schram. Kvikmyndataka: Guðmundur Bjartmars- son. Tónlist: Daníel Bjarnason, Daníel Ágúst Haraldsson. Klipping: Jón Yngvi, Kári G.Schram, Ásta Briem. Hljóðvinsla: Huldar Freyr / USS hljóðstúdió. Bún- ingar: Hlín Gunnarsdóttir. Stjórn fram- leiðslu: Hildur Snjólaug Bruun. Texti og þulur: Magnús Magnússon. Aðalleik- endur: Arnar Jónsson, Bárður Smárason, Sigrún Sól Ólafsdottir, Baldur Trausti Hreinsson, Guðjón Helgason, Bjarne Dahl Hafsteinn Pétursson, Cyril Thomas Abram. 60 mín. Framleiðandi: Kári G. Schram / Íslenska heimildarmyndagerð- in. Ísland 2003. Sæbjörn Valdimarsson Í umsögn segir að gerð Fyrstu ferð- arinnar kalli á mikið þor og útkom- an sé „viðunandi sem lágmarks- fræðsla um þrekvirki sem okkur ber skylda til að halda í heiðri“. STARKISS er erfiðasta atriðið í því fræga Rayman-fjölleikahúsi á Indlandi. Það hanga nokkrar stúlkur á munninum í bandi og snúast í hring um leið og þær snúast um sjálfa sig. Myndin lýsir lífinu í fjölleikahús- inu, og þá aðallega stúlknanna sem eru hátt að fimmtíu að tölu. Þær eru innilokaðar nótt og dag og mega engan yrða á nema þjálfarana sína og næturvörðinn Ali Baba. „Þær eru í fangelsi,“ segir einn dvergurinn, „þær eru ekki frjálsar ferða sinna einsog karlmennirnir.“ Og hvernig enduðu þær þarna? Foreldrum þeirra var lofað peningum, sem þeir aldrei fengu, þeir eru plataðir og stelpurnar narraðar eða þeim stolið. Myndin er sérlega vel gerð, og uppfull af skemmtilegum og forvitni- legum persónum, sem endað hafa í fjölleikahúsinu af misjöfnum ástæð- um. Einn sá skemmtilegasti er Saip- an sem er 16 ára, en lítur út einsog 4 ára strákur, og getur því einn komist í stelpubúðirnar og allir hinir öfunda hann. Það kemur á óvart að stelpurnar virðast ánægðar þótt þær segist sakna foreldra sinna. Þær lýsa því hvernig þær voru hræddar fyrst og örvæntingarfullar, en síðan er allt í lagi. Það hefði kannski gefið betri mynd að spjalla við foreldra stelpn- anna, eða sjá stelpu sem er að koma í fyrsta sinn til að sjá raunveruleik- ann. Ekki hægt að treysta stjórn- endunum sem eru greinilegar mann- fýlur sem reglulega fá útsendara sína í Nepal og Banglasdesh til að smygla stúlkum yfir til þeirra. Myndin er áhugavert innlegg í þá umræðu sem hefur skapast um man- sal, þar sem aðferðirnar minna óneitanlega á þær sem tíðkast í Vest- ur-Evrópu, og gerð voru svo átak- anleg skil í sænsku kvikmyndinni Lilja að eilífu. Enda er víst rauða hverfið í Bombay endastaður margra stúlkna sem ekki komast að í fjölleikahúsinu. Myndin er í raun átakalítil og sýn- ir daglegt líf og mannlífið í sirkusan- um þar sem starfa mörg hundruð manns, og sum atriðin eru virkilega fallegar og ljóðrænar mannlýsingar, ekki síst atriðið með Saipur og Anitu. Átökin felast kannski í hvern- ig stúlkurnar í fjölleikahúsinu eru búnar að sætta sig við örlög sín, dreymir drauma sem þær vita að aldrei rætast og orðnar hræddar við umheiminn. Anita er 17 ára og hefur verið í fjölleikahúsinu í 9 ár. Hún segir þau hafa allt til að vera ham- ingjusöm, þau þarfnist einskis utan fjölleikahússins og það sé einfaldlega rangt af fólki að langa út. Sjálf vill hún bara giftast manni úr fjölleika- húsinu, því þau muni skilja líf og þjáningar hvort annars, sem aðrir geta ekki. Þetta er mynd um vonir og drauma, falleg mynd um fallegt fólk. Hildur Loftsdóttir Fjölleika- fangelsið HEIMILDARMYNDIR Háskólabíó - Short & Docs INDVERSKU SIRKUSSTÚLKURNAR/ STARKISS  Leikstjórn: Chris Relleke og Jascha De Wilde. Kvikmyndataka: Chris Relleke. Framleiðandi: Wilderell Film. 77 mín. Holland 2002. Mannakorns helgi ...ég er á leiðinni á Kringlukrána... DANSLEIKIR föstudag og laugardag E r t þ ú á l e i ð i n n i ? Fjölbreyttur tilboðsmatseðill fyrir leikhúsgesti. Nauðsynlegt er að panta í tíma borð í síma 568-0878 FORSALA Á MIÐUM Á SELLÓFON SJALLANUM AKUREYRI FER FRAM Í PENNANUM EYMUMDSSON GLERÁRTORGI OG VERSLUNINNI PARK RÁÐHÚSTORGI LAU 3/5 SJALLINN AKUREYRI SUN 4/5 SJALLINN AKUREYRI FIM 8/5 örfá sæti, NASA FÖS 16/5 nokkur sæti, NASA Laugard. 3. maí kl. 14 Örfá sæti Sunnud. 4. maí kl. 14 Lab Loki sýnir barnaleikritið: Listasafni Reykjavíkur Kjarvalsstöðum lau. 3.maí. kl.14 sun.25.maí kl.16 sun. 1. júní kl.16 Miðaverð: 1.200 kr. Pantanir í síma 5526131 kl.10-17 Stóra svið Nýja svið Þriðja hæðin Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Í kvöld kl 20, Su 11/5 kl 20, Su 18/5 kl 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Mi 7/5 kl 20 - UPPSELT Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Í dag kl 14, Lau 10/5 kl. 14 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Í kvöld kl 20, Fi 8/5 kl 20, AUKASÝNING Fi 15/5 kl 20 AUKASÝNING ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Su 11/5 kl 20, Su 18/5 kl 20 Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana SJÖ BRÆÐUR e. Aleksis Kivi Gestaleiksýning Theater Mars frá Finnlandi Mi 7/5 kl 20 - AÐEINS EIN SÝNING SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn Su 4/5 kl 20, Lau 10/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20 ATH: Fáar sýningar eftir GESTALEIKSÝNINGIN 7 BRÆÐUR kemur hingað með styrk frá Teater og dans i Norden. ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 10/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20 ATH: Sýningum lýkur í maí SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Í kvöld kl 20, Fö 9/5 kl 20 Fö 16/5 kl 20,Fö 23/5 kl 20 Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20 ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR "DANS FYRIR ÞIG" 30 ára afmælissýning Íslenska dansflokksins Frosti - Svanavatnið eftir Láru Stefánsdóttur Brot úr nokkrum af eftirminnilegustu verkum Íslenska dansflokksins Frumsýning fi 8/5 kl 20, 2.sýn fi 15/5 kl 20, 3.sýn su 18/5 kl 20 ATH. AÐEINS ÞRJÁR SÝNINGAR Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Fös 9. maí kl 20 Lau 11. maí kl 20 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.