Morgunblaðið - 03.05.2003, Síða 67
í hlutverki stallsystranna í Bobby-
socks að syngja „La’ det swinge“ þó
hljómurinn væri ekkert sérstakur.
Guðrún nýtur sín best í hægu lög-
unum þar sem hún getur komist á
flug í túlkun. Hér gáfust ekki mörg
slík tækifæri en hún lét ekki sitt eft-
ir liggja í samstarfinu og náði oft
frábærum árangri. Áður hefur verið
minnst á hana í búningi Birgittu
Haukdal, en svipað má segja um
hana sem Sigga Beinteins. Hún var
stórglæsileg í rauða kjólnum, skilaði
söngnum glæsilega, en er bara allt
önnur týpa en Sigga.
Hjördís er meiri skvetta og á auð-
veldara með að sleppa fram af sér
beislinu. Hún er allt annað en lík
Söndru Kim en hún náði samt fjör-
inu og ungæðisskapnum sem
tryggði Söndru fyrsta sætið á sínum
tíma. Hún fékk líka að feta í spor
Selmu sjálfrar við að flytja „All Out
of Luck“ með góðum árangri.
Guðbjörg Magnúsdóttir hefur fal-
lega rödd sem gegndi oft hlutverki
akkeris í samsöngnum. Hún túlkaði
mörg lög eftirminnilega, t.d. „Halel-
uja“ sem Milk and Honey sigraði
með eitt sinn en jafnvel henni tókst
ekki að lífga upp á „Take Me to
Your Heaven“, formúlulagið hennar
Charlotte Nielsen.
Einhvern tímann notaði Ólafur
Laufdal auglýsingaslagorðið „Allir
eru stjörnur í Hollywood“ á meðan
hann rak þann stað. Hann hjálpaði
mörgum á ferli sínum í skemmtana-
iðnaðinum og Arnar Laufdal virðist
ætla að feta í fótspor hans. Nýliðinn
í þessari sýningu er Hafsteinn Þór-
ólfsson. Hann býr að löngu námi í
klassískum söng hér á landi og hef-
ur breiða, hlýja og óendanlega að-
laðandi rödd. Hann býr að þessari
þjálfun eins og heyrist t.d. í laginu
„Sókrates“ eftir Sverri Stormsker
sem Stefán Hilmarsson flutti svo
eftirminnilega og í „Haleluja“, sem
hér voru bæði frábærlega sungin.
Hann fer létt með að beita röddinni
eins og á við í dægurlagaflutningi,
þó að einstaka sinnum kringi hann
u-in of mikið. Hafsteinn lagði meiri
áherslu á endursköpun heldur en að
herma eftir upphaflegum flytjend-
um í söng og gerði þannig lögin að
sínum í túlkun. Þó brá hann sér eft-
irminnilega í gervi Dönu Internat-
ional og söng lagið „Diva“ standandi
kyrr á sviðinu en notaði handa-
hreyfingar og svipbrigði í túlkun
sinni með ágætum árangri þó að
förðun hefði mátt vera meira áber-
andi. Önnur lög sem hann túlkaði
frábærlega er t.d. „Karen, Karen“
eftir Jóhann Helgason sem Bjarni
Arason flutti í undankeppninni, og
hans hlutur í „Draumi um Nínu“
Eyjólfs Kristjánssonar.
Í lokin kom fram nokkurs konar
leynigestur sem kom áhorfendum
ekkert sérstaklega á óvart –
skemmtileg sönnun þess að
ákveðnir söngvarar standa ekki
bara fyrir sínu heldur bæta sig stöð-
ugt.
Fyrir sýningu var boðið upp á
málsverð: Dansandi sjávarréttar-
kodda í „Waterloo“-humarsósu,
grísalundir í syngjandi sveiflu og
„Fly on the Wings“ fantasía í eft-
irrétt. Allt einstaklega bragðgott
með fjölbreyttu meðlæti og þjónust-
an frábær.
Broadway á Hótel Íslandi er eini
skemmtistaðurinn hér á landi sem
hefur samfleytt um langt skeið
haldið uppi metnaðarfullu sýningar-
haldi af þessu tagi. Ein eða fleiri
sýningar eru frumsýndar á hverju
ári og gamlar teknar upp aftur ef
aðsókn leyfir. Þessi starfsemi Ólafs
Laufdal, sem gerði út á þennan
markað um árabil, og nú Arnars
Laufdal sem tekinn er við, er að
mörgu leyti stórmerkilegur þáttur í
skemmtanahaldi í ekki stærri borg
en Reykjavík er. Það er gaman að
sjá sýningu þar sem nýgræðingar í
dægurlagaslöng koma fram og velta
fyrir sér möguleikum þeirra á þessu
sviði – það veit jú enginn hvað fram-
tíðin ber í skauti sér.
Sveinn Haraldsson
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 67
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 10.20. B.i 12
www.regnboginn.is
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4 og 6. B.i 16.
HOURS
Sýnd kl. 4 og 6.
SV MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Vegna fjölda
áskorana aukasýningar
á þessari mögnuðu hrollvekju
FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINSPOTTING
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Heims
frumsýning
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri
myndin.
Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 3, 5.30, 8.30 og 11 ( Power sýning). B.i 12.
Powe
rsýni
ng
kl. 1
1.
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
400
kr
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.laugarasbio.is
Brjálaður hasar og
geggjuð áhættuatriði.
Heims
frumsýning
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri myndin.
Missið ekki af þessari!
POWERSÝNINGkl. 11.30Á STÆRSTA THXtJALDI LANDSINS
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.30 ( Power sýning). B.i. 12
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 400 kr.
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
400
kr
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
Á fundi ríkisstjórnar Íslands þann 11. febrúar 2003 var ákveðið að verja 700 milljónum króna til
atvinnuþróunarverkefna á landsbyggðinni. Þar af hefur Byggðastofnun verið falið að annast
úthlutun á 500 milljónum króna.
Í fyrsta áfanga verkefnisins verður 350 milljónum króna varið til kaupa á hlutafé í álitlegum
sprotafyrirtækjum og nýsköpunarfyrirtækjum í skýrum vexti.
Hlutafjárkaup geta í einstökum verkefnum orðið að hámarki 50 milljónir króna en þó ekki yfir
30% af heildarhlutafé í hverju verkefni.
Byggðastofnun auglýsir hér með eftir umsóknum um hlutafjárkaup og verður tekið á móti þeim
á þremur tímabilum, sem hér segir:
Á tímabilinu 1. maí til 30. júní á sviði sjávarútvegs og tengdra greina.
Á tímabilinu 1. júní til 31. júlí á sviði iðnaðar, upplýsingatækni og tengdra greina.
Á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst á sviði ferðaþjónustu og tengdra greina.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um reglur um úthlutun og meðferð umsókna, ásamt
nauðsynlegum fylgigögnum, er að finna á heimasíðu Byggðastofnunar, www.byggdastofnun.is
Þeir sem kunna að eiga hjá stofnuninni umsóknir sem þeir telja að geti fallið að verkefninu eru
beðnir að endurnýja þær.
Stuðningur við atvinnuþróunar-
verkefni á landsbyggðinni
Byggðastofnun • Ártorgi 1 • Sauðárkróki • Sími 455 5400
A
th
yg
li
, A
ku
re
yr
i
Broadway Evróvisjón söngskemmt-
unin Í beinni laugardagskvöld.
Dansleikur á eftir með Hunangi. Á
litla sviðinu Le’ Sing .
Champions café Á móti sól.
Dubliner Tvö dónaleg haust.
Fjörukráin Reggí-tónleikar. Hljóm-
sveitin Shang Band og Englisman
frá Jamaíka.
Gaukur á Stöng: Land og Synir.
Grandrokk: DJ Kári og Svartfugl-
arnir, Savsir, DOD laugardagskvöld.
Höllin, Vestmannaeyjum Skíta-
mórall.
Kringlukráin Mannakorn.
Leikhúskjallarinn Sumarhátíð
Gullfoss & Geysis.
Players-sport bar, Kópavogi Geir-
mundur Valtýsson.
Rabbabarinn, Patreksfirði:
Smack.
Salurinn, Kópavogi Borgardætur
halda tónleika í tilefni 10 ára starfs-
afmælis síns. Söngflokkinn skipa
Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjáns-
dóttir og Berglind Björk Jónasdóttir
og hafa þær sett saman dagskrá úr
gömlu efni. Með þeim leika Jóhann
Ásmundsson bassaleikara, Helga
Svavar Helgason trommuleikari og
fjórða Borgardóttirin Eyþór Gunn-
arsson á píanó. Tónleikarnir hefjast
kl. 20. Miðaverð 2000 kr.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is