Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 9
VATNAVEIÐI var víðast hvar
fremur dauf í kuldakastinu uppúr
mánaðamótum. Þó hafa menn aðeins
verið að setja í fisk og í vikunni frétt-
ist t.d. frá Elliðavatni að menn hefðu
loks sett í fisk á annað en maðk.
Ölnir Snorrason, umsjónarmaður
stangaveiði í Elliðavatni, sagði í sam-
tali að menn hefðu kroppað nokkuð
upp á maðkinn í frostinu, en flugan
gefið lítið, þar til í byrjun vikunnar
að fréttir af fluguveiði hefðu batnað
mjög. „Vegna frosts hefur verið lítið
um púpur og flugur hér við vatnið en
þetta er farið að lifna aðeins við á
ný,“ sagði Ölnir.
Geta má þess, að bæði er hægt að
kaupa dagsleyfi og sumarkort í
Elliðavatni, en unglingar, 12 til 16
ára, í Reykjavík og Kópavogi, auk
ellilífeyrisþega og öryrkja, fá útgefin
fríleyfi.
Birtingurinn er í jökulvatninu
Ragnar Johansen í Hörgslandi 1
sagði í gærmorgun að enn væri prýð-
isveiði í Vatnamótunum. Sér heyrð-
ist á mönnum að fiskur væri mikið til
genginn úr bergvatnsánum, en tals-
vert af fiski væri enn í vatnaskilun-
um við Skaftá. „Hér er enn prýðis-
veiði og flest hollin að taka 20 til 30
fiska hvert. Ég fór sjálfur í gær með
konu minni, við vorum bara í tvo
tíma og fengum sex fiska, þar af einn
risahæng, tæplega 90 sentimetra, á
lítinn appelsínugulan Nobbler. Hann
var mjög sver yfir bakið, en líka
mjög kviðdreginn. Ég hugsa að þetta
hafi verið hátt í 20 punda fiskur í full-
um holdum,“ sagði Ragnar og bætti
við að um 370 birtingar hefðu verið
bókaðir á svæðinu frá 1. apríl. „Við
veiðum og sleppum hér í vorveiðinni
og eg reikna með að við séum að
veiða eitthvað af fiski tvisvar og jafn-
vel oftar,“ bætti Ragnar við.
SVFA stofnað
Nýtt stangaveiðifélag leit dagsins
ljós á Hótel KEA á Akureyri um
helgina, er Stangaveiðifélag Akur-
eyrar var stofnað. Alls voru 130
stofnfélagar viðstaddir, en formaður
félagsins var kjörinn aðalhvatamað-
ur þess, Ragnar Hólm Ragnarsson.
Með honum í stjórn verða Björgvin
Harri Bjarnason, Ingvar Karl Þor-
steinsson, Jón Bragi Gunnarsson,
Kristján Hjálmarsson og María
Ingadóttir. Sérstakir gestir á fund-
inum voru m.a. stjórnarmenn frá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur.
Kári Friðriksson hugar að fallegum afla úr Elliðavatni fyrir fáeinum dög-
um, níu urriðum og einni bleikju.
Vatnaveið-
in glæðist
á ný – risi
úr Vatna-
mótum
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Glæsilegt úrval
af sumarpeysum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
MIKIÐ ÚRVAL
STÆRÐIR M - XL
POLO BOLIR
Kringlunni - sími 581 2300
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnanesi, sími 5611680.
tískuverslun
iðunn
Glæsilegt
úrval af
yfirhöfnumElegant
Bæjarlind 12 • 201 Kópavogur.
Sími 512 2200
Vönduð
garðhúsgögn sem
koma á óvart!
Laugavegi 56, sími 552 2201
Ný sending
af fallegum sumarfötum
!"
!#
$
%
&
&
'(
)
%
& *
+ & ,-
+,. ',
,/'
0 1
2
(1
',
& +
&
,. +'
3
&
&
+' ,-*
45,6!7789 06 3!$$ 7563 :
8;77!7<,=,"9<,>, ?7<06 90<9 "3<!
@,9A >$$0
+
sími 544 1240
Salatsett
kr. 2.410
Salt &
pipar
kr. 2.930
Stálvörur
í miklu úrvali
Ljósakrónur Stofuskápar
Skatthol Íkonar
www.simnet.is/antikmunir
18 manna Eikar-borðstofuborð
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.