Morgunblaðið - 08.05.2003, Page 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 59
POKASJÓÐUR verslunarinnar út-
hlutaði nýverið 54 aðilum, víðs veg-
ar af landinu, 60 milljónum til góð-
gerðarmála. Sjóðurinn hefur tekjur
sínar af sölu plastburðarpoka í
verslunum og greiða 160 verslanir í
hann. Sjóðurinn leggur lið málum
sem horfa til almannaheilla á sviði
umhverfismála, mannúðar- og heil-
brigðismála, menningar og lista og
íþrótta og útivistar.
Í ár bárust sjóðnum 550 umsókn-
ir, en þetta er í 8. sinn sem úthlutað
er. Stjórn sjóðsins fór yfir umsókn-
irnar og valdi verkefni sem styrkja
ætti.
Stærsta styrkinn fékk meðferð-
arheimilið Byrgið, eða alls 5 millj-
ónir. Skógræktarfélag Íslands fékk
4 milljónir til áframhaldandi skóg-
ræktar meðal aðildarfélaga. Hús-
gull fékk 3 milljónir til áframhald-
andi uppgræðslu á Hólasandi og
Marita, forvarnarverkefni fyrir 12–
14 ára börn, fékk einnig 3 milljónir
króna.
54 aðilar styrktir
úr pokasjóði
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikkonan Herdís Þorvaldsdóttir tekur við styrk úr höndum Jóhannesar
Jónssonar úr Bónusi og Höskuldar Jónssonar frá ÁTVR.
HALDIN verður tískusýning í
kvöld, fimmtudagskvöldið 8. maí, kl.
20 á Café Kristó á Garðatorgi í
Garðabæ. Sýndur verður vorfatnað-
ur hannaður af Maríu Lovísu tísku-
hönnuði.
Í tilefni af kosningunum á laug-
ardag verða frambjóðendur í aðal-
hlutverkum á sýningunni. Meðal
sýnenda verða Siv Friðleifsdóttir,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og
Guðrún Ögmundsdóttir. Sviðsstjóri
verður Bjarni Benediktsson.
Café Kristó verður sérstaklega
skreytt af þessu tilefni og á eftir sýn-
ingunni leikur tríóið HOD.
Frambjóðendur
á tískusýningu
Hampiðjutorgið rangt staðsett
Í frétt í blaðinu í vikunni um sjó-
mann sem tók út af togaranum
Sléttbaki sl. föstudag var ekki rétt
farið með staðsetningu togarans.
Skipið var við veiðar á svokölluðu
Hampiðjutorgi, en það er um 100
mílur vestur af Látrabjargi. Í
blaðinu var sagt að Hampiðjutorgið
væri 100 mílur austur af Látra-
bjargi. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Stoðmjólk nú þegar til sölu
Í frétt í blaðinu í gær var sagt að
stoðmjólk sé ekki komin á markað.
Það er ekki rétt. Hið rétta er að
stoðmjólk kom á markað fyrir um
mánuði síðan og er hún framleidd af
Mjólkursamsölunni. Stoðmjólkin er
seld í 500 ml. fernum og er ætluð
börnum 6-24 mánaða. Segir Mjólk-
ursamsalan að mikill áhugi sé á
henni bæði hjá foreldrum ungbarna
og þeim sem láta sig velferð og heil-
brigði barna varða.
LEIÐRÉTT
Ráðstefna um gæðastjórnun í
heilbrigðisþjónustu. Hóp-
vinnukerfi býður til ráðstefnu sem
ber yfirskriftina „Gæðastjórnun í
heilbrigðisþjónustu“ og verður haldin
á Grand hóteli Reykjavík hinn 8. maí
nk. frá kl. 11 til 16. Jónína Bjartmarz,
formaður heilbrigðis- og trygginga-
nefndar Alþingis, mun setja ráðstefn-
una. Fundarstjóri verður Sveinn
Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbank-
ans. Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða: Jón Freyr Jóhannsson, lektor
við Háskólann í Reykjavík, Hörður
Olavson, framkvæmdastjóri Hóp-
vinnukerfa, Ína Björg Hjálm-
arsdóttir, forstöðumaður Blóðbank-
ans, Leifur Bárðarson, gæðastjóri
Landspítala, Vilborg Ingólfsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur og fram-
kv.stj. gæða- og lýðheilsusviðs Land-
læknisembættisins.Fyrirlesarar
munu að fyrirlestrum loknum taka
þátt í pallborðsumræðum, ásamt öðr-
um þátttakendum. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku og fjölda sem fyrst í
tölvupósti til: svala@focal.is
Í DAG
Stutt ávörp flytja:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Össur Skarphéðinsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Guðmundur Árni Stefánsson
Fimmtudaginn 8. maí kl. 17:00–19:00
Birgitta Haukdal og Írafár taka Eurovisionlagið
og nokkra Írafárssmelli
Reynistaðarbræður, Halldór Gylfason og Freyr
Eyjólfsson syngja, leika og fara með gamanmál
Dísella Lárusdóttir syngur m.a. vinsæl lög úr
Disneymyndum
Fimleikasýning frá Gerplu
Ríó tríó tekur lagið
Sirkusatriði úr leikritinu Rómeó og Júlíu
Hinir ægivinsælu sjónvarpsmenn
Sveppi og Auddi koma enn á óvart
Trúðar • Blöðrur • Andlitsmálun fyrir börnin
• Harmonikkuleikur
Hátíðinni stýrir Helgi Pétursson Allir velkomnir!
Fjölskylduhátíð
í Vetrargarðinum í Smáralind
Nýir valkostir
hjá Terra
Nova Sól
FERÐASKRIFSTOFAN Terra
Nova Sól hefur gert nýjan samning
um gistingu á hinum vinsæla ferða-
mannastað Albufeira í Portúgal.
Samningurinn er við Hotel Vila
Petra, sem verður aðalgististaður Ís-
lendinga á þessum slóðum, segir í
fréttatilkynningu. „Samningur þessi
er liður í að framfylgja gæðastefnu
fyrirtækisins þar sem segir að á boð-
stólum skuli aðeins vera gististaðir
sem uppfylla öll skilyrði Terra Nova-
Sólar um verð og aðbúnað.“
Þá hefur verið slitið samningum
við Paraiso de Albufeira hótelið sem
verið hefur einn aðalgististaður
ferðaskrifstofunnar á Albufeira.
Hotel Vila Petra er eitt glæsileg-
asta hótelið í Algarve, fjögra stjörnu
hótel í fjölskyldueign með afar fal-
legum íbúðum, búnum öllum þæg-
indum og sérlega glæsilegum sund-
laugargarði.