Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 08.05.2003, Qupperneq 65
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 2003 65 FRANZ Becken- bauer, fyrrver- andi fyrirliði þýska landsliðs- ins í knattspyrnu, landsliðsþjálfari og nú forseti meistaraliðs Bayern Münch- en, vill að tak- mörk verði sett á fjölda erlendra leikmanna í þýsku knatt- spyrnunni. Að mati Beck- enbauers ætti að setja mörkin við fimm erlenda leik- menn en hann tjáir sig um málið við tímaritið Kicker. „Sum lið mæta til leiks með ellefu erlenda leikmenn og til lengri tíma litið mun þessi þróun hafa slæm áhrif á unga þýska leikmenn, og það hefur áhrif á árangur þýska landsliðs- ins í framtíð- inni,“ segir Beck- enbauer en lið hans er með níu erlenda leikmenn í sínum röðum. „Ég hef ekkert á móti útlendingum og það skiptir mig engu hvort þeir eru dökkir, gulir, rauðir eða hvítir á litinn.“ Beckenbauer vill fækka útlendingum Reuters Tveir fyrrverandi heims- meistarar – Pele og Becken- bauer með HM-styttuna. GUNNAR Berg Viktorsson, lands- liðsmaður í handknattleik, sem hefur leikið með franska liðinu París St Germain frá því 2001, er inni í myndinni hjá þýska úrvals- deildarliðinu Wetzlar sem þeir Róbert Sighvatsson og Róbert Julian Duranona leika með. Gunnar Berg, sem er laus undan þriggja ára samning við Parísar- liðið í sumar, æfði með Wetzlar fyrir nokkru og hann er væntan- legur aftur til liðsins eftir helgi til frekari viðræðna við forráðamenn þess. Eins og fram hefur komið hefur landsliðsmaðurinn Róbert Sig- hvatsson framlengt sinn samning við Wetzlar, en framtíð Duranona hjá félaginu er óráðin. Hann hefur ekki náð sér á strik í leikjum liðs- ins að undanförnu. Gunnar Berg ekki út úr myndinni hjá Wetzlar ÞAÐ eru sex ár síðan íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik lék landsleiki á heimavelli – síðast lék liðið á Íslandi árið 1997. Hjörtur Harðarson, þjálfari íslenska kvenna- landsliðsins, hefur valið hópinn sem býr sig undir þrjá leiki gegn Norð- mönnum sem fram fara 23.–25. maí en í byrjun júní mun íslenska liðið leika á Smáþjóðaleikunum á Möltu. Hópurinn er þannig skipaður: Birna Valgarðsdóttir, Keflavík ......39 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík .......29 Kristín Blöndal, Keflavík ...............39 Marín Rós Karlsd., Keflavík ..........14 Rannveig Randversd., Keflavík.......0 Erla Reynisdóttir, Bandar. ............22 Hanna Kjartansdóttir, KR.............33 Helga Þorvaldsdóttir, KR ..............42 Hildur Sigurðardóttir, KR .............19 Alda Leif Jónsdóttir, ÍS..................26 Svandís Sigurðardóttir, ÍS ...............0 Signý Hermannsdóttir, ÍS .............12 Sólveig Gunnlaugsd., UMFG...........3 Hjörtur valdi ennig Önnu Maríu Sveinsdóttur, Svövu Ósk Stefáns- dóttur, Helgu Jónsdóttur og Helenu Sverrisdóttur í hópinn en þær gáfu ekki kost á sér vegn meiðsla eða per- sónulegra ástæðna. Hjörtur sagði að það væri gleði- efni að fá landsleiki hér á landi á ný eftir allt of langt hlé en að markmið íslenska liðsins væri að búa sig sem best undir Smáþjóðaleikana. Hjört- ur taldi að íslenska liðið ætti ágæta möguleika á Möltu og markmiðið væri að ná í gullverðlaun þar. „Markmiðið að vinna Smá- þjóðaleikana“ Peja Stojakovic skoraði 26 stig íliði Kings en Chris Webber var með 23 stig og Bobby Jackson einn- ig. Í liði heimamanna skoruðu Nick Van Exel, Steve Nash og Michael Finley 20 stig hvor, Dirk Nowitski var með 18 stig. Við vissum alveg uppi á hár hvað við þurftum að gera. Þetta var ynd- islegur leikur hjá okkur,“ sagði mið- herjinn Vlede Divac. „Við vorum niðurlægðir, svo ein- falt er það. Ef við ætlum okkur að fara lengra en í fyrra þurfum við að gjörbylta okkar leik,“ sagði Steve Nash, leikmaður Dallas. Sterk vörn hjá Pistons Það var annað uppi á teningnum á austurströndinni þar sem Detroit Pistons fengu Philadelphia 76’ers í heimsókn. Þar var varnarleikurinn aðalsmerki Pistons sem unnu leik- inn, 98:87. Allen Iverson skoraði 27 stig fyrir 76’ers og Derrick Coleman 21. Í liði Pistons bar mest á Richard Hamilton sem skoraði 25 stig og Chauncey Billups var með 24 stig. „Við áttum alltaf möguleika á að vinna en þeir léku betur en við að þessu sinni. Ég hef engar áhyggjur af framhaldinu,“ sagði Allen Iverson leikmaður 76’ers. Fimmti sigur Spurs gegn Lakers Meistaralið sl. þriggja ára í NBA- deildinni, Los Angeles Lakers, á enn í erfiðleikum með að leggja San Ant- onio Spurs að velli en Lakers tapaði, 87:82, í fyrrinótt í undanúrslitum vesturdeilarinnar í NBA-deildinni. Liðin áttust við fjórum sinnum á leiktíðinni þar sem Spurs vann alla leikina og ekkert breyttist í fimmta leik liðana. Komi til oddaleiks fer hann fram á heimavelli Spurs í San Antonio. Tim Duncan skoraði 28 stig fyrir Spurs en að venju skoraði Kobe Bryant flest stig fyrir Lakers, eða 37 stig. Shaquille O’Neal skoraði 24 stig og tók að auki 21 frákast. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki kemst í úrslit vesturdeildarinnar. „Vörnin var góð hjá okkur frá upphafi til enda. Þeir hittu aðeins úr fáum skotum á loka- kafla leiksins og vörnin var frábær hjá okkur,“ sagði leikmaður ársins í NBA-deildinni, TimDuncan. Nets sýndu styrk sinn Á austurströndinni vann New Jersey Nets lið Boston Celtics, 97:93. „Boston vill leika hratt og skjóta mikið fyrir utan þriggja stiga línuna. Við vitum hvað við þurfum að gera til þess að stöðva þá og okkur tókst vel upp að þessu sinni,“ sagði Martin, sem setti 21 stig. Paul Pierce, 31 stig fyrir Boston taldi sitt lið þurfa að einbeita sér að sóknarfráköstum og að sama skapi að stöðva Nets á því sviði. „Þeir fá of mörg tækifæri í hverri sókn. Það þurfum við að laga,“ sagði Pierce. AP Peja Stojakovic, Sacramento Kings, á fullri ferð með knöttinn fram hjá Michael Finley, Dallas. Leikmenn Spurs með gott tak á meisturum Lakers ÞAÐ fór lítið fyrir varnarleik í viðureign Dallas Mavericks og Sacra- mento Kings er liðin átttust við í fyrsta sinn í undanúrslitum vest- urstrandarinnar í NBA-deildinni í fyrrinótt. Kings skoraði 124 stig á útivelli gegn 113 stigum Mavericks, en Don Nelson þjálfari Dallas hafði lagt ríka áherslu á að bæta varnarleik liðsins en Dallas féll úr úrslitakeppninni gegn Kings fyrir ári, 4:1. Verð kr. 4.000 Skráning: oskar@hsi.is fyrir föstud 9. maí 2003 Fræðslunefnd HSÍ Þjálfaranámskeið HSÍ Laugardagur 10. maí 10:30-12:00 Fræðilegur hluti, kaffitería ÍSÍ. 13:30-15:30 Verklegur hluti, Digranesi. Sunnudagur 11. maí 10:30-12:00 Verklegur hluti, Digranesi. 13:00-14:30 Verklegur hluti, Digranesi. 15:00-16:00 Fyrirspurnir og samantekt, Digranesi. Fyrirlesari: Mats Olsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.