Morgunblaðið - 18.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TÆPLEGA 23% kjósenda (22,8%)
segjast hafa ákveðið á kjördag hvað
þau ætluðu að kjósa samkvæmt nið-
urstöðum könnunar IBM Viðskipta-
ráðgjafar. Þar af ákváðu rúmlega
10% sig í kjörklefanum. Tæplega
56% kjósenda voru búin að ákveða
sig meira en mánuði fyrir kjördag.
Fram kemur í niðurstöðum könn-
unarinnar að kjósendur Sjálfstæð-
isflokksins voru búnir að gera upp
hug sinn fyrr en kjósendur annarra
flokka en 69,1% þeirra höfðu ákveð-
ið sig meira en mánuði fyrir kosn-
ingar. Tæplega 28% kjósenda
Frjálslynda flokksins gerðu upp
hug sinn í kjörklefanum á móti ein-
ungis 3,9% kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins.
22,7% þeirra sem kusu B-lista
kusu D-listann 1999
Af þeim sem kusu Framsókn-
arflokkinn sl. laugardag voru 22,7%
sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í al-
þingiskosningum árið 1999. Af þeim
sem kusu Frjálslynda flokkinn sl.
laugardag voru 25% kjósenda Sam-
fylkingarinnar árið 1999. 23,8%
þeirra sem kusu Samfylkinguna
fyrir 4 árum kusu Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð í kosning-
unum sl. laugardag.
Þegar þátttakendur í könnuninni
voru spurðir hvort þeir hefðu skipt
um skoðun síðustu tvær vikurnar
fyrir kosningar sögðust nærri þrír
af hverjum fjórum ekki hafa skipt
um skoðun. 8,4% skiptu fjórum
sinnum eða oftar um skoðun, 9,4%
skiptu tvisvar til þrisvar um skoðun
og 7,6% skiptu einu sinni um skoð-
un.
23% kjós-
enda gerðu
upp hug sinn
á kjördag
ÍSLENSKIR aðalverktakar, ÍAV,
og Ístak taka í fyrsta sinn þátt
saman í útboði þegar tilboð verða
opnuð 5. júní nk. hjá Landsvirkjun
í þrjá verkþætti Kárahnjúkavirkj-
unar. Eru fyrirtækin í hópi með
tveimur erlendum verktökum, Pihl
& Sön og Hochtief, sem undirbúa
tilboð í stöðvarhús virkjunarinnar í
Fljótsdal og meðfylgjandi neðan-
jarðarmannvirki. Auk þessa hóps
er búist við tilboði frá Impregilo,
sem bauð lægst í stíflu og að-
rennslisgöng um áramótin, þýska
fyrirtækinu Bilfinger-Berger og
jafnvel fleirum.
Einnig verða tilboð opnuð í vélar
og rafbúnað, sem sex erlend fyr-
irtæki taka þátt í að undangengnu
forvali, og stálfóðringar og spjald-
lok fyrir tvenn þrýstigöng virkj-
unarinnar og samtengingu að-
rennslisganga frá Hálslóni og
Ufsarlóni. Samanlagður kostnaður
við þessa verkþætti er áætlaður
um 17,5 milljarðar króna, eða um
fimmtungur af Kárahnjúkaverk-
efninu í heild.
Gríðarlegur gröftur
Stöðvarhúsið í Fljótsdal er neð-
anjarðar í fjallinu Teigsbjargi og
þarf verktakinn að grafa 800
metra aðkomugöng þangað sem
eru um sjö metrar í þvermál.
Einnig þarf hann að grafa álíka
löng strengjagöng inn í fjallið.
Mikill gröftur verður fyrir stöðv-
arhúshellinn, sem miðað er við að
verði 115 metrar á lengd, 14 metr-
ar á breidd og mesta lofthæð 34
metrar. Þá þarf að grafa spenna-
helli inn af stöðvarhúsinu sem
verður 103 metra langur, 13,5
metrar á breidd og 16 metrar á
hæð, svo og tvenn 400 metra löng
fallgöng og 1,1 km löng frárennsl-
isgöng út í Fljótsdal, skammt frá
Valþjófsstað, sem eru um níu
metrar í þvermál.
Stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar
ÍAV og Ístak
saman í útboði í
fyrsta sinn
ÁÆTLAÐUR tekjujöfnuður
ríkissjóðs á yfirstandandi ári er
9,6 milljarðar kr., að því er
fram kemur í vorskýrslu fjár-
málaráðuneytisins um þjóð-
arbúskapinn. Gert er ráð fyrir
að halli á rekstri sveitarfélaga
verði heldur minni á árinu 2003
en næstu tvö ár á undan, eða
um 2,7 milljarðar kr. og spáð er
svipuðum halla á árinu 2004.
Í skýrslu ráðuneytisins segir
að niðurstaða greiðsluuppgjörs
bendi til þess að meginforsend-
ur fjárlaga hafi gengið eftir
þótt nokkur frávik verði bæði á
tekju- og gjaldahlið.
„Í fjárlögum fyrir árið 2003
er gert ráð fyrir að hagvöxtur
muni aukast á nýjan leik eftir
niðursveiflu á síðasta ári. Á
þeim forsendum er gert ráð
fyrir að heildartekjur ríkisins
verði um 272 milljarðar króna
og útgjöldin rúmlega 260 millj-
arðar. Frumvarp til fjárauka-
laga fyrir árið 2003 vegna að-
gerða í atvinnu- og byggða-
málum var samþykkt á loka-
dögum Alþingis. Samkvæmt
því er gert ráð fyrir að útgjöld
hækki um 4,7 milljarða króna
og að tekjufærður hagnaður af
eignasölu aukist um 2,6 millj-
arða króna. Samkvæmt þessu
er áætlaður tekjujöfnuður rík-
issjóðs á yfirstandandi ári 9,6
milljarðar króna,“ segir í
skýrslunni.
Áætlaður
tekjujöfn-
uður ríkis-
sjóðs 9,6
milljarðar
RANNSÓKN á tildrögum bana-
slyss sem varð þegar karlmaður á
þrítugsaldri féll fram af klettum
við veitingahúsið Svörtuloft á
Hellissandi í́ síðustu viku stendur
yfir hjá lögreglunni á Ólafsvík.
Að sögn yfirlögregluþjóns er ekk-
ert sem bendir til annars en að
um slys hafi verið að ræða og
engar vísbendingar eru um átök í
aðdraganda þess.
Um er að ræða annað slysið
sem verður á þessum stað á
nokkrum vikum, en fyrr í vor
slasaðist fimm ára gamalt barn
alvarlega er það féll fram af
klettunum. Í kjölfar þess slyss
ákvað sveitarstjórnin í samráði
við rekstraraðila veitingahússins
að reisa girðingu við kletta-
brúnina í öryggisskyni.
Veitingahúsið hefur fullt
starfsleyfi og var hættan af klett-
unum, sem eru bak við veitinga-
húsið, ekki talin standa í vegi
fyrir því að Heilbrigðiseftirlit
Vesturlands gæfi út starfsleyfi á
sínum tíma, enda var ekki talið
að skoða yrði klettana sem hluta
af öryggismálum staðarins. Að
sögn Helga Helgasonar heilbrigð-
isfulltrúa hafa umrædd tvö slys
ekki breytt afstöðu Heilbrigð-
iseftirlitsins hvað þetta snertir.
Hann segir að hér sé um að ræða
veitingastað fyrir fullorðna og
því sé ekki tekið eins á málum og
ef um staði fyrir börn væri að
ræða. Þá væri tekið öðruvísi á
málum og hugað að hættulegu
umhverfi sem gæti ógnað öryggi
barna. Klettarnir eru bak við
húsið en aðkomuleið fyrir gesti
er að framanverðu, götumegin.
Bakdyrnar sem snúa út að
klettunum eru hugsaðar sem
flóttaleið út úr húsinu í neyð-
artilvikum og gestum því ekki
beint um þær.
Tvö alvarleg slys í klettum við veitingastað á Hellissandi
Girðing reist
við klett-
ana í örygg-
isskyni
Morgunblaðið/Matthías Páll
Sjá má girðinguna við klettana sem reist var á mánudag. Tvö slys hafa orð-
ið í klettunum á undanförnum vikum, annað banaslys.
ÞORSTEINN Þorsteinsson, for-
stöðumaður markaðssviðs Ríkisút-
varpsins, segir að útvarpslög séu
daglega brotin á Íslandi. Til dæmis
komi það fyrir daglega hjá Skjá ein-
um að þar sé dagskrárliður rofinn
með auglýsingum án þess að tuttugu
mínútur líði milli auglýsingahléa, en í
útvarpslögum segir m.a: „Ef dag-
skrárliðir […] eru rofnir með auglýs-
ingum eða fjarsöluinnskotum skulu
líða a.m.k. 20 mínútur milli auglýs-
ingahléa í sama dagskrárlið.“ Þetta
kom m.a. fram í ræðu Þorsteins á
málþingi um kynferðislegar tenging-
ar í auglýsingum og ábyrgð fjöl-
miðla, sem haldið var í fyrradag.
Ýmsir aðilar stóðu að málþinginu,
m.a. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur og Menningarmiðstöðin
Gerðuberg.
Sjö manns fluttu framsöguræður
og kom m.a. fram í erindunum að
kynferðislegar tengingar í auglýs-
ingum væru miklar; kynlíf væri „eitt
af þeim tækjum“ sem notuð væru til
að ná athygli neytendanna. Sumir
tóku fram að nekt væri þó ekki endi-
lega slæm heldur skipti máli hvernig
hún væri sett fram og í hvaða sam-
hengi. Þá minntu þeir á ábyrgð for-
eldra og forráðamanna og sögðu að
þeir þyrftu að fræða börnin sín og
ræða við þau um það hvað þeim fynd-
ist rétt og hvað rangt.
Segir útvarpslög brotin daglega
AÐALFUNDUR Blindrafélagins fór fram í
gær en við það tilefni opnaði Tómas Ingi Ol-
rich menntamálaráðherra nýja heimasíðu fé-
lagsins. Á heimasíðunni eru meðal annars
tenglar á ýmsar síður sem tengjast málefnum
blindra og sjónskertra en síðan er sérstaklega
gerð með aðgengi blindra og sjónskertra í
huga. Hægt verður að stækka letur og breyta
litaviðmóti en einnig verður hugað að þörfum
þeirra sem nota blindraletur og talgervil.
Menntamálaráðherra sagði við þetta tæki-
færi að Blindrafélagið hefði sýnt mikið frum-
kvæði í að vekja athygli á sérstökum þörfum
blindra fyrir aðgengi að Netinu og verald-
arvefnum. „Enn er þó mikið óunnið verk í að
vekja athygli opinberra aðila, fyrirtækja og
almennings á sérstökum þörfum blindra og
sjónskertra í upplýsingasamfélaginu og mun
Blindrafélagið þar áfram gegna mjög mikil-
vægu hlutverki,“ sagði Tómas Ingi.
Gísli Helgason, formaður Blindrafélagsins,
sagði að félagið hefði í mörg ár haft það sem
kappsmál að koma upp vandaðri heimasíðu.
„Vefsíðuhönnuðir eru að vakna meira og
meira til vitundar um hversu þýðingarmikið
það er að veita blindu og sjónskertu fólki að-
gang að upplýsingum á netinu og það er okk-
ar trú að allt sem er gert blindum, sjón-
skertum og fötluðu fólki til góða verði til
hagsbóta fyrir allan almenning þessa lands,“
sagði Gísli. Vefslóð heimasíðunnar er
www.blind.is.
Heimasíða fyrir blinda
og sjónskerta
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra opnar nýja heimasíðu Blindrafélagsins, www.blind.is.