Morgunblaðið - 18.05.2003, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. MAÍ 2003 39
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Vesturbrún 8
Opið hús frá kl. 14-16
Glæsileg og vönduð 103 fm 5 herb.
neðri hæð í þríbýlishúsi ásamt 36 fm
bílskúr. Íbúðin sem er öll nýupptekin
skiptist í hol með rúmgóðum skáp-
um, tvær saml. stofur, eldhús með
yfirförnum innrétt. og nýjum tækjum,
vandað baðherb. með nýjum innrétt.
og 2 svefnherb. auk sjónvarpsher-
bergis. Innréttingar hannaðar af Halldóru Vífilsdóttur arkitekt. Massívt
parket á gólfum. Stór ræktuð lóð. Áhv. húsbr. 5,4 millj. Verð 17,8 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Bergstaðastræti 30
Opið hús frá kl. 14-16
Stórglæsileg 4ra herb. 91 fm íbúð á
3. hæð með svölum til suðvesturs
auk sérgeymslu og hlutdeildar í
sameign. Íb. skiptist í saml. skiptan-
legar parketlagðar stofur, tvö rúmg.
parketlögð herb., rúmg. eldhús með
vönd. innrétt. og svölum til suðvest-
urs og flísalagt baðherb. með bað-
kari, glugga og tengi f. þv.vél.
Sérgeymsla og sameiginlegt
þv.herb. Áhv. húsbr. 7,6 millj. Verð
15,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Um er að ræða fallega 5 her-
bergja 125 fm íbúð (4 svefnher-
bergi) á 2. hæð. Parket. Tvennar
svalir, suður og austur. Fallegt
útsýni. Sameign nýmáluð og
teppalögð. Áhv. byggingasj. og
húsbr. 10 millj. Verð 13,9 millj.
Gjörið svo vel að líta inn.
Kristjana og Andrés
taka vel á móti ykkur.
Sími 568 5556
HRAUNBÆR 42 - OPIÐ HÚS Í DAG,
SUNNUDAG, MILLI KL. 14 OG 17
AUSTURBAER@AUSTURBAER.IS
Grensásvegi 22 • Sími 533 1122 • Fax 533 1121
Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali, sími 897 0634
Þórhallur Björnsson, sölustjóri, sími 899 6520
Kári Jarl Kristinsson, sölumaður, sími 695 0650
Opið hús - Ljárskógar 24
Glæsilegt ca. 325 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bíl-
skúr og sólskála. Öll gólf eru lögð parketi og flísum. Húsið var uppruna-
lega teiknað sem tvær íbúðir, en í dag tengir fallegur parketlagður stigi
hæðirnar. Húsið hefur fengið einstakt viðhald í gegnum árin. Verð 33,8
millj. Ekkert áhvílandi. Bragi og Erna sýna frá kl: 15:00-17.00.
Opið hús - Espigerði 18
Mjög falleg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð á þessum vinsæla stað í Gerðun-
um. Íbúðin hefur öll verið standsett á afar smekklegan hátt. Svalir í suð-
ur. Frábært útsýni. Verð 15,3 millj. Ekkert áhvílandi. Íbúðin verður til
sýnis í dag á milli 13:00 og 15.00.
GRENSÁSSVEGUR TIL LEIGU
Einstakt tækifæri. Til leigu jarðhæðin í þessu vandaða
glæsilega húsi samt. 130 fm.
Ein besta staðsetning sem völ er á, mjög góða aðkoma, næg
bílastæði. Mögulegt er merkja húsið áberandi að utan.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 822 8242
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Skrifstofuhúsnæði. Glæsil. vand-
að nýtt lyftuhús (2. hæð) og 3.
hæð (útsýnisturn). Tilvalin eign
fyrir t.d. lögfræðing, verkfr.,
stofnanir, læknastofur o.fl. o.fl.
Góð aðkoma næg bílastæði. Ein-
stök staðsetning og auglýsinga-
gildi. Afh. strax. Ath. að 1. hæð-
in, jarðhæð, er öll leigð.
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Skútuvogur 2 - Rvík -Til leigu
ALÞJÓÐARÁÐ safna (Inter-
national Council of Museums
ICOM) hefur starfað frá árinu
1946. Ráðið lætur
til sín taka á al-
þjóðavettvangi þeg-
ar þurfa þykir.
Stríðið í Írak hefur
mjög sett mark sitt
á starfsemi ICOM
að undanförnu og
skipulagðri björgunarstarfsemi
verður hrundið af stað í söfnum á
stríðshrjáðum svæðum þar í landi
um leið og færi gefst.
Samtökin stuðla að þróun safna,
styðja við rekstur þeirra, auka
skilning á eðli safna, efla sam-
vinnu og eru bakhjarl faglærðra
safnmanna við að efla þekkingu al-
mennings og stjórnvalda á eðli
safnastarfs. Samtökin eru óháð
ríkisstjórnum og eru ráðgefandi
fyrir UNESCO í þeim málum sem
varða safnastarfsemi. Höf-
uðstöðvar samtakanna eru í París.
Félagar ráðsins eru bæði safn-
menn og safnastofnanir. Al-
þjóðaráðið starfar í þjóðdeildum
sem nú eru 110 talsins en með
breyttu þjóðskipulagi í Evrópu
undanfarin ár hefur þeim fjölgað
umtalsvert. Jafnframt starfa al-
þjóðanefndir um sérhæfð og af-
mörkuð málefni safna, s.s. örygg-
ismál og fræðslu, og eru þær 28
talsins.
Í viðleitni sinni til þess að efla
samkennd og auka samvinnu hafa
samtökin frá árinu 1977 haldið al-
þjóðlegan hátíðisdag safna 18. maí
ár hvert og helgað hverju ári
ákveðna yfirskrift. Að þessu sinni
ber dagurinn yfirskriftina Söfn og
vinir. Alþjóðaráð safna túlkar orð-
ið vinur í víðum skilningi en sam-
kvæmt honum er sá vinur safns
sem afhendir gripi eða listaverk
safni til varðveislu, sá sem leggur
safni til vinnuframlag í sjálfboða-
vinnu eins og tíðkast víða um lönd
og þeir eru einnig safnvinir sem
stuðla að fjármögnun valinna
þátta í safnstarfseminni. Þá eru
safnvinir allir þeir, bæði börn og
fullorðnir, sem heimsækja sýn-
ingar safnanna, heimasíður þeirra
og hafa gagn og gaman af því sem
söfnin hafa upp á að bjóða af
fræðslu og skemmtan. Þessum
breiða hópi vina er alþjóðadagur
safna helgaður í ár.
Í nútímasamfélagi eiga söfnin æ
meira undir almenningi þótt
stjórnvöld muni ævinlega bera
ábyrgð á rekstri þeirra. Þessu
þurfa söfnin að mæta með síbættri
þjónustu. Þau þurfa að vera í
stakk búin til þess að vera virkir
þátttakendur í því að móta og
byggja upp samfélagið í síbreyti-
legum heimi og leita leiða til þess
að skapa lifandi tengsl út á við.
Um heim allan bjóða söfn upp á
dagskrár, viðburði og sýningar í
dag sem sérstaklega eru skipu-
lagðar til þess að mæta vænt-
ingum vina sinna. Þannig nýta
söfnin daginn til þess að uppfylla
eina af sínum meginskyldum.
Hér á landi var Íslandsdeild
ICOM stofnuð árið 1985 og hafa
verkefni hennar tekið mið af starf-
semi alþjóðasamtakanna. Eitt
þeirra hefur verið að halda safna-
daginn hátíðlegan en aðstæður hér
á landi hafa leitt til þess að sam-
komulag er um að flestir haldi upp
á safnadaginn annan sunnudag í
júlí ár hvert. Hefur hann verið
nefndur íslenski safnadagurinn og
verður hann í ár hinn 13. júlí. Þá
munu íslensk söfn skipuleggja við-
burði og dagskrár til handa vinum
sínum.
Á Íslandi eru margir safnvinir. Í
félaginu Minjum og sögu hafa vin-
ir og velunnarar Þjóðminjasafns
Íslands bundist samtökum og lagt
safninu lið með margvíslegum
hætti á umliðnum árum. Án ís-
lenskra safnvina væru öll íslensk
söfn fátækari, sér í lagi hvað varð-
ar safnkostinn því flestir safn-
gripir menningarsögulegra safna
hafa borist þangað sem gjafir. Því
hugsa íslenskir safnmenn til vina
sinna í dag á alþjóðlegum safna-
degi.
Alþjóðlegi safna-
dagurinn – Söfn
og vinir
Eftir Lilju Árnadóttur
Höfundur er formaður Íslands-
deildar alþjóðaráðs safna ICOM
og starfar á Þjóðminjasafni Ís-
lands.
SÚ umræða sem hefur skapast að
loknum alþingiskosningum um að
Ingibjörg Sólrún eigi að taka við for-
mennsku í Samfylk-
ingunni af Össuri
Skarphéðinssyni er
hávær þessa dagana.
Það væri eftir öllu
hjá okkur
Samfylkingarfólki
þegar við loksins
höfum náð að láta taka mark á okk-
ur og höfum mælanlegt fylgi að
kasta formanninum!
Umræðan um komma, krata og
kvennalistakonur er varla sofnuð
þegar aðrar deilur eru dregnar upp
á borðið, nú vilja menn bardaga og
einhverju skal fórnað?
Hverju? Fylginu sem Össur hefur
verið að reyta jafnt og þétt á flokk-
inn undanfarna mánuði með reyndar
dyggri aðstoð Ingibjargar Sólrúnar.
Í skoðannakönnunum í desember
sl. mældist Samfylkingin undir for-
ystu Össurar með 32% fylgi, því
fylgi náði Ingibjörg Sólrún ekki að
landa þótt formaðurinn stigi til hlið-
ar.
Að afloknum kosningum hefur
Samfylkingin aukið fylgi sitt í öllum
kjördæmum nema n.v. kjördæmi
þar sem sitjandi þingmanni Vest-
firðinga var fórnað!
Samfylkingarfólk, gleðjum ekki
íhaldið með glundroða. Stöndum við
bakið á formanninum okkar sem
hefur gert Samfylkinguna að næst
stærsta stjórnmálaafli á Íslandi í
dag!
Forðumst
glundroða!
Eftir Kolbrúnu Sverrisdóttur
Höfundur er varabæjarfulltrúi,
Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ.
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.
VEÐUR
mbl.is