Morgunblaðið - 01.06.2003, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2003 23
... notaðu hjálm!
Hvað á þitt barn yfir höfði sér?
Þegar vorar flykkjast börnin okkar
út í góða veðrið og taka fram reiðhjólin,
línuskautana og hlaupahjólin. Öllum
þessum farartækjum fylgir aukin hætta
á óhöppum og því er mikilvægt að við
séum vakandi gagnvart því að vernda
þau eins og kostur er.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að
reiðhjólahjálmar geta komið í veg fyrir
alvarlega höfuðáverka enda kveða
lögin á um að öll börn, yngri en 15 ára,
skuli nota hjálma á reiðhjólum.
HÖRKUVEIÐI er í Þingvalla-
vatni þessa dagana, en þeir veiða
mest sem standa við fram á nótt
eða mæta gríðarlega snemma á
morgnana. Mörg dæmi eru um 10
til 20 bleikjur á stuttum tíma, en
sumir telja fiskinn þó ívið smærri í
ár en í fyrra þótt stórbleikjur, 4-5
punda, séu í bland. 7 punda urriði
veiddist á smáflugu í Vatnsvikinu í
vikunni og annar síst minni hristi
sig af við háfbrúnina.
Veiðimenn sem stunda vatnið
mikið telja lífríkið vera langtum
betra en venjulega um þetta leyti
árs, þrátt fyrir bakslagið í byrjun
maí. Allt saman beri keim af há-
sumri, t.d. er murta komin upp á
grunnið og menn voru að fá bleikj-
ur í svokölluðum Ólafsdrætti sem
er hrygningarsvæði í þjóðgarðin-
um og fágætt að fá þar veiði svo
snemma.
Laxinn kominn víða
Hér er stuttur listi yfir þær ár
þar sem menn hafa séð lax svo
greinilega að ekki var nokkur
spurning: Norðurá, Laxá í Kjós,
Korpa, Hvítá í Borgarfirði,
Blanda og Laxá í Aðaldal. Veiði
hófst í Norðurá í morgun, en víð-
ast hvar eru ár orðnar vatnslitlar
eftir þurrkana og hafa veiðimenn
vaxandi áhyggjur af ástandinu.
Þetta er þó ekki ósvipað ástand og
var í fyrra, þá var þurrkur og
vatnsleysi í ám eftir snjóléttan
vetur fram yfir fyrstu vikuna í júlí,
en eftir það má heita að það hafi
varla stytt upp nema í 1-2 daga í
senn. Var vatn síðan nægilegt, og
jafnvel á tíðum of mikið, langt
fram á haust.
Glímt við vænan sjóbirting í Veiðiósi, neðsta svæði Grenlækjar.
Eins og hásumar
á Þingvöllum
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?