Morgunblaðið - 03.06.2003, Blaðsíða 12
REUTERS
George Bush Bandaríkjaforseti hefur ítrekað stuðning sinn við sterkan
dal, en vill ekki inngrip á gjaldeyrismarkaði.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
sagði fyrir G8-fund iðnríkjanna að
hann styddi enn sterkt gengi Banda-
ríkjadals. Gjaldeyrismál voru meðal
umræðuefna á fundi gærdagsins, en
dalurinn hefur veikst mjög gagnvart
evru á síðustu mánuðum og náði í
síðustu viku lægsta gildi sínu gagn-
vart evrunni, 1,1925, frá því hún var
skráð árið 1999.
Styrkur evrunnar hefur valdið út-
flytjendum á evrusvæðinu áhyggj-
um, en á sama tíma hefur veiking
dalsins hjálpað útflytjendum í
Bandaríkjunum. Bandarísk stjórn-
völd hafa stutt sterkt gengi dalsins
frá miðjum síðasta áratug, en eftir
ummæli fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, John Snow, frá því fyrir
um hálfum mánuði hefur nokkur
óvissa verið uppi um afstöðu stjórn-
valda til gengis dalsins. Snow sagði
stjórnvöld enn styðja stefnuna um
sterkan dal, en að stefnan væri ekki
lengur skilgreind þannig að átt væri
við gengi hans á markaði.
Reuters-fréttastofan segir að
aldrei hafi verið gefið upp hvað ná-
kvæmlega felist í stuðningi Banda-
ríkjastjórnar við sterkan dal en þeir
sem stunda gjaldeyrisviðskipti lesi
engu síður í hvert orð sem stjórnvöld
láta falla um gengi dalsins til þess að
meta hvort þeir eigi að kaupa eða
selja dali. George Bush hefur ekki
verið hlynntur því að stjórnvöld í
Bandaríkjunum grípi inn í gjaldeyr-
isviðskipti til að hafa áhrif á gengi
dalsins.
G8-ríkin ræða
gjaldeyrismál
Bush lýsir yfir stuðningi
við hátt gengi dalsins
VIÐSKIPTI
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!"
#$%&'$$$
(
)
* +
)
,%!$$$
( +
- . /
-
-
*
-
*
,%!$$$
0)*
-
-
*
)-
-)*
,12$$$
" )
3
"
45
* '$$2
'$/
'$$!6)
+
!" #
7
(/8"
9
:#4$%';%
*:#4$%'$$
<
BAKKAVÖR Group
hf. hefur selt mark-
aðsskuldabréf að fjár-
hæð fimm milljarðar
króna en fyrirtækið
hyggst nota féð til
frekari uppbyggingar
á kjarnamörkuðum
þess, Bretlandi og
meginlandi Evrópu,
og styðja þannig við
arðbæran vöxt félags-
ins, að því er segir í
fréttatilkynningu frá
Bakkavör.
Bakkavör hefur þá
stefnu að vaxa um
20–30% á ári.
Spurður um hvort félagið ætli
sér að nota féð til að kaupa ný fyr-
irtæki inn í samstæðuna segir Lýð-
ur Guðmundsson, forstjóri félags-
ins, í samtali við Morgunblaðið að
félagið hafi lýst því yfir að það
hyggist vaxa hér eftir sem hingað
til með blöndu af innri vexti og
ytri, þ.e. kaupum á góðum arðbær-
um fyrirtækjum.
Skuldabréfin voru
seld í lokuðu útboði og
hófst sala þeirra hinn
30. maí síðastliðinn.
Kaupendur voru inn-
lendir fjárfestar.
Sótt verður um
skráningu skuldabréf-
anna í Kauphöll Ís-
lands en skuldabréfa-
flokkurinn verður að
sögn Lýðs einn sá
stærsti sem þar verður
á skrá.
Um er að ræða svo-
kölluð kúlubréf, verð-
tryggð eingreiðslu-
skuldabréf með
gjalddaga 15. maí 2009 og bera þau
6,7% vexti.
Kaupþing Búnaðarbanki hf. var
umsjónaraðili skuldabréfaútboðsins
og tryggði sölu skuldabréfanna.
Áætlað markaðsverðmæti
Bakkavarar er 19,5 milljarðar
króna og er fyrirtækið Bakkabræð-
ur stærsti hluthafinn með 29%
hlutafjár.
Bakkavör selur
skuldabréf fyrir
fimm milljarða
Lýður Guðmundsson
Afkoma BFG batnaði á seinni
helmingi síðasta reikningsárs
HAGNAÐUR The Big Food Gro-
up, breska matvörufyrirtækisins
sem Baugur Group á 23% hlutafjár
í, nam 11,7 milljónum punda eftir
skatta á reikningsárinu sem endaði
28. mars sl. Árið áður nam hagn-
aðurinn 9,3 milljónum punda.
Þessi afkoma var nokkru betri
en búist hafði verið við, en rekstur
samstæðunnar batnaði töluvert á
seinni helmingi ársins. Hagnaður
fyrir afskriftir á viðskiptavild,
óreglulega liði og skatta nam 42,9
milljónum punda, samanborið við
37,1 milljón punda á fyrra ári. Þar
af voru 26,2 milljónir punda á
seinni helmingi ársins, en 16,7 á
þeim fyrri.
Velta dróst saman um 100 millj-
ónir punda milli ára og nam 5,1
milljarði punda á reikningsárinu.
HLUTABRÉF í þýska sportvöru-
framleiðandanum Puma féllu um
10% innan dags í gær þegar stærsti
hluthafi félagsins, bandaríska fjöl-
miðlafyrirtækið Monarchy Ent-
erprises, seldi hlut sinn. Monarchy
Enterprices átti 40% í Puma og að
sögn Financial Times kom salan á
óvart, en Monarchy Enterprices
mun áfram eiga samvinnu við
Puma, samkvæmt upplýsingum frá
Puma.
Monarchy Enterprices er einnig
þekkt undir nafninu New Regency
og hefur framleitt vinsælar bíó-
myndir á borð við Pretty Woman og
L.A. Confidential. Financial Times
segir að samvinnan við Monarchy
Enterprices hafi átt stærstan þátt í
að bæta stöðu Puma. Áður en fyr-
irtækið hafi byrjað að fjárfesta í
Puma upp úr miðjum síðasta ára-
tug hafi vörur Puma ekki þótt
spennandi og fyrirtækið hafi verið
rekið með tapi. Síðan hafi Puma
verið ört vaxandi fyrirtæki sem
hafi skilað góðum hagnaði.
Reuters
Tennisstjarnan Serena Williams
klæðist íþróttafatnaði Puma.
Kvikmynda-
framleiðandi
selur 40%
í Puma
Ahold birtir
endurskoð-
aðar tölur
HOLLENSKA stórfyrirtækið
Ahold hefur birt lánardrottnum sín-
um endurskoðaðan ársreikning mat-
vörukeðjunnar og dótturfélagsins
Albert Heijn fyrir árið 2002. Þar
með hefur félagið uppfyllt eitt af
þeim skilyrðum sem því voru sett til
að geta fengið sambankalán að and-
virði 2,65 milljarða evra, um 225
milljarða króna, sem vilyrði fékkst
fyrir í febrúar síðastliðnum þegar
fyrst komst upp um bókhaldsóreiðu
hjá samstæðunni.
Hlutabréf samstæðunnar hækk-
uðu í kauphöllinni í Amsterdam þeg-
ar tilkynnt var um að Ahold hefði
uppfyllt þetta fyrsta skilyrði. Í frétt
Reuters er haft eftir sérfræðingi í
hlutabréfum að þetta sé mikilvægt
skref fyrir fyrirtækið og léttir fyrir
markaðinn.
Frekari skilyrði fyrir láninu eru
þau að Ahold þarf að birta endur-
skoðaða reikninga fyrir bandaríska
dótturfélagið Stop & Shop fyrir 30.
júní nk. Þá þarf endurskoðað sam-
stæðuuppgjör að liggja á borðum
bankanna fimm sem veita lánið eigi
síðar en 15. ágúst. Með því að upp-
fylla fyrsta skilyrðið um birtingu
reiknings Albert Heijn keðjunnar
tryggði Ahold 915 milljón dollara,
eða 67 milljarða króna, lánafyrir-
greiðslu frá bönkunum.
Af fimm bönkum sem hafa veitt
Ahold vilyrði fyrir frekara láni eru
þrír hollenskir; ABN Amro, ING og
Rabobank. Auk þeirra taka banda-
rísku fjármálarisarnir J.P. Morgan
og Goldman Sachs þátt.
Skuldir Ahold nema yfir 12 millj-
örðum evra eða jafnvirði ríflega
1.000 milljarða íslenskra króna.
Eigið fé líftæknisjóðsins MP
BIO lækkar um 71,5 milljónir
TAP til lækkunar á eigin fé líf-
tæknisjóðsins MP BIO hf. á fyrsta
ársfjórðungi nam 71,5 milljónum
króna, samanborið við 128,9 millj-
óna tap á sama tímabili í fyrra. Inn-
leyst tap tímabilsins var 29,5 millj-
ónir króna en þegar tekið er tillit til
óinnleysts gengistaps upp á 42
milljónir er heildartap tímabilsins
eins og áður sagði 71,5 milljónir
króna. Tap á hverja krónu hlutafjár
var 0,36 krónur.
Eigið fé MP BIO nam 423 millj-
ónum króna í lok mars sl. En var
um áramót 494,5 milljónir króna.
Tap af sölu hlutabréfa var 31
milljón en gengishagnaður var 8,6
milljónir króna. Annar rekstrar-
kostnaður nam 4,8 milljónum
króna.
Eignir félagsins námu í lok mars
574 milljónum króna og skuldir 179
milljónum króna. Skuldir og eigið
fé námu því 602 milljónum króna.
Handbært fé frá rekstri var 2,9
milljónir króna. Eiginfjárhlutfallið
var í lok mars 70,2%.