Morgunblaðið - 03.06.2003, Page 18
AKUREYRI
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Höfði ehf. þvottahús
Símar 462 2580 og 898 0450
Til sölu gufuketill
Rafmagnshitaður, tegund
Collins Walker Es 40, árgerð
1998, mjög lítið notaður.
Gufuframleiðsla við 380 volt
er 540 kg/tímann. Hægt er
að breyta í 640 volt, þá er
framleiðslan 900 kg/tímann.
Einnig eru til sölu 2 stórar
loftpressur 500-600 l og 2
vindur 15 kg.
HELGIN var róleg hjá lögregl-
unni á Akureyri og fátt bar til
tíðinda. Næturlífið var afslapp-
að og í góðu jafnvægi og þurfti
lögreglan lítið að skipta sér af
því. Um helgina voru ellefu
teknir fyrir of hraðan akstur,
einn fyrir ölvun við akstur og
þrjú minniháttar umferðar-
óhöpp urðu. Laust eftir mið-
nætti aðfaranótt sunnudags var
maður á gangi í Hafnarstræti
ásamt nokkrum kunningjum
sínum. Bar þá til að á vegi hans
varð bifreið sem lagt var við
götuna. Í stað þess að leggja
lykkju á leið sína fram hjá bif-
reiðinni eins og gangandi veg-
farendum ber að gera hélt mað-
urinn striki sínu og gekk yfir
bifreiðina. Dældaðist þak henn-
ar undan þunga mannsins og
kom þá í ljós að valt er á toppn-
um og missti maðurinn fótanna,
féll og lenti við það á annarri
bifreið og dældaði afturbretti
hennar. Sannaðist nú hið forn-
kveðna að betri er krókur en
kelda og situr maðurinn nú
uppi með tjónið á bifreiðunum
sem hann verður að bæta, segir
í dagbók lögreglu. Síðar um
nóttina var tilkynnt að búið
væri að sprengja póstkassa við
verslunarmiðstöðina í Sunnu-
hlíð. Heyrði tilkynnandi hvell
en varð ekki var við mannaferð-
ir. Þarna hafði verið sett lítil
sprengja í póstkassann og
skemmdist hann nokkuð.
Á sunnudagskvöldið var til-
kynnt um pilta sem væru að
gera það að leik sínum að eyði-
leggja sláttuvél á svæðinu
sunnan við Norðurmjólk. Þeg-
ar lögreglan kom á staðinn var
þar sláttuvél í henglum en ger-
endur farnir. Eru upplýsingar
um skemmdarvargana vel
þegnar.
Maður
skemmdi
tvo bíla
PÁLL Steingrímsson formaður Sjó-
mannadagsráðs Akureyrar gerði
notkun björgunarþyrlu Landhelgis-
gæslunnar að umtalsefni í ávarpi
sínu við setningu fjölskylduhátíðar
ráðsins. „Þó margt gott hafi áunnist
í slysavarnamálum, samanber
Slysavarnarskólann og kaup á öfl-
ugri björgunarþyrlu, er það samt
napurleg staðreynd að við sjómenn
skulum upplifa það og heyra að það
séu fyrirmæli til Landhelgisgæsl-
unnar að venja ekki skipstjóra og
útgerðarmenn á að geta kallað á
þyrluna ef slys ber að höndum úti á
sjó.
Með öðrum orðum njótum við sjó-
menn ekki vafans eins og fólk í
landi, ef slys ber að höndum.“
Páll sagði þetta að sínu mati til
háborinnar skammar fyrir þá sem
stæðu að slíkum ákvörðunum. „Við
skulum ekki gleyma því að því mið-
ur hafa sjómenn örkumlast við störf
sín úti á sjó eða slasast það mikið að
þeir geta ekki lengur haft sjó-
mennsku að lifibrauði. Það er óá-
sættanlegt að menn sem lenda í
þessari stöðu þurfi að velkjast í vafa
um það alla ævi hvort útkall þyrl-
unnar hefði skipt sköpum fyrir
heilsufar þeirra og hugsanlega var-
anlegt örkuml.
Það er því miður áleitin spurning
hvort við skipstjórnarmenn þurfum
ef til vill að taka upp þann sið að til-
kynna um slasaðan ferðamann og þá
helst erlendan ef slys ber að hönd-
um um borð, ef við eigum að hafa
þann möguleika á að fá alla þá að-
stoð sem sjálfsögð þykir í dag.“
Páll sagði að slysa- og trygginga-
mál sjómanna væru sér alltaf efst í
huga á þessum degi og hann minnt-
ist þeirra félaga sinna sem hefðu
látist eða væru örkumla eftir slys úti
á sjó. „Því miður hafa útgerðarmenn
og sjómenn ekki komið sér saman
um kaup og kjör á undanförnum
áratugum án afskipta stjórnvalda og
ætla ég ekki að kenna forsvars-
mönnum útgerðarmanna eingöngu
um þau mál. En það er ljóst að þessi
pattstaða í kjaramálum hefur orðið
til þess að í tryggingamálum standa
sjómenn flestum öðrum starfsstétt-
um langt að baki. Sjómenn og út-
gerðarmenn verða að snúa bökum
saman og hætta að klóra augun hvor
úr öðrum,“ sagði Páll ennfremur.
Eigum enn margt ógert til að
tryggja öryggi sjómanna
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra flutti hátíðarræðu dagsins
og hann sagði að eitt af því sem
markaði Íslandi sérstöðu meðal
þjóða heimsins, væri að helga sér-
stakan dag sjómönnum. Mennta-
málaráðherra sagði örlög íslensku
þjóðarinnar og íslenskra sjómanna
nátengd. „Hvergi annars staðar í
álfunni er hagur almennings og af-
koma eins háð því hvernig til tekst
við að nýta auðlindir hafsins.“
Menntamálaráðherra sagði einnig
að þær aðstæður sem sjómenn lifa
og starfa við hafi tekið miklum
breytingum til hins betra. „Með nýj-
um skipum og endurbættum hefur
aðbúnaður stórbatnað og öryggi
aukist, ekki síst vegna starfa Slysa-
varnaskóla sjómana, sem hefur lyft
grettistaki í fræðslu um öryggismál-
þeirra. Það er gleðilegt að á und-
anförnum árum hefur tilkynntum
slysum á sjómönnum til Trygginga-
stofnunar ríkisins fækkað verulega
og dauðaslysum á sjó hefur fækkað
jafnt og þétt síðasta áratuginn.
Engu að síður eru sjóslys við Ís-
land alltof tíð, enda um háskalegt
hafsvæði að ræða. Við eigum því
enn margt ógert til að tryggja ör-
yggi sjómanna,“ sagði Tómas Ingi
Olrich.
Formaður sjómannadagsráðs Akureyrar gagnrýndi notkun björgunarþyrlu
Sjómenn njóta ekki vafans
ef slys ber að höndum
Tangótónleikar verða haldnir í sam-
komuhúsinu Sæborg í Hrísey í kvöld
kl. 20.30, en þar verða flutt verk eftir
argentínska tónskáldið Astor Piazz-
olla. Hljóðfæraleikarar verða Vigdís
Klara Aradóttir, sópransaxófónn,
Guido Baeumer, altsaxafónn, Pawel
Panasiuk, selló, Agnieszka Panasiuk,
píanó og Krzysztof Olczak, harm-
ónikka. Almennt miðaverð er 1.200
kr. en 800 fyrir nema og eldri borgara
og ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Þessa dagana stendur yfir sýning á
olíumálverkum Stefáns Rafns Vil-
hjálmssonar í Blómaskálanum Vín í
Eyjafirði. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma blómaskálans og stend-
ur til og með 12. júní.
Í DAG
FJÖLDI fólks tók þátt í hátíð-
arhöldum í tilefni sjómannadagsins
á Akureyri. Fjölskylduhátíð var
haldin á uppfyllingunni á horni
Strandgötu og Glerárgötu, þar sem
fluttar voru ræður, gamlir sjómenn
heiðraðir og boðið upp á skemmti-
dagskrá fyrir yngstu kynslóðina.
Áhafnir skipa og landkrabbar
reyndu með sér í kappróðri en á
sunnudagskvöld var haldinn stór-
dansleikur í Íþróttahöllinni.
Sjómannadagsráð heiðraði tvær
hetjur hafsins að þessu sinni; þá
Kristján Hannesson trillukarl og
Gunnar Brynjar Jóhannesson skip-
stjóra. Þá var Ingi Björn Alberts-
son fyrrverandi alþingismaður
heiðraður fyrir margra ára bar-
áttu hans á Alþingi fyrir kaupum á
björgunarþyrlu fyrir Landhelg-
isgæsluna.
Kristján Hannesson hefur verið
tengdur sjómennsku alla tíð en á
síðustu árum hefur hann róið hluta
úr ári á trillunni sinni, Sveini EA.
Kristján fór ungur til sjós, á Kald-
bak EA, en einnig réri hann á bát-
um fyrir sunnan. Hann var um
tíma á Snæfelli EA og Björgúlfi EA
en hin síðari ár hefur Kristján ein-
beitt sér að trilluútgerðinni.
Gunnar B. Jóhannesson fór einn-
ig ungur til sjós og hefur í gegnum
tíðina verið á fjölmörgum bátum
og skipum. Síðast var hann skip-
stjóri til margra ára á Sléttbaki
EA, frystitogara ÚA, sem Samherji
gerir nú út undir nafninu Akureyr-
in EA.
Fjölmargir Akureyringar fylgdust með hátíðardagskránni á sjómannadaginn
Morgunblaðið/Kristján
Gunnar B. Jóhannsson t.v. og Kristján Hannesson voru heiðraðir á sjó-
mannadaginn og einnig Ingi Björn Albertsson fyrrverandi alþingismaður.
Morgunblaðið/Kristján
Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í hátíðahöldum á sjómannadaginn. Sumir
af yngri kynslóðinni nutu þessa að eiga hrausta foreldra!
Tveir gamlir sjómenn og fyrrverandi
alþingismaður voru heiðraðir
NOKKUÐ tíð sjúkraflug hafa verið á
vegum Slökkviliðs Akureyrar og
Flugfélags Íslands það sem af er ári.
Fyrir helgina var farið í eitthundr-
aðasta sjúkraflugið frá Akureyri frá
áramótum, er fárveik kona var sótt til
Grænlands. Farið var á Metró flugvél
FÍ til Kulusuk, þaðan með þyrlu til
Ammassalik og konan sótt á sjúkra-
húsið þar og flogið með hana til Kulu-
suk og svo áfram með Metro til
Reykjavíkur, þar sem konan var lögð
inn á Landspítala-Háskólasjúkrahús í
Fossvogi. Sigurður L. Sigurðsson
slökkviliðs- og neyðarflutningamaður
sagði að ferðin hefði gengið vel en það
tekur rúma tvo tíma að fljúga frá Ak-
ureyri til Kulusuk og um 10–15 mín-
útur með þyrlu yfir til Ammassalik.
Slökkviliðið tekur við beiðnum um
sjúkraflug og kallar þá til neyðar-
flutningamenn og/eða lækna þegar
þörf er á. Tveir læknar frá FSA fóru í
flugið til Grænlands fyrir helgina, auk
Sigurðar. Á síðasta ári urðu sjúkra-
flugin frá Akureyri 186. Sjúkraflutn-
ingamaður var ætíð með í för og
læknir frá FSA í 89 skipti.
Samstarf Slökkviliðs Akureyrar og Flugfélags Íslands
Morgunblaðið/Sigurður L.
Sjúklingurinn kominn um borð í þyrluna í Ammassalik en á myndinni eru
Daði Þór Vilhjálmsson læknir og Helga Magnúsdóttir svæfingalæknir.
Hundrað
sjúkraflug frá
áramótum