Morgunblaðið - 03.06.2003, Qupperneq 20
NEYTENDUR
20 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDASAMTÖKIN hafa
gert könnun á hitastigi kjötvöru í
kæli í nokkrum verslunum og segja
„ástand ekki gott“. Fram kemur á
heimasíðu samtakanna (ns.is) að
samkvæmt nýjum vinnureglum
Umhverfisstofnunar myndu athuga-
semdir gerðar við hitastig í 67%
verslana. Einnig segir að verslanir
myndu fá athugasemdir í eftirlits-
skýrslu í 53% tilvika, miðað við nið-
urstöður könnunarinnar.
Samtökin mældu hitastig kjöt-
vöru í nokkrum verslunum með
leyfi verslunarstjóra og var ætlunin
að kanna hvort viðkvæm fersk kjöt-
vara væri við rétt kælistig. Notaður
var staðlaður hitamælir sem stung-
ið var í kjarna kjötsins. Lægsta
hitastig sem mældist í hverju sýni
var skráð.
Fram kemur í könnun Neytenda-
samtakanna að fimm af fimmtán
mælingum hafi sýnt niðurstöður á
bilinu 0–5°C. Ströngustu kröfur
reglugerðar eru 0–4°C og segir að
aðeins einn hamborgari í Nóatúni
og sýni af kjötfarsi í 10–11 hafi
staðist þær kröfur.
Hitastig í átta sýnum mældist 5–
7,4°C og í tveimur sýnum 7,5–10°C.
Í síðara tilvikinu myndu umræddar
verslanir fá áminningu, segja Neyt-
endasamtökin.
Samkvæmt nýjum vinnureglum
Umhverfisstofnunar á hitastig kæli-
vöru að vera 0–4°C.
Mælist hitastig vöru 0–4,9°C telst
„í lagi“, 5–7,4°C er skráð í eftirlits-
skýrslu, 7,5–10°C leiðir til áminn-
ingar og mælist hitastig hærra en
10°C er það skráð í eftirlitsskýrslu
og vöru síðan hent.
Neytendasamtökin segja að tvær
verslanir hafi fengið áminningu
þessu samkvæmt. Mældist hitastig
hamborgara í Hagkaupum 7,5°C og
hamborgara í Melabúðinni 8,1°C.
Neytendasamtökin segja að ekki
þurfi að fjölyrða um þessa niður-
stöðu. „Við vonum að betri nið-
urstaða fáist í stóru könnuninni í
sumar og bendum á að þótt úrtak
sé takmarkað séu niðurstöðurnar
vísbending um að sumar verslanir
geti gert betur.“
Einnig er neytendum bent á að
fara vel með kælivöru í ferðalögum
sumarsins og við grillið; nota kæli-
box eða klakapoka, ekki geyma
matvæli lengi í bílnum, kanna lykt
áður en eldað er og gegnsteikja
kjöt.
Athugasemdir gerðar
við hitastig kjötvöru
Neytendasam-
tökin gera
skyndikönnun
í verslunum
Morgunblaðið/Kristinn
Kælivörur eru afar viðkvæmar fyr-
ir hitabreytingum og er mat á
geymsluþoli miðað við 0-4 gráður.
HRAÐBÚÐ Esso í Reykholti, Veg-
bitinn, býður vegfarendum nú átta
tegundir af nýbökuðu brauði og
sætmeti, svo sem smáflatbökum,
kleinuhringjum, vínarbrauðum og
Berlínarbollum í sumar. Verslunin
er opin frá tíu til 22 og er bakað
eftir hendinni, þrisvar til fjórum
sinnum yfir daginn þegar mest
lætur.
Kristinn Hannesson er lærður
bakari og rekur Bitann, eins og
hann er kallaður. Segir hann að sú
tilhögun að baka brauð beint úr
frysti hafi verið að ryðja sér til
rúms í Evrópu undanfarin fimm
ár. Hann sé, sem fagmaður,
ánægður með gæði brauðanna.
Segja má að hraðbúð Esso í
Reykholti sé eins konar stórmark-
aður. Þar er gerlegt að fá allar
helstu nauðsynjavörur. Fólk er oft
undrandi á því hversu vöruúrvalið
er mikið og er Bitinn í leiðinni
þegar farið er fram í Húsafell og á
Langjökul.
Þar sem veturinn var eins og
milt haust hafa ferðamenn verið
færri og því minna verið farið á
jökulinn. Hins vegar eru forrétt-
indi að fá að vera í sveitinni, fjarri
borgarskarkalanum og fólk í
Borgarfirðinum er skemmtilegt.
Þess vegna eru hjónin Kristinn
Hannesson og Ingunn Sveins-
dóttir ekki á því að hætta á næst-
unni.
Nýbakað
brauðmeti
í Bitanum
Morgunblaðið/pþ
Kristinn Hannesson og Ingunn
Sveinsdóttir við nýbakað brauðið í
Bitanum í Reykholti.
UMHVERFISSTOFNUN og Heil-
brigðiseftirlit sveitarfélaga hefur
gert áætlun um matvælaeftirlit á
landsvísu þar sem hitastig og upp-
röðun vöru í kælum smásölufyr-
irtækja verður kannað. Könnunin
verður gerð í sumar og til loka
ágúst, að því er fram kemur í frétt
á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Þar segir að sambærileg könn-
un hafi verið gerð 1997 og 1999.
Kæling er einn mikilvægasti ör-
yggisþátturinn í sambandi við
framleiðslu og dreifingu á mat-
vælum og er ætlunin að kanna
hvort ákvæðum matvæla-
reglugerðar um kælihitastig sé
framfylgt.
Kælivörur eru mjög viðkvæm
matvæli, segir Umhverfisstofnun
ennfremur, og því skiptir máli að
þær séu geymdar í vönduðum
kælibúnaði við 0-4 gráður.
Geymsluþol matvæla er miðað
við fyrrgreint hitastig og segir
Umhverfisstofnun jafnframt að
uppröðun í kæli skipti máli.
Tryggja verði öryggi matvæla og
haga uppröðun þannig að hrávara
og tilbúin matvæli séu aðskilin.
Einnig sé mikilvægt að virða
hleðslumörk kæla til þess að full-
nýta kæligetu og viðhalda kæl-
ingu.
Niðurstöður verkefnisins munu
verða birtar í september.
Eftirlit með kælingu matvöru í sumar
NETVERSLUNINNI hagkaup.is
var lokað nú um mánaðamótin og
segir Finnur Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, ástæðuna
þá að hún hafi ekki skilað hagnaði.
Póstverslun Hagkaupa verður hins
vegar opin áfram. Símanúmerið er
að finna á hagkaup.is.
Finnur segir ástæðu þess að net-
verslunin borgaði sig ekki líklega þá,
að aðgengi að verslunum sé almennt
gott hér á landi.
„Möguleikar í netverslun með sér-
vöru, svo sem bækur og geisladiska
eru hins vegar enn fyrir hendi, enda
hefur hún gengið vel. Netverslun
með matvöru borgar sig hins vegar
ekki,“ segir hann.
Segir Finnur aðspurður hvort
Hagkaupsverslun með bækur og
geisladiska komi til greina á Netinu
að netverslun fyrirtækisins sé „í
endurskoðun“.
Fjórir starfsmenn höfðu atvinnu
af netverslun Hagkaupa og segir
Finnur að tveir þeirra muni sinna
öðrum verkefnum hjá fyrirtækinu.
Netverslun Hagkaupa lokað
Vefsíðan hagkaup.is sem nú er búið
að loka. Póstverslunin verður opin.
TUTTUGU og níu leikskólabörn
reyndust í bráðri lífshættu þar
sem þau sátu í framsæti bíla með
öryggispúða fyrir framan sætið,
segir í frétt frá Árvekni, Umferð-
arstofu og Landsbjörgu um nýja
könnun á notkun öryggisbúnaðar
fyrir börn í bílum. „Íslendingar
ætla seint að læra að börn eigi rétt
á því að vera vel varin í bíl,“ segir
í niðurstöðum könnunarinnar.
Kannaður var búnaður hjá
1.995 börnum við 83 leikskóla í 39
sveitarfélögum og voru 117 barna
laus í bílnum í ár, eða 6%. Er það
besti árangur sem mælst hefur frá
því byrjað var á þessum könn-
unum árið 1996, en þá voru 288
börn laus af 1.028, eða 28%.
„Að 177 laus börn í bíl skuli
vera besti árangurinn segir sína
sögu. Lög um sérstakan örygg-
isbúnað fyrir börn í bíl eru frá
1990 og eru nokkur ár frá því að
lögreglu var gert að sekta öku-
menn um 10.000 krónur væru
börn ekki í slíkum búnaði í bíl.
Lög um skyldunotkun bílbelta
hafa verið í gildi í áratugi og því
kemur á óvart að 316 foreldrar
hafi verið án öryggisbeltis þegar
könnunin var gerð,“ segir enn-
fremur.
Foreldrar í belti, börnin laus
Fram kemur að 243 börn 1–6
ára hafi einungis verið með bíl-
belti en þau eru einungis hönnuð
fyrir einstaklinga sem eru 140
sentímetrar á hæð og 35–40 kíló.
Einnig segir að talsvert hafi
verið um að börn sætu laus við
hliðina á góðum öryggisbúnaði en
foreldrar sjálfir spenntir. 31 for-
eldri reyndist í belti með laus börn
í aftursæti.
Í nokkrum tilvikum reyndist
búnaður lélegur og ekki uppfylla
lágmarkskröfur um gæði.
Sjá niðurstöður á arvekni.is.
29 börn í framsæti
við öryggispúða
Morgunblaðið/Þorkell
Börnum ber að vera í réttum öryggisbúnaði í bílnum, lögum samkvæmt.
lif
u
n
lifun
tímarit um heimili og lífsstíl
númer fimm 2003
innlit • garðhúsgögn • pylsur og hamborgarar •
sumarborðið • hönnun • sætmeti á sumri • blóm í garðinn
Fylgir Morgunblaðinu á morgun