Morgunblaðið - 03.06.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR
30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést föstudaginn 23. maí.
Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast
láti líknarstofnanir njóta þess.
Magnús Ágústsson, Pernille Ágústsson,
María S. Ágústsdóttir, Haraldur S. Magnússon,
Jón Geir Ágústsson, Heiða Þórðardóttir,
Halldóra Ágústsdóttir, Haukur Haraldsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, sonur, afi og bróðir,
ÞÓRIR JÓNSSON,
Rauðarárstíg 41,
lést af slysförum.
Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 5. júní kl. 13.30.
Sigríður Rós Þórisdóttir, Karl Ólsen,
Kristófer Þórisson,
Unnur Steingrímsdóttir, Jón Kristinsson,
Ólafur Karl Karlsson,
Hanna Þórunn Axelsdóttir,
Hrafnhildur Jónsdóttir, Gústaf Fransson,
Ástþrúður Kristín Jónsdóttir, Patrik Kågegård.
Bróðir okkar,
BERGUR SÆMUNDSSON
frá Stóru-Mörk,
er látinn.
Jarðsett verður frá Stóra-Dalskirkju, Vestur-Eyjafjallahreppi, föstudaginn
6. júní kl. 14.00.
Systkini hins látna.
Minningarathöfn um ástkæra móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
UNU GUÐRÚNU EINARSDÓTTUR
frá Lundi, Vopnafirði,
Sólbakka 3,
Breiðdalsvík,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
4. júní kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Vopnafjarðarkirkju laugar-
daginn 7. júní kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Skógræktarfélag Breiðdæla.
Davíð Einar Sigmundsson,
Birgir Hermann Sigmundsson,
Sveinbjörn Unnar Sigmundsson,
Hjalti Sigmundsson,
Guðbjörg María Sigmundsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri frændi,
JÓHANN BERGMANN GUÐMUNDSSON
(Frændi),
Melstað,
Klapparstíg 16,
Ytri-Njarðvík,
lést á dvalarheimilinu Garðvangi laugardaginn
31. maí sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórunn Magnúsdóttir,
Þórhanna og Hrefna Guðmundsdætur.
Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓNS BENEDIKTSSONAR
myndhöggvara,
sem lést fimmtudaginn 29. maí, verður gerð frá
Fossvogskirkju föstudaginn 6. júní kl. 15.00.
Ólafur Jónsson,
Benedikt Jónsson, Anna Guðmundsdóttir,
Gunnar Steinn Jónsson, Ásta Sif Erlingsdóttir,
Margrét Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn,
HANNES VALDIMARSSON
hafnarstjóri í Reykjavík,
lést á heimili sínu í Huldulandi 20 að morgni
mánudagsins 2. júní.
María Þorgeirsdóttir.
VILHJÁLMUR SIGFÚSSON
frá Ytri-Hlíð,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sundabúð,
Vopnafirði, laugardaginn 31. maí sl.
Aðstandendur.
✝ Kristín JónaBenediktsdóttir
fæddist í Reykjavík
9. júní 1924. Hún
lést á Landspítala
háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut 27.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Benedikt Frí-
mann Jónsson, f. 13.
janúar 1898 á
Höfðahólum, Vind-
hælishreppi A-
Húnavatnssýslu, d.
16. mars 1946, og
kona hans Þórey
Ingibjörg Jónsdóttir, f. 7. febr-
úar 1899 í Reykjavík, d. 20. sept-
ember 1959. Bróðir Kristínar
var Jón Hinrik Benediktsson, f.
24. mars 1930, d. 24. maí 1942,
og bróðir hennar, sammæðra,
var Gunnar Einar Jakobsson, f.
9. september 1920, d. 5. júlí
1987.
Kristín giftist 16. júní 1945
Hauk Leifs Friðrikssyni, f. 31.
janúar 1923, d. 5. júní 2002. For-
eldrar hans voru Guðlaug Sig-
ríður Pálsdóttir, f. 19. október
1885 á Vestdalseyri í Seyðisfirði,
d. 2. febrúar 1946, og Friðrik
Tómasson, f. 2. nóvember 1897 á
Söndum á Akranesi, d. 29. jan-
úar 1959. Stjúpfað-
ir, Konstantín Alex-
ander Eberhardt, f.
11. nóvember 1896,
d. 8. apríl 1973.
Börn Kristínar og
Hauks eru: 1) Guð-
laug Sigríður, f. 18.
október 1946, maki
Sigurbjörn Sigur-
bjartsson, þau eiga
þrjú börn og fimm
barnabörn. 2)
Konstantín Hinrik,
f. 26. febrúar 1952,
maki Guðný Kristín
Garðarsdóttir, þau
eiga eina dóttur. 3) Smári, f. 12.
júlí 1958, maki Sigurlaug Maren
Óladóttir, þau eiga fjögur börn.
4) Haukur Leifs, f. 3. mars 1964,
sambýliskona Aðalbjörg Sigur-
þórsdóttir, hann á eina dóttur.
Barnsmóðir Erna Kolbrún Sig-
urðardóttir.
Kristín stofnaði Grensásbakarí
ásamt eiginmanni sínum árið
1956 og rak það til ársins 1963
er þau stofnuðu Brauð hf ásamt
fleirum. Síðan stofnuðu þau
Borgarbakarí árið 1984 sem í
dag er Heildsölubakarí.
Útför Kristínar verður gerð
frá Grafarvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Enn og aftur er kominn tími til að
setjast niður og setja á blað örfáar lín-
ur um stórfenglegaa manneskju, sem
ekki er hægt að lýsa með örfáum orð-
um.
Elsku tengdó, þú tókst mér opnum
örmum, aðeins sextán ára inná heim-
ilið ykkar, eins og eitt af börnunum
ykkar. Þannig hefur mér liðið síðan,
sem hluta af ykkur – stórum hluta af
ykkur báðum. Að hafa fengið tæki-
færi til að læra af þér allt sem þú hef-
ur kennt mér í gegnum tíðina er
ómetanlegt.
Eitt það fyrsta sem í hugann kem-
ur er að þú baðst mig að passa vel
uppá „hjartað þitt“ og það loforð hef
ég reynt að standa við.
Síðasta veturinn minn í Ármúla-
skóla voru ófáir morgnarnir sem þú
vaktir mig tíu mínútur í sjö.... því þú
varst alltaf með klukkurnar þína tíu
mínutum of fljótar, svo þú yrðir
hvergi of sein, einn af þínum mörgu
stóru kostum.
Fyrsta veturinn sem við unnum
saman, þar lærði ég alla þína ná-
kvæmni og hreinlæti fra a-ö.
Ekki kom annað til greina þegar
við vorum að kaupa okkar fyrstu íbúð,
en að búa á ykkar heimili. Og þó von
væri á fyrsta barninu, þá þótti það nú
ekki verra.
Þarna stóðuð þið við bakið okkar og
gerðuð ætíð eftir það. Þar bundumst
við þeim vináttuböndum sem aldrei
slitnuðu, fyrstu stundirnar okkar við
eldhúsborðið á Grensásveginum,
spjallað, hlegið og grátið.
Hver var það sem alltaf kom hlaup-
andi inn úr dyrunum ef ég var lasin
eða leið illa? Það var hún Stína, því
eins og þú sagðir: „Það var einhver
sem hvíslaði því að mér“, og það koma
milljón atvik upp í hugann. Fyrstu ár-
in sem við Smári bjuggum saman var
nú oft ekki til fyrir hinu eða þessu og
hver kom þá hlaupandi með brauð eða
köku eða hálfan kjötskrokk? Það var
hún Stína.....
Nú, öll árin sem þú vannst með
honum Hauki – bara rétt að þrífa
borðið svo hann gæti haldið áfram að
vinna. Eða þegar þú varst að vinna
fyrir strákana í fyrsta bakaríinu okk-
ar, þeir voru búnir að reka þig dag-
lega um hádegið..... alltaf komstu
næsta dag. Því þér fannst allt í lagi að
þér létu svona við þig, „Þetta var bara
hún mamma“ sagðirðu, bara að þeir
væru kurteisir út á við.
Ég hugsa að þeir séu ansi margir
sem á þessari stundu senda þér hug-
skeyti og minnast þín, sem þeirrar
sem alltaf var tilbúin að hjálpa öðrum.
Þeir voru ófáir kökupokarnir sem þú
hefur keyrt vítt og breitt um bæinn,
því alltaf þurftir þú að gefa og gleðja
aðra.
Hver var það í Borgarbakaríi sem
passaði uppá að allir kassar væru vel
brotnir saman og hreint í kringum
ruslatunnurnar svo vinnan hjá þeim
sem hirtu ruslið yrði aðeins léttari,
eða þreif áður og gekk vel um fyrir
skúringakonuna? Það var hún Stína.
Því án þessa fólks gátum við hin ekki
unnið vinnuna okkar, sagðirðu.
Þeir minnimáttar máttu aldrei
verða útundan, það sýndir þú best
gagnvart bróður mínum, aldrei
heyrði ég í þér öðruvísi en þú myndir
eftir að spyrja um hann.
Úr öllum ykkar utanlandsferðum
varstu alltaf með eitthvað pínulítið til
Gaua bróður, þú sagðir að þetta væri
„bara lítill hugur“, en það er akkúrat
það, það er hugurinn sem skiptir öllu
máli – enn eitt sem ég er svo þakklát
fyrir í þínu fari.
Það var ekkert einfalt mál að yf-
irgefa ykkur fyrir fjórum árum, að
fara frá fullorðnum foreldrum og fjór-
um bestu vinum okkar. Því fólki sem
við eigum allt að þakka. Erfiðasta
ákvörðun lífs okkar, en það samband
sem upp var byggt, gat engin fjar-
lægð slitið, sem betur fer.
Þegar ég kom heim í febrúar í fyrra
rifjaðist upp þessi dásemd, að geta
sest við eldhúsborðið ykkar og spjall-
að, hlegið og grátið.
Næstu endurfundir urðu fyrr en
varði, eða í júníbyrjun þegar tengda-
pabbi dó. Þú varst búin að hugsa um
hann nótt sem nýtan dag, en þar sem
þið voruð ekki bara hjón heldur
vinnufélagar og vinir líka allt ykkar
líf, þá hvarf svo stór hluti af þér.
Þú reyndir jú að líta þannig á að
hann hefði bara farið í ferðalag og þið
mynduð hittast fljótt aftur, sem og
varð raunin.
Enn og aftur sýndir þú þinn ein-
staka kjark og dugnað þegar þú
komst til okkar í haust þegar Smári
var veikur, sjálf handar- og rifbeins-
brotin, „það var ekkert að þér“ frekar
en fyrri daginn.
Enn baðstu mig að passa vel uppá
„hjartað þitt“ því þú ætlaðir að koma
og kíkja aftur á okkur í mars, sem þú
og gerðir. Gleðin sem skein úr andlit-
KRISTÍN
BENEDIKTSDÓTTIR