Morgunblaðið - 03.06.2003, Side 42
KÁNTRÍKÓNGURINN Hallbjörn Hjartarson er þessa
dagana að leggja lokahönd á plötu sem væntanleg er í
verslanir í mánuðinum. Hallbjörn sendi síðast frá sér
hljóðversplötu 1997, en það var gospelplatan Kántrý 8.
Nýjasta platan er nefnd eftir kettinum Búlla:
„Titillagið er um kött sem ég átti og hét Búlli. Í laginu
segi ég sögu hans og þótti rétt að láta plötuna heita eftir
þessu lagi. Á einni plötunni sem ég lét frá mér söng ég
um hundinn Húgó og það lag hefur verið mjög vinsælt,
sérstaklega hjá börnum og unglingum. Þess vegna datt
mér í hug að búa til lag og segja frá Búlla sem var mjög
skemmtilegur og yndislegur köttur,“ sagði Hallbjörn og
bætti við að vitaskuld fengi síðan mynd af Búlla ketti að
prýða plötuhulstrið.
Lagið um Búlla og annað lag á diskinum, „Hann afi er
ekki afi minn“, samdi Hallbjörn sérstaklega með yngstu
hlustendurna í huga, en annars er platan fyrir alla gerð.
„Það eru 10 spánný lög á henni sem aldrei hafa heyrst
áður,“ sagði Hallbjörn.
Með þessari plötu segist Hallbjörn vera búinn að gefa
út 113 lög. Fyrsta alvöruplata Hallbjörns kom út 1981 og
því er um dágóð afköst að ræða. „Þetta er eitthvað sem
ég ræð ekki við,“ segir Hallbjörn. „Þegar ég er búinn að
gera textann er ég neyddur til að búa til lag. Og þegar
ég er búinn að safna í sarpinn lögum og textum hef ég
ekki frið í mínum beinum fyrr en ég kem þeim frá mér.
Það má segja að þegar ég er búinn að eignast börnin þá
verði ég að ferma þau!“ bætir hann við hlæjandi.
Tónlistin var stór þáttur í uppeldi Hallbjörns og faðir
hans var harmónikkuleikari sem spilaði á böllum fram á
morgna. Barnungur hóf Hallbjörn að spila á böllum með
bræðrum sínum. „Ég horfði á bróður minn spila á gít-
arinn sinn, hvernig hann tók gripin og slíkt. Svo, þegar
hann fór í vinnuna á daginn, stalst ég í gítarinn hans og
rifjaði upp það sem ég sá hann spila – og þannig lærði ég
smám saman á gítar.“
Á heimilinu voru spilaðar plötur með Johnny Cash og
seinna meir fór Hallbjörn að vinna á Keflavíkurflugvelli
þar sem kántrítónlistin glumdi í útvarpinu allan daginn.
Enda fór svo að Hallbjörn tók ástfóstri við kántríið og
hefur síðastliðin tíu ár helgað sig kántríútvarpi sínu og
býli sínu, Kántríbæ á Skagaströnd, sem fyrir löngu er
orðinn landsþekktur og laðar að sér fjölda gesta ár
hvert.
Þess má geta að söfnunarreikningur hefur verið opn-
aður til þess að útvarpsstöð Hallbjörns geti sent út á höf-
uðborgarsvæðinu.
Hallbjörn Hjartarson gefur út plötu í mánuðinum
Óður til Búlla
Morgunblaðið/Jim Smart
Í Búlla-stuði: Hallbjörn Hjartarson kántrýkóngur var í
miðjum upptökum þegar ljósmyndara bar að garði.
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 500 kr.
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 12
500
kr
kl. 3.40, 5.50, 8 og 10. B.i.16
Einn óvæntasti
spennutryllir ársins!
Hrikalega mögnuð
mynd sem kemur
óhugnarlega á
óvart!
Fórbeint á toppinní Bandaríkjunum!
Frá framleiðanda
the Others og
Mission Impossible
kemur magnaður
þriller með
Ray Liotta og
Jason Patrik
Athyglisverðasta spennumynd ársins.
Missið ekki af þessari
Sýnd kl. 8. B.i. 16.
„Hrottalegasta
mynd
síðari ára!“
HK DV
SV MBL
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10. B.i. 16 ára
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.Sýnd kl. 6.
Einn
óvæntasti
spennu-
tryllir
ársins!
Hrikalega
mögnuð
mynd sem
kemur
óhugnarlega
á óvart!
Fór beint á toppinn í Bandaríkjunum!
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 8 og 10.
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Félagsþjónustan í Reykjavík veitir í samvinnu við
Félagsráðgjöf Háskóla Íslands námsstyrki fyrir skólaárið
2003–2004. Styrkirnir eru eingöngu veittir karlmönnum
sem stefna að löggiltu starfsréttindanámi í félagsráðgjöf
og sem hafa lokið a.m.k. eins árs námi á háskólastigi.
Styrkurinn er kenndur við Þóri Kr. Þórðarson,
prófessor og fyrrum borgarfulltrúa, sem var
brautryðjandi nútíma félagsþjónustu í Reykjavík.
Markmið styrkveitingarinnar er að fá fleiri karla
til ráðgjafarstarfa hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík
og stuðla að jafnrétti undir formerkjum jákvæðrar
mismununar, sem felur í sér að ef hallað er á annað
kynið sé réttlætanlegt að grípa til tímabundinna
aðgerða til að jafna kynjahlutfall í ákveðnum stéttum
og atvinnugreinum.
Styrkveitingin er jafnframt hluti samstarfs
Félagsþjónustunnar við Félagsráðgjöf Háskóla
Íslands, en það samstarf felur m.a. í sér starfsþjálfun
félagsráðgjafarnema, rannsóknarsamstarf og kostun
tímabundinnar lektorsstöðu í félagsráðgjöf.
Umsækjendur þurfa að leggja fram skriflega umsókn
þar sem eftirfarandi atriði koma fram:
• Nafn, kennitala, heimilisfang og fjölskylduaðstæður.
• Upplýsingar um starfs- og námsferil.
• Stutt ritgerð með hugmyndum umsækjanda um
félagsráðgjöf og mikilvægi þess að karlmenn
laðist að greininni.
Það skilyrði fylgir úthlutun styrksins að styrkþegi
skuldbindi sig til starfa hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík
í a.m.k. eitt ár eftir að starfsréttindanámi lýkur.
Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Umsóknum skal
skila til skrifstofu félagsmálastjóra, Síðumúla 39, 108
Reykjavík (tölvupóstfang: felags@fel.rvk.is). Sérstök
úthlutunarnefnd, skipuð fulltrúum Félagsþjónustunnar
í Reykjavík og Félagráðgjafar Háskóla Íslands, velur
væntanlega styrkþega úr hópi umsækjenda.
Félagsmálastjórinn í Reykjavík.
Styrkir til
háskólanáms
fyrir karla
MANUELA Ósk Harðardóttir tek-
ur ekki þátt í keppninni um
Ungfrú alheim, sem fram fer í Pan-
ama í kvöld. Manuela, sem hefur
dvalið í Mið-Ameríkuríkinu frá 16.
maí, veiktist á fimmtudag og var
lögð inn á sjúkrahús með heift-
arlega bakteríusýkingu í maga eft-
ir að hafa hnigið niður á sviðinu.
„Hún er búin að vera heilt ár að
undirbúa sig þannig að þetta er
mjög sorglegur endir. Þetta leit
allt mjög vel út,“ segir Elín Gests-
dóttir, framkvæmdastjóri Fegurð-
arsamkeppni Íslands.
Elín útskýrir að forkeppnin hafi
farið fram á fimmtudag og föstu-
dag og dómaraviðtöl hafi verið
haldin á laugardaginn. „Eftir þessa
forkeppni er búið að velja efstu
fimmtán stelpurnar. Það sem ger-
ist í útsendingu er að þá er verið
að velja topp fimm úr þessum
fimmtán,“ segir hún en Manuelu
var boðið að vera með í keppninni í
kvöld. Elín segir að það hefði þýtt
þrotlausar æfingar, sem hefði ver-
ið of erfitt fyrir Manuelu þar sem
hún er ekki enn orðin nógu hraust.
„Það var mjög vel hugsað um
hana þar, bæði af læknum, hjúkr-
unarliði og forsvarsmönnum
keppninnar úti,“ segir Elín en
Manuela var útskrifuð af sjúkra-
húsinu á sunnudag. „Hún er nátt-
úrulega mjög máttfarin eftir þetta
en hún er að hressast,“ bætir Elín
við.
Fleiri stelpur í keppninni veikt-
ust en engin eins hastarlega og
Manuela. „Þær veiktust fjórar til
viðbótar en engin önnur var lögð
inn á sjúkrahús,“ segir Elín.
Manuela hefði verið fyrsti kepp-
andinn í Ungfrú alheimi fyrir Ís-
lands hönd í nokkurn tíma. „Þetta
er dapurlegt því við erum að senda
keppanda í fyrsta sinn síðan 1997.
Þannig að það er kannski ennþá
leiðinlegra að þetta skuli enda
svona,“ segir Elín.
Manuela tekur ekki þátt í fleiri
keppnum sem fegurðardrotting
Reykjavíkur og Íslands 2002 því
nýbúið er að krýna nýja Ungfrú Ís-
land. Hún hefur þó náð góðum
árangri í fegurðarsamkeppnum
hingað til því hún lenti í öðru sæti í
keppninni Ungfrú Norðurlönd, sem
fram fór í nóvember á síðasta ári.
Ekki var hægt að ræða við Man-
uelu í Panama og óska henni góðs
bata þar sem hún er ekki búin að
ná sér að fullu. Manuela nær þó að
koma heim til Íslands á morgun
eins og áætlað var.
Manuela tekur ekki þátt í Ungfrú alheimi í Panama í kvöld
Hneig
niður á
sviðinu
Þessi mynd af Manuelu Ósk Harð-
ardóttur er tekin á sviði í Panama á
kynningu á keppendum, skömmu
áður en hún hneig niður vegna
bakteríusýkingar í maga.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111