Morgunblaðið - 03.06.2003, Page 47
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2003 47
! "#$ %
#" & #'
! "
)
)
#$
( " ! " #$
( " #!%&''()
# *(%
+,-)) # ),&
.&-
)&$ (
*
*
*
*
!! "
( )
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
+," " ## " --.#" !" #'" /"
#0 / 1
(& 1##--.#" !" #')
.#"!" (
! '(/0122 +!-
!" #
$ #
%& ' () /0122 -3!$ ) "!
23""--.#" , !& #'(
45 ,$& 45 ,$& 45 ,$&
,6/!7 /
89&-!7 /
/&,6 -))!$ /&:3!
!;!6,
<&&/
<!))!))&!=
>#)*? 8,-,
@) !&'"!!*
4.
40
"#(/(4(
4.
4.
#4!
4.
14.
5!4
14.
14.
14.
9//*#"&
A,)/
&: !)-9B
9+9
! )
"),+!"
!/ A!":9 8,
-!7,
4.
4.
4.
4.
14.
14.
4.
4.
;!!-!
!)!"!)
8!C,9!
;!9C!
#"
,,6!
D',-
;9,!
A!!E
<,B 5*C!-9
!+9
14.
14.
14.
4/
14.
5!4
4/
14.
4.
""&+!-&
6! #*!" #)*%(
,/ "##" 0')#4.
4!"0 4!/ #'
# (+"(
?)&+!-&F!&-!+!-&9-)&&+!-&
6! "!"'/ "##"
0' #'#! #*!" # )
# ## 4. 4!"5
(+")
#! !" #'# (
! ;$7/&+!-&
6! ")/ *%)
4. 4!"('/
"##")# ' #'
7* !" "##"(+"(
**'
+'
*,&
+-
"#$
"#$
%$
&$
%$
'$
($
)$
*$
($ ($
ÚTVARP/SJÓNVARP
HEI, HELGIN er bara býsna löng!
Heilir tveir dagar. Og það er hægt
að gera ýmislegt á tveimur dögum,
finna sér margt til dundurs, meira
að segja fara út fyrir hússins dyr og
jafnvel leggja land undir fót, sé sá
gállinn á manni. Að þessu komst ég
þegar enski boltinn var flautaður af.
Boltaunnendum til ómældrar
ánægju, og öðrum ennþá meiri ama,
hafa vetrarhelgar, og eiginlega öll
vikan, verið undirlögð af beinum út-
sendingum frá kappleikjum í enska
boltanum, spænska boltanum, þýska
boltanum og Evrópukeppnum. Of-
aná það bættist svo Formúlan,
hnefaleikarnir, golfið, körfuboltinn
og handboltinn. Og eru einungis
upptaldar beinar útsendingar frá
erlendum íþróttaviðburðum. Yf-
irgengilegt segja sumir, himneskt
aðrir. Misjafn er mannsins smekkur
og ekkert fær því breytt – ekki einu
sinni hærri afnotagjöld eða hjóna-
skilnaður.
Sjálfur læt ég mér nægja enska
boltann. Átti meira að segja fullt í
fangi með að komast yfir hann því
sjónvarpsstöðvar Norðurljósa hafa
verið hreint ótrúlega duglegar við
að sýna frá ensku leikjunum. Full-
yrða Norðurljósamenn að Sýn sé
besta íþróttastöðin í heimi og svei
mér þá ef það er bara ekki rétt hjá
þeim. Efast allavega um að nokkurs
staðar finnist stöð sem býður upp á
eins gott og mikið úrval af beinum
íþróttaútsendingum og það fyrir
þennan pening. Víða annars staðar
er nefnilega stór hluti þessa efnis
seldur í „stykkjavís“, hver útsending
fyrir sig, skv. svokölluðum „pay-per-
view“-skilmálum. Það á sannarlega
við stærri hnefaleikakeppnir og
góðan hluta ensku leikjanna. En hér
er þetta blessunarlega allt inni í ein-
um Sýnarpakka (mætti reyndar
hætta að dreifa þeim enska á tvær
stöðvar).
En málið er ekki að sýna bara
nógu mikið, heldur verður líka að
vanda til valsins, hvaða leiki/
bardaga á að sýna, frá hvaða deild-
um. Og þar eiga þeir hjá íþrótta-
deild Norðurljósa enn eina rós í
hnappagatið skilið, því nær undan-
tekningarlaust hafa þeir hitt nagl-
ann á höfuðið. Tvö góð dæmi eru
hversu þeir leggja sig fram um að
sýna frá leikjum Íslendingaliðanna
og að hafa skipt um deild, farið að
sýna frá stórskemmtilegum
spænska boltanum í stað hins graut-
fúla ítalska.
Þótt vissulega megi velta sér upp-
úr vinnubrögðum íþróttafrétta-
mannanna sjálfra, misjöfnum lýs-
ingum þeirra, þá standa þeir
yfirhöfuð vel fyrir sínu, halda vel ut-
an um þennan dýrmæta pakka sinn
sem enski boltinn er. Skýrasta dæm-
ið um þessa alúð er hinn stórfíni 4-
4-2, þáttur sem er algjörlega sniðinn
að þörfum sparkunnenda, enda
stjórnað af tveimur slíkum.
Mér skilst að samningur Norður-
ljósa um sýningarrétt á enska bolt-
anum renni út á næsta ári. Líkt og
trúlega aðrir unnendur þessa sjón-
varpsefnis óttast maður fátt meira
en óstöðugleika og óvissuna um
hvað gerist þegar samningurinn
rennur út. Hvort Norðurljósamenn
eða einhverjir aðrir tryggja sér sýn-
ingarréttinn eftir það skiptir ekki
máli, svo fremi sem veislan haldi
áfram. En fari svo að aðrir ætli sér
að hreppa hnossið þá bíður þeirra
ærið verk, ætli þeir sér að gera bet-
ur við það en Norðurljósamenn hafa
gert.
Það er reyndar alveg ágætt að
hvíla sig svolítið á boltanum, rétt
eins og maður hafði gott af sum-
arfríi Gufunnar hér áður fyrr og
sjónvarpslausum fimmtudögum.
Fóru skelfilega í taugarnar á manni
en vissi samt innst inni að þetta væri
manni kannski fyrir bestu.
Boltinn helgi
LJÓSVAKINN
Skarphéðinn Guðmundsson
SÍÐASTLIÐIN þrjú sumur hefur
Elín María Björnsdóttir verið fasta-
gestur í stofum landsmanna en hún
á veg og vanda af Brúðkaupsþætt-
inum Já.
Í dag hefur þátturinn göngu sína
í fjórða skiptið og er áhorfendum
leyft að fylgjast með brúðkaupum
af ýmsu tagi auk þess sem fjallað er
um ýmislegt sem tengist brúð-
kaupum.
Þátturinn verður með svipuðu
sniði og áður, að sögn Elínar Maríu:
„Hann verður með hefðbundnu
sniði. Undanfarin þrjú ár hef ég
verið að bæta þáttinn og held mig
við sömu efnistökin þótt vitaskuld
verði eitthvað um nýjungar.“
Alls hafa tólf pör leyft Elínu að
koma og fylgjast með brúðkaupum
þeirra og aðdraganda brúðkaups-
ins og fær eitt parið að launum
glæsilega ferð til útlanda.
Einnig ræðir Elín við pör sem
gift hafa verið til lengri eða
skemmri tíma sem rifja upp brúð-
kaupsdaginn sinn.
„Við heimsækjum meðal annars
útibrúðkaup, brúðkaup að kaþ-
ólskum sið og hjónavígsluathöfn á
Snæfellsjökli,“ segir Elín.
Að sögn Elínar hafa viðbrögðin
við þáttunum verið mjög góð.
„Þetta er jákvætt sjónvarpsefni
sem sýnir fólk í blóma lífsins að
gera eitthvað skemmtilegt, og eng-
ar áhyggjur hafðar af öðrum mál-
um. Þættirnir segja líka frá mann-
lífinu eins og það er, enda förum
við á staðinn og tökum hlutina upp
eins og þeir koma fyrir sjónir.“
Elín jánkar því þegar hún er
spurð hvort þættirnir höfði meira
til annars kynsins en hins: „Það vill
loða við okkur kvenþjóðina að þau
heilla okkur, brúðkaupin. Áhuginn
byrjar ekki jafnsnemma hjá strák-
unum á meðan sex ára stelpur eru
oft límdar við skjáinn þegar þátt-
urinn er sýndur. Þeir segja mér þó,
margir karlarnir sem hafa komið
fram í þættinum, að þegar þeir
mæta til vinnu eftir sýningu þátt-
anna séu það konurnar á vinnu-
staðnum sem þyrpast fyrst að þeim
en þegar líða fer á daginn skjóti
karlarnir á vinnustaðnum upp koll-
inum og reyni að láta ekki mikið á
því bera að þeir sáu þáttinn.“
Elínu Maríu til aðstoðar er Einar
Árnason, myndatökumaður hennar
til þriggja ára, en upptökustjórn-
andi er Guðmundur Rúnar Krist-
jánsson.
Brúðkaupsþátturinn Já hefur göngu sína fjórða árið í röð
Allt um brúðkaup
Elín María Björnsdóttir færir
áhorfendur í allan sannleik um
gleðina í kringum brúðkaup.
Brúðkaupsþátturinn Já er á dagskrá
Skjás eins á þriðjudögum kl. 21.
Þátturinn er endursýndur á mið-
vikudögum kl. 18.30, föstudögum kl.
23.50 og sunnudögum kl. 17.