Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANLAUGAR RÓSU VILHJÁLMSDÓTTUR, sem andaðist á Skógarbæ 14. maí. Sérstakt þakklæti til starfsfólks Hólabæjar í Skógarbæ og á hjúkrunarheimilinu Víðinesi fyrir góða umönnun. Alúðarþakkir fær Jón Eyjólfur læknir fyrir að annast hana frá því hún veiktst. Hjördís Sigurðardóttir, Ásgeir Hjörleifsson, Þrúður G. Sigurðardóttir, Björn H. Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, BIRNA KRISTBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hornbrekku, Ólafsfirði, er lést þriðjudaginn 3. júní, verður jarðsett frá Ólafsfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. júní kl. 14. Gunnar Björnsson, synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, ARNGRÍMUR VÍDALÍN JÓNSSON, lést á heimili sínu föstudaginn 23. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Garðar Örn Arngrímsson, Rebekka Ýr Arngrímsdóttir, Jóna Sólveig Magnúsdóttir og systkini. Faðir okkar, SVEINN BJARNASON frá Hvannstóði Borgarfirði eystra, sem lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum þriðju- daginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Bakka- gerðiskirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á slysa- varnasveitina Sveinunga, Borgarfirði. Börn og tengdabörn. ✝ Halla Sigtryggs-dóttir fæddist í Reykjavík 7. júlí 1933. Hún lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi 27. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Vil- helmína Þórdís Vil- hjálmsdóttir, ættuð frá Reykjum á Skeið- um, og Sigtryggur Eiríksson frá Votu- mýri á Skeiðum. Þau áttu, auk Höllu, son- inn Vilhjálm og dótt- urina Þórdísi. Makar þeirra eru Herdís Guðmundsdótt- ir og Hörður Halldórsson. Halla giftist árið 1953 Baldri G. Bjarna- sen flugvirkja og eignuðust þau fjögur börn saman, Þórdísi, Ósk- ar, Sigtrygg og Guðjón Þór. Þórdís er gift Gísla Guðmunds- syni og eiga þau fjögur börn, tví- burana Arndísi og Höllu og Rann- veigu og Stefán Örn. Óskar er kvæntur Sigrúnu Birgisdóttur og eiga þau tvær dætur, Söru og Þór- dísi. Sigtryggur er kvæntur Sig- rúnu Hrafnsdóttur og eiga þær dæturnar Unu og Eyrúnu. Guðjón Þór er ókvæntur. Strax eftir giftinguna settust Halla og Baldur að í Kópavogi og áttu þar lögheimili, lengst af í Laufbrekku 13, en árið 2000 flutt- ust þau til Blönduóss, þar sem dóttir þeirra hefur búið síðustu 12-13 árin. Á sjöunda ára- tugnum bjó Halla ásamt fjölskyldu sinni nokkur ár í Stavanger í Noregi og síðan í byrjun átt- unda áratugarins á Long-Island í New York í þrjú ár. Var þetta vegna starfs eiginmannsins. Öll þessi ár var Halla fullstarfandi hús- móðir, enda börnin á öllum aldri. Eftir heimkomuna frá Banda- ríkjunum starfaði hún þó nokkuð innan K.F.U.K. og stjórnaði ung- lingastarfinu í Kópavogi. Einnig gerðist hún félagi í Soroptimista- klúbbi Kópavogs 1981 og starfaði þar til þess tíma, er hún flutti til Blönduóss. Innan þess klúbbs gegndi hún ýmsum trúnaðarstörf- um, sem sé ritari stjórnar og eitt tímabil sem formaður. Árið 1987 innritaðist hún í Fóst- urskóla Íslands og lauk þaðan prófi 25. maí 1990. Starfaði hún síðan á hinum ýmsu barnaheim- ilum í Kópavogi um nokkura ára skeið. Útför Höllu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast tengda- móður minnar í örfáum orðum. Mín kynni af Höllu hófust fyrir þrjátíu og tveimur árum. Okkar samband var mjög gott, pínulítið var hún tortrygg- in í byrjun en það var nú bara eðli- legt. Við urðum góðir vinir. Mér varð fljótt ljóst að Halla var mjög vel gefin kona og skörp, svo að manni fannst stundum nóg um. Því að ég fékk það á tilfinninguna að hún læsi hugsanir manns. Höllu þótti alltaf gaman að læra. Hún lauk nokkrum stigum í píanóleik við Tónlistarskóla Kópavogs. Ákvað hún síðan fimmtíu og fjögra ára að hefja nám í Fóstruskólanum sem hún lauk með stæl og var elsti nemandinn sem útskrifast hefur frá skólanum. Síðan starfaði hún sem fóstra í Kópa- vogi í nokkur ár. Það var öllum ljóst sem kynntust þeim hjónum að þau voru mjög sam- rýnd. Þau fluttust víða vegna starfa manns hennar og bjuggu nokkur ár erlendis bæði í Noregi og Bandaríkj- unum. Það kom mörgum á óvart þeg- ar þau ákváðu að flytjast norður í land fyrir þremur árum. Það var mjög ánægjulegt fyrir mig og mína fjölskyldu að þau skyldu gera það en árin urðu færri en ætlað var. Fyrir fjórum mánuðum greindist hún með krabbamein sem hún lést úr. Mig langar til að kveðja hana með þessu versi sem hún söng oft fyrir börnin mín: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Missir þinn er mikill, Baldur minn. Guð gefi þér bæði trú og styrk. Gísli Guðmundsson. Elskuleg tengdamóðir mín, Halla Sigtryggsdóttir, er látin. Söknuður minn til fallegrar og góðrar konu er sár og ekki síst mannsins míns og dætra. Dætur mínar sakna ömmu Höllu óskaplega mikið. Þær elskuðu ömmu Höllu, því hún var ekta amma. Það kom mér ekki á óvart þegar hún fór í fósturskólann eftir 50 ára aldur því hún var svo barngóð. Hún var lagin í höndunum og ég og fleiri eig- um vettlinga, trefla, peysur og annað eftir Höllu. Ég var 15 ára þegar ég kynntist syni hennar, Óskari, og hann var 19 ára. Mér var strax vel tekið þó að Baldri tengdapabba hafi fundist ég fullung og orðið mjög feginn þegar ég náði 16 ára aldri. Ég tók fljótlega eftir að samband Höllu og Baldurs einkenndist af einskærri ást og virð- ingu þeirra á milli sem og gagnvart börnum þeirra. Hún var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd eins og þegar Sara okkar fæddist, við ung og í skóla, þá gætti hún hennar nær dag- lega. Þegar Óskar fór í nám tveimur árum seinna kom hún með okkur og var í nokkra daga til að hjálpa unga fólkinu í framandi landi. Ég þakka fyrir þau ár sem ég átti með Höllu. Blessuð sé minning hennar. Sigrún (Dúra). Okkur langar til þess að minnast ömmu Höllu með nokkrum orðum. Það er sárt að vita að amma er farin frá okkur en eftir sitja margar góðar minningar um hana. Við vorum mikið hjá ömmu og afa í gegnum árin og það var gott að koma og vera hjá þeim. Amma átti alltaf eitthvað gott handa okkur að borða og munum við helst eftir heitu jólakökunni og kakó- maltinu sem við borðuðum bara heima hjá ömmu og afa í Lauf- brekku. Það var margt sem við lærðum af henni ömmu, hún var meðal annars ávallt tilbúin að hjálpa okkur við ým- iskonar handavinnu og alltaf var hún þolinmóð þótt við værum klaufskar í byrjun. Eins var alltaf hægt að finna eitthvað flott í skápunum hjá henni sem hún leyfði okkur að nota. Þegar við vorum yngri leyfði hún okkur að leika með skartgripina sína og okkur þótti það mjög gaman. Þá átti amma mikið og flott hattasafn sem okkur fannst gaman að leika með og brá hún oft á leik með okkur. Amma kenndi okkur marga söngva í gegnum tíðina og söng hún mikið með okkur þegar við vorum yngri í bílnum. Einnig var það fastur liður þegar við gistum heima hjá þeim afa, að amma söng fyrir okkur áður en við fórum að sofa. Við eigum eftir að sakna ömmu Höllu mikið en við vitum að hún er á góðum stað núna. Minning hennar mun ávallt vera hjá okkur. Með þess- ari bæn sem við sungum oft saman viljum við kveðja hana ömmu okkar. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Elsku afi, missir þinn er mikill. Guð gefi þér styrk og trú á þessum erfiðu tímum og það munum við líka gera. Arndís, Halla og Rannveig Gísladætur. Ég man þegar ég gisti hjá ömmu og afa þá fór ég stundum í bað og þá gaf amma mér alltaf súkkulaði og kók til að hafa með í baðið. Mig langar til að kveðja hana ömmu með þessari bæn. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Stefán Örn Gíslason. Nú er hún elskulega, góða og hlýja amma mín farin og hennar er sárt saknað. Ég þakka fyrir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman, sérstaklega þegar ég fékk að fara ein með henni og afa til Lúx- emborgar fyrir nokkrum árum. Þá dekruðu þau við mig eins og þeim var einum lagið og þegar við komum heim hringdi amma í mig bara til að bjóða góða nótt. Það var alltaf svo gaman og notalegt að gista hjá þeim. Við frænkurnar fengum stundum að kíkja í skartgripaboxið hennar ömmu, hún átti svo margt fallegt frá útlöndum. Við klæddum okkur upp með slæðurnar hennar, skó og hatta. Á kvöldin spjölluðum við amma svo saman, sungum bænirnar og hún klóraði og strauk mér um hendurnar. Hún var alltaf svo flink í höndunum, prjónaði á okkur barnabörnin og aðra í fjölskyldunni. Saumakarfan sem hún bjó til, mannakornin, Nýja testamentið og fleira sem hún gaf mér eru dýrmætir gripir í mínum augum. Blessuð sé minning ömmu minnar. Sara. Elsku amma mín er nú farin, þessi hlýja og góða amma. Ég man þegar ég var lítil hversu góð hún var alltaf við mig og öll barnabörnin. Það var svo spennandi að gista heima hjá henni og afa. Hún leyfði mér að fara í gömlu ballskóna sína síðan hún var ung og máta alla skartgripina. Þetta var svo gaman því hún lét mann alltaf líta út eins og litla prinsessu. Á kvöldin þegar ég var að fara að sofa söng hún fyrir mig þessa fallegu sálma sem ég sofnaði út frá eða las skemmtilegar bækur. Amma og afi fengu að gista hjá okkur þegar þau komu í bæinn frá Blöndu- ósi. Þau gistu í mínu herbergi og ég var mjög ánægð með að geta lánað þeim það. Þau voru alltaf svo þakk- lát. Þegar amma var hjá okkur töl- uðum við oft saman eins og bestu vin- konur og ég sakna þess mjög mikið. Amma var ekki aðeins amma í mín- um augum heldur líka góð vinkona. Hún bjó til marga fallega hluti handa mér sem vekja minningar. Ég vil þakka guði fyrir góðar minningar um góða konu og vil enda þessa grein á sálmaversi sem hún var vön að fara með þegar ég var að sofna hjá henni. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Þórdís. Það fyrsta sem hefur áhrif á ný- fætt barn er lykt. Ilmur af móður leiðir barn að brjósti. Sennilega ræð- ur lykt meiru en við gerum okkur grein fyrir í lífi okkar. Þegar ég hugsa til Höllu frænku finn ég svo sterkan ilm af útlöndum. Að koma í Auðbrekkuna var ekki bara heimsókn í Kópavoginn til frænda og frænku, heldur líka upp- lifun framandi hluta. Macintosh, Mars, grillað brauð með beikoni, kal- kúnar, svínakjöt. Og gjafirnar, mað- ur lifandi, bleikröndótti kjóllinn frá Ameríku. Allt var svo nýtt og spenn- andi fyrir litla frænku. Varla er hægt að tala um Höllu í eintölu, svo samofin var hún eigin- manni sínum og fjölskyldu. Hún var mikil móðir, ekki bara sinna barna, heldur margra annarra. Hún gerði allt af alúð ástríkrar móður. Matur- inn var borinn á borð af tilfinningu og umhyggju og prjónarnir tifuðu í takt við hjartað. Það var ekki undarlegt þótt Óskar frændi væri styggur með stóra nestisboxið sitt í skógræktinni í gamla daga. Það hafði að geyma eitt- hvað sem allir girntust. Frá brauði að dásamlegri Deisí leisí köku. Öllu fyr- irkomið eins og í fínasta mósaíklista- verki. Halla var, líkt og margar íslenskar konur, þessi sérstaka blanda af heimasætu og heimskonu. Glatt sinni og hlýleiki voru sterkustu eðlisþættir hennar. Hún tjáði væntumþykju sína opinskátt og óþvingað. „Sæll frændi, sæl frænka.“ Hver kannast ekki við þessar kveðjur? Halla elskaði Ísland og þó mest það sem yfir allt var hafið og öllu betra, Skeiðin í Árnessýslu. Þar liggja rætur hennar. Þar á hún skyld- menni og þangað sóttu foreldrar hennar og systkini, sem hún unni hugástum, orku sína og næringu. Nú er Halla horfin til feðra sinna, kjarkmikl ljósbjört kona og móðir, sem þó glataði aldrei stelpunni í sjálfri sér. Við systkinin, makar og börn sendum Baldri og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vertu sæl, frænka. Þökk fyrir allt. Bergljót, Vilhjálmur, Ingunn og fjölskyldur. Kveðja frá vinahóp sem kennir sig við Éljagang Vinahópur sem kemur saman ár eftir ár allt frá unglingsárum, á sam- an margar minningar sem geymast allt til elliára. Einn og einn hverfur úr hópnum og harmur er kveðinn að þeim sem eftir lifa. Í dag er Halla Sigtryggsdóttir, eiginkona Baldurs Bjarnasens, félaga okkar, kvödd. Hún tók oft á móti okkur á heimili þeirra í Auðbrekkunni þegar við átt- um samverustundir. Við fundum vel hve glöð og hress í bragði hún var þegar hún heilsaði okkur og bar fram veitingar en nú eru aðeins eftir góðar minningar og þakklæti til hennar og þeirra hjóna. Við biðjum Guð að styrkja Baldur og ástvini þeirra og orð Guðs megi færa þeim huggun og hughreystingu í sorg þeirra. Fyrir hönd félaganna Sigursteinn Hersveinsson. HALLA SIGTRYGGSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Höllu Sigtryggsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.