Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Kiel kemur í dag. Þerney, Helgafell, Venus og Dettifoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Eridan, Obsha og Sapphire koma í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskju- gerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíða og handa- vinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 14– 15 dans. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 op- in handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16 opin vinnustofa, kl. 13.30 söngtími, kl. 15.15 dans. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Billjardstofan er opin alla daga kl. 13.30 til 17, panta þarf tíma í Hraunseli í síma 555 0142 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids í dag kl. 13. Muna að skrá sig tímanlega í ferðir. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf, kl. 10.30 helgistund, kl. 11 kór- æfing, frá hádegi spilasalur opinn og vinnustofur opnar. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 9.05 og 9.50 leikfimi, kl. 10.50 leik- fimi, kl. 9.30, klippi- myndir, kl. 13 gler og postulínsmálun, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans. Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í Austfjarð- arferðina 23. til 27. júní. Upplýsingar í síma 554 3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, handavinnustofan opin frá kl. 13–16. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og perlu- saumur, og hjúkr- unarfræðingur á staðnum, kl. 9.05 leik- fimi, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé- lagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 bútasaumur, kl. 10 boccia, 13.30 fé- lagsvist. Fótaaðgerðir, hárgreiðsla. Korpúlfar Grafarvogi samtök eldri borgara, hittast á fimmtudög- um kl. 10, aðra hverja viku er púttað á Korpúlfsstöðum en hina vikuna er keila í Keilu í Mjódd. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13– 16.45 leir, kl. 10–11 ganga. Vesturgata 7. Kl. 9– 16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia, kl. 13–14 leik- fimi. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 opin vinnustofa og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia-æfing, kl. 13 handmennt og spilað. Vorferð verður farin 11. júní kl. 12.30, Grindavík, Herdís- arvík, Strandakirkja, Þorlákshöfn að Ölfus- árósum, þar drukkið kaffi, síðan ekið um Eyrarbakka, Stokks- eyri, Selfoss og Hveragerði á heim- leið, uppl. og skráning í síma 561 0300. ITC-Melkorka Mæt- ing í Freyjulundi kl. 19 í kvöld. Uppl. í síma 554 3381. Hrefna. Brúðubíllinn Brúðubíllinn verður í dag, fimmtudaginn 5 júní, kl. 14 við Árbæj- arsafn og á morgun föstudaginn 6. júní kl. 10 við Arnarbakka og kl. 14 við Austurbæj- arskóla. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort ABC hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561-6117. Minn- ingargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Ágóðinn fer til hjálpar nauð- stöddum börnum. Í dag er fimmtudagur 5. júní 156. dagur ársins 2003, fardagar. Orð dagsins: Orð dagsins: Hver sem ekki tekur sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður. (Matt. 10, 38)     Þorsteinn Már Bald-vinsson, forstjóri Samherja, gagnrýndi Seðlabankann og Má Guðmundsson, aðal- hagfræðing bankans, í Fréttablaðinu í fyrra- dag. Að vonum hefur Þorsteinn áhyggjur af áhrifum hás gengis krónunnar á íslenskan iðnað, sem fær færri krónur fyrir tekjur í er- lendri mynt en ef gengið væri lægra.     Þorsteinn kallaði eftiraðgerðum Seðla- bankans. „Ég hef ekki trú á því að atvinnulíf í landinu þoli þetta gengi, annað en það sem er óháð gjaldmiðlunum. Þegar ég heyri í Má Guð- mundssyni, aðal- hagfræðingi Seðlabank- ans, spyr ég sjálfan mig hvort við búum í sama landi. Ég óttast að stjórnendur Seðlabank- ans hafi ekki skilning á atvinnulífinu, því þeir hafa ekki reynslu af því að starfa innan þess,“ sagði hann.     Þessi gagnrýni er aðmörgu leyti ómak- leg. Ástæðan fyrir því að gengi íslensku krón- unnar er svo hátt sem raun ber vitni er meðal annars væntingar um hinar miklu fram- kvæmdir sem fyrirhug- aðar eru í stóriðju á Austurlandi.     Þessar væntingar umtekjur utan úr heimi valda því að eftirsókn- arvert er að eiga krónur, frekar en ýmsa aðra gjaldmiðla. Þess vegna hækka þær í verði, þann- ig að fyrir hverja krónu fást fleiri einingar af öðrum gjaldmiðlum.     Þetta er afleiðingfrjálsra fjármagns- flutninga, sem er lítt um deilt fyrirkomulag hjá hagfræðingum heimsins eins og frelsi á öðrum mörkuðum. Við þessu getur Seðlabankinn lítið gert með stýritækjum sínum, nema til skamms tíma. Enda er opinbert markmið bankans ekki að halda genginu föstu, heldur halda verðbólgu lágri.     Már Guðmundssonsamdi ekki við Alc- oa um einar mestu fram- kvæmdir Íslandssög- unnar. Því er ansi hæpið að kenna honum um ástand mála. Reyndar mótmæltu fáir þeirra, sem nú bölva hágenginu, framkvæmdunum á sín- um tíma.     Þeir sem hafa áhyggj-ur af genginu ættu að beina tilmælum sínum til hins opinbera, því það sem myndi raunverulega hjálpa íslenskum iðnaði við þessar aðstæður væri aðhald í fjármálum ríkis og sveitarfélaga, með lækkun skatta samfara minnkandi útgjöldum. STAKSTEINAR Stýrir Már Guðmunds- son gengi krónunnar? Gúrkutíð VIÐ þekkjum íslenskar ag- úrkur og við viljum borða ís- lenskar agúrkur. En við vilj- um þessar stóru, fallegu, safríku agúrkur. Á þessum tíma árs, þegar við erum sjálfum okkur nóg með ag- úrkuframleiðslu, þá verður maður undrandi að finna bara litlar, hálfþroskaðar gúrkumjónur í stórmörkuð- unum. Þegar ég rakst á þessar píslir í „búðinni minni“ í dag, varð það til þess að ég gerði snögga könnun. Ég fór í fimm stór- markaði og alls staðar var sama sagan. Stórmarkað- irnir selja í dag gúrkur í stykkjatali, en ekki eftir vigt. Á umbúðunum stendur að þær séu (a.m.k.?) 350 gr og ég hugsaði: Er þetta sér- stakt agúrkukyn, sem hætt- ir að vaxa, þegar það hefur náð 350 gr þyngd? Eru ræktendur með vigtina á lofti í gróðurhúsinu? Eigum við að sætta okkur við hálf- vaxna agúrkuunglinga? Er kannski hagkvæmara fyrir stórmarkaðinn að selja ag- úrkur í stykkjatali en eftir vigt? Hvað er með mig og þig? Hvenær fáum við aftur okkar stóru, góðu og ljúf- fengu agúrkur, sem íslensk- ir garðyrkjubændur geta framleitt og hafa framleitt fyrir okkur á liðnum árum? Gunnar Dýrahald Kisu vantar heimili SANDRA óskar eftir heim- ili vegna ofnæmis á núver- andi heimili. Hún er þriggja ára læða, brúnyrjótt, ósköp góð en ekki mjög kelin. Sandra er mikið fyrir úti- veru og væri æskilegt að hún fengi að vera úti góðan part af degi á nýja heim- ilinu. Áhugasamir geta haft samband í síma 553 6149. Gári týndist LÍTILL blár gári týndist frá Hátúni 10 sl. laugardag. Þeir sem hafa orðið hans varir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 557 1248. Misty er týnd LÆÐAN Misty hvarf frá heimili sínu í Kópavogi fyrir nokkrum dögum síðan. Misty er eins árs, fremur smágerð og feimin. Hún bar skreytta, rauða ól með rauðu merkisspjaldi er hún hvarf. Misty er ekki gefin fyrir útiveru. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir læðunnar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 694 8225. Flaug inn um glugga DÍSARPÁFAGAUKUR af stærri gerðinni flaug inn um glugga í Dalsbyggð í Garða- bæ mánudaginn 2. júní sl. Gaukurinn er grár að lit. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 893 1205. Tík í óskilum TÍK af gerðinni írskur sett- er er í óskilum á Hundahót- elinu að Leirum. Tíkin er smávaxin, u.þ.b. 10 ára göm- ul og ber rauða ól. Eigandi tíkurinnar er beðinn að vitja hennar hið snarasta. Upp- lýsingar í síma 566 8366 eða 698 4967. Tík fannst á Geirsnefi Smávaxin íslensk tík fannst á Geirsnefi. Hún er ljósbrún á lit. Eigandi er vinsamleg- ast beðinn að vitja hennar strax. Upplýsingar í síma 566 8366 eða 698 4967. Hundahótelið Leirum Tapað/fundið Plastpoki tapaðist í Mjóddinni FÖSTUDAGINN 30. maí sl. varð plastpoki með ljós- grænum kjól, þ.e. hlýrapilsi eða skokki og stuttum jakka með hvítum bryddingum viðskila við eiganda sinn í Mjóddinni. Eigandinn kom gangandi frá Landsbankan- um að Garðheimum og til baka að leið 14. Skilvís finn- andi hafi vinsamlegast sam- band í síma 557 1563. Nanna VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Börn frá leikskólanum Brekkuborg á Arnarhóli við styttu Ingólfs Arnarsonar. LÁRÉTT 1 saltlög, 8 dáin, 9 vægar, 10 tölustafur, 11 arka, 13 blæs kalt, 15 ósoðið, 18 vegurinn, 21 máttur, 22 sjófugl, 23 peningar, 24 afbrotamaður. LÓÐRÉTT 2 standa gegn, 3 kaggi, 4 getnaður, 5 atvinnu- grein, 6 rekald, 7 konur, 12 megna, 14 espa, 15 jó, 16 gróða, 17 spjald, 18 káta, 19 köku, 20 ill kona. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 alveg, 4 þytur, 7 volks, 8 eðlið, 9 tík, 11 karp, 13 fann, 14 ostur, 15 tölt, 17 ágæt, 20 kal, 22 pútan, 23 umber, 24 rænir, 25 draga. Lórétt: 1 atvik, 2 volar, 3 gust, 4 þrek, 5 tolla, 6 rúðan, 10 ístra, 12 pot, 13 frá, 15 tæpur, 16 lotan, 18 gubba, 19 torfa, 20 knýr, 21 lund. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI ætlar sér ekki að full-yrða neitt um hvers vegna hóp- slagsmál brutust út í Hafnarstræti á sunnudagsmorgun enda hefur hann engar forsendur til þess. Það er þó ástæða til að velta því fyrir sér hvort þetta hefði gerst ef varnarliðmenn- irnir sem tókust á við Íslendingana hefðu ekki verið „af vellinum“, ekki verið bandarískir og allir verið hvítir á hörund. Augljóslega skipti kyn- þáttur og uppruni mannanna máli því sjónarvottar hafa m.a. sagt í fjöl- miðlum að þegar lætin hófust hafi ókvæðisorð um blökkumenn ómað um Hafnarstrætið. Það er auðvitað ekkert nýtt að erlendum hermönn- um og Íslendingum lendi saman. Slík átök eru þó enn andstyggilegri þegar lágkúrulegir kynþátta- fordómar spila þar inn í, eins og raunin virðist vera í þessu tilfelli. x x x HNÍFSSTUNGUÁRÁS er aðsjálfsögðu óafsakanleg en því má heldur ekki gleyma að það báru fleiri vopn en árásarmaðurinn. Sjón- arvottur sem hafði samband við Morgunblaðið lýsti því hvernig ungu mennirnir í Hafnarstrætinu bjuggu sig undir átökin með því að fela gler- flöskur fyrir aftan bak, setja lykla inn í hnefa sína og armbandsúr um hnúana. Víkverji verður að við- urkenna að honum óar við þessari lýsingu og telur greinilegt að í hópn- um hafi verið ósvífnir slagsmála- hundar. Hnífaburður er vissulega ólöglegur en það er ekkert síður bannað að beita glerflöskum eða hnúajárnum í átökum. x x x EITT af því sem vakti athygli Vík-verja er að sá sem varð fyrir árásinni er úr Keflavík. (Nú er rétt að ítreka að Víkverji fullyrðir ekkert um ástæður átakanna eða hver átti upptökin.) Það er á hinn bóginn ekk- ert leyndarmál að oft hefur andað köldu milli varnarliðsmanna og ungra manna á Suðurnesjum og man Víkverji eftir mörgum fréttum af átökum þeirra á milli. Þessari „hefð“ hefur raunar verið haldið talsvert á lofti undanfarið í auglýsingum um box sem hafa m.a. birst á Stöð 2. Þar er talað við upprennandi hnefaleika- kappa sem segir eitthvað á þessa leið fyrir eða eftir boxkeppni við Banda- ríkjamenn: að það sé hefð fyrir því að Keflvíkingar berji „Kana“. Þetta hefur hann sjálfsagt sagt í hita leiks- ins og líklega og vonandi ekki meint mikið með þessu. Víkverja finnst hins vegar fráleitt hjá sjónvarps- stöðinni að nota þessi ummæli í aug- lýsingu. Víkverji þykist viss um að ef einhver boxari segði frá því að í hans fjölskyldu væri hefð fyrir því að berja araba eða Pólverja þá þætti Stöð 2 það hreint ekkert fyndið og myndi örugglega ekki nota það í auglýsingu. Á eitthvað annað við um þá Bandaríkjamenn sem starfa fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli? Öllu betri en margir þeir sem voru í Hafnarstræti á sunnudagsmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.