Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 24
MENNTUN 24 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ KONUNGLEGI danski ballettinn sýndi fimm balletta á stóra sviði Þjóðleikhússins þriðjudag og mið- vikudag. Dansflokkurinn heimsótti Ísland síðast fyrir fjórum árum og er honum ávallt vel tekið af áhorfend- um eða eins og einn áhorfandi sagði við mig á sýningunni: „Þetta er allt orðið svo mikið nútíma nú til dags, en maður má til með að sjá smáklas- sík inni á milli.“ Dagskrá kvöldsins var fjölbreytt og góð blanda af klassískum ballett og nútímaballett. Kvöldið hófst með verkinu Appolon eftir danshöfund- inn George Balanchine við tónlist eftir Igor Stravinsky. Balanchine, sem lést árið 1983, kom klassískum ballett í Bandaríkjunum aftur til vegs og virðingar og með honum er sagt að hið nýklassíska tímabil í sögu ballettsins hafi hafist. Balanchine starfaði lengst af með New York City Ballet og samdi 425 verk sem í dag eru dönsuð reglulega af 200 dansflokkum um heim allan. Mörg verka hans eru fyrir löngu orðin klassík í verkefnaskrám leikhúsa um allan heim. Appolon er þar á meðal en það var eitt af fyrstu verkum Bal- anchine, samið á þriðja áratug 20. aldar. Verk Balanchine eru mjög tæknilega krefjandi og reyna til hins ýtrasta á liðleika og styrk dansar- anna. Þau hafa engan boðskap, er einkum ætlað að gleðja augað með fallegum og áhugaverðum hreyfing- um. Þótt verkið Appolon beri merki tíðarandandans eins og til dæmis með látbragði og leikmunum ber það aldurinn furðu vel. Verkið fer frem- ur hægt af stað en þegar kemur að sólóum dansaranna lifnar heldur yfir því. Svo koma tvídansar og fjórdans- ar sem eru hver öðrum betri. Allir dansarar stóðu sig mjög vel. Kenneth Greve var stoð og stytta kvendansaranna og átti auk þess góða spretti þegar hann fékk tæki- færi til að láta ljós sitt skína. Að öðr- um ólöstuðum geislaði af hinni íslen- skættuðu Silju Schandorff. Segja má að hún sé hin týpíska „Balanchine- ballerína“ – tággrönn, liðug og með langa útlimi. Nákvæmni hennar, léttleiki og glaðlyndi skilaði sér sér- staklega vel í verkinu og yljaði um hjartarætur í annars alvörugefnu verki. Balanchine samdi verk til þess að áhorfendur gætu „horft á tónlist- ina og hlustað á dansinn“ og það átti svo sannarlega við hér. Nútímadansverkið Nomade eftir danshöfundinn Tim Rushton við tón- list Arvo Pärt var næst á dag- skránni. Tim Rushton er ungur breskur dansari og danshöfundur, menntaður í Bretlandi undir stjórn meistara eins og Frederic Ashton og Eric Bruhn. Hann hætti að dansa ár- ið 1991 og hóf að semja fyrir bæði nútímadansflokk og klassíska flokka, og starfar nú einkum í Dan- mörku hvar hann stýrir Nyt Dansk Danseteater. Verkið Nomade er samið árið 2000 og er alger andstæða Appolon. Í stað þess að berjast við þyngdarlögmálið og vopnast táskóm líkt og í Appolon er jörðin uppspretta hreyfinga. Hreyfingar dansaranna í Nomade eru mjúkar og flæðandi eins og hvín- andi vindur eða sjór í flæðarmáli. Búningarnir undirstrika þessa til- finningu, eru léttir og mjúkir. Verkið er dansað af pari, þeim Marie-Pierre Greve og Phillip Schmidt auk ónafn- greindra dansara sem birtast stutt- lega í upphafi og enda verksins. Greve og Schmidt eru nokkurs konar andstæður, hún mjúk og fis- létt eins og fjöður, hann sterkur og kröftugur. Hún eins og yfirnáttúrleg lítil vera, hann jarðtengdur raun- veruleikinn. Það er í raun ótrúlegt að þeim skyldi hafa tekist að vera svona ólík þar sem þau dönsuðu nánast sömu hreyfingarnar, en þarna kem- ur túlkunin til sögunnar og sýnir hvað hún getur haft mikil áhrif. Samspil þeirra var með eindæmum gott en það verður að segjast eins og er að Greve skapaði oftar en einu sinni gæsahúð á handleggjum mín- um svo næm og tilfinningarík var túlkun hennar. Það er ekki oft sem dansari hrífur mann með sér líkt og Greve gerði. Túlkun hennar, auk flæðandi og fallegrar kóreógrafíu gerðu Nomade að hápunkti kvölds- ins í mínum huga. Að loknu verkinu Nomade var annað verk eftir Tim Rushton á dag- skrá, að þessu sinni við tónlist eftir Johan Sebastian Bach. Verkið Tripl- ex er dansað af þremur dönsurum og er sérkennileg blanda af klassískum ballett og tilraunakenndum hreyf- ingum. Inni á milli hefðbundinna klassískra spora birtust hreyfingar sem brjóta í bága við hina klassísku hefð – mjöðmum var sveiflað, ristar krepptar og rassar hristir. Þessi sér- kennilega blanda gerði verkið létt og gáskafullt og ýtti túlkun dansaranna undir það, þeir voru brosmildir og kátir. Litríkur bakgrunnur og rauð- ur bolur Diönu Cuni undirstirkuðu léttleika verksins, sem virtist falla áhorfendum sérstaklega vel í geð, þeir fögnuðu mikið að því loknu. Samspil þeirra Cuni, Andrew Bowman og Byron Mildwater var gott en þau eru öll greinilega mjög vel þjálfaðir og hæfileikaríkir dans- arar. Adagietto, tvídans eftir banda- ríska danshöfundinn John Neumeier var næstur á dagskrá. Neumeier er mjög vel þekktur danshöfundur sem stjórnað hefur Hamborgar ballettin- um frá árinu 1979. Hann hefur lagt mikla áherslu á að endurvekja gamla söguballetta eins og Don Quixote og Giselle og er fulltrúi kynslóðar klass- ískra danshöfunda sem komu fram á áttunda áratug síðustu aldar með fjölmargar nýjungar í bland við gamlar hefðir. Verkið Adagietto er eins og nafnið ber með sér, (Adagio er notað yfir hæga kafla í dans- eða tónverki), ró- legt og hugljúft verk. Dansgerðin er klassísk en þó með persónulegu handbragði Neumeiers. Þau Silja Schandorff og Kenneth Greve eru bæði sterkir klassískir dansarar og falleg í hlutverkum sínum. Dagskránni lauk með uppsetningu á 3. þætti Napólí eftir Danann Aug- ust Bournonville. Napólí er einn vin- sælasti ballett Bournonville sem var óskabarn dönsku þjóðarinnar á 19. öld. Bournonville endurreisti Kon- unglega danska ballettinn, samdi fjölmarga balletta sem enn í dag eru dansaðir um allan heim og kom dansflokknum í fremstu röð á heims- vísu. Napólí er dæmigerður rómantísk- ur ballett þar sem ákveðin saga er sögð. Við berum niður í þriðja þætti þar sem Napólíbúar dansa og skemmta sér á torgi borgarinnar. Karlmennirnir fá að láta ljós sitt skína með stökkum og margföldum hringjum og konurnar með háum leggjum og hraðri fótavinnu. Úr verður prýðileg sýning þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum. Reynir að gera betur en sá sem á undan var. Af fagnaðarlátum að dæma var greinilegt að áhorfendur kunnu vel að meta Napólí enda er þar dæmi- gerður klassískur ballett á ferðinni sem er augljóslega það sem áhorf- endur langaði mest að sjá. Það er alltaf gaman að fá jafnframbærilega klassíska dansflokka til landsins og Konunglega danska ballettinn og hann brást ekki væntingum að þessu sinni. Morgunblaðið/Sverrir Af fagnaðarlátum að dæma var greinilegt að áhorfendur kunnu vel að meta Konunglega danska ballettinn. Klassísk ballettheimsókn – frábær skemmtun LISTDANS Þjóðleikhúsið Appolon. Danshöfundur: George Bal- anchine. Tónlist: Igor Stravinsky. Dans- arar: Kenneth Greve, Silja Schandorff, Christina Olsson og Claire Still. Nomade. Danshöfundur: Tim Rushton. Tónlist: Arvo Pärt. Dansarar: Marie- Pierre Greve og Phillip Schmidt. Triplex. Danshöfundur: Tim Rushton. Tónlist: Johan Sebastian Bach. Dansarar: Diana Cuni, Andrew Bowman og Byron Mildwater. Adagietto. Danshöfundur: John Neu- meier. Tónlist: Gustav Mahler. Dansarar: Silja Schandorff og Kenneth Greve. Napólí, 3. þáttur. Danshöfundur: August Bournonville. Tónlist: H.S. Pauli. Dans- arar: Kenneth Greve, Silja Schandorff, Christina Olsson, Claire Still, Maire- Pierre Greve, Diana Cuni, Amy Watson, Phillip Schmidt, Mads Blangstrup, Byron Mildwater, Andrew Bowman og Morten Eggert. Listrænn stjórnandi: Peter Bo Bendixen. Sýningarstjóri. Jørn Melin. Umsjón með búningum: Hans Kofod. Kaupþing Bún- aðarbanki og Danska sendiráðið styrktu heimsókn Konunglega ballettsins. Þriðjudagur 3. júní 2003. KONUNGLEGI DANSKI BALLETTINN Ragna Sara Jónsdóttir Sumarnám- skeið í söng SKRÁNING á söngnámskeið Ing- veldar Ýrar er hafið. M.a. verður boðið uppá söngnámskeið fyrir byrj- endur og lengra komna, þar sem kennd er öndun, líkamsstaða, radd- beiting og sönglög af ýmsu tagi. Einnig eru kennd grunnatriði í tón- heyrn og nótnalestri. Kennt er í hóp- tímum og einkatímum. Á unglinganámskeiðum er kennd raddbeiting söngleikja og gospellög, lög úr Disneymyndum og fleiri al- menn sönglög. Fengnir verða gesta- kennarar til að kenna spuna og fram- komu auk þess sem undirleikari kemur í tímana. Nú hefur nýlega verið stofnaður sönghópur fyrir fólk sem hefur verið í einkatímum eða hefur mikla söng- reynslu og vill halda sér við og auka fjölbreytni í náminu. Unnið er að raddbeitingu, nótnalestur þjálfaður, gerðar spunaæfingar. Æfð eru söng- leikjalög, gospel, sálmar og rödduð einsöngslög. Sönghópurinn er eins- konar blanda af söngnámskeiði og kór, þar sem meðlimir fá einkatíma með. Í sumar verða vikulegir „master- klassar“ fyrir fólk í einsöngsnámi. Þar er ásamt undirleikara unnið með tækni, túlkun, tungumál og leikræn tilþrif. Ingiveldur Ýr hefur heimasíðuna www.songstudio.ehf.is. SÝNING á verkum Jóns E. Gunn- arssonar listmálara eru nú í Sjó- minjasafni Íslands að Vesturgötu 8 Hafnarfirði. Þetta eru eingöngu vatns- litamyndir og tengjast strönd og hafi á einn eða annan hátt. Mynd- irnar eru frá ýmsum stöðum á land- inu, til dæmis Bolungarvík, Borg- arfirði eystra, Hornafirði, Hafnarfirði, Garðskaga, Selatöng- um og Dritvík, auk fjörumynda. Verkin eru unnin á ýmsum tímum. Jón E. Gunnarsson stundaði nám í Handíða- og Myndlistarskólanum 1947-49 undir handleiðslu þeirra Kurt Zier skólastjóra og Kjartans Guðjónssonar myndlistarmanns. Síðustu fjóra áratugi hefur Jón E. Gunnarsson haldið yfir tuttugu einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og er- lendis. Sýningin verður opin til 23. júní, alla daga frá kl. 13-17. Ein vatnslitamynda Jóns E. Gunn- arssonar í Sjóminjasafninu. Vatnslita- myndir í Sjó- minjasafninu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.