Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga www.isb.is flaki›? rennurnar? málninguna? gluggana? klæ›ninguna? hur›irnar? Er kominn tími á ... MIKIÐ verðfall hefur verið á ýsu á innlendum fisk- mörkuðum frá því um áramót. Samkvæmt yfirliti frá Íslandsmarkaði var meðalverð á slægðri ýsu í síðustu viku um 81 króna á hvert kíló, en hæst fór ýsuverðið í tæpar 180 krónur í þriðju viku í janúar. En hefur þessi lækkun skilað sér til neytenda? Eiríkur Auðunn Auðunsson hjá Fiskbúðinni Vör segir að þessi lækkun sé mestmegnis á smáýsu sem vegi rúmlega kíló og fiskbúðirnar eigi afskaplega erfitt með að bjóða upp á, því eftirspurnin sé eftir nýrri línuýsu. „Hún hefur því miður ekki lækkað jafnmikið. Þessi ýsa sem hefur lækkað er ekki í lík- ingu við nýja línuýsu. Þetta er önnur stærð og annar gæðastaðall sem um er að ræða, þar af leið- andi er sá fiskur yfirleitt ódýrari,“ leggur hann áherslu á. Hann segir að verðið geti verið mjög rokkandi og til dæmis hafi það áhrif í hvernig holdum ýsan sé. „Ýsan hefur verið mjög horuð upp á síðkastið og þótt hún hafi verið ódýr á móti þá er mun minni nýting í henni en verið hefur. Það mun- ar kannski 15–20% á nýtingu,“ segir hann. Eiríkur bendir á að vissulega hafi lækkun á mörkuðum mátt skila sér betur til neytenda hjá þeim aðilum sem noti þetta hráefni. Hann undirstrikar hins vegar að það geri ekki margir fisksalar því þeir vilji fá viðskiptavini sína aftur og þá sé ekki hægt að bjóða upp á svona vöru. Að hans sögn er almennt verð á ýsu 150–200 krónur í innkaupum og giskar hann á að flökin séu á um 850 krónur til neytenda. Hann ítrekar þó að erfitt sé að segja til um þetta því fiskurinn geti verið svo misjafn. Meðalverðið segir ekki allt Helgi Helgason, einn eigenda Fiskbúðar Haf- liða, bendir á að meðalverðið segi ekki allt. „Við sendum til dæmis fisk í marga stórmarkaðina og reynum að hafa besta fáanlega hráefnið því það er ákveðin samkeppni í þessu varðandi gæði. Það þýðir ekki að kaupa neinn smáan fisk sem kannski ýtir verðinu niður. Það er tvennt ólíkt að kaupa ýsu sem er 1,8 kíló á þyngd eða ýsu sem er 1,1 kíló á þyngd,“ segir hann. Hann nefnir sem dæmi að á einum degi geti 50 tonn af ýsu verið í boði og hlut- fall smáýsu þar af 60–70%. Þar af leiðandi lækki meðalverðið og svona verðtölur af fiskmörkuðum gefi því ekki alltaf rétta mynd. Edvard Friðjónsson, deildarstjóri í kjötdeild Fjarðarkaupa, telur að verðlækkunin á mörkuðum skili sér ekki til stórmarkaðanna, þar sem þeir kaupi ýsu á sama verði í dag og í ársbyrjun. Hann segir að útsöluverð á ferskum ýsuflökum sé 847 krónur, en kílóverðið á frosinni smáýsu sé 620 krónur. „Það sem fer svona ódýrt á fiskmörkuðum er smáýsan og einhver blanda. Fiskurinn er mjög horaður núna, virkilega ljótur fiskur og það er eflaust verra fyrir fisksalann sem selur okkur fisk- inn að nýta hann.“ Mikil verðlækkun á ýsu á mörkuðum skilar sér ekki í fiskbúðirnar Neytandinn vill ekki smáýsu  Mikil verðlækkun/Úr verinu 1 VERIÐ er að kanna hvort ekki sé möguleiki á að lækka veggjöld í Hval- fjarðargöngum án þess að það bitni á ríkissjóði, að sögn Sturlu Böðvars- sonar samgönguráðherra. Viðræður um hugsanlega lækkun hafa staðið yfir milli samgönguráðu- neytisins og forsvarsmanna Spalar ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng. Sturla segir að vitað sé að umferð um göngin sé miklu meiri en gert hafi verið ráð fyrir í upphaflegum áætl- unum og gengisþróunin hafi verið hagstæð þeim sem hafi tekið lán í dollurum. Talið sé að hægt sé að lækka veggjöldin án þess að ríkis- sjóður komi að málum en niðurstöður liggi væntanlega fyrir innan skamms. Lækkun veggjalda könnuð Hvalfjarðargöng ÍSLENSKA lúterska kirkjan Thing- valla í Eyford í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum brann til kaldra kola á þriðjudag, en hún var 110 ára gömul. „Kirkjan var ekki aðeins þekkt kennileiti heldur einn helsti fjár- sjóður íslenskrar menningararf- leifðar í Norður-Dakóta og því er tjónið mikið fyrir samfélagið,“ segir Curtis Olafson, formaður kirkju- stjórnar og forseti Íslendinga- félagsins í Norður-Dakóta, en kirkjan stóð ein eftir þar sem áður var ís- lenska samfélagið Eyford í Þingvalla- sveit í Pembina-sýslu, um 5 km suður af Mountain í Norður-Dakótaríki. Kirkjusöfnuðurinn í Eyford var stofnaður 1889. Íslendingar byggðu kirkjuna 1892 og 1893 og á nýliðnum árum voru gerðar miklar endurbætur á henni, en eldurinn varð einmitt laus meðan á vinnu við kirkjuna stóð. Söfnuðurinn keypti pípuorgel 1894 og var það enn notað en það og aðrir inn- anstokksmunir urðu eldinum að bráð. „Kirkjan hefur haft mikið að segja hjá mörgum í þessu samfélagi,“ segir Curtis Olafson. „Ég og fjölskylda mín höfum til dæmis tengst henni alla tíð. Ólafur Ólafsson, afi minn, flutti hingað frá Eyjafirði á Íslandi 1883 og tók þátt í því að byggja kirkjuna en Lovísa Guðmundsdóttir, móðir mín, lék á orgelið í meira en 60 ár. Þegar ég kom að var ekki hægt að bjarga neinu og slökkviliðið réð ekki við neitt. Allt brann til kaldra kola.“ Minnismerki um Káin skemmdist lítillega Við hlið kirkjunnar er stórt minnis- merki um skáldið Káin, Kristján Níels Júlíus, sem var upphaflega komið upp 1936 en endurgert 1999. Það skemmdist lítillega, einkum vegna reyks, en Curtis Olafson segir að það eigi að verða eins og nýtt eftir þrif. Hins vegar liggi ekki fyrir hvort ráðist verði í að endurbyggja kirkj- una, en ákvörðun um það verði tekin fljótlega. Upplýsingar um kirkjuna hafa verið á ljósmynda- og sögusýningu, sem Guðmundur Viðarsson og John Ruthford hafa sett upp á Íslandi og vestra, síðast í Edmonton í Kanada á ársþingi Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi í maí. Næst verður hún sett upp í Íslenska þjóðgarðinum í Norður-Dakóta í lok júlí í tengslum við „Íslendingahátíðina“ í Mountain, en í ár eru 125 ár frá landnámi Íslend- inga í Norður-Dakóta. Kirkjan Thingvalla brann til kaldra kola Ljósmynd/Larry Biri.The Walsh County Record í Grafton. Eldurinn breiddist hratt út og allt brann til kaldra kola. Til vinstri er minnismerkið um skáldið Káin. Ljósmynd/Curtis Olafson Íslenska kirkjan Thingvalla í Ey- ford í Norður-Dakóta. Fjársjóður íslenskrar menningararfleifðar AGNARSMÁ gæludýr af krabbaætt sem skyld eru saltvatnsrækjum, svokallaðir sjávarapar, eru „of lítil til þess að faðma að sér en geta veitt þeim sem ekki vilja eyða miklum tíma í umönnun mikla gleði“. Eitthvað á þessa leið hljóðar kynningin á lífverum sem nefnast „Sea Monkeys“ á enskri tungu og landbúnaðarráðuneytið hefur veitt ungu pari leyfi til þess að flytja inn til landsins. Dýrin falla undir skil- greininguna „dauðir fiskar“, enda eru þau ekki beinlínis lifandi á ferð sinni milli landa. Davíð Frank Jensson og Sólveig Valerie Guðjónsdóttir eru rétt rúm- lega tvítug og fengu þá hugdettu að hefja innflutninginn, en meðferð umsóknarinnar tók tvo daga hjá ráðuneytinu, að þeirra sögn. Vísirinn að gæludýrunum er í formi frostþurrkaðra eggja á stærð við sandkorn og fer „lífgun“ þeirra fram í þremur skrefum. Fyrst er að setja vatn í búr. Út í það fer duft sem hreinsar vatnið og látið er bíða í 24 tíma. Því næst er eggjum hellt úr poka í búrið og 24 tímum síðar taka „sjávaraparnir“ á sig mynd. Lífverurnar, sem bæði má flokka sem gæludýr og leikfang, munu vera af ætt krabbadýra og skyldar saltvatnsrækjum, artemia salina. Eggin eru lifandi, þótt dýrin telj- ist til dauðra fiska, og eru geymd í kristöllum sem gera kleifa hina skyndilegu umbreytingu um leið og þau komast í snertingu við vatn. Gæludýraverslanir hafa sýnt inn- flutningi Davíðs og Sólveigar mik- inn áhuga, en auk margvíslegra íláta fylgir lífverunum fóður, bæði vaxtarörvandi og ofurfóður, ban- ananammi, sem þær kváðu vera „brjálaðar í“, lyfjaduft gegn veik- indum og ástarörvameðal sem hraðar fjölgun. Dýrin brjáluð í banana- nammi Morgunblaðið/Sverrir Dýrið sem hér sést er þriggja vikna og getur orðið allt að 2 sentimetrar. Diljá Anna Júlíusdóttir gefur gælu- dýrunum nýstárlegu að borða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.