Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.06.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIKUFERÐ TIL PRAG Í ÁGÚST Borgartúni 34 sími 511 1515 www.gjtravel.is Þann 1. ágúst býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar beint leiguflug með Flugleiðum til hinnar fornfrægu og fögru borgar Prag, höfuðborgar Tékklands. Heimflug til Íslands er síðan þann 9. ágúst. Verð á mann er krónur 73.700 ef gist er á Hotel Pyramida Verð á mann er krónur 82.200 ef gist er á Hotel Bellagio Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, akstur frá og að flugvelli, gisting í tveggja manna herbergi, morgunverður, yfirgripsmikil skoðunarferð um Prag og íslensk fararstjórn. Meðan á dvöl stendur verður boðið upp á ýmsar dagsferðir með íslenskri leiðsögn sem bókast og greiðast hjá fararstjórum. Hotel Pyramida er vel staðsett og vel útbúið fjögurra stjörnu hótel skammt frá kastalahæðinni. Hotel Bellagio er nýtt fjögurra stjörnu hótel skammt frá gyðingahverfinu og gamla bænum. Fararstjórar: Emil Örn Kristjánsson og Pétur Gauti Valgeirsson. Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar. Um hvítasunnuhelgina verða Vil- helmína Lever og Jón Sveinsson í aðalhlutverkum á innbæjarsöfnum á Akureyri. Föstudaginn 6. júní kl. 13.30 er sögugangan Frá kirkju til kirkju ætluð erlendum ferðamönnum, en gengið er frá Akureyrarkirkju að Minjasafnskirkjunni og fer skráning fram hjá Ferðaskrifstofu Akureyr- ar. Laugardaginn 7. júní kl. 15.00 verð- ur leiðsögn um sýningu Minjasafns- ins, Akureyri – bærinn við pollinn, en þar verður kynnt til sögunnar atorkukonan Vilhelmína Lever sem lét til sín taka á Akureyri á 19. öld. Á Hvítasunnudag kl. 10.00 hefst við Minjasafnskirkjuna söguganga á Nonnaslóð á vegum Minjasafnsins og Nonnahúss. Nánari upplýsingar eru veittar á Minjasafninu. Þar er opið alla daga frá kl. 11 - 17. Á NÆSTUNNI EGGJUM var stolið úr um 40mávahreiðrum í friðlandinuí Krossanesborgum nýlega, aðallega frá hettumávi og storm- mávi. Hreiðrin, sem eru við tjörnina nyrst í borgunum, voru hreinsuð en í hverju þeirra voru að jafnaði þrjú egg, að sögn Þorsteins Þorsteins- sonar fuglaáhugamanns. Hann sagði að eggin hefðu verið vel stropuð og því óæt. Þorsteinn sagði þetta mjög bagalegt, því hann og Sverrir Thor- stensen eru að vinna að fuglarann- sóknum á þessu svæði, sem hefur verið friðlýst og er á náttúruminja- skrá. „Við gerðum hér rannsóknir fyrir fimm árum á vegum umhverf- isdeildar Akureyrarbæjar. Nú heyr- ir svæðið undir náttúruvernd- arnefnd og við Sverrir vorum beðnir um að endurtaka rannsóknirnar. Við tökum þá fyrir allar fuglategundir, hvað mikið er af hverri fuglategund og leitum uppi nánast hvert einasta hreiður á svæðinu.“ Fyrir fimm árum voru um 30 fuglategundir á svæðinu en Þor- steinn sagði að tegundum hefði ekki fækkað þrátt fyrir að töluvert hefði fjölgað af stórum mávi í borgunum. Frekar sé að einstökum tegundum hafi fjölgað talsvert, t.d. hrossa- gauki. Þá sagði Þorsteinn að eftir að landið var friðað hafi orðið mikil breyting á gróðurfari svæðisins og tegundum fjölgað mikið. „Þetta er stórkostlegt útivistarsvæði og ég tala nú ekki um þegar það hefur ver- ið gert aðgengilegra.“ Verði náttúrulegt svæði inni í miðri borginni eftir tugi ára Ingimar Eydal, formaður nátt- úruverndarnefndar, sagði að eftir væri að ganga formlega frá samn- ingi við Náttúruvernd ríkisins um að Akureyrarbær taki að sér rekstur svæðisins. Í því felst m.a. að gera göngustíga, bílastæði, setja upp upplýsingaskilti og gefa út fræðslu- efni. Ingimar sagði að ekki væri gert ráð fyrir fjármagni í þær fram- kvæmdir á þessu ári en hann vonast til að hægt verði að byrja á því næsta. Ekki væri ráðgert að planta trjám á svæðinu, heldur að það þró- ist á náttúrlegan hátt. „Þetta er það svæði innan bæj- arlandsins, sem er nánast ósnortið. Það eru þarna minni háttar stríðs- minjar og einn vatnsveituskurður. Svæðið er því alveg einstakt og ég vil sjá þetta sem náttúrulegt svæði inni í miðri borginni eftir nokkra tugi ára, þegar við höfum sameinað sveitarfélögin í firðinum,“ sagði Ingimar. Svæðið er alsett klettaborgum eða stuttum klappaásum og í borgunum er 5–10 milljóna ára basalt en úr því er berggrunnur Akureyrar. Stærstu borgirnar hafa eigin nöfn og einnig stærstu tjarnirnar og í tjörnunum er mikill gróður. Gróðurfar í borgunum er mjög fjölbreytt og þar eru um 200 plöntutegundir. Mýrarnar á svæðinu er þær einu í bæjarlandinu sem eru óskemmdar og mýragróðurinn er sérstaklega fjölbreyttur. Unnið að rannsóknum á fuglalífi í Krossanesborgum, sem nýlega voru friðlýstar Eggjum stolið úr 40 hreiðrum Morgunblaðið/Kristján Hrossagauksungar í lófa Þorsteins Þorsteinssonar fuglaáhugamanns. Þessir fjallhressu menn voru á hlaupum um Krossanesborgirnar í gær og létu sig ekki muna um að fara yfir mýrarnar á hlaupaskónum. Eggjum hefur verið stolið úr hreiðrum í Krossanesborgum undanfarið en svæðið var nýlega friðlýst og er á náttúruminjaskrá. Krist- ján Kristjánsson kynnti sér málið og fór um þetta glæsilega útivistarsvæði framtíðarinnar. krkr@mbl.is Nokkrar andategundir verpa í Krossanesborgum, þ. á m. rauðhöfðaönd. Rjúpan fellur ótrúlega vel að landslaginu og það var ekki hlaupið að því að finna þessa á hreiðri í Krossanesborgum. Þorsteinn Þorsteinsson: „Þetta er stórkostlegt útivistarsvæði og ég tala nú ekki um þegar það hefur verið gert aðgengilegra.“ FYRSTA skemmtiferðaskip sum- arsins, Discovery, kemur til Ak- ureyrar í fyrramálið, kl. 8.30 skv. áætlun. Alls hafa verið boðaðar komur 44 skemmtiferðaskipa í sumar, eða fleiri en nokkru sinni fyrr og reiknað er með að farþegar verði um 23.000. Stærsta skip sum- arsins verður Adonia, sem kemur í lok júlí, en það er um 77.000 brúttótonn og um 260 metra langt. Ef aðstæður leyfa mun skipið leggjast upp að Oddeyrarbryggju og verður því langstærsta skip sem komið hefur upp að bryggju hér á Akureyri. Fyrsta skemmti- ferðaskip sumarsins Undirföt Náttföt Frábært úrval COS Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.